Morgunblaðið - 10.07.1997, Blaðsíða 18
FIMMTUDAGUR 10. JULI 1997
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Þú saínar
lijá oleJíur...
HÚSASMIÐJAN
SIFKfiÐASKOÐUN HF
S§§ Tæknival
flA\í ftlEFÍW
FLUCFÉIAG fSLANDS
Air leetand
®> TOYOTA
MEGASTORE
Útsölur að hefjast
Afsláttur svipaður og undanfarin ár
í dag, fimmtudag, hefst formlega
útsölutímabil sumarsins í Kringl-
unni sem lýkur um miðjan ágúst.
Ekki eru þó allar verslanir þar sem
byrja með útsölu í dag en marg-
ar. Afsláttur sem veittur er að
þessu sinni er svipaður og undan-
farin ár eða á bilinu 30% - 40%
og síðan eru víða tilboðshorn eða
slár með vörum á 50-70% afslætti.
Mismunandi er hversu lengi út-
sölurnar standa en götumarkaður-
inn í Kringlunni er á dagskrá
skömmu eftir verslunarmanna-
helgi.
Það virðist allur gangur á því
hvenær útsölur hefjast við Lauga-
veg og dæmi eru um að verslunar-
eigendur ætli að hinkra fram að
verslunarmannahelgi. Nokkrir
verslunareigendur hófu útsölu
strax í byijun vikunnar. Hjá versl-
uninni Flash hófst útsalan til dæm-
is síðastliðinn þriðjudag. Að sögn
Huldu Hauksdóttur eiganda Flash
tóku viðskiptavinir vel við sér en
afslátturinn hjá henni er um 40%
og síðan er hún með tilboðsslár
þar sem verðið er lækkað enn
meira.
Hjá Englabörnum við Laugaveg
hefst útsala á föstudag og þar
nemur afslátturinn að meðaltali
40%. Hjá barnafataversluninni Du
pareil au méme við Laugaveginn
verður engin útsala. „Við erum
aldrei með útsölu. í'Frakklandi þar
sem Du pareil au méme er stór
verslunarkeðja er sú stefna að
vera ekki með útsölu heldur reyna
að bjóða lága álagningu allan árs-
ins hring. Við fylgjum þessari
stefnu", segir Kristrún Markús-
dóttir.
Þúsund hlutir
á eina krónu
Meðal verslana sem byija með
útsölu í dag er Hagkaup. Þar verð-
ur útsalan með breyttu sniði. Að
sögn Jóns Björnssonar innkaupa-
stjóra hjá Hagkaupi er stefnan að
lækka vörurnar um 40-70% strax
í byijun og lækka þær ekki enn
frekar þegar líða tekur á útsölu-
tímabilið. Þá verða ýmis tilboð á
fimm daga fresti. Nokkrir vörulið-
ir eru þá boðnir á mjög lágu verði
t.d. barnabolir á 150 krónur,
íþróttaskór á 200 krónur og herra-
sokkar á 49 krónur. Auk þess
verða þúsund hlutir seldir á eina
krónu í dag, fimmtudag, í Hag-
kaup Kringlunni, Skeifunni,
Njarðvík og á Akureyri. Um er
að ræða allt milli himins og jarð-
ar, skó, búsáhöld eins og bolla og
skeiðar og ýmislegt fleira.
Að sögn Mörtu Árnadóttur
verslunarstjóra hjá Vero Moda
verður útsalan hjá þeim með svip-
uðu sniði og áður. Útsalan hefst
í versiuninni í Kringlunni í dag en
viku síðar við Laugaveg. „Við
erum með flestar vörurnar á út-
sölu en þó verður vöruvalið aðeins
mismunandi í búðunum. Afsláttur-
inn er að meðaltali 40%. Það sama
gildir um verslunina Jack & Jo-
nes. Útsalan hófst í morgfun hjá
tískuversluninni Oasis í Kringl-
unni. Þar er 40-60% afsláttur
veittur af flest öllu og að sögn
Þorbjörns Stefánssonar er ein-
SUMARTI LB0Ð J
á hústjöldum, fjölskyldutjöldum, útivistarfatnaöi og gönguskóm.
við Umferðarmiðstöðina,
sími 551 9800
Morgunblaðið/Ásdís
göngu um nýjar, vörur að ræða
þar sem verslunin var opnuð í
mars síðastliðnum.
Rýmingarsala í Ikea
Á morgun, föstudag, hefst rým-
ingarsala í Ikea. Að sögn Guð-
mundar Pálssonar markaðsstjóra
hjá Ikea er verið að rýma til fyrir
nýjum vörum sem koma samfara
nýjum bæklingi með haustinu.
Vörurnar verða seldar með 30-70%
afslætti og um er að ræða sófa,
stóla, sængurfatnað, búsáhöld og
margt fleira. Sem dæmi má nefna
að handklæði verða seld á 125
krónur, glös sem kostuðu áður
1.150 kosta á rýmingarsölunni 690
krónur og sófí sem kostaði 69.000
er nú seldur á 47.900 krónur.
10-11 verslanirnar
Unghænur
á 99 krónur
í morgun hófst útsala á ung-
hænum hjá 10-11 verslunun-
um. Unghænurnar kosta
núna 99 krónur stykkið. Alls
verða 7.000 unghænur seldar
á þessu verði.
Að sögn forsvarsmanna hjá
10-11 verslununum kostar
unghæna venjulega um
250-300 krónur.
Unghænur þurfa lengri
suðu en kjúklingar en henta
annars vel í pottrétti.
Afurðamarkaður Suðurlands Sala 8. júli 1997
Vörutegund Lægsta verð Hæsta verð
Svínahryggur 589 589
Svínahryggur, frosinn 533 533
Svínalæri 334 355
Svínalæri, frosin v 313 &&& */313
Svínahnakki |?S|, 310 Bfe 317
Svínasíða !É 194 209
Svínasíða, frosin W 183 183
Svínaskankar 35 35
Hrossalundir 605 605
Eitt kíló af fötum á 1.000 kr.
ÞESSA dagana stendur yfir svo-
kallaður kílóamarkaður hjá
Spútnik á Vesturgötu 3. Á boð-
stólum er ýmis fatnaður, íþrótta-
peysur, jakkar, pelsar, kápur,
kjólar, skyrtur og bolir. Að sögn
Maríu Pétursdóttur hjá Spútnik
er þetta í annað skipti sem boðið
er upp á kílóamarkað sem kemur
í stað útsölu. „Þetta mælist vel
fyrir, það er mikið að gera allan
daginn og okkur finnst þetta
skemmtileg tiibreyting." Þó að
fatnaðurinn höfði mest til ungl-
inga segir María að viðskiptavin-
irnir séu á öllum aldri bæði kon-
ur og karlar.“
Morgunblaðið/Arnaldur
MARIA Pétursdóttir viktar
hér föt fyrir viðskiptavin.
Sumarútsaían
ftefst á morgun,
Man
Kvenfataverslun
Hverfisgötu 108,
á horni Hverfisgötu og Snorrabrautar,
sími 551 2509