Morgunblaðið - 10.07.1997, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.07.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ1997 31 AÐSEIMDAR GREINAR í ÚTTEKT í nýjasta hefti Heimsmyndar á bók dr. Vals Ingi- mundarsonar sagn- fræðings, í eldlínu kalda stríðsins, er leitað álits Jóns Bald- vins Hannibalssonar. Af einhverjum ástæð- um notar Jón Baldvin þetta tækifæri til heiftarlegra árása á Ólaf Thors. „Ólafur virðist ekki hafa skilið undirstöðuatriði hag- stjórnar í markaðs- þjóðfélagi. Hann eyði- lagði tækifærið til að koma efnahagskerf- inu í lag með Nýsköpunarstjórn- inni, klúðraði umbótatillögum Benjamíns og Ólafs og vildi ævin- lega stjórnarsamstarf með komm- únistum," segir Jón Baldvin. Vitaskuld er Ólafur Thors ekki hafinn yfir gagnrýni fremur en aðrir menn. Sjálfur hef ég til dæmis komist að þeirri niður- stöðu, að stefna Nýsköpunar- stjórnarinnar, sem Ólafur mynd- aði, hafi verið óskynsamleg. Það breytir því ekki, að orð Jóns Bald- vins Hannibalssonar eru mælt af miklum skilningsskorti á þeim skilyrðum, sem Ölafur Thors vann við fyrstu árin eftir stríð og tor- velduðu allt samkomulag um mörkun utanríkisstefnunnar og um skynsamlega hagstjórn. í fyrsta lagi hafnaði formaður Framsóknarflokksins, Hermann Jónasson, öllu samstarfi við Ólaf Thors, vegna þess að Ólafur hafði tekið þátt í því árið 1942 ásamt Alþýðuflokknum og Sósíalistaflokknum að lagfæra lítils hátt- ar hina ranglátu kjör- dæmaskipan, og var hún þó enn Fram- sóknarflokknum stór- lega í hag. Með þessu tók Hermann auðvit- að persónulegan metnað fram yfir þjóðarhag. í öðru lagi voru sós- íalistar á íslandi miklu öflugri en í flestum öðrum löndum Norð- urálfunnar. Þeir voru hallir undir Moskvu- valdið og höfðu sterk tök á verkalýðshreyfingunni. Þeir knúðu með verkföllum og ofbeldi fram miklu meiri kauphækkanir árlega en atvinnuvegirnir gátu staðið undir. I þriðja lagi var hópur óraun- særra menntamanna á vinstri armi Alþýðufiokks og Framsóknar- flokks (meðal annars þeir Gylfi Þ. Gíslason og Hannibal Valdimars- son), sem vann gegn öllum tilraun- um til þess að tryggja varnir lands- ins og gekk þannig erinda Moskvu- valdsins án þess auðvitað að ætla sér það. Á þessum tíma voru þess- ir menntamenn líka andvígir öllu athafnafrelsi. Ólafur Thors átti því ekki margra kosta völ. Átti hann að sætta sig við varanlega stjórnar- forystu Hermanns Jónassonar, þótt Ólafur væri sjálfur formaður kngstærsta stjórnmálaflokksins? Átti hann að efna til blóðugrar baráttu við verkalýðsfélögin eftir reynsluna af Gúttóslagnum 1932 og hörðum verkfallsátökum eftir það? Átti hann að fórna samstarfi við Bandaríkjamenn, sem höfðu varið landið í stríðinu og voru reiðubúnir til að tryggja varnir þess áfram, auk þess sem þeir voru einhveijir bestu viðskiptavinir okkar, til þess eins að þóknast Gylfa, Hannibal og nokkrum öðr- um rómantískum mælskumönn- um? Ólafur reyndi eftir megni, segir Hannes Hólmsteinn Gissurar- son, að tryggja hag ís- lensku þjóðarinnar, varnir hennar og við- skiptahagsmuni. Eins og fram kemur í bók Vals Ingimundarsonar og hafði raunar komið áður fram í ritgerðum dr. Þórs Whiteheads prófessors, kunni Ólafur Thors vel að gjalda lausung við lygi á hinum örlaga- ríku árum fyrst eftir seinna stríð. Það sést skýrt á þeim skjölum, sem Valur og Þór hafa unnið úr, en ekki síður i einkaskjölum Ól- afs, sem birt eru í hinni fróðlegu ævisögu hans eftir Matthías Jo- hannessen, að við þessi erfiðu skilyrði reyndi Ólafur eftir megni að tryggja hag íslensku þjóðarinn- ar, varnir hennar og viðskipta- hagsmuni. Hann sigldi milli skers og báru. En vissulega kann að vera, að maður eins og Jón Bald- vin Hannibalsson, sem siglt hefur fleyi sínu beint upp á sker og brot- ið í spón, skilji illa slíkt siglingar- lag. Höfundur er prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Islands Omaklega vegið að Ólafi Thors Hannes Hólmstein Gissurarson. 0 TSfllfl Dalakofinn Fjaröargötu 13-15 * Hafnarfirði * Sími 555 4295 Við tjöldum aðeins því besta Hja okkur færðu alltaf Allir fimmtudagar eru tjaldadagar í vandaðar VÖrur á góðu verði. Skátabúðinni en þá er 10% stað- greiðsluafsláttur af tjöldum. 5 manna hústjald, 43.200 kr. stgr. 4 manna hústjald, 31.482 kr. stgr. Tjaldborð, 4.950 kr. stgr. Kælibox, frá 1.584 kr. stgr. Tveggja hellna eldavél, 11.390 kr. stgr. FRAMÚK Snorrabraut 60 • 105 Reykjavík • Sími 561 2045 Netfang skatabud@itn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.