Morgunblaðið - 04.07.1997, Side 21

Morgunblaðið - 04.07.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997 21 ST/EKKANIEGUR I ÞRJÁRÁTTIR VIÐSKIPTI STET gengur 1 bandalag með A T&T Amsterdam. Reuter. RISARNIR STET/Telecom á ítal- íu og AT&T í Bandaríkjunum hafa bundið enda á vangaveltur fjöl- miðla með tilkynningu um myndun alþjóðlegs fjarskiptabandalags með áherzlu á Rómönsku-Ameríku og Evrópu. í Evrópu mun STET/Telecom Italia gerast aðili að fjarskipta- og sameignarfyrirtækinu AT&T- Unisource og eiga kauprétt á allt að 30% í AT&T-Unisource. Unisource er sameignarfyrir- tæki PTT í Hollandi, Telia í Sví- þjóð, og Telecom PTT í Sviss og á sem stendur 60% í hinu samevr- ópska fjarskiptafyrirtæki AT&T- Unisource, en AT&T á 40%. AT&T-Unisource býður fjar- skiptaþjónustu sína fyrirtækjum í Evrópu og víða um heim vegna aðildar að samtökunum World- Partners Association. Að World- Partners standa 16 fjarskiptaþjón- ustur og dreifingaraðilar í yfir 30 löndum. STET/Telecom Italia hyggst bjóða upp á þjónustu AT&T- Unisource á Ítalíu. í staðinn mun ítalski aðilinn færa starfsemi sam- bærilegrar gagna- og fjarskipta- deildar sinnar, Telemedia Intern- ational (TMI), til AT&T-Uniso- urce. í Rómönsku-Ameríku munu STET/Telecom Italia og AT&T mynda 50%-50% sameignarfyrir- tæki, sem mun veita alþjóðlega þjónustu. Einkavæðing í haust Forstjóri AT&T Corp sagði að of snemmt væri að tala um líkur á að bandaríska fyrirtækið keypti hlut í STET, sem ítalir ætla að einkavæða í haust. Samkvæmt reglum STET er gert ráð fyrir að einkaaðilar eigi 3% hlut, en geti átt 5% að fengnu samþykki ítalska fjármálaráðu- neytisins. Þegar forstjórinn var að því spurður hvort AT&T vildi hlut í STET sagði hann að mestu varð- aði að AT&T hefði komið á fót sterku bandalagi, sem fullnægði óskum viðskiptavina. Mikið hefur verið bollalagt um bandalag STET/Telecom Italia, AT&T og Unisource síðan Tele- fonica á Spáni var beðið að hverfa úr Unisource í apríl þegar spænska fyrirtækið hafði stofnað til banda- lags með keppinaut AT&T, Conc- ert, sameignarfélagi British Telecom og MCI Communications. Skref Telefonica vakti spurn- ingar um hæfni AT&T-Unisource til að keppa á heimsgrundvelli við Concert og Global One, fyrirtæki Sprint Corp , France Telecom og Deutsche Telekom. 11 milljarða dollara samruni Lockheed og Northrop Grumman Bethesda, Maryland. Reuter. LOCKHEED MARTIN ætlar að kaupa Northrop Grumman með samningi, sem er metinn á 11,6 milljarða dollara, og þar með hefur verið stigið enn eitt sameiningar- skref í bandarískum flugiðnaði. Fyrirtæki kalla samninginn sam- runa, sem muni gera Lockheed Martin að eina keppinauti Boeing risafyritækisins, sem ætlar að kaupa McDonnell Douglas. Með samningi Lockheed-Northrop verður komið á fót fyrirtæki með árlega sölu upp á um 37 milljarða dollara samkvæmt útreikningum á afkomunni 1997 og um 230.000 starfsmenn víða um heim Forystumenn Lockheed og Nort- hrop segja að samruninn muni treysta stöðu fyrirtækjanna í heimi harðnandi samkeppni. Stjórnarfor- maður Lockheed, Norman August- ine, verður yfirmaður nýja fyrirtæk- isins. Stjórnarformaður Northrop, Kent Kresa, verður varastjórnar- formaður hins sameinaða fyrirtækis. Samkvæmt samningnum fá hlut- hafar Northrop 1,1923 hlutabréf í Lockheed fyrir hvert eitt hlutabréf ÁRSFUNDUR Lífeyrissjóðs Vest- firðinga á laugardag samþykkti að hækka stigainneign allra sjóðfélaga um 5% þann 1. janúar 1998 og hækka uppbót á lífeyrisgreiðslur um 4,3%. Hrein eign lífeyrissjóðsins til greiðslu lífeyris nam samtals 7.768 milljónum og hafði hækkað um 15% á árinu 1996. Raunávöxtun ársins 1996 miðað við vísitölu neysluverðs var 8,9% og lífeyrisbyrði 33%. Greið- andi sjóðfélagar vegna vinnu í landi í Northrop. Búizt er við að samein- ingunni ljúki fyrir áramót, ef sam- þykki hluthafa og eftirlitsyfirvalda fæst. Verð hlutabréfa í Northrop hækkaði um 23,75 dollara í 112,625 dollara og verð bréfa í Lockheed lækkaði um 2,19 dollara í 101,81 dollar í kauphöllinni í New York. Skilar hagnaði eftir 1998 Fyrirtækin vonast til að geta út- skýrt samrunanna sem samnýtingu hagsmuna, en kunna að neyðast til að útskýra hann sem kaup. Samrun- inn mun engin áhrif hafa á afkom- una 1998, en auka hagnað fyrirtækj- anna eftir þann tíma að þeirra sögn. Lockheed Martin í Bethesda í Maryland var stofnað 1995 með samruna gamla Lockheed fyrirtæk- isins og Martin Marietta Corp. Salan 1996 nam 27 milljörðum dollara og starfsmenn 180.000 víða um heim. Northrop Grumman í Los Ange- les var stofnað með sameiningu Northrop Corp. og Grumman Corp. 1994. Starfsmenn eru rúmlega 45.000 og sala 1996 nam 8 milljörð- um dollara. Lífeyrissjóður Vestfirðinga Samþykkt að hækka stigainneign um 5% voru 3.348 talsins og 1.384 vegna starfa við sjómennsku. Lífeyrisþegar voru 763 talsins. Samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt Talnakönnunar hf. á stöðu sjóðsins miðað við árslok 1996 voru eignir sjóðsins með núvirðingu um 2.120 milljónum króna hærri en áfallin skuldbinding. Ef litið er til framtíðarréttar og áætlunar um framtíðariðgjöld voru eignirnar um 1.368 milljónum hærri en áætlaðar skuldbindingar. ...og þú notar sparnaðinn sjálfur nákvæmlega eins og þér sýnist. ngar utanlandsferðir - engin veisluhöld aðeins ódýrasta bensínið.. ■ ' s t Pennavinir í 210 löndum. International Pen Friends. Sími 881 8181. TILBOÐ ACAMPLITE FELLIHYSI: LÆSILEGAR INNRETTINGAR LAUGARDAG kl. 10-17 LOKAÐSUNNUDAG ' TILBOP k ÚTIVISTARBÚNAPI... Tjaldvagnaland SÉRVERSLUN MEÐ TJALDVAGNA, FELLIHÝSI OG FELLIHJÓLHÝSI í 440 fm SÖLUTJALDI VIÐ EYJASLÓÐ 7 ' REYKJAVÍK. M 65 UTRA tiiLVango ÍNITESTAR400 KR. 5.900 ÁPUR 6.800 4 M KR. 8.900 ÁPUR 11.800 PUMORI 65 , . 10.380 APUR 12.980 ÞAR SEM FERtJALAGIÐ BYRJAR! ^ SIGLAQIRÐIN \ PARACT f 50 KR. 39.800 ÁPUR 47.000 Höldur Akureyrl EYJASLOÐ 7 107 REYKJAVIK Sími 511 2200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.