Morgunblaðið - 10.07.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 29
LISTIR
Nýr for-
stöðumaður
AUÐUR Ólafsdóttir listfræðingur
hefur verið ráðin forstöðumaður
Listasafns Háskóla íslands.
Auður Ólafs-
dóttir lauk BA
prófi í sagnfræði
og bókmenntum
frá Háskóla ís-
landsárið 1982,
licence prófi í
listasögu frá
Université de
Paris I í París
árið 1984, mast-
ersprófi í lista-
sögu árið 1985 og D.E.A. prófi í
listasögu frá sama skóla árið 1987.
Hún hefur verið stundakennari í
listasögu við Háskóla íslands frá
árinu 1993, kennt listasögu við
Leiklistarskóla íslands frá árinu
1989 og unnið við myndlistargagn-
rýni og ritstörf. Um þessar mundir
vinnur hún að rannsókn og ritun
íslenskrar listasögu áranna 1960 -
1995 með styrk úr Vísindasjóði.
Listasafn Háskóla íslands var
stofnað árið 1980 af listaverkagjöf
hjónanna Ingibjargar Guðmunds-
dóttur og Sverris Sigurðssonar. í
stofnskrá safnsins er kveðið á um
að til kaupa á listaverkum og varð-
veislu þeirra skuli árlega renna 1%
þeirrar fjárhæðar sem varið er til
nýbygginga á vegum háskólans. I
eigu safnsins eru í dag um 900
verk og eru sýningarstaðir þess
hinar ýmsu stofnanir og byggingar
Háskóla íslands. Listasafn Há-
skóla íslands sinnir einnig rann-
sóknarverkefnum á sviði íslenskrar
listasögu í tengslum við listasögu-
kennslu innan heimspekideildar
Háskóla Islands.
Augnablik
styrkir rann-
sóknarstörf
í KVÖLD, fimmtudag, mun all-
ur ágóði af ástarleiknum Trist-
an og ísól, sem Augnablik sýn-
ir í Borgarleikhúsinu, renna til
rannsókna Brynjólfs Snorra-
sonar að Mið-Samtúni í Eyja-
firði.
Brynjólfur Snorrason hefur
um árabil rannsakað áhrif raf-
segulsviðs á lífríkið. Rannsóknir
hafa leitt í ljós að rafsegulsviðs-
mengun getur orsakað ýmsa
þá kvilla sern hijá menn og
skepnur nútímans, segir m.a. í
fréttatilkynningu Augnabliks.
Sílikondýr
HLÍN Gylfadóttir opnar sýn-
ingu í Mokka föstudaginn 11.
júlí þar sem til sýnis verða síli-
kondýr.
Þetta eru dýr framtíðarinnar
sem nærast á eiturefnum og
úrgangi samfélagsins og eru
fær um að nýta sér þau efni
úr umhverfinu sem önnur dýr
deyja af. Sílikondýrin eru þær
lífverur sem munu taka við
heiminum og kunna þá list best
að aðlagast aðstæðum. Til sýnis
verða bæði svipmyndir úr dag-
legu lífi sílikondýra og einnig
verða dýrin þar sjálf til sýnis.
Sýningin stendur til 6. ágúst.
PHILPS VR-161
2 hausa mono,
scart tengi,
Mjög enfalt í
notkun!
IV!
Staðgreitt
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
www.ht.is
umboðsmenn um land allt
Heimilistæki hf
Dantax vcr-610
6 hausa, Hi-Fi, nicam
stereo, long play,
show view, aðgerðir
á skjá.
40JOQ
Staðgreitt
mioo
Staðgreitt
Dantax vcr-355
4 hausa, long play,
show view,
aðgerðir á skjá
34,800
Staðgreitt
SANYO vhr-796
6 hausa, Hi-Fi, nicam
stereo, long play,
show view, SPORTS
REVUE, getur spilað
mynd með hljóði á
tvöföldum hraða.
PHIllPs
PHILPS VR-665
6 hausa Hi-Fi,
Nicam stereo,
Long play, show view,
aðgerðir á skjá.
51.800
Staðgreitt