Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 13

Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 13 AKUREYRI Starfsdagur í Gamla bænum í Laufási Gömlu handtökin sýnd HINN árlegi starfsdagur í Gamla bænum í Laufási verður sunnudaginn 13. júlí nk., á ís- lenska safnadaginn. Þessir dagar hafa verið haldnir síð- ustu ár við miklar vinsældir og hafa mörg hundruð gestir lagt leið sína í Laufás þennan dag til að sjá gömlu handtökin sýnd. Starfsdagurinn í ár verður fjölbreyttur en höfuðáherslan verður lögð á tóvinnuna sem er nokkurs konar þema dags- ins. Sýnd verður vinnsla ullar og hvernig hún verður að flík. Einnig verða kynntar íslenskar jurtir og notkun þeirra, annars vegar til litunar og hins vegar til heilsubótar og lækninga, auk þess sem boðið verður upp á jurtaseyði og jurtate. Þá verður útskurður sýndur af hagleiksmönnum og á hlóðum Laufásbæjar verða lummur bakaðar. Eldri borgarar taka virkan þátt Utanhúss verður slegið með orfi og þ'á - stúlkurnar ganga í flekkinn og heyið verður bund- ið í bagga og sett upp á hest. í sumar hefur staðið yfir viðgerð á stofum bæjarins í Laufási og þennan sunnudag munu vanir torfhleðslumenn sýna handtök- in, hvernig hlaðið er með klöm- brum og streng. Það er Ingibjörg Siglaugs- dóttir prestfrú í Laufási sem hefur yfirumsjón með þessum starfsdegi ásamt starfsfólki Minjasafnsins á Akureyri. Fé- Iagar í félögum eldri borgara við Eyjafjörð og Þingeyjarsýslu taka virkan þátt í störfum þessa dags en einnig eru margir af Arskógshreppur Borun til- raunaholu að hefjast í ÁRSKÓGSHREPPI er að hefjast leit að heitu vatni á svokölluðum Brimnesborgum. Starfsmenn Jarð- borana hf. eru að undirbúa borun á könnunarholu á svæðinu og seg- ist Kristán Snorrason oddviti von- ast til að árangurinn verði sá að í kjölfarið verði hægt að bora virkj- unarholu. „Þessi staðsetning er mjög álit- leg en Brimnesborgir eru miðsvæð- is í sveitarfélaginu og á milli þétt- býlisstaðanna Hauganess og Ár- skógssands.“ Gerum okkur góðar vonir Kristján sagði ekki hægt að segja til um á þessari stundu hversu margar tilraunaholur yrðu boraðar. „Þetta er framhald á þeirri vinnu sem fram fór hér í fyrra en þá voru boraðar 12 holur. Sú vinna leiddi okkur á þennan stað sem nú á að kanna betur. Við gerum okkur góðar vonir um að þarna finnist vatn til að hita upp hús í hreppnum." ~ Kristján sagði að einnig væri möguleiki á að fá vatn frá Ytri- Vík. Þar stóð Sveinn Jónsson í Kálfskinni fyrir borun eftir heitu vatni með góðum árangri. „Sá staður þykir þó heldur langt í burtu, enda markaðssvæðið sem um ræðir lítið. Hver kílómetri í aðveituæð vegur nokkuð þungt í stofnkostnaði og því er verið að skoða þennan möguleika á Brim- nesborgum,“ sagði Kristján. yngri kynslóðinni sem leggja sitt af mörkum. Tónlist í kirkjunni Sú nýjung verður tekin upp að sérstök dagskrá fer fram í Laufáskirkju jafnhliða dag- skránni í Gamla bænum og á hlaðinu. Þar verða flutt sýnis- horn úr íslenskri tónlistarsögu og eru flyljendur Ragnheiður Olafsdóttir og Þórarinn Hjart- arson. Einnig mun sóknarprest- urinn sr. Pétur Þórarinsson flytja nokkra mergjaða kafla úr Vídalínspostillu. Þessi dag- skrá verður flutt tvívegis, kl. 15 og 16 og verður klukkum kirkjunnar hringt áður en dag- skráin hefst. I garði prestsetursins í Lauf- ási verður komið upp aðstöðu til að tylla sér niður og kaupa sér kaffi og kleinur á vægu verði. Dagskráin á starfsdegin- um hefst kl. 14 og henni lýkur kl. 17. Aðgangseyrir er kr. 200 en enginn fyrir 12 ára og yngri. Morgunblaðið/Kristján FJOLDI gesta hefur lagt leið sína á starfsdag í Laufási sl. ár. IVIeiriHáttar UTSALA HEFST í DAG KL. 10 20-50% afsláttur ÍM iföt áður^ðtSfm nú 9.900 kkar áður JJOfOOtT nú 4.900 Vesti áðurjMMHf nú 2.900 rtur áður*3f90tT nú 2.500 kar áðurjft90tf nú 6.900 Diesel kjaUari _ • Diesel buxur áðurZSOO nú 3.900 . eysur áður3*90tf nú 1.500 íolir áður 3*290 nú 1.900 $jms 4.900 Strigaskór aður nú 3.900 SNYRTIVORUDEILD 10 - 40% afsláttur 10% afsláttur af öllum nýjum vörum á útsölunní -skór Tilboð Done skór frá 3.500 40% afsl. af öllum Destroy sandölum Zale klossar áðurA*90tr nú 2.500 Sandalar áðurA^OtT nú 1.900 Laugavegi 91, simi 511 1717 Kringlunni, sími 568 9017.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.