Morgunblaðið - 10.07.1997, Page 3
ARGUS S ÖRKIN /SlA SA012
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 3
Hrein íslensk
nóttúruaíurð
garðyrkjubændur nota ekki eiturefni.
■
Garðyrkjubóndi velur salatplöntur á markaðinn.
Fjölbreytnin eykst stöðugt.
Allar paprikur eru grænar í upphafi en breyta um lit
við að þroskast.
Býflugur snúa til heimkynna sinna
að loknum störfum.
Svepparæktun er afar flókin og byggist á
ótal þáttum sem þurfa að vera í fullkomnu lagi.
Tómatarnir eru látnir roðna, eftir að þeir
skilja við plöntuna, til að halda ferskleikanum.
íslenskum garðyrkjubændum
er annt um að skila hreinni og
ómengaðri gæðaafurð til neytenda
og er tækni og hugviti óspart
beitt í því skyni.
Liður í því er að virkja eðli
náttúrunnar. Ákveðnum tegundum
skordýra er sigað á skaðvalda til
þess að verja grænmetisplönturnar,
í stað þess að úða á þær eiturefnum.
Býflugur eru notaðar til að frjógva
tómata og jarðaber í stað manns-
handarinnar og strangt gæðaeftirlit
er hvarvetna til staðar.
Grænmeti er viðkvæm vara og hefur takmarkað geymsluþol. íslensku garðyrkjubændurnir
nota ekki rotvarnarefni til að lengja líftíma afurða sinna, en eru þess í stað með tíðar sendingar
í verslanir sem geta því boðið ferskt, hollt og sérlega bragðgott grænmeti allt sumarið.
í framtíðinni mun raflýsing grænmetis í gróðurhúsum gefa íslenskum bændum enn meiri
möguleika á framleiðslu utan hefðbundins framleiðslutíma.
Það kemur okkur öllum til góða.
ÍSLENSK GARÐYRKJA
tiv ítáxL