Morgunblaðið - 26.06.1997, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
PIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997 29
kaflinn sem Mahler tók út og það
skýrir kannski þetta frávik,“ segir
Guðmundur Óli. Þriðji kaflinn er
hægur og byggir á stefinu um Meist-
ara Jakob nema hér er hann í moll.
„Þetta er útfærður keðjusöngur og
er einhverskonar dauðamars, en þó
nefnir hann kaflann „Commedia
Humana“ og í einu þunglyndislegu
stefi hans má heyra líkingu af því
þegar þorpslúðrasveit gengur fram-
hjá með vaxandi styrkleika, nær
hámarki og deyfist síðan niður eftir
því sem fjær dregur. Fjórði kaflinn
táknar síðan beina leið til heljar og
sinfóníunni lýkur með miklum
krafti", segir Guðmundur Óli. Hann
segir að með samsetningu tveggja
hljómsveita sé þó ekki verið að sækj-
ast eftir meiri hávaða heldur meiri
dýpt og lit. „Með svona stórri hljóm-
sveit fáum við meiri fyllingu í tón-
inn,“ segir hann.
Nú víkur sögunni að einleik-
ara kvöldsins en hann
heitir Richard Simm.
Hann fæddist á Englandi
og flutti til íslands fyrir átta árum.
Hann hefur stundað tónlistarkennslu
fyrir norðan auk þess sem hann
hefur leikið á tónleikum víða um
heim og hljóðritað píanóverk við
góðan orðstír. Hann segir að honum
hafi fyrst þótt hundrað manna
hljómsveitin svo yfiþyrmandi að eitt
píanó hafi mátt sín lítils gegn ofur-
eflinu. „Ég hélt að ég þyrfti magn-
ara,“ segir hann og hlær, en bætir
því við að þeir sem fylgdust með
æfingum hafi tjáð sér að ailt skilaði
sér með ágætum. „Maður þarf þó
að hafa almennilegan konsertflygil
og flygillinn hérna á sviðinu stendur
vel undir nafni.“ Richard segir að
þótt píanókonsert kvöldsins sé í há-
rómantískum anda sé hann laus við
alla væmni. „Þessi konsert markar
líka að vissu leyti upphaf nýs tíma-
bils hjá Rachmaninoff því hann hafði
verið þunglyndur vegna efasemda
um sitt eigið ágæti. Það er bjartsýn-
istónn í þessum konsert, enda hafði
hann öðlast tiltrú á sjálfum sér á
nýjan leik með hjálp sálfræðingsins
Dr. Dahl,“ segir Richard. „Það verð-
ur að segjast að tónlist Rachmanin-
offs var nokkuð gamaldags en frá
og með þessum konsert truflaði til-
hugsunin um vinsældir á kostnað
frumleika hann ekki. Hann fann sinn
tón og lét ekki samtíðina trufla sig.
Það er vel hugsanlegt að sálfræði-
meðferðin hafi haft þessi áhrif,"
segir Richard að endingu.
Tónleikarnir hefjast í Háskólabíói
kl. 20 i kvöld og_á Akureyri verða
þeir endurteknir í íþróttaskemmunni
laugardaginn 28. júní kl. 17.
Síðustu sýning-
ar leikárs Þjóð-
leikhússins
TVÆR sýningar eru eftir í sumar á
söngleiknum Fiðlaranum á þakinu
sem sýndur hefur verið á Stóra sviði
Þjóðleikhússins frá miðjum apríl og
fengið góðar viðtökur gagnrýnenda
og áhorfenda, segir í kynningu.
Það er Jóhann Sigurðarson sem
leikur aðalhlutverkið, mjólkurpóst-
inn Tevje, og Edda Heiðrún Back-
man leikur eiginkonu hans. Með
önnur hlutverk fara Sigrún Edda
Björnsdóttir, Steinunn Olína Þor-
steinsdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir,
Aníta Briem, Álfrún H. Örnólfsdótt-
ir, Margrét Guðmundsdóttir, Bergur
Þór Ingólfsson, Arnar Jónsson, Sig-
urður Siguijónsson, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, Örn Árnason, Valur
Freyr Einarsson, Hjálmar Hjálmars-
son, Stefán Jónsson, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Magnús Ragnars-
son, Anna Kristín Arngrímsdóttir,
Sveinn Þ. Geirsson, Jóhann G. Jó-
hannsson, Sigríður Þorvaldsdóttir,
Hany Hadaya, Hjálmar Sverrisson
og Gylfi Þ. Gíslason.
Sex manna hljómsveit leikur í
sýningunni undir stjórn Jóhanns G.
Jóhannssonar. Leikstjóri er Kolbrún
Halldórsdóttir.
Síðustu sýningar leikársins eru
föstudags- og laugardagskvöld.
Lars - Henrik Olsen hlýtur
Norrænu bamabókaverðlaunin
NORRÆNU barnabókaverðlaunin
1997 komu að þessu sinni í hlut
danska rithöfundarins Lars-Henrik
Olsen.
Það eru samtök norrænna skóla-
safnskennara (Nordisk skolebiblio-
tekarforening) sem standa að verð-
laununum og hafa þau verið veitt
árlega síðan 1985. Arið 1992 hlaut
Guðrún Helgadóttir verðlaunin.
Framlag íslands til norrænu barna-
bókaverðlaunanna nú var bók Vig-
dísar Grímsdóttur, Gauti vinur
minn. Aðrir rithöfundar sem voru
tilnefndir eru: Unni Lindell og Klaus
Hagerup frá Nor-
egi, Bisse Falk frá
Svíþjóð, Bent
Haller frá Dan-
mörku, Veronica
Leo frá Finnlandi
og Jógvan Isaksen
frá Færeyjum.
í kynningu seg-
ir að Lars-Henrik
Olsen sé mikill
sagnamaður. Söguefni hans sé lífið
sjálft, ást og hatur, hamingja og
söknuður, trúnaður og svik. Sögu-
persónur hans eru ýmist æsir og
jötnar sem eiga í stöðugri baráttu,
nútímadrengur sem kynnist lífinu í
Ásgarði fyrir tilstuðlan Þórs, al-
þýðufólk fyrir þúsund árum eða
klausturstúlkur og dvergur við refil-
saum í Normandí.
Tvær bóka höfundarins hafa ver-
ið þýddar á íslensku, Erik Menn-
eskeson (Ferð Eiríks til Ásgarðs)
og Kampen om sværdet (Ferð Ei-
ríks til Jötunheima) í þýðingu Guð-
laugar Richter.
Fulltrúi Félags skólasafnskenn-
ara í dómnefndinni var Fríða S.
Haraldsdóttir skólasafnskennari.
Lands-
bankakór-
inn syngur í
Jónshúsi
LANDSBANKAKÓRINN
heldur í söngferð til Kaup-
mannahafnar og Uddevalla í
Svíþjóð asamt sjö öðrum kór-
um frá íslandi á vegum Tónal
og stendur ferðin 28. júní til
7. júlí nk. Landsbankakórinn
mun syngja í Jónshúsi í Kaup-
mannahöfn sunnudaginn 29.
júní kl. 16. Söngstjóri er Guð-
laugur Viktorsson.
Lars-Henrik
Olsen
FÖT FYRIR ÚTIVISTINA, LÍKAMSRÆKTINA OG BARA OKKUR HIN
Opnumí dag
og betri verslun
qugqvegS 51
á 2 hæðum
Brussell
ATHLETIC
4fcColumbia
" Sportswear Company*
HREYSTI
Laugavegi 51 - S. 551-7717
Ath. Opnunartilboð einnig í Skeifunni 19 og Fosshálsi 1
Vandadar
Vandadir
stuttermabolir
peysur
kr. 1.690.-
kr. 2.990.-
Bamapeysur 3-12 ára kr. 1.250.-
2 stk. kr.2.200.-
100% bómull
1 stk. kr. 890.-
2 stk. kr. 1.490.-
Barnabolir 3-12 ára kr. 550.-
2 stk. kr. 990.-