Morgunblaðið - 26.06.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26.JÚNÍ1997 45
stofnunarinnar. Þar átti starfssvið
hennar að breytast nokkuð og var
henni falið að hafa umsjón með
gagna- og skjalasafni rannsókna-
sviðsins. Sá starfi varð þó skemmri
en að var stefnt; skammt var liðið
af þessu ári þegar hún tók að kenna
þes^ meins sem nú hefur dregið
hana til dauða um aldur fram. Aðal-
heiður gegndi starfi sínu af mikilli
alúð og natni, m.a. við ritun og frá-
gang á innanhússblaði stofnunar-
innar sem kemur út vikulega megn-
ið af árinu.
Kynni okkar Aðalheiðar og und-
irritaðs voru ekki löng, þar sem ég
hóf störf á Orkustofnun sl. haust.
En þegar við fyrstu komu mína á
stofnunina, sem nýr yfirmaður
hennar, veitti ég Aðalheiði sérstaka
athygli. Svipmót hennar og fas allt
lýsti í senn hógværð og góðlyndi
og skynjaði ég mig boðinn velkom-
inn tii starfa sem af móðurlegri
umhyggju væri. Þessi fyrstu kynni
áttu eftir að staðfestast. í samskipt-
um í starfi sýndi Aðalheiður ávallt
sama hlýja viðmótið, auðfús að
vinna þau verk sem henni voru falin.
Við á Orkustofnun vildum sjá
Aðalheiði að störfum með okkur þar
tii hún hefði sjálf kosið að fara að
njóta næðis að loknu ævistarfí. En
kallið kom fyrr og því skilja nú leið-
ir. Við söknum sárt trausts starfs-
manns en ekki síður hugljúfs félaga
og minnumst hennar með hlýju og
þakklæti.
Fyrir hönd Orkustofnunar sendi
ég eiginmanni hennar, afkomendum
og öðrum ástvinum dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Þorkell Helgason
orkumálastjóri.
Nú er sál þín rós
i róságarði Guðs
kysst af englum
döggvuð af bænum
þeirra sem þú elskaðir
aldrei framar mun þessi rós
blikna að hausti
(Ragnheiður Pála Ófeigsdóttir)
Á Orkustofnun ríkir söknuður
vegna fráfalls Aðalheiðar. Hún hafði
verið frá vinnu nokkra mánuði og
við vissum að hún glímdi við erfíðan
sjúkdóm. Hún kom á starfsmanna-
fund 22. maí og við glöddumst yfir
því að hún virtist vera á góðum
batavegi. Við vorum grunlaus um
að þetta væri kveðjustundin, en
skömmu síðar fékk hún annað sjúk-
dómsáfall og lést af völdum þess.
Aðalheiður hóf störf á Orkustofn-
un haustið 1981. Frá fyrsta degi
ávann hún sér traust og virðingu
okkar hinna. Framkoma hennar var
hlý og traust og gott var að eiga
hana að vini. Hún var ávailt reiðu-
búin að aðstoða og rétta fram hjálp-
arhönd ef með þurfti. Hún vann
ötullega að málefnum starfsmanna
sem trúnaðarmaður BSRB árin
1988-1995 og var ritari OSSA, inn-
anhússblaðs starfsmanna frá 1989
og þar tii hún varð frá að hverfa
vegna veikinda.
Horfinn er á braut góður félagi,
sem skilur eftir sig ljúfar minning-
ar. Við kveðjum Aðalheiði með sökn-
uði og þökkum samfylgdina um leið
og við sendum Hauki, börnum þeirra
og öðrum ástvinum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Samstarfsmenn á
Orkustofnun.
• Fleirí minningargreinar um
Aðalheiði Jóhannesdóttur bíða
birtingar ogmunu birtast í blað-
inu næstu daga.
MINNINGAR
INGIBJÖRG
ÞORSTEINSDÓTTIR
+ Ingibjörg Þor-
steinsdóttir
fæddist á Kálfatjörn
á Vatnsleysuströnd
16. júní 1910. Hún
lést í Hafnarfirði 18.
júní siðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Natalie Vil-
helmine Rosalinde
Jörgensen, síðar
Árnason, f. 30.7.
1883, d. 7.1. 1961,
og Þorsteinn Árna-
son, f. 24.10. 1884,
d. 22.5. 1946. Systir
Ingibjargar var
Karoline Helene, f. 7.7. 1914,
d. 7.5. 1925.
Eiginmaður Ingibjargar var
Sigvaldi Sigurbergur Svein-
björnsson, skipstjóri, f. 1.1.
1904, d. 2.3. 1974. Börn þeirra:
1) íris Sigurberg, ljósmyndari
í Hafnarfirði, f. 17.4. 1932,
maki Olgeir Jónatan Þórarinn
Friðgeirsson. 2) Þorsteinn Sig-
urberg, stýrimaður og síðar
starfsmaður Veðurstofu Is-
lands, f. 1.7.1935, maki Guðleif
Jóhannesdóttir, þau eiga fjögur
börn. 3) Sveinbjörn Sigurberg,
f. 28.3. 1942, d. 21.4. 1960. 4)
Árni Ingi Sigurberg, verslunar-
maður, f. 8.1.1947, maki Sigríð-
ur Tómasdóttir, þau eiga tvö
börn.
Utför Ingibjargar fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Horfin er á braut ein
litríkasta félagskona
SVDK Hraunprýði,
Ingibjörg Þorsteins-
dóttir. Hún flutti ung
til Hafnarfjarðar og
gekk strax í deildina
og starfaði af miklum
áhuga í áratugi.
Hún var formaður
basarnefndar í um 45
ár og vann einnig við
merkjasöluna. Þeir
muna hana áreiðanlega
starfsmenn í Straums-
vík, en þar mætti hún
11. maí ár hvert með
merki SVFÍ. Hún var aðaldriffjöðrin
á kvöldvökunum, sem eldri Hafnfirð-
ingar muna er Hraunprýðikonur
fylltu Bæjarbíó jafnvel tvö kvöld í
röð, enda var það ein aðalskemmtun-
in í bænum.
Ingibjörg fór nokkrum sinnum á
landþing SVFÍ. Þar lá hún ekki á
skoðunum sínum frekar en á fundum
deildarinnar. Tilkynningaskyldan var
hennar hjartans mál enda gift sjó-
manni og þekkti því vel til.
Ingibjörg átti mestan þátt í að
píanó var keypt \ hús deildarinnar í
Hjallahrauni 9. í tilefni af sjötugs-
afmæli sínu stofnaði hún sjóð til
kaupa á píanói.
Við þökkum fyrir að hafa fengið
að njóta starfskrafta Ingibjargar um
áratuga skeið í þágu deildarinnar og
nú kveðjum við einn af okkar góðu
heiðursfélögum. Við vottum aðstand-
endum hennar samúð okkar.
Kveðja,
Hraunprýði.
+
Minningarathöfn um elskulega móðursystur
mína,
SOFFÍU TÚBALS,
Njálsgötu 39b,
Reykjavík,
fer fram í Hallgrímskirkju föstudaginn 27. júní
kl. 13.30.
Útförin fer fram frá Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð
laugardaginn 28. júní kl. 14.30.
Jarðsett verður í heimagrafreit í Múlakoti.
Guðbjörg Hjörleifsdóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
GUÐMUNDUR SVAFAR GUÐJÓNSSON,
Lækjargötu 10,
Hvammstanga,
verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju föstudaginn 27. júní
kl. 14.00.
Gunnhildur Vigdís Þorsteinsdóttir,
Ingimar S. Guðmundsson, Elínbjörg Kristjánsdóttir,
Gunnar Þ. Guðmundsson, Kristín Einarsdóttir,
Guðrún Þ. Guðmundsdóttir, Árni B. Ingvarsson,
Kristín H. Guðmundsdóttir, Birgir Æ. Einarsson,
Garðar Þ. Guðmundsson, Róberta Gunnþórsdóttir,
Edda H. Guðmundsdóttir, Davíð Kristinsson,
Inga M. Guðmundsdóttir,
Anna M. Guðmundsdóttir, Þór Oddsson,
Davíð E. Guðmundsson, Auður S. Jónsdóttir
og barnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNA ERLINGSDÓTTIR,
er andaðist föstudaginn 20. júní, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavik föstu-
daginn 27. júni kl. 10.30.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli fyrir mjög góða umönnum á
liðnum árum.
Helga Stefánsdóttir,
Stella Stefánsdóttir,
Guðmundur Stefánsson,
Erlingur Stefánsson,
Albert Stefánsson,
Friðgeir Gunnarsson,
Aðalsteinn Þorbergsson,
Valborg Björgvinsdóttir,
Eria Ottósdóttir,
Vigdís Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðurbróðir minn,
ÞÓRÐUR KRISTLEIFSSON
menntaskólakennari,
lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 24. júní.
Þorsteinn Þorsteinsson.
+
Bróðir okkar,
JÓN ÞORSTEINSSON
frá Giljahlíð,
verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju laugar-
daginn 28. júní kl. 14.00.
Rútuferð verður frá BSÍ kl. 11.00 f.h. og 13.00
frá Borgarnesi.
Sigríður Þorsteinsdóttir,
Dýrunn Þorsteinsdóttir,
Gísli Þorsteinsson.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
LOFTUR SIGURÐUR LOFTSSON,
Breiðanesi,
sem lést miðvikudaginn 18. júní sl., verður
jarðsunginn frá Stóra- Núpskirkju laugarda-
ginn 28. júní kl. 14.00.
Kristjana Bjarnadóttir,
Sesselja Loftsdóttir,
Gunnhildur Loftsdóttir, Björn Árnason,
Helga Guðrún Loftsdóttir,
Hrafnhildur Loftsdóttir, Ingvar Bjarnason,
Loftur Sigurður Loftsson
og barnabörn.
+
Móðir okkar, amma, langamma, tengdamóðir
og systir,
MARGRÉT EGGERTSDÓTTIR,
Kleppsvegi 20,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum 17. iúní, sl. verð-
ur jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn
27. júní, kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
íris Eggertsdóttir,
Hjördís B. Sigurðardóttir, Sigtryggur Mariusson,
Helgi Sigurðsson,
Grétar Sigurðsson, Jóna B. Pálsdóttir,
Jónas Sigurðsson,
Svanhvít Albertsdóttir,
Borghildur Thors,
Marel Einarsson.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
INGÓLFUR HELGASON,
dvalarheimilinu,
Höfða,
veður jarðsunginn frá Akraneskirkju, föstu-
daginn 27. júní, kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á
Sjúkrahús Akraness eða dvalarheimilið Höfða.
Hjörtur Ágúst Magnússon, Jóna Margrét Sigurðardóttir,
Helgi Ingólfsson, Sigríður Gróa Kristjánsdóttir,
Maggi Guðjón Ingólfsson, Sigrún Valgarðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför föður míns, tengdaföður, afa og bróður,
JÓNS EINARS EINARSSONAR.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður H. Jónsson.