Morgunblaðið - 10.07.1997, Side 1
88 SIÐUR B/C/D
153. TBL. 85.ÁRG.
FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Leiðtogafundur NATO í Madríd
Skil austurs
og vesturs
afmáð
Madríd. Morgnnblaðið.
TVEGGJA daga leiðtogafundi Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) lauk
í gær með hástemmdum yfirlýsing-
um um að með fyrirhugaðri stækk-
un þess, samstarfi við fyrrverandi
Varsjárbandalagsríki og sérstökum
samningi NATO og Úkraínu væri
verið að þurrka út þau skil, sem
mynduðust milli austurs og vesturs
á tímum kalda stríðsins. Á fyrri
degi fundarins hér í Madríd komu
saman leiðtogar 16 aðildarríkja
NATO, en í gær var fundur 44 ríkja,
sem sitja í nýstofnuðu Evró-Atl-
antshafssamstarfsráði. „Margar
tungur voru talaðar við fundarborð-
ið í dag,“ sagði Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti í gær. „En tungumálið
var það sama, tungumál lýðræðis
og sóknarinnar eftir sameiginlegum
draumi um óskipta Evrópu, sem er
fijáls og býr við frið. NATO er
hjarta þeirrar sýnar.“
Helmut Kohí, kanslari Þýska-
lands, lýsti yfir ánægju sinni á
blaðamannafundi í gær. „Samning-
arnir voru erfiðir og stundum hljóp
harka í þá, en okkur tókst að brúa
bilið,“ sagði hann. „Hér hefur náðst
gríðarlegur árangur.“ Fyrri dagur
fundarins var stormasamur, en
lyktir voru þær að það sjónarmið
Bandaríkjamanna að bjóða þremur
ríkjum að ganga til samninga um
inngöngu í NATO, Pólverjum,
Tékkum og Ungverjum, en ekki
fimm eins og Frakkar, ítalar og sjö
ríki önnur vildu, varð ofan á. Sér-
staklega hefur verið heitt á milli
Bandaríkjamanna og Frakka, sem
saka þá fyrrnefndu um yfirgang í
NATO. Frakkar ákváðu meðal ann-
ars að draga til baka áform sín um
að taka að nýju þátt í hernaðarsam-
starfi bandalagsins vegna þess að
kröfur þeirra um aukið vægi Evrópu
í hernaðar- og stjórnmálasamstarfi
þess fengu ekki hljómgrunn.
Ágreiningurinn hefur nokkrum
sinnum komið upp á yfirborðið hér
á fundinum, nú síðast síðdegis í gær
þegar Jacques Chirac, forseti
Frakklands, lýsti yfir þvi að Frakk-
ar myndu ekki greiða umfram-
franka til NATO til að fjármagna
inngöngu væntanlegra aðildarríkja.
Clinton var spurður um orð Chiracs
á blaðamannafundi í gær og sagði
Bandaríkjaforseti að bandamenn
myndu þurfa að bera „hógværan
kostnað". Ýmsar tölur hafa verið
nefndar um kostnað af stækkuninni
og er mikill munur á þeim.
Chirac sagði í gær að hann væri
NOKKRIR leiðtogar NATO-rílqa slá á létta strengi í Madríd í gær. Helmut Kohl Þýskalandskansl-
ari kemur athugasemd á framfæri við Tony Blair og Jean Chretien, forsætisráðherra Bretlands og
Kanada. Jacques Chirac Frakklandsforseti, Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar,
Walter Neuer, ráðuneytisstjóri Kohls, og Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, fylgjast með.
þess fullviss að Rúmenum og Sló-
venum yrði boðin aðild að NATO
þegar taka ætti stækkunarferlið til
endurskoðunar árið 1999 þegar
bandalagið verður 50 ára.
Clinton þakkaði íslendingum
Emil Konstantinescu, forseti
Rúmeníu, átti i gær fund með Dav-
íð Oddssyni forsætisráðherra. Sagði
Davíð eftir fundinn að það hefði
komið sér mjög á óvart að Konst-
antinescu hefði trúað því fram á
síðustu mínútu að Rúmenum yrði
boðin innganga. íslendingar voru
meðal þeirra sem vildu takmarka
stækkun NATO við þijú ríki og
lögðust því gegn því að Rúmenum
yrði boðið til viðræðna um aðild í
fyrstu atrennu. Davíð sagði að þótt
atkvæði íslendinga hefði ekki ráðið
úrslitum hefði verið óþægilegt fyrir
Bandaríkjamenn að standa einir.
Hefðu þeir verið það ánægðir með
þann stuðning sem íslendingar
hefðu veitt með því að styðja af-
stöðu Bandaríkjamanna til stækk-
unarinnar að Clinton hefði komið
margsinnis að máli við Davíð til að
lýsa yfír ánægju sinni með stuðning
Islendinga.
Leiðtogar bandalagsins hleyptu í
gær af stokkunum nýju Evró-Atl-
antshafssamstarfsráði. í því eru 28
samstarfsaðiljar auk NATO-ríkj-
anna 16. Einnig var undirritaður
samstarfssamningur NATO við
Úkraínu og fór sú athöfn fram með
sama hætti og þegar Rússar gerðu
samstarfssamning við bandalagið í
París í maí. Davíð Oddsson tók til
máls eftir undirritunina og sagði
að samningurinn væri viðurkenning
„mikilvægis lands, sem hefur lagt
mikið fram til öryggis" í Evrópu.
„Samningurinn við Úkraínu
styrkir samstarf landsins við
NATO,“ sagði Davíð. „Og með gerð
þessa samnings undirstrikar NATO
stuðning við sjálfstæði Úkraínu og
viðurkennir mikilvægi landsins í
öryggisskipan framtíðarinnar.
Þetta samkomulag er því mikilvægt
skref í átt að nýrri Evrópu, í átt
að álfu, þar sem unnt verður að
lifa við öryggi og frið um fyrirsjáan-
lega framtíð."
■ Ákvörðunin/22-23
■ Rússar snúa sér/35
Sogaðist
út úr þotu
FARÞEGI brasilískrar þotu af
gerðinni Fokker-100 sogaðist út
úr flugvélinni og beið bana er
stórt gat myndaðist skyndilega á
þotunni aftanverðri er hún var á
Ieið frá Vitoria til Sao Paulo í
innanlandsflugi í gær. Óljóst er
hvort gatið myndaðist vegna
sprengingar um borð eða veik-
leika í byrðingi þotunnar.
Reuter
Meri þakkar árangur
stuðningi Norðurlanda
Madríd. Morgnnblaðið.
LENNART Meri, forseti Eistlands,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi að það væri Norðurlönd-
unum að þakka að Eystrasaltsríkj-
anna hefði sérstaklega verið getið
í kafla yfirlýsingar leiðtogafundar
Atlantshafsbandalagsins (NATO) í
Madríd um að dyr bandalagsins
yrðu áfram opnar fyrir stækkun.
„Ég vil leggja áherslu á að allt,
sem var samþykkt á tveimur mjög
erfiðum dögum í Madríd, var að
þakka mjög dyggum stuðningi
Norðurlandanna," sagði Meri. „Við
höfum aldrei gleymt þætti íslands
í að við skyldum öðlast sjálfstæði
að nýju. Við fengum sama dygga
stuðninginn frá Islendingum að
þessu sinni. Vitaskuld verðum við
varir við hinn mikla stuðning Norð-
urlandanna og sérstaklega íslend-
inga. Ég vil því nota tækifærið til
að þakka landi ykkar og þjóð stuðn-
inginn, sem og öðrum Norðurlanda-
þjóðum. Við höfum fulla ástæðu til
að vera þakklátir."
Norrænu ríkin þijú í NATO,
Danir, íslendingar og Norðmenn,
lögðu á það áherslu að ætti að nefna
Rúmeníu og Slóveníu í lokaályktun
leiðtogafundarins yrði ekki hægt
að undanskilja Eystrasaltsríkin
þijú, Eistland, Lettland og Litháen.
Meri sýndi þann hug, sem hann ber
til íslendinga, þegar hann hitti
Davíð Oddsson forsætisráðherra í
veislu Jóhanns Karls fyrsta Spánar-
konungs á þriðjudagskvöld. Faðm-
aði hann þá forsætisráðherra að sér.
500 manna
liðsauki til
N-Irlands
Belfast, London. Reuter.
FIMM hundruð manna liðsauki
verður sendur breska hernum á
Norður-írlandi. Tilkynnt var um
þetta í gær og átti flutningurinn
að verða innan tveggja sólarhringa.
Fulltrúi hersins sagði að markmiðið
væri að sporna við ofbeldisverkum
og halda uppi lögum og reglu. Átj-
án þúsund manna breskt herlið er
fyrir á Norður-írlandi.
Þjóðernissinnaðir kaþólikkar
ítrekuðu í gær andstöðu sína við
skrúðgöngur mótmælenda, og áttu
íbúar við Lower Ormeau-götu í
Belfast fund með írskum ráðherr-
um. Eru íbúarnir andvígir fyrirhug-
aðri göngu meðlima Óraníureglu
mótmælenda á laugardag, sem
verða á hápunktur árlegrar göngu-
tíðar mótmælenda.
Gerard Rice, talsmaður íbúanna,
sagðist vilja að ríkisstjórn Irlands
tæki undir kröfur um að göngu
Óraníureglunnar yrði beint frá ka-
þólska hluta götunnar. Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, lýsti í
gær stuðningi við Mo Mowlam,
Norður-írlandsmálaráðherra, en
hún hefur að undanförnu sætt
harðri gagnrýni fyrir að leyfa göngu
Óraníureglunnar í hverfi kaþólikka
VEGGMYND á íbúðarhúsi í
Belfast tjáir viðhorf kaþó-
likka til göngu félaga Óraniu-
reglunnar.
í bænum Portadown sl. sunnudag.
Öfgahópur innan írska lýðveldis-
hersins, svonefndur Þjóðfrelsisher
írlands (INLA), hefur hótað að ráð-
ast á meðlimi reglunnar, haldi þeir
fast við kröfur sínar um að ganga
niður Lower Ormeau-götu. Ein
versta ofbeldisalda í mörg ár hefur
gengið yfir Norður-írland í kjölfar
göngunnar í Portadown á sunnu-
dag. Hefur INLA lýst ábyrgð á
hendur sér vegna nokkurra af þeim
skotárásum sem gerðar hafa verið
á breska hermenn og lögregluþjóna
á hveiju kvöldi síðan þá.