Morgunblaðið - 04.07.1997, Blaðsíða 3
ARGUS & ÖRKIN /SlA SA010
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997 3
Skál íyrir grœnmeti
íull aí girnilegri hollustu
og léttleika í sumar
Ef þú kannt að búa til klaka, geturðu gert grænmetissalat. Hráefnið
er ferskt íslenskt grænmeti; tómatar, gúrkur, paprikur, laukar, sveppir,
margvíslegt kál og ýmislegt fleira úr grænmetisdeildinni. Svo má
bæta hinu og þessu við til að gera máltíðina enn ríkulegri, eins og
þurrkuðum beikonbitum, skinkubitum, ostbitum, eggjum og ýmsu
snakki - allt eftir smekk.
Salatsósan eða oJían gerir svo útslagið og enn eru það smekksatriðin
sem ráða ferðinni. Góðar salatsósur fást í miklu úrvali í verslunum
en aðferðin við þær heimalöguðu byggist á samspili, vandaðrar
matarolíu, ediks og ýmissa kryddtegunda. Svo hefst smökkun sósunnar
og þá bæta sælkerarnir oft við einhverju, sem þeir telja að geri
útslagið, líkt og sterku sinnepi og hvítlauksolíu.
Einfalt og gott grænmetissalat frískar upp á máltíðina og lífgar uppá
tilveruna í ferðalaginu eða í garðinum á sólardegi.
Áttu skál?
ÍSLENSK GARÐYRKJA
£aLLu/ ]pÁ/V EíÁct/ •LqJL