Morgunblaðið - 10.07.1997, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ1997 51
FRÉTTIR
Ný verslun La
Baguette í
Hafnarstræti
OPNUÐ hefur verið verslun á vegum
„La Baguette“ í Hafnarstræti 20,
Lækjartorgshúsinu. Líkt og í verslun
La Baguette í Glæsibæ, sem áfram
verður starfrækt, verður boðið upp
á fryst jafnt sem heitt brauð og
kökur frá Frakklandi, frosin og heit
matvæli auk heimsendingarþjón-
ustu, sem er nýjung.
í fréttatilkynningu frá La Bagu-
ette segir að boðið verði upp á heita
tilbúna rétti, til dæmis indverska
rétti á borð við Tikka Masala-kjúkl-
ing og grænmetislasagna.
Þá verður selt heitt franskt bakk-
elsi, s.s. fyllt smjördeigshorn, snúð-
ar, brauð og kökur.
BEATRICE Guido í hinni nýju verslun sinni í Hafnarstrætl.
Landsmót unglingadeilda
SVFÍ í Grindavík
Búist við allt að
500 unglingum
ELLEFTA landsmót unglingadeilda
Slysavarnafélags íslands verður
haldið í Svartengi við Grindavík
helgina 11.-13. júlí nk. Umsjón
landsmótsins er í höndum slysa-
varnafólks á Suðurnesjum og hefur
undirbúningur staðið yfir í nokkra
mánuði. Um 470 unglingar hafa
skráð sig til þátttöku á mótinu.
Unglingadeildir SVFI eru nú tæp-
lega 40 talsins víðsvegar um landið
og þar af eru fjórar á Suðurnesjum.
Segja má að unglingadeildir SVFI
séu einn mesti vaxtarbroddur fé-
lagsins og í starfi þeirra fer fram
mikill og góður undirbúningur fyrir
HEIMDALLUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, heldur
opinn fund með Ingu Jónu Þórðar-
dóttur borgarfulltrúa í kvöld. Hún
mun flytja erindi um byggðaþróun
og framtíðarmöguleika ungs fólks
í Reykjavík. Fundurinn verður í
Valhöll við Háaleitisbraut og hefst
kl. 20:30.
Á fundinum verða horfur í
byggðaþróun á næstu árum kynnt-
ar og rakið hvernig jaðar höfuð-
áframhaldandi starf unglinganna í
björgunarsveitum SVFÍ þegar þau
hafa aldur til.
Á landsmótum sem þessum sem
byggjast á miklu leyti á æfingum
er farið yfir helstu störf björgunar-
sveita og má þar nefna bjargsig,
skyndihjálp, fluglínutæki, björgun-
arbáta og ýmsar aðferðir til leitar
og svo mætti lengi telja.
Landsmótið verður sett á föstu-
dagsmorguninn kl. 9 _og verður for-
seti íslands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, viðstaddur setninguna.
Æfingarnar hefjast svo kl. 10. Móts-
slit verða um hádegisbil á sunnudag.
borgarinnar færist utar. Sam-
kvæmt mannfjöidaspá byggða-
stofnunar verða íslendingar um
306 þúsund árið 2015 og er talið
að um 75% þeirra muni þá búa á
Suðvesturlandi. Á fundinum í kvöld
mun Inga Jóna fjalla um áhrif þess-
arar þróunar á atvinnu- og menn-
ingarlíf landsins að því er segir í
frétt.
Aðgangur að fundinum er ókeyp-
is og er öllum heimill aðgangur.
Fjölnir heldur
málfund
TÍMARITIÐ Fjölnir boðar til mál-
fundar fimmtudaginn 9. júlí kl.
17.30 í blaðsöluturni Fjölnis að
Bankastræti 8, Reykjavík.
Yfirskrift fundarins er: Ljóðið er
halt og gengur við hækju. Hallgrím-
ur Helgason, rithöfundur og mynd-
listarmaður, mun þar ræða gagnrýni
sína á nútímaljóðlist. Að loknu stuttu
erindi Hallgríms mun Jón Hallur
Stefánsson, skáld, þýðandi og út-
varpsmaður, hreyfa andmælum við
málflutningi hans og leggja fram sín
sjónarmið um stöðu íslenskrar ljóð-
iistar.
Umræðum stjórnar Gunnar Smári
Egilsson, ritstjóri.
570 7700
ASTMfl OG 0FNÆMI5
UPPLYSINGALÍNA
GLAXO WELLCOME
UpplysiiiK.ili.rkliiip.il ligiij.’i
fi.immi i olliim Apotokum
og ii hoilsiig.rslustöðVUlH
Heimdallur
Fundur um framtíðar-
möguleika Reykjavíkur
i (tsso) mm
OlíufélaglAhf
RAÐAUGLÝSINGAR
TILBOÐ/UTBOÐ
UTBOÐ
F.h. Rafmagnsveitu Reykjavíkur er óskað
eftir tilboðum í eftirfarandi verk vegna bygg-
ingu 132 kV háspennulínu, frá Nesjavöllum
yfir Mosfellsheiöi og að Bringum í Mosfellsdal.
1. Gerð vegaslóðar, áætluð lengd 16 km og fyll-
ingarefnismagn 37.000 m3. Verkið felst í að
hefla eldri slóðir, jafna undir nýja slóð, aka
möl í slóðina og framkvæma tengda verk-
þætti, svo sem losun efnis, ámokstur á bíla,
útjöfnun í vegastæði, lagningu jarðvegsdúks,
koma fyrir ræsum o.fl.
2. Jarðvinna og gerð undirstaða fyrir 51 há-
spennumastur þar af 41 stagað mastur með
forsteyptum undirstöðum og 10 frístandandi
möstur með staðsteyptum undirstöðum.
Verkið felst í að flytja forsteyptar einingar og
stálhluti í mastursstæði og að koma þeim fyrir.
Einnig að grafa fyrir og steypa undirstöður á
staðnum, grafa og bora fyrir bergboltum og
steypa þá niður. Ganga skal frá stagsteinum
og fylla að öllum einingum og undirstöðum,
plægja eða grafa niður jarðskautsborða í slóð
og leggja jarðskaut að undirstöðum mastra.
Verkid skal hefja 6. ágúst 1997 og skal því
vera lokið 28. nóvember 1997.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn
5.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: miðvikudaginn 23. júlí 1997,
kl 11 á sama stað.
rvr 106/7
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16
SMAAUGLYSINGAR
DULSPEKI
Snæfellsásmótið
Mannrækt undir jökli
um verslunarmannahelgina
1/8-4/8.
Mjög fjölbreytt dagskrá
Dáleiðsla, fyrri líf, ýmsir fyrir-
lestrar m.a. um talnaspeki,
heilsu- og heilbrigði, markmiða-
setningu, svitahof, skyggnilýs-
ingar, lestur í spáspil, áruteikn-
ingar, kvöldvökur o.m.fl.
Nánar auglýst síðar.
Aðgangseyrir 2.900 — frítt fyrir
14 ára og yngri.
Aðgöngumiðar í forsölu til
25/7 á kr. 2.500 hjá
Versluninni Betra lífi,
Kringlunni, sími 581 1380
og Mannræktarmiðstöð
Snæfellsáss samfélagsins,
Brekkubæ, sími 435 6754.
Draumanámskeið
Dreymandinn og seiðkonan Dee
Pye heldur námskeið um dul-
ræna þáttinn í draumum í Mann-
ræktarmiðstöð Snæfellsáss sam-
félagsins dagana 18/7 og 19/7.
Dee stundaði 3 ára draumanám
við Carl Jung Institute og hefur
unnið með drauma og túlkun
þeirra undanfarin 26 ár. Hún
nam seiðmennsku við Michael
Harner stofnunina. Námskeiðið
kostar 6.900 krónur — innifalið
er svefnpokaplásss, morgun- og
hádegisverður og te þann 19/7.
Frábært tækifæri til að læra um
mikilvægi drauma. Nánari upp-
lýsingar í síma 435 6754.
FELAGSLIF
Sálarrannsóknafélagið
Metaria
Þýska sálarrannsóknafélagiö
Metaria með læknamiðilinn og
sjáandann Edeltraut Schröder í
fararbroddi mun halda opinn
fund fimmtudagskvöldiö 10. júlí
kl. 20 í Borgartúni 6. Starfandi
miðlar og huglæknar sem og
aðrir áhugamenn um andleg
málefni eru sérstaklega boðnir
velkomnir. Enginn aðgangseyrir.
Hjálpræóis-
herinn
Kirkjustræti 2
kvöld kl. 20.30:
Lofgjörðarsamkoma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
STOFNAII 190
- kjarni málsins!