Morgunblaðið - 04.07.1997, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
STÍGANDI sem sjálfur er vel gerður hestur gefur framfalleg FIMM vetra hryssurnar í verðlaunasætum ásamt knöpum eru frá vinstri Duld og Þórður, Þota og
og góð tölthross. Formaður Hrossaræktarsambands Vesturlands, Gísli, Röskva og Pálmi, Eggert og Vaka og sú hæsta Snót og Jóhannes.
Bjarni Marinósson, sem sjálfur er á kafi í ræktun, heldur í hestinn.
Kynbótasýning, á Kaldármelum
Miðar á leið
þótt hægt fari
AÐKOMUHESTAR stóðu efstir í flokki fimm vetra stóðhesta og
var Hamur frá Þóroddsstöðum þar í öðru sæti, jafnvígur að sköpu-
lagi og hæfileikum, knapi er Þórður Þorgeirsson.
HESTAR
Kaldármclar
KYNBÓTASÝNING
FJÓRÐUNGSMÓTSINS
Sextíu og fímm hross hlutu sinn dóm
á fjórðungsmótinu á Kaldármelum
dagana 26.-29. júní sl. Fjórtán hross
hlutu dóm fyrir afkvæmi en fímmtíu
og eitt var í einstaklingsdómi. Þá
kom fjöldi hrossa fram í sýningu
ræktunarbúa.
HROSSARÆKTIN á Vesturlandi
hefur lengi verið í kreppu en í vor
að lokinni forskoðun fyrir fjórðungs-
mótið þóttu ýmis teikn á lofti þess
efnis að eitthvað væri að rofa til.
Var því nokkur eftirvænting með
kynbótasýningu mótsins sem fram
að þessu hefur verið notuð sem helsti
mælikvarði á stöðu hrossaræktar í
hveijum landsfjórðungi fyrir sig. I
ljósi þess sem gat að líta á mótinu
má ætla að miði í rétta átt þótt
hægt fari og sannast sagna bjóst
undirritaður við betri kynbótasýn-
ingu.
Stígandi stendur fyrir sínu
Tveir hestar voru sýndir til heið-
ursverðlauna en það mun í fyrsta
skipti sem stóðhestur nær þessum
heiðurssessi á fjórðungsmóti á Vest-
urlandi og hvað þá tveir á sama
mótinu. Sá er ofar stóð, Stígandi frá
Sauðárkróki, virðist vera að ýmsu
leyti tímamótahestur. Hestur sem
virðist gagnast sérlega vel til að
rækta eða framleiða hross sem eru
fljóttamin, vel töltgeng, frekar stór
og framfalleg. Það mun reynsla
þeirra sem notað hafa hestinn í ein-
hveijum mæli og haft viðunandi
hryssukost, að allt sem undan hon-
um kemur selst á augabragði. Stíg-
andi fær afar jákvæð dómsorð þar
sem segir að afkvæmi séu fríð með
grannan langan háls, bak þokka-
legt, þó í stífara lagi á sumum af-
kvæmanna. Samræmi afbragð, fóta-
há og léttbyggð. Fótágerð og rétt-
leiki í góðu meðallagi og hófar yfir-
leitt mjög góðir. Töltið hreint og
mjúkt, brokk síðra en oft skrefmik-
ið. Fáir vekringar í hópnum þó þar
finnist undantekningar en afkvæmin
stökkva vel og fallega, hafa góðan
reiðvilja og fara afar vel í reið. Svo
mörg voru þau orð.
Því miður kemur rýmisjaxlinn Kol-
fínnur frá Kjarnholtum ekki eins vel
frá leiknum þótt kominn sé í heiðurs-
verðlaun. í dómsorði segir að af-
kvæmin séu vöxtuleg en ekki fínleg,
höfuð stórt og gróft. Hálsinn sver,
allvei reistur, herðar háar og bóga-
lega góð, bak breitt og lendin öflug.
Heldur bolmikil hross en þó fótahá
og hlutfallarétt, fótagerð þokkaleg
en réttleiki og hófar í tæpu meðal-
lagi. Þá segir um hæfíleika að af-
kvæmin séu mörg hver voldug gang-
hross, viljamikil, traust í Iund, fjölhæf
og rúm með góðum fótaburði og
framganga aðsópsmikil. Ekki er í
dómsorði minnst á gangsemi afkvæ-
manna, þ.e. þau fara mikið á skeið-
tölti mörg hver og er það líklega al-
varlegasti galli Kolfínns sem kyn-
bótahests. Kolfínnur hefur hin síðari
ár vakið mikla athygli fyrir vasklega
framgöngu á öllum gangi, mikill yfír-
ferðar og rýmishestur en því miður
virðast afkvæmin ekki standa föður
sínum á sporði í þeim efnum. Þá virð-
ist ganglag afkvæmanna gera kröfur
um aukavigt á framfætur til að
hreinsa töltið.
Fimm hestar voru sýndir í flokki
stóðhesta sex vetra og eldri og stóð
efstur Þröstur frá Innri-Skelja-
brekku. Þröstur er undan Kveik frá
Miðsitju og Glóu frá Innri-Skelja-
brekku. Þröstur hlýtur yfir 8 fyrir
bæði sköpulag og hæfíleika sem er
það sem stefna ber að með alla
helstu ræktunarhestana. Hann fær
hæst 9 fyrir skeið og 8,5 fyrir bak
og lend, samræmi, hófa, tölt, stökk,
vilja og fegurð í reið. Jafnsterkur
hestur sem kemur út með 8,26 í
aðaleinkunn. Næstur kemur Ferill
frá Hafsteinsstöðum sem er með
8,59 fyrir hæfileika, fær 9 fyrir
stökk og vilja og 8,5 fyrir önnur
atriði nema geðslag átta. Ferill er
frekar lágur fyrir sköpulag 7,73. Það
er athyglisvert með þessa tvo hesta
sem fá háar einkunnir fyrir hæfileika
að hvorugur þeirra vekur athygli í
samræmi við það sem einkunnir
gefa tilefni til án þess að verið sé
að gefa í skyn að þeir hafí verið
ofdæmdir. Andvari frá Skáney vekur
athygli fyrir prúðleika sem mikið er
horft í en það virðist vanta á köflum
meiri snerpu í hestinn og líður prýði-
leg ganghæfni fyrir það.
Aðkomuhestarnir efstir
Af fímm vetra hestum stendur
efstur Eiður frá Oddhóli sem er af
vestlenskum ættum, undan Gáska
frá Hofsstöðum og Eiðu frá Skáney
sem bæði eru vestlensk að stórum
hluta aftur í ættir. Hrossaræktar-
samband Vesturland hefur keypt
hlut í hestinum af Sigurbirni Bárðar-
syni og er vonandi að hann geti lagt
Vestlendingum lið í ræktunarstarf-
inu. Eiður hlýtur 8,15 fyrir sköpulag
og 8,61 fyrir hæfileika sem er hæsta
einkunn mótsins. Eiður hlýtur hæst
9 fyrir fótagerð og hófa, tölt, brokk,
vilja og fegurð í reið. Hamur frá
Þóroddsstöðum er næstur Eiði með
8,30 fyrir sköpulag. Feikna myndar-
legur hestur með 9 fyrir fótagerð
og réttleika og 8,5 fyrir háls og
herðar, tölt, brokk, stökk , vilja og
fegurð í reið. Hann er undan Galdri
frá Laugarvatni og Hlökk frá Laug-
arvatni. Skorri frá Gunnarsholti
kemur næstur með 8,03 fyrir sköpu-
lag og 8,01 fyrir hæfileika. Fær 9
fyrir brokk en er skeiðlaus sem skýr-
ir lága hæfileikaeinkunn. Hrossa-
ræktarsamband Vesturlands á hiut
í öllum þessum hestum, en allir eru
þeir nýlega komnir í eigu sambands-
ins. Víst má telja að Skorri sem er
undan Orra frá Þúfu og Skruggu
frá Kýrholti (móðir hinnar frægu
Dimmu frá Gunnarsholti) valdi
nokkrum vonbrigðum en koma tímar
og koma ráð og sjálfsagt fær hann
tækifæri síðar til að sanna sig bet-
ur. Skírnir frá Skjólbrekku undan
Kveik frá Miðsitju og Jörp frá Vatns-
leysu vakti athygli fyrir góð tilþrif
en byggingareinkunn er í knappara
lagi.
Aðeins einn fjögra vetra stóðhest-
ur var sýndur að þessu sinni, Starri
frá Hvítanesi undan Orra frá Þúfu
og Dýrðmundu Bylsdóttur frá Hvíta-
nesi. Hann er með 7,90 í aðalein-
kunn, nokkuð efnilegur foli en fær
aðeins 7,5 fyrir háls og herðar, er
með þykkan háls eins og margt
undan Orra. Að öðru leyti eru ein-
kunnir í góðu lagi og ef hálsinn létt-
ist getur hann átt góða framtíð sem
stóðhestur.
Sveinatunguræktun skilar
góðu
Mikil gróska var í afkvæmasýn-
ingum hryssna að þessu sinni, tvær
hryssur fengu heiðursverðlaun og
hvorki fleiri né færri en tólf hryssur
hlutu 1. verðlaun fyrir afkvæmi.
Sveinatunguhryssurnar Fúga og
Maddóna hlutu heiðursverðlaun og
er þetta líklega einsdæmi að tvær
hryssur úr sömu ræktun hljóti þessa
vegtyllu á sama móti. Fúga var
tveimur stigum hærri en Maddóna
en eigi að síður vekja afkvæmi Mad-
dónu með stórgæðinginn Seim frá
Víðivöllum fremri í broddi fylkingar
meiri athygli á velli enda segir í
dómsorði að afkvæmin séu fluglétt
á stökki, viljahá og fari glæsilega í
reið.
Efst af 1. verðlaunahryssum varð
Blesa frá Stykkishólmi undan Hlyni
frá Hvanneyri og Eldingu frá Stykk-
ishólmi. Það verður að segjast eins
og er að þótt allar þessar hryssur
fengju 1. verðlaun fyrir afkvæmi var
sýningin á hópunum misheppnuð.
Alltof mikill tími fór í sýningu á
ORÐA frá Víðivöllum stóð sig vel á mótinu og hlaut meðal annars 9 fyrir fegurð
í reið, knapi er Þórður Þorgeirsson.
ÞORVALDUR Jósefsson í Sveinatungu hafði i nógu að snúast þegar kom að verð-
launafhendingu. Hér stendur hann við hlið afkvæma Maddónu frá Sveintungu en
hún hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.