Morgunblaðið - 04.07.1997, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
NEI góði, pabbi minn er sko miklu sterkari en pabbi þinn . . .
íslenska
grœnmetið
er alveg
grillað
Ábendingar útvegs-
bænda um Cantat 3
Frekari
færsla
ekki rædd
FREKARI færsla sæstrengsins
Cantat 3, sem síðar í þessum mán-
uði verður færður af Kötluhrygg,
eins og sagt var frá í blaðinu í
gær, hefur, að sögn Páls Jónsson-
ar, forstöðumanns langlínudeildar
Pósts & síma, ekki verið rædd af
eigendum strengsins.
Útvegsbændur í Vestmannaeyj-
um líta svo á að færsla strengsins
af Kötluhrygg sé aðeins áfangasig-
ur. Þeir segjast nú ætla að beijast
fyrir því að ná fram breytingu á
legu hans yfir Sneiðina, suður af
Heimaey, sem þeir segja mikilvæga
togslóð, og fyrir breyttri legu hans
í Rósagarðinum, sem er þriðja tog-
slóðin rétt við 200 mílna mörkin.
Páll segist ekkert geta sagt um
möguleika á slíku vegna þess að
málið hafi ekkert verið rætt af eig-
endum strengsins en þeir eru 24,
beggja vegna Atlantshafsins.
------------
Skipaður for-
sljóri Fangelsis-
málastofnunar
i
i
ÍSLENSK GARÐYRKJA
iuittu/ [iæ/i/ ÍaÁo/
PlnrfmnMiiWlí
- kjarni málsins!
DÓMS- og kirkjumálaráðherra hef-
ur skipað Þorstein A. Jónsson, sett-
an forstjóra Fangelsismálastofnun-
ar ríkisins, til að vera forstjóri
Fangelsismálastofnunar ríkisins
frá 1. júlí að telja.
-------♦ ♦ ♦-------
Nýtt prests-
embætti
BISKUP íslands hefur auglýst laust
til umsóknar embætti aðstoðar-
prests í Grafarvogsprestakalli,
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Hér er um að ræða nýtt embætti.
Embættið er veitt af dóms- og
kirkjumálaráðherra til ársloka
1998. Umsóknarfrestur er til 28.
júlí 1997.
Landsmót UMFI í Borgarnesi
Er dellukarl og sé
drauminn rætast
Ingimundur
Ingimundarson
NGIMUNDUR Ingi-
mundarson er formaður
landsmótsnefndar og
hann hafði í nógu að snú-
ast í gærmorgun þegar
Morgunblaðið náði að króa
hann af úti í horni í nokkr-
ar mínútur. Ingimundur
var rólegur þrátt fyrir eril-
inn og sagði að hann væri
búinn að vinna að því að
fá landsmótið í Borgarnes
frá því 1987.
„Hugmyndin kviknaði
árið 1987 og það má segja
að ég sé búinn að vinna
við þetta síðan, hafi að
minnsta kosti verið með
hugann við mótið síðan.
Ég er dellukarl og þó svo
það hafi verið mikið að
gera þá hefur þetta ekki
verið kvöð á mér, miklu
frekar má segja að draum-
ur sé að rætast hjá mér.
Auðvitað er búið að vera mikið
að gera við að undirbúa mótið en
ég tók þá stefnu í upphafi að
dreifa starfinu á margar hendur
þannig að ég er ekkert að vasast
í öllu. Þetta hefur auðvitað þann
galla að ég hef ekki yfirsýn yfir
allt sem gerist, en ég held þetta
sé betra svona, margar hendur
vinna létt verk.
Það var nú reyndar hlegið að
mér í upphafi þegar ég var alltaf
að hugsa um það sem margir kalla
smáatriðin varðandi mótið. En ég
hef aldrei haft áhyggjur af keppn-
inni sjálfri, við erum með fagfólk
í öllum greinum sem kann vel til
verka. Hins vegar hef ég oft sagt
að smáatriðin verði að vera í lagi,
smáatriðin sem enginn tekur eftir
ef þau eru í lagi en allir kvarta
séu þau ekki í lagi.“
Veður skiptir miklu máii á
Landsmóti, ekki satt?
„Jú. Ég vonast auðvitað eftir
að veðrið verði gott, en er ekkert
állt of bjartsýnn. Eftir að ákveðið
var að hafa mótið hér hefur mað-
ur fylgst með veðrinu og það hef-
ur alltaf verið gott veður fyrstu
helgina í júlí og gamall maður hér
í sveit segir að ekki hafi rignt
fyrstu helgina í júlí í fjölda ára.
Mér skilst hins vegar að það eigi
að vera frekar leiðinlegt veður á
laugardaginn og síðan gott á
sunnudaginn. Landsmót verða
miklu skemmtilegri í alla staði sé
veðrið gott, en við ráðum ekki við
það og tökum því sem að höndum
ber,“ sagði Ingimundur, sem sagð-
ist búast við að í Borgarnesi yrðu
um 10.000 manns landsmótshelg-
ina.
Hvað hefur þú verið viðstaddur
mörg Landsmót?
„Þetta er tólfta
landsmótið mitt. Ég
keppti fyrst á Laugum
árið 1961, í sundi í
tjörninni þar, sem var
14 gráða heit,“ segir
hann og greinilegt að minningam-
ar ylja honum. „Síðan keppti ég í
ýmsum greinum sem ég var að
gutla í og hef meðal annars orðið
í þriðja sæti bæði í hástökki og
800 metra skriðsundi þannig að
ég hef komið víða við og það má
í raun segja að ég hafi gutlað í
öllu, eða ansi mörgu."
Hafa ekki orðið mikiar breyt-
ingar á mótshaldinu í gegnum tíð-
ina?
„Jú, gífurlegar. Á Laugum 1961
þótti aðstaða fyrir frjálsíþróttir og
aðrar greinar nokkuð góð, en
sundið þannig að við syntum í
tjörninni, eins og ég sagði áðan.
Þar supu margir hveljur og gáfust
upp á að keppa fyrsta daginn
vegna kulda. Ég hygg að aðstaðan
fyrir fijálsar og sund hafi aldrei
Þ- INGIMUNDUR Ingimund-
arson fæddist 29. janúar 1944
á Svanshóli í Bjarnarfirði á
Ströndum og bjó þar fram yfir
fermingu. Ingimundur útskrif-
aðist sem íþróttakennari frá
Laugarvatni 1964 og fór síðan
í undirbúningsdeild sérnáms í
Kennaraskólanum. Hann starf-
aði í átta ár sem þjálfari og
framkvæmdastjóri UMSS í
Skagafirði en flutti 1974 í Borg-
arfjörð og hefur meira eða
minna lifað og hrærst í borg-
firsku íþróttalífi síðan. Ingi-
mundur er forstöðumaður
íþróttamannvirkja í Borgar-
nesi. Eiginkona hans er Ragn-
heiður Elín Jónsdóttir og eiga
þau tvö börn, Ingimund og
Guðbjörgu Hörpu.
verið glæsilegri en hér nú. íþrótta-
salurinn okkar er reyndar svolítið
þröngur og því fer riðlakeppni í
blaki og körfubolta fram á Ákra-
nesi líka.“
Kröfur um góða aðstöðu virðast
orðnar miklar. Er nokkuð hægt
að halda mótið nema á ákveðnum
stöðum í framtíðinni?
„Nei og persónulega held ég að
ekki ætti að halda mótið nema á
fjórum stöðum á landinu, á einum
stað í hveijum fjórðungi.“
Nú er aðstæðan orðin glæsileg
íBorgarnesi, en þetta hefurkostað
mikið fé, ekki satt?
„Já, enda voru óneitanlega
margir ekki mjög bjartsýnir. Töldu
að ekki væri rétt að fara út í þess-
ar framkvæmdir. Þær hafa kostað
peninga en gefa okkur líka margt;
nú er bærinn í stakk búinn til að
taka á móti verulega
stórum mótum í sundi,
fijálsum, knattleikjum
og öðru slíku. En þetta
hlýtur líka að auka að-
streymi í bæinn."
Nú þegar landsmótið er hafið
getur þá formaður landsmóts-
nefndar leyft sér að halia sér aftur
í stólinn og setja fæturna uppá
borð?
„Nei, ekki er það nú alveg. Hins
vegar er allt tilbúið en auðvitað
koma alltaf upp einhver smámál
sem þarf að bjarga á síðustu
stundu. Við gleymdum til dæmis
að útbúa hvíta og rauða fána sem
nota á til að gefa merki um hvort
tilraun keppenda sé gild eða ekki
og svo er ýmislegt smávægilegt
sem kemur uppá. Við höfum það
fyrir reglu hér að vandamálin eru
til að glíma við og leysa og það
gerum við eins fljótt og við get-
um,“ sagði Ingimundur og var þar
með rokinn því í nógu var að snú-
ast.
Alltaf gott
veður fyrstu
helgiíjúlí