Morgunblaðið - 04.07.1997, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 04.07.1997, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997 47 KAREN OLADOTTIR + Karen Björg Óla- dóttir fæddist á Jörva á Borgarfirði eystra 18. ágúst 1906. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 24. júní síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Grafarvogskirkju 2. júlí. Hún amma mín er dáin. Stundin sem ég einhvem veginn hafði I aldrei gert ráð fyrir að myndi renna upp, er komin og e_r hún því full trega og söknuðar. Á kveðjustundu hellast yfír mig minn- ingar úr bamæsku minni þegar amma og afí bjuggu aðeins nokkr- um húsum neðar á Lindargötunni en ég. Ég sótti mikið til þeirra, enda í mikla manngæsku og hlýju að sækja. Þegar ég var 7 eða 8 ára fór ég á fætur á hverjum virkum morgni, labbaði til ömmu og afa og hlustaði á framhaldssögu bam- anna í gamla lampaútvarpinu. Ég er búinn að gleyma því núna, en þá vissi ég nákvæmlega hversu mörg skref vom að heiman til ömmu, hversu margar tröppur var upp að fara og í hverjum þeirra marraði. Þegar ég kom inn var afi jafnan búinn að sækja kúmenbrauð upp í bakarí og amma tilbúin að sneiða það niður og setja á það banana. Síðan sat ég, lítill snáði, borðaði brauð- ið, drakk kalda mjólkina úr rauðu skörðóttu glasi og hlustaði á söguna með henni ömmu minni. Eftir söguna sátum við síðan oft saman og spiluðum rommý eða ólsen-óls- en svo tímunum skipti. Oftar en ekki lauk þessari daglegu heimsókn með því að amma læddi tíkalli í lítinn lófa og sagði mér að ég mætti kaupa nammi fyrir hann. Að sofa hjá ömmu og afa var líka alveg sérstök tilfinning. Þá var stóri svefnsófinn dreginn út og maður fékk að sofa aleinn í öllu flæminu með þykku, þungu fiður- sængina sem lagðist svo þétt að kroppnum að það var eins og hún héldi utan um mann. Þá sagði amma mér stundum söguna um beljuna, karlinn, kerlinguna, ein- björn, tvíbjöm, þríbjörn og þá bræðuma sjö og það þegar beljan féll í skurðinn. Sögu sem hún þurfti oft að segja tvisvar í röð því ég fékk aldrei leiða á henni. Að morgni var maður síðan vakinn með kúmenbrauðinu, banananum, mjólkinni og sögunni í útvarpinu. Jólaboðin voru árviss viðburður. Þá hittust öll systkini pabba ásamt mökum og börnum í litlu tveggja herbergja íbúðinni. Eftir á að hyggja var mjög þröngt á þingi en í minningunni lifir stemmningin, kliðurinn, spilamennskan og síðast en ekki síst ijómatertan hennar ömmu - langbesta terta í heimi. Amma var á þönum berandi fram kaffi, tertur, pönnukökur og annað meðlæti. Það var hennar líf og yndi - að reiða fram veitingar handa gestkomandi. Eiginleiki sem hún var gædd allt til hins síðasta. Kveðjustundin er þungbær en óumflýjanleg. Eftir situr fjöldi góðra minninga um einstaklega indæla konu. Konu sem hafði mik- il áhrif á persónu mína með þeirri hlýju, einlægni og æðruleysi sem hún einatt sýndi. Með ömmu minni er genginn besti vinur æskuára minna en minninguna um hana mun ég æ bera í bijósti mér. Magnús Ólason. Kæra amma. Með þessum fátæklegu_ orðum kveð ég þig í hinsta sinn. Ég kom að kveðja þig áður en ég fór utan, en þú svafst svo vært að ég tímdi ekki að vekja þig. Ég hefði betur gert það. I staðinn sendi ég þér bréf sem náði ekki til þín í tæka tíð. Minningin um brosmildu ömmu mína mun ylja mér um ókomin ár. Sama hvað bjátaði á, alltaf var stutt í húmorinn og hláturinn þinn. Takk fyrir samverustundimar. Elsku afi, hugur minn er hjá þér. Kristín. GUÐRÍÐUR JÓNSDÓTTIR + Guðríður Jóns- dóttir yfir- hjúkrunarkona fæddist á Seglbúð- um í Landbroti 10. maí 1903. Hún lést á Droplaugarstöð- um 14. júní síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 30. júní. Látin er Guðríður Jónsdóttir frá Segl- búðum. Þannig skrif- aði hún gjaman nafn | sitt og kenndi sig við fæðingarstað sinn, þar sem hún ólst upp til full- orðinsára og fékk það veganesti, I sem reyndist henni vel á löngum og starfsömum æviferli. Hún var næstyngst af sex systk- inum, sem komust upp af börnum hjónanna Jóns Þorkelssonar frá Eystra-Hrauni og Ólafar Jónsdótt- ur frá Seglbúðum. Guðríður var aðeins þriggja ára, þegar faðir hennar fellur frá, svo það varð ! hlutskipti móður hennar að halda I áfram búskapnum, sem henni fam- , aðist vel með atorku sinni og hygg- indum. Með samheldni og dugnaði veittu börnin þann stuðning, sem þau megnuðu. Féll það í hlut Helga, elsta sonarins, sem þá var aðeins tólf ára gamall, að leiða systkinahópinn. Þegar Guðríður hafði síðar tekið að sér ábyrgðarmikið og erf- itt hjúkrunarstarf að loknu námi í fjarlæg- um landshlutum og erlendis sýndi hún það í verki, hversu fjöl- skylda og æskustöðvar voru henni kærar. Á hveiju ári, þegar tóm gafst til, kom hún austur að Seglbúðum, þar sem Helgi, bróðir hennar, og kona hans, Gyðríður Pálsdóttir frá Þykkvabæ, höfðu tekið við búskap nokkmm árum áður en Guðríður hélt að heiman til náms. Ólöf, móðir hennar, dvaldi þar til ævi- loka árið 1953, en Helgi andaðist 1949. Guðríður lét það ekki aftra sér, þó að ferðalögin þangað á fyrri hluta aldarinnar væm með öðmm hætti en síðar varð. Þvert á móti naut hún ferðalaga, þó að eitthvað þyrfti fyrir þeim að hafa og hafði gaman af að rifja upp ferðir sínar um fjöll og firnindi, hvort sem var gangandi eða ríðandi. Og í Segl- búðum sætti hún færi að fara í Frágangur afmælis- og minningargreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tví- verknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfí (5691115) og í tölvupósti (MBL@CENTRUM.IS). Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfi- legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Greinarhöfundar em beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. rekstrarferðir með lambfé á afrétt, þó að þær tækju á annan sólar- hring og gætu orðið ærið erfiðar þeim, sem slíku voru vanari. Skýrast kom þó hugur hennar til æskustöðvanna fram árið 1975, þegar hún ákveður að gefa íbúð sína í Reykjavík til að kosta bygg- ingu íbúða fyrir aldraða á Kirkju- bæjarklaustri. Fær hún einnig tvær frænkur sínar, .Tóhönnu Jóns- dóttur frá Hraunkoti og Elínu Magnúsdóttur frá Hátúnum, til að gjöra slíkt hið sama og fleiri til að arfleiða þá stofnun að eigum sínum. Elín varð svo fyrsti íbúinn þar á Klausturhólum og Jóhanna kom þangað síðar. Sjálf fékk Guðríður leyfi til að búa áfram í íbúðinni í Reykjavík meðan heilsa leyfði. Mikinn þátt í þeirri ákvörðun hennar mun hafa átt, að þrátt fyrir að venjulegri starfsævi væri löngu lokið vom annir hennar miklar við að leggja lið öllum, sem hún vissi að á hjálp þyrftu að halda. Þó að kraftarnir minnkuðu, sérstaklega sjón, hélt hún áfram að vitja vina og kunn- ingja, sem verr voru haldnir, til að láta þá fínna, að þeir væm henni ekki gleymdir. Engu að síður leitaði hugurinn austur í Landbrot og á Síðu. Það var henni mikil ánægja að vera við vígslu veglegs hjúkrunar- og dval- arheimilis, sem hefur verið byggt við íbúðir aldraðra á Klausturhól- um. Gisti hún þá þar hjá vinkonu sinni, Þorbjörgu Jónsdóttur frá Eintúnahálsi, sem var í hópi fyrstu íbúa þess heimilis. Við Þorbjörgu ræddi Guðríður í síma að minnsta kosti einu sinni í viku allt til hinstu stundar og fylgdist þannig með því hvemig þar leið. Síðast gisti hún hjá Þorbjörgu fyrir tæpu ári, þegar hún kom að kveðja bernskuslóðimar í Seglbúð- um. Reyndi hún þá að líta úr bíln- um yfir þá staði, sem henni vom svo kærir, sérstaklega Grenlæk og umhverfi hans. En í Grenlæk hafði Guðríður látið sækja stein til að setja á leiði móður sinnar í kirkju- garðinum á Prestsbakka á Síðu. Hún hafði ákveðið, að undir þann stein yrðu jarðneskar leifar hennar einnig settar eftir að ættingjar og vinir hafa kvatt hana með kærri þökk fyrir umhyggju og allt henn- ar fórnfúsa starf. Jón Helgason. UNGMENNALIÐIÐ í bridsi hefur staðið sig vel það sem af er Norðurlandamótinu í Færeyjum. í liðinu eru Magn- ús Magnússon, Sigurbjörn Haraldsson, Steinar Jónsson og Stefán Jóhannsson. Norðurlandamót ungmenna í bridsi Islendingar með góða forustu BRIPS Þðrshöfn NM UNGMENNA Norðurlandamót spilara 25 ára og yngri fer fram í Þórshöfn í Fær- eyjum dagana 29. júní til 4. júlí. ÍSLENDINGAR héldu góðri for- ustu á Norðurlandamóti í flokki 25 ára og yngri í gær þegar þremur leikjum var ólokið. Takist þeim að vinna mótið yrði það fyrsti Norðurlandatitill Islands í þessum flokki. Norðurlöndin eiga jafnan mjög sterk ungmennalið og sem dæmi má nefna að Norðmenn eru nú- verandi Evrópumeistarar í sveita- keppni og keppa ásamt Dönum á næsta heimsmeistaramóti. ís- lenska liðið þótti þó sigurstrang- legt fyrir Norðurlandamótið enda er liðið skipað efnilegustu spilur- um sem Islendingar hafa átt í áraraðir. Á mótinu er spiluð tvöföld umferð með 32 spila leikjum, og eftir 7 leiki af 10 voru íslending- ar með 138 stig, Danir höfðu 116, Svíar 111, Norðmenn 102, Færeyingar 94 og Finnar 62. Færeyingar hafa komið á óvart á mótinu og m.a. unnið Norð- menn í báðum leikjunum, og í gær voru þeir yfir í hálfleik gegn Islandi en töpuðu á endanum 19-11. Danir tefla fram sínu sterkasta liði í Þórshöfn en voru yfírspilað- ir af íslendingum í fyrri umferð mótsins, og leiknum lauk 25-3. í þessu spili var spilamat íslensku og dönsku spilaranna gerólíkt. Norður ♦ Á96 ¥ÁG8 ♦ Á10 ♦ KD932 Vestur Austur ♦ - ♦ G8542 ♦ 106 ♦ D7532 ♦ KD986543 ♦ 7 ♦ 1074 ♦ 65 Suður ♦ KD1073 ¥K74 ♦ G2 ♦ ÁG8 Við bæði borð opnaði suður á 1 spaða og við annað borðið stökk Sigurbjörn Haraldsson í vestur í 3 tígla. Norður sagði 4 tígla til að bjóða upp á spaða- slemmu, og þegar Magnús Magnússon í austur sagði pass, sagði suður aðeins 4 spaða sem norður passaði. Það er sérkenni- leg ákvörðun og bendir til þess að NS noti laufléttar opnanir. Við hitt borðið sátu Steinar Jónsson og Stefán Jóhannsson NS: Vestur Norður Austur Suður 1 spaði 4 tíglar 4 grönd pass 5 spaðar pass 7 spaðar/ Steinar er greinilega betra vanur frá félaga sínum en Daninn við hitt borðið og eftir að hafa spurt um lykilspil, og fengið upp tvö auk spaðadrottningarinnar, stökk hann í alslemmu. Vestur spilaði út tígulkóng sem Stefán drap með ás og lagði niður spaða- ás. 5-0 legan þvældist ekkert fyrir í þetta skipti því Stefán gat svínað bæði fyrir spaðagosa og spaðaáttu austurs. 13 slagir og 14 impar til íslands. Svínað á sagnhafa íslenska liðið tapaði sínum fyrsta leik í mótinu 14-16 fyrir Svíum í síðari umferðinni. Hér er mikilvægt spil úr þeim leik: Norður gefur, NS á hættu. Norður ♦ D ♦ K98643 ♦ D1064 ♦ K4 Vestur ♦ Á9543 ♦ D5 ♦ 9 ♦ Á10976 Austur ♦ KG1062 ¥G7 ♦ K3 ♦ D853 Suður ♦ 87 ¥Á102 ♦ ÁG8752 ♦ G2 Við annað borðið spiluðu Sigurbjörn og Magnús vörn gegn 4 spöðum í AV og tóku þann samning einn niður, 50 til NS. Við hitt borðið voru Svíam- ir harðari í sögnum: Vestur Norður Austur Suður 1 tyarta 1 spaði 3 tíglar 4 spaðar 5 tíglar dobl/// Á opnu borði vinnast 5 tíglar auðveldlega en Steinari í vestur tókst að afvegaleiða sagnhafa. Hann spilaði út spaðaás og tók síðan laufaás og skipti í hjarta- drottningu. Sænski sagnhafinn hugsaði sig lengi um, en tók svo slaginn heima á ás, trompaði spaða, svínaði fyrir tígulkónginn hjá Sigurbirni í austur og tók tígulás. Síðan spilaði hann hjartatíunni út og svínaði og Stefán fékk á gosann. 200 til íslands og 6 impar í stað 12 impa taps. Guðm. Sv. Hermannsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.