Morgunblaðið - 10.07.1997, Page 8

Morgunblaðið - 10.07.1997, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞÚ getur verið alveg rólegur það þarf ekkert að bora. -hlltafgóöur Vínarpylsur 9 stk í pk RRQkr.kg. Beikon fjölskyldupakki (/e/'/ryotJ betiir Villijurtakryddaður Iambadúett OOft kr.kg. ISLENSK MATVÆLI aœc/c/u/jÁér á^yóAii Marineruð síld. 520 ml 10 konfekt síld, 250 ml 14 Íslandssíld, 250 ml 13 Karrýsíld, 250 inl 14 Ilvítlaukssíld, 250 inl 14 Sinnepssíld, 250 ml 14 Tómatssíld, 250 inl 14 súkkulaði 100grOl Fetaostur í kryddolíu, 240 gr tSám Kryddsmjör m/jurtakryddi, 100 gr Bóndabrie, 100 gr 135 - bakar brauðið þitt! Rúgbrauð sncitt Vínarterta brún ’ Homblest 50% meira Súkkulaði Hcilhveiti, 200 gr Súkkulaði At Póló, 200 gr Ávaxtasafi, m ni' Appelsínusafí íaStffw Ananassafi Bananasafí Vínberja- og bcrjasafí Rauðappelsínusafí Eplasafí Greipsafi , Sun Cocktailsafí Jjf Ferskjusafí Perusafi k;n, Þin uerslun er i eftirtöldum stóíum: Arnarbakka 4Í, Reykjavik • Vesturbergi 76. Reykiavik • Hagamel 39, Reykjavík • Mjóddinni, Reykjavik Seljabraut 54, Reykjavik • Suðurveri, Reykjavik • Grimsbæ, Reykjavlk • Hringbraut 92. Keflavík • Mi&bæ 3, Akranesi • Grundargötu 35, Grundarfiröi Ólafsbraut 55, Ólafsvík • Skeiíii 1, ísafirfti • Silfurgötu 1, ísafiröi • ísafjarftarvegi 2, Hnifsdal • Vítastíg 1, Bolungarvík • Lækjargötu 2, Siglufirbí Aöalgötu 16, Ólafsfiröi • Mýrarveg, Akureyri • Álaugarvegi 1, Höfn Homafiröi • Breiöumörk 21, Hverageröi • Tryggvagötu 40, Selfossi. Listasumar á Seyðisfirði Gömlu húsin hentug til sýninga Einar Árnason Listasumar á Seyðis- firði stendur nú sem hæst, en það hófst með norskum dögum síð- ustu helgina í júní. Þá flutti leikfélag Seyðisfjarðar Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner. Einnig voru fjölmörg tónlistaratr- iði flutt. Fimm myndlistarsýn- ingar hafa verið opnaðar og eiga tugir listamanna verk á þeim sem staðsettar eru víða um bæinn og enn á eftir að oppna fleiri sýn- ingar, þá á verkum ís- lenskra listamanna sem eru búsettir erlendis. Þá eru ónefnd þrjú íslensk leikrit sem eru á dagskrá Listasumarsins og hafa nú þegar tvö þeirra verið flutt, eftir Elísabetu Jökulsdótt- ur og Völu Þórsdóttur. Þann 24. júlí flytur svo Sigrún Sól Ólafsdóttir einleik sem byggður er á textum Þorvalds Þorsteinsson- ar í leikstjórn Guðjóns Pedersens. íslensk kvikmyndahátíð á sinn stað á Listasumrinu en hún hefst þann 15. ágúst en á þeim tveim vikum sem hún stendur yfir verða sextán íslenskar kvikmyndir sýnd- ar auk tveggja stuttmynda. - Hví hafið þið kosið að nefna Listasumar á Seyðisfirði „Á Seyði“? „Það lá mjög vel við vegna þess að hér er margt á seyði í listalífinu og hliðstæðan við nafn bæjarins blasir einnig við. Þess má líka geta að þessi hefur einnig verið yfirskrift myndlistarsýninga síð- astliðinna tveggja ára.“ - Hafið þið einhverja fyrirmynd að svona hátíð? „Nei, ekki aðra en þá að fyrir tvemur árum fagnaði Seyðisfjarð- arkaupstaður eitthundrað ára kaupstaðarafmæli sínu og af því tilefni ákváðu bæjaryfirvöld að efna til menningarhátíðar. Það er von okkar að svona hátíð festist í sessi og fólk geti gengið að henni vísri. Það gerist í rólegheitum eft- ir því sem hún er haldin oftar og til þess þarf smáþolinmæði, en all- ir sem koma að málum, bæði lista- menn og skipuleggjendur sýna þessu góðan skilning og sérstak- lega vil ég nefna það hversu lista- mennirnir hafa sýnt mikil liðleg- heit og góða samvinnu." - Hefur verið góð aðsókn að „Á Seyði"? „Já, það hefur verið ágætis að- sókn. Við fórum rólega af stað með norsku dögunum. Mér sýnist íslendingar vera í talsverðum meirihluta og þó að sumir komi kannski ekki beinlínis hingað í þeim tilgangi einum að skoða það sem hér er í boði, þá erum við fullsátt því ferða- menn eiga hér áningu lengur en ella vegna Listasumars- ins.“ - Hvað er helst á seyði? „Það er ógerlegt að gera upp á milli þeirra atriða sem í boði eru en ég get nefnt óvenju veglega myndvefnaðarsýningu á verkum Gerhards Munthe. Hann leitar til heims norrænnar goðafræði í verk- um sínum og það er að mínu mati algjör nauðsyn fyrir þá sem hafa áhuga á myndvefnaði að sjá þessa sýningu. Verkin eru mikil að vöxt- um, allt upp í þrír metrar á kant og mörg hver um tveir metrar. Þessi sýning var sett upp í í Seyðis- fjarðarskóla, sem að mínu mati er ►Einar Árnason menningar- fulltrúi Seyðisfjarðar er fædd- ur árið 1956 í Reykjavík. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjvík árið 1976 fór Einar í fram- haldsnám til London og lauk B.Sc.-prófi frá University Col- lege London og M.Sc.- prófi í þjóðhagfræði frá LSE árið 1981. Hann vann á Þjóðhags- stofnun í fimm ár að loknu námi en frá árinu 1986 hefur Einar unnið sjálfstætt. Hann á þijú börn þau Birnu Ósk, Þóru og Kristján. ákaflega hentugt húsnæði fyrir myndlistarsýningar og ekki síst vegna þess að húsið er norskt að uppruna, reist árið 1907. Það má líka nefna sýningu á verkum eftir Stefán frá Möðrudal sem þekja veggi upplýsingamiðstöðvar ferða- mála á Vesturvegi. Roni Horn á verk á sýningu hér og Páll á Húsa- felli sýnir teikningar frá 1980 af gömlum vinum sínum og högg- myndir í steini.“ - Páll á Húsafelli lét víst ekki þar við sitja? „Aldeilis ekki því hann var ekki fyrr kominn hingað en hann komst að því að sjö kvikmyndir eftir Frið- rik Þór Friðriksson verða sýndar á kvikmyndahátíðinni og þegar hann frétti að við Friðrik værum kunningjar þá lagði hann til að við hringdum í hann og fengjum leyfi til að höggva hann í stein. Síðan fann Páll góðan stein og höggmyndin af höfði Friðriks var tilbúin undir kvöld þessa dags. Það stendur til að afhjúpa verkið við setningu kvikmyndahátíðarinnar.“ - Hvaða gildi hefur svoha menningarhátíð fyrir átta hundruð manna kaupstað? „Þetta er tvímæla- laust mikill innblástur fýrir listalífið í kaupstaðnum og ég hugsa að flestir bæir njóti þess mjög að fá tugi listamanna til sín. Ég nefni sem dæmi að hér á Seyð- isfirði er heldur lítil myndlist stunduð og áhrifin af svona menn- ingarhátíðum og öllum þeim fjölda myndlistarmanna sem hér sýna verk sín verða eflaust á þann veg að fólk fer sjálft af stað með sköp- un sína úr því enginn er myndlistar- kennarinn hér, en við væntum þess að úr því rætist fljótlega. Á hinn bóginn er fjörugt tónlistarlíf hér. Það er sjötíu manna tónlistarskóli og lúðrasveit auk stórsveitar Aust- urlands sem Seyðfirðingar eru í. Hjó höfuð Friðriks Þórs í stein

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.