Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 21
URVERINU
Skipafélagið Föroyar vill þjónusta íslenzk skip
„Getum alltaf boðið
skipum ódýrari olíu“
Morgunblaðið/Halldór Bachman
„ Síldartunnuflóð“
„VERÐMUNUR á olíu til fiski-
skipa milli Færeyja og íslands hef-
ur verið á bilinu 2,80 til rúmlega
fjórar krónur á hvem lítra okkur
í vil. Síðast þegar við könnuðum
málið kostaði olían hér um 1,13
krónur færeyskar eða um 11,87
krónur íslenzkar. Þá var hún 4,20 .
krónum íslenzkum dýrari á ís-
landi. Það er því ljóst að við getum
alltaf boðið lægra olíuverð en ís-
lendingar, hvernig sem á því stend-
ur,“ segir Árni Dam, starfsmaður
Skipafélags Færeyja, í samtali við
Morgunblaðið.
Bjóða heildarlausnir
Skipafélagið býður íslenzkum
fiskiskipum upp á svokallaðar
heildarlausnir, það er löndun, olíu
og vistir og flutning afurða til
umskipunarhafna í Evrópu og
þaðan til Austurlanda eða til við-
takenda á meginlandi Evrópu.
Árni Dam segir að togarar geti
sparað um eina milljón íslenzkra
króna á því einu að kaupa olíuna
í Færeyjum og segir dæmi þess
að útgerð frystitogara hafi sparað
10 milljónir króna með því að
landa í Færeyjum og taka „allan
pakkann", heildarlausn, í stað
þess að sækja sömu þjónustu til
hafnar á íslandi.
„Við erum fyllilega samkeppnis-
færir á þessu sviði og ætlum okkur
stærri hlut í þjónustunni við stóru
fiskiskipin sem stunda veiðaj á
Norður-Atlantshafi," segir Árni
Dam.
Efast um að verðið standist
Verð á gasolíu til skipa á ís-
landi er um 16,71 króna, sem er
um 1,56 danskar krónur. Garðar
Steindórsson hjá skipaþjónustu
Olíufélagsins hf. segist efast um
að það olíuverð sem gefið er upp
í Færeyjum standist. Verð á olíu
fari eftir magni í hvert skipti þeg-
Segja togara geta
sparað milljón á
olíukaupum í
Færeyjum
ar olía er afgreidd eða á ársgrund-
velli sé gerður samningur um það.
„Okkar viðskiptasambönd í
Færeyjum hafa ekki getað boðið
okkur olíu á þessu verði. Við höf-
um keypt olíu í Færeyjum fyrir
íslensk loðnuskip sem þar hafa
landað og yfirleitt hefur verðið
verið á bilinu 1,30 til 1,40 dansk-
ar krónur.“
Þrjú olíufélög í Færeyjum
Garðar efast ennfremur um að
það borgi sig fyrir íslensk skip að
leita eftir þessari þjónustu í Fær-
eyjum. Fjarlægðin geri það að
verkum í flestum tilfellum að olíu-
eyðsla og veiðitap skili ekki hag-
ræðingu fyrir útgerðirnar. Hann
segir erfitt að segja til um hvers
vegna Færeyingar geti boðið lægra
olíuverð. í Færeyjum séu þijú olíu-
félög og tvö þeirra selji eigin fram-
leiðslu og geti því væntanlega hag-
að verðútreikningum eftir fram-
boði og eftirspum.
Olíuverð oft lægra en
innkaupsverð
Ingólfur Kristmundsson hjá
skipaþjónustu Olís hf. segir mark-
aðsverð til færeyskra skipa vera
hærra í Færeyjum en sé verið að
bjóða íslenskum skipum núna.
„Færeyingar hafa alltaf verið með
gott verð á olíu og það veldur okk-
ur vissulega áhyggjum að við skul-
um ekki geta boðið jafn gott verð.
Við hins vegar teljum að þeir selji
olíuna með nánast engri álagningu
og stundum sé verðið lægra en
innkaupsverðið. Við teljum okkur
hafa góðar upplýsingar um inn-
kaupsverð á olíu og talið okkur
vera með góða samninga við þá
sem við kaupum olíuna af. En ef
það er tilfellið að þeir fái olíuna á
betra innkaupsverði en við, þá er
það alvarlegt mál,“ segir Ingólfur.
Hafnargjöld ekki hærri á
íslandi
Samkvæmt samanburði Hafnar-
sambands sveitarfélaga á Norður-
löndum eru hafnargjöld í Færeyj-
um og á Norðurlöndum í líkingu
við það sem gengur og gerist hér
á landi. Hannes Valdimarsson,
hafnarstjóri Reykjavíkurhafnar,
segist því líta þannig á málið að
hafnir í Norður-Atlantshafí séu
almennt í samkeppni um að laða
til sín viðskipti. „Við bjóðum sjálf-
ir ekki þessa þjónustu sem verið
er að auglýsa í Færeyjum. Hlut-
verk Reykjavíkurhafnar er fyrst
og fremst að skapa aðstöðu í höfn-
um og bjóða gjöld sem eru sam-
keppnisfær, þannig að fyrirtæki
sem sjá um löndun og flutninga
séu samkeppnisfær sömuleiðis,"
segir Hannes.
Kostur sem verður skoðaður
íslensk skip hafa til þessa lítið
landað af afurðum í Færeyjum,
einkum bræðslufiski í Fuglafirði.
Jónas Haraldsson, hjá LÍU, telur
að Færeyingar séu með þessu til-
boði sínu einkum að sækjast eftir
loðnu- og síldarskipum sem séu
að veiðum á milli íslands og Fær-
eyja. Hann segir vissulega mögu-
leika á að íslenskar útgerðir skoði
þennan kost í framtíðinni.
„Ef þarna er hægt að spara
útgerðarkostnað hljóta menn að
líta til þess ef siglingin er ekki
þeim mun lengri. Menn eru fljótir
að reikna út hvað borgar sig og
hvað ekki í útgerð sem og í öðrum
atvinnugreinum,“ segir Jónas.
ÞEIR ætla sér stóra hluti í síldar-
söltuninni á Djúpavogi og eru
þegar farnir að undirbúa átökin
í haust. Um 12.000 síldartunnur
eru til taks á planinu við Bú-
landstind hf. og hefst söltunin í
„ÞAÐ ER rólegt yfir veiðunum í
augnablikinu og ekkert að finna,“
sagði Ægir Sveinsson, skipstjóri á
loðnuskipinu Jóni Sigurðssyni GK í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Loðnuveiðin datt niður í fyrrakvöld
og hafði ekkert fundist þegar síðast
fréttist í gær. Ægir sagði skipstjóra
samt langt frá því að missa móðinn.
„Við erum að leita núna um 60
mflur norðnorðaustur af Langanesi
og flotinn mjög dreifur um stórt
svæði. Það á eftir að leita á gríðar-
legu hafsvæði hér vestur úr og ég
er sannfærður um að við hittum á
loðnuna þar. Þetta er aðeins klukku-
tímaspursmál og það er enginn far-
inn að örvænta ennþá,“ sagði Ægir.
lok september. Að sögn Sigurðar
Arnþórssonar, yfirverkstjóra,
var saltaðí á milli 9 til 10 þúsund
tunnur á Djúpavogi á vertíðinni
fyrra og að sjálfsögðu sefnt að
því að gera enn betur núna.
Búið að landa 92.300 tonnum
Afli islensku loðnuskipanna er
nú orðinn um 83.700 tonn frá upp-
hafi vertíðar þann 1. júlí sl. Þá
hafa borist rúm 8.600 tonn til ís-
lenskra verksmiðja af erlendum
loðnuskipum. Nú hefur tæpum
10.000 tonnum af loðnu verið land-
að hjá SR Mjöli á Seyðisfirði en
hjá Krossnesi hf. á Akureyri tæp-
um 9.700 tonnum. Hjá Vinnslu-
stöðinni hf. í Vestmannaeyjum,
Síldarvinnslunni hf. á Neskaupstað
og Loðnuvinnslunni hf. á Fáskrúðs-
firði er allsstaðar búið að landa
rúmlega 8.000 tonnum af loðnu á
vertíðinni.
Minni loðnuveiði
VW Golf CL '88, 3 d.t
beinsk. ek. 107 þús. km.
blár. Verð 390 þús.
Toyota Corolla GL ‘90, 4
d., 5 g., ek. 92 þús. km.
dökkblár. Verð 660 þús.
Daihatsu Charade TS '92,
3 d., 5 g., ek. 62 þús. km.
hvítur. Verð 520 þús.
MMC Pajero SW '93 5 d.,
ssk., ek. 87 þús. km. silf-
ur, spoiler. Verð 2.400 þús
Toyota Corolla '96, 5 d.,
5 g., ek. 33 þús. km. hvit-
ur. Verð 1.180 þús.
MMC Pajero ST '88, 3 d.,
5 g., ek. 147 þús. drapp.
Verð 700 þús.
VW Golf '96, 5 d., 5 g., Nissan Sunny WAG '92, 5 MMC Galant HB '91, 5 d.,
ek. 45 þús. km. rauöur. d., 5 g., ek. 87 þús. km. 5 g., ek. 95 þús. km. arár,
Verð 1.150 þús. blár. Verð 900 þús. álfelgur, sóllúga o.fl. Verð
1.050 þús.
MMC Galant '93, 4 d.,
ssk., ek. 67 þús. km. hvít-
ur, spoiler og CD. Verð
1.430 þús.
Renault Megane 1,4 '97,
5 d., 5 g., ek. 20 þús. km.
blár, álfelgur. Verð 1.370
þús.
VW Polo '96, 5 d., 5 g., ek.
33 þús. km. dökkgrænn,
álfelgur, spoiler, þjófavörn.
Verð 1.080 þús.
LAUGAVEGI 174 *SÍMI 569 5660 • FAX 569 5662
opið virka daga 9-18, laugardaga 12-16.
m n ii 11 n i'
MMC Lancer '93, 4 d., 5
g., ek. 67 þús. km. blár,
sóllúga, spoiler, o.fl.
Verð 1.030 þús.
VW Golf GL '97, 3 d.,
beinsk. ek. 18 þús. km.
hvítur. Verð 1.200 þús.
Nissan Terrano '93, 4 d.
ssk., ek. 74
Verð 2.090
iús. km. blár.
>ús.
BÍLAÞING HEKLU
N O T A Ð I R B f L A R