Morgunblaðið - 10.07.1997, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Víkingahátíð í Hafnarfirði
Víkingar lágu
í valnum
BARIST var til siðasta manns á vígvelli vikinga í Hafnarfirði.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
VIKINGAIIATIÐ hófst í gær á
Víðistaðatúni í Hafnarfirði. For-
seti íslands opnaði hátíðina form-
lega klukkan 16 og að því loknu
fengu gestir sýnishorn af dag-
skrá hátíðarinnar næstu fimm
daga.
Gengið var að vígvelli þar sem
víkingar börðust til síðasta
manns og sýndu mikla leikni og
tilþrif. Áhorfendur klöppuðu
þeim lof í lofa og voru ánægðir
þrátt fyrir rigningu sem hófst
tímanlega að íslenskum sið. Því
næst afhenti sigurvegari orrust-
unnar forseta Islands, Ólafi
Ragnari Grímssyni, glæsilegt
víkingasverð og glímukappar
stigu fram og sýndu íslenska
glímu. Hestar og leikhópar voru
á svæðinu og rímur voru kveðn-
ar.
Á svæðinu er búið að slá upp
vikingatjöldum þar sem ýmis
varningur er seldur. Kjötskrokk-
ar voru grillaðir á opnum eldi
og gátu hátíðargestir hvort sem
er gætt sér á kjötinu eða þurrk-
uðum þorskhausum. Nútímaiegri
veitingar voru einnig á boðstól-
Stöð 2 telur morgiinsjón-
varp ekki vænlegan kost
MORGUNSJÓNVARP hefur verið á
teikniborði Ríkissjónvarpsins og
Stöðvar 2 undanfarið. Stöð 2 hefur
þó lagt allar hugmyndir um morgun-
sjónvarp til hliðar. RÚV hyggst á
hinn bóginn hefja útsendingar á
morgunsjónvarpi næsta haust.
Morgunþáttur Ríkisútvarpsins
verður unninn hjá Saga Film og
verða útsendingar alla virka daga
milli kl. 7 og 9 á morgnana.
Að sögn Sigurðar Valgeirssonar,
dagskrárstjóra Sjónvarpsins, er
morgunþátturinn hugsaður sem
magasínþáttur og sendur út að
mestu leyti í beinni útsendingu. í
þættinum verður fjallað um ýmis
dægurmál, fréttir verða sagðar á
kortersfresti, fylgst verður með veðri
Engar markaðskannanir verið gerðar
hjá auglýsendum eða áhorfendum
og færð og sagðar íþ róttafrétti r.
„Við skoðuðum möguleikann á
morgunsjónvarpi fyrir fimm árum
og gerðum þá allítarlegar áætlanir
um hvernig það myndi líta út og
hvað það myndi kosta," sagði Páll
Baldvin Baldvinsson, framkvæmda-
stjóri dagskrársviðs Stöðvar 2. „Síð-
an þá höfum við svo skoðað þennan
möguleika reglulega en alltaf ýtt
honum út af borðinu aftur.“
Páll Baldvin sagði að Jón Þór
Hannesson, framkvæmdastjóri Saga
Film, hefði haft samband við Stöð 2
fyrir ári og lýst yfir áhuga á sam-
starfi um morgunþátt. „Við töldum
hins vegar þá og teljum enn, að
ekki væri ástæða fyrir okkur að fara
út í svona dagskrárgerð."
Mun ódýrari
en Dagsljós
Sigurður Valgeirsson var ekki til-
búinn að gefa upp kostnaðinn við
gerð morgunþáttanna. Til saman-
burðar má geta þess að hver Dags-
ljósþáttur kostar um hálfa milljón
en að sögn Sigurðar verða morgun-
um og minjagripir af ýmsu tagi
boðnir til sölu.
Á Víkingahátíð sem haldin var
fyrir tveimur árum og stóð í þrjá
daga komu um 13 þúsund manns
en í ár er búist við allt að 20
þúsund manns. Um sjö hundruð
erlendir gestir eru væntanlegir,
þar af rúmlega 300 víkingar sem
munu halda til á Víðistaðatúni.
þættirnir ódýrari og íburðarminni.
Páll Baldvin Baldvinsson, hjá Stöð
2 sagði að miðað við þær markaðs-
kannanir sem gerðar hafi verið af
Stöð 2 hefði það verið mat manna
að morgunsjónvarp yrði ekki arð-
vænlegt, enda þátturinn dýr og aug-
lýsingamarkaðurinn fyrir morgun-
sjónvarp vanþróaður.
Ríkissjónvarpið hefur ekki látið
gera neinar markaðskannanir hvorki
meðal auglýsenda né áhorfenda. Sig-
urður Valgeirsson kvaðst þó bjart-
sýnn á að morgunsjónvarpið ætti
eftir að falla landsmönnum vel í
geð. „Ég hef talsvert mikla trú á
morgunsjónvarpi og að svona þáttur
eigi eftir að standa undir sér þegar
til lengri tima er litið."
Flugfélag íslands
og íslandsflug
Tilboðs-
fargjöldin
fram-
lengd
LÆKKUÐ fargjöld Flugfélags
íslands og íslandsflugs munu
standa nokkuð áfram. Flugfé-
lag íslands ákvað í gær að
framlengja tilboð sitt til loka
ágústmánaðar og hjá íslands-
flugi standa ódýru fargjöldin
til boða út september.
íslandsflug tilkynnti við
upphaf áætlunarflugs síns, 1.
júlí, að fargjöld yrðu fyrst um
sinn kr. 6.900 báðar leiðir frá
Reykjavík til allra staða nema
kr. 5.900 til Vestmannaeyja.
Hefur nú verið ákveðið að þau
gildi til 30. september. Ómar
Benedjktsson, framkvæmda-
stjóri íslandsflugs, segir sæta-
nýtinguna hafa verið 65%
fyrstu vikuna en stefnt sé að
70% nýtingu.
Flugfélag íslands kynnti til-
boð sitt, sumarglaðning, sem
gilda átti í júlí, en ákvað í gær
að hann gilti einnig í ágúst
og sömuleiðis að fjölga sætum
úr 20 þúsund í 25 þúsund.
Dæmi um fargjald milli
Reykjavíkur og Akureyrar
báðar leiðir er kr. 7.330. Þá
hefur Flugfélag Íslands einnig
tilkynnt að allir viðskiptavinir
fyrirtækisins fái tvöfalda frí-
kortspunkta í öllu flugi frá 15.
júlí til 31. ágúst.
Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson
Framkvæmdir Norðuráls
eru í fullum gangi
UNNIÐ er nótt og dag við bygg-
ingu nýs ólvers við Grundartanga.
Það er llka ástæða til að láta hend-
ur standa fram úr ermum því
Norðurál hf. ætlar að taka álverið
f notkun 1. júní á næstaári.
Þegar blaðamann og Ijósmynd-
ara bar að garði var allt i fullum
gangi; jarðvegsvinna á lokastigi
og byrjað að steypa fyrir kerskál-
unum. Að sögn Brynjars Jónsson-
ar, verkfræðings, miðar fram-
kvæmdum vel.
Bygging Norðuráls er eitt
stærsta verkefni íslenskra verk-
fræðinga af þessu tagi. Hönnun
hf., Rafhönnun hf. og VST hafa
myndað samstarfshópinn HRV
sem ásamt bresku verkfræðistof-
unni K Home Engineering vinnur
við eftirlit og hönnun álversins.
Þá koma nokkrir fslenskir
verktakar að framkvæmdunum.
Háfell ehf. sér um jarðvinnu og
er búist við að henni Húki um
miðjan ágúst. Þá sér ISTAK hf.
um steypuvinnu við kerskálana.
„Verkið er unnið þannig að byrjað
er á byggingu vestasta hluta ker-
skálanna," sagði Bryiýar. „Þegar
búið er að steypa þann hluta taka
næstu verktakar við og setja upp
stálgrindina og klæða, en lstak
byijar steypuvinnu við annan
áfanga kerskálanna. Og þannig
koll af kolli.“