Morgunblaðið - 26.06.1997, Síða 64

Morgunblaðið - 26.06.1997, Síða 64
* <Ö> AS/400 er... ...med PowerPC 64 bita örgjörva og stýrikerfi OPIN KERFIHF msa byltinqarkennd fistölva MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 26. JUNI1997 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK Mannbjörg * þegar trilla sökk úti af Hellissandi MAÐUR bjargaðist þegar trilla sem hann var á, Hvítá MB2, sökk um 20 sjómílur norður af Hell- issandi um kvöldmatarleytið í gær. Að sögn lögreglunnar á Olafsvík var manninum, sem var einn um —í borð, bjargað yfir í Örkina frá Sauðárkróki og þaðan yfir í Darra sem var á leiðinni til Rifs, en mað- urinn er þaðan. Orsök óhappsins ókunn Nærstöddum bátum tókst að koma spotta í Hvítá þar sem bátur- inn maraði í kafi og tók Steinunn SH hana í tog til hafnar á Ólafsvík. Kaldi var á þeim slóðum þar sem óhappið varð en með kvöldinu hægði veður aftur. Að sögn lög- reglunnar er ekki vitað um orsök þess að trillan sökk. Rannsaka á aflatölur norskra loðnuskipa ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram fari opinber rannsókn á þeim mismun, sem fram hefur komið á aflamagni í tilkynnt- um tölum og lönduðum tölum hjá norskum loðnuskipum á síðustu vertíð. Um er að ræða mismun upp á um 25.000 tonn. Akvörðun þessi var tekin á fundi norskra og íslenzkra embættismanna í Reykjavík í gær, en tímasetning rannsókn- arinnar hefur ekki verið ákveð- in. Gera ekki athugasemdir við reglugerðina Norðmenn gera ekki sérstak- ar athugasemdir við nýja reglugerð um loðnuveiðar er- lendra skipa innan íslenzku __ sögsögunnar. Fulltrúi norska utanríkisráðuneytisins segir hana sambærilega þeim regl- um, sem gildi um veiðar af þessu tagi innan lögsögu Nor- egs. Lausn Smugudeilunnar var ekki rædd á fundinum, þó mál- ið bæri þar á góma. ■ Opinber rannsókn/24 Frelsi í áætlunarflugi 1. júlí Fjárfest í nýjum vélum og búnaði Sting skemmti þúsundum TALIÐ er að á fimmta þúsund manns, á öllum aldri, hafi fylgst með tónlcikum breska tónlistar- mannsins Sting í Laugardalshöll- inni í gærkvöldi og fór tónleika- haldið vel fram. Tónlistarmaðurinn tók með sér mikinn og flókinn sviðsbúnað til landsins vegna tónleikanna; há- talarakerfi fyrir hljómsveitina, tölvuvæddan Ijósabúnað og fleira. Búnaðurinn var fluttur til landsins með rússneskri flutn- ingavél og var hann settur upp í gærdag. Sting heldur heim á leið í dag, en fyrir tónleikara í gær sagði hann við blaðamenn að honum þætti landið fallegt og að hann hefði áhuga á því að koma ein- hvern tíma aftur og þá vildi hann gjarna taka fjölskyldu sína með. FLUGFÉLAG íslands og íslands- flug búa sig undir frjálsræði í innan- landsflugi sem ríkja á hérlendis frá 1. júlí nk. íslandsflug hefur stækkað flugflota sinn og fjárfest fyrir um 20 milljónir kr. í búnaði og aðstöðu og Flugfélag íslands fær um helgina þriðju Fairchild Metro vél sína. Innlendir sem erlendir aðilar með flugi-ekstrarleyfi geta frá 1. júlí stundað áætlunarflug milli þeirra staða sem þau telja fýsilegt. Fjöldi farþega í innanlandsflugi hefur far- ið vaxandi síðustu ár og var í fyrra um 350 þúsund farþegar. Flugfélag íslands, sem stofnað var með sameiningu Flugleiða inn- anlands og Flugfélags Norðurlands, flýgur til 14 staða út frá Reykjavík og Akureyri, alls um 380 ferðir vikulega. Flugleiðir innanlands fluttu í fyrra tæplega 300 þús. far- þega innanlands. Islandsflug er um þessar mundir að reisa nýtt hús fyrir afgreiðslu sína á Reykjavíkurflugvelli og verður það tekið í notkun á þriðjudag. Hefur fé- lagið með því og öðrum tækjum og búnaði fjárfest fyrir um 20 milljónir króna. Er þá ótalin fjárfesting i nýju ATR-vélinni sem kom til landsins fyrir rúmum mánuði. Félagið flutti um 35 þúsund farþega í innanlands- flugi í fýrra. Hjá sumum minni félaganna er til skoðunar hvort taka á upp áætlun- arflug. Má sem dæmi nefna að Mýflug á Mývatni byrjar á þriðju- daginn reglubundið leiguflug milli Mývatns og Hafnar í Hoi-nafirði. ■ Frelsi í áætlunarflugi/32 STEGGUR rauðhöfðaand- ar. Myndin er tekin úr bók- inni Fuglum á íslandi og öðrum eyjum í Norður Atl- antshafi. Ottast unga- dauða við Mývatn SÉRFRÆÐINGAR óttast ungadauða hjá vissum anda- tegundum við Mývatn í sumar, m.a. rauðhöfðaönd, vegna þess að stofn litlu toppflugu, sem er ein af mörgum tegundum ryk- mýs, hefur hrunið, en fuglamir treysta á hana sem fæðuupp- sprettu til að lifa af. Að sögn Ama Einarssonar, forstöðumanns Náttúmrann- sóknarstöðvarinnar á Mývatni, hófst undanhald litlu toppflugu í fyrra og verður hrunið nú því ekki að hans mati rakið til kulda í vor þó þeir geti spilað inn í hve brátt það ber að. Mikill ungadauði fyrirsjáanlegur “Við þekkjum þessar sveifl- ur, 1989 datt t.d. mikilvægur hlekkur út úr fæðumynstri húsandar með þeim afleiðing- um að það komust aðeins tveir ungar á legg. Rauðhöfðaung- arnir reyna að bjarga sér á bit- mýi sem mikið er af, en þegar toppflugan hverfur þá vantar gífurlegan massa í fæðukeðj- una. Það er því mikill unga- dauði fyrirsjáanlegur.“ Arni bætti við að fleiri end- ur liðu fyrir stofnhrun litlu toppflugu, ungar fleiri teg- unda nærðust á henni t.d. stokkönd. Mikill ungadauði/8 Grandi leggur einu skipi og segir upp 30 manns GRANDI hf. hefur ákveðið að hætta útgerð eins af þremur ísfisk- togurum fyrirtækisins og mun því sjómönnum fækka um 15 til 20. Auk þess verður sagt upp 10 til 15 starfsmönnum í landi vegna skipu- lagsbreytinga í sumar. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda, segir þessar aðgerðir óhjákvæmilegar til að bregðast við minnkandi afla- heimildum sem nú sé hægt að ná með fimm skipum í stað sex áður. Aflaheimildir Granda hf. eru nú um 25 þúsund tonn en fyrirtækið hefur lagt kapp á að byggja upp veiðireynslu á úthafinu undanfarin ár. „Með því að aflamark hefur ver- ið sett á úthafskarfa þarf færri skip til veiðanna og ufsakvóti okkar minnkaði um 40% eða 1.800 tonn. Þetta þýðir að nú munum við sækja stíft með þremur frystitogurum fyi'- irtækisins og tveimur ísfisktogurum til að ná sem mestri hagkvæmni,“ segir Brynjólfur Bjarnason. Af aflaheimildum Granda eru um 43% í karfa innan landhelginnar eða um 11 þúsund tonn og 8.500 tonn í úthafskarfa eða 33% af heimildun- um. Þessi kvóti er óbreyttur á næsta ári og segir Brynjólfur aukn- ingu í þorskkvóta hafa lítið vægi í aflaheimildum fyrirtækisins. Auk þess sem aflaheimildir hafa minnk- að hefur einnig dregið úr þörf fyrir skipakost eftir að siglingar með óunninn afla á erlendan markað hafa verið lagðar niður. Ein áhöfn úr tveimur Uppsögnum sjómanna verður þannig háttað að sagt verður upp áhöfnum á Ottó N. Þorlákssyni og Jóni Baldvinssyni og ráðin ein áhöfn úr þeirra hópi á Ottó N. Þor- láksson. Segir forstjóri Granda það gert til að skipstjóri geti valið úr báðum áhöfnum. Jón Baldvinsson verður settur á söluskrá. Með fækkun skipa þarf að laga þann hluta starfsemi Granda, sem snýr að skipaþjónustu, að breyttum aðstæðum og þarf að segja upp 10 til 15 starfsmönnum í landi. Tækni- svið verður lagt niður og verkefni þess flutt til annarra deilda og ein- hver verkefni verða boðin út. Búið er að tilkynna starfsmönnum um uppsagnirnar. Brynjólfur segist bjartsýnn á að afkoma Granda verði sæmileg á ár- inu enda séu aflaheimildir miklar og fjárhagsstaðan sterk. „Þetta er fyrst og fremst aðlögun að breytt- um aðstæðum eins og hefur þurft að gera óhemju mikið í sjávarút- vegi sem verður að vera sveigjan- legur. í þessu tilviki þarf að taka skipakostinn til endurskoðunar og eins og við greindum frá á aðal- fundi verður lögð meiri áhersla á vinnslu í landi úr afurðum frysti- skipanna og því er mikilvægt að þau hafi góðan kvóta." Isfisktogararnir Ottó N. Þorláks- son og Ásbjörn munu sjá frystihúsi Granda í Norðurgarði fyrir hráefni. Frystiskipin eru Þerney, Örfirisey og Snorri Sturluson og verður hluti af framleiðslu þeirra fullunninn í landi. Starfsmenn Granda eftir að uppsagnirnar koma til á næstu þremur til fjórum mánuðum verða tæplega 400.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.