Morgunblaðið - 10.07.1997, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ
40 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997
"V
MJf
Myndirnar eru komnar upp
í anddyri Morgunblaðshússins i Kringlunni I hefur
verið sett upp sýning á Ijósmyndum frá ferð þeirra
Björns, Einars og Hallgríms upp á tind Everest. Einnig
er hluti af búnaði þeirra til sýnis, eins og fatnaður,
tjald og eldunarbúnaður. Á meðan á förinni stóð
voru þeir félagar í beinu sambandi við Morgunblaðið
í gegnum gervihnött sem gerði lesendum kleift að
fylgjast með leiðangrinum í máli og myndum þær
10 vikur sem hann stóð yfir.
MINNINGAR
ÁSGERÐUR
BJARNADÓTTIR
+ Ásgerður
Bjarnadóttir
fæddist á Isafirði
17. júní 1929. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 23.
júní síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Bústaða-
kirkju 2. júlí.
Tengdamóðir mín
Ásgerður Bjarnadóttir
er látin. Baráttan við
sjúkdóminn var varla
hafin þegar henni var
lokið. Það er ótrúlegt
að hugsa til þess að þessi sterka
og hressa kona hafi verið ofurliði
borin á svo skömmum tíma.
Ásgerður var yndisleg kona, betri
tengdamóður er ekki hægt að hugsa
sér. Hún og Steini tóku á móti mér
opnum örmum og mér leið strax
eins og einni af fjölskyldunni. Ekki
leið heldur á löngu þar til Ásgerður
vissi meira um kvennafótbolta en
nokkur annar í fjölskyldunni. Þetta
var mitt áhugamál og hún vildi
fylgjast með. Það var mætt á völl-
inn, fylgst með fréttum og rætt um
fótbolta yfír kvöldmatnum. Ásgerð-
ur kunni það að styðja við bakið á
sínu fólki. Bera börnin hennar og
Steina þess best vitni. Við tengda-
og barnabörnin fengum einnig að
njóta ríkulega af góðsemi og styrk
þessarar einstöku konu og fyrir það
vil ég þakka.
Við Kobbi trúlofuðum okkur á
sumardaginn fyrsta en þá var Ás-
gerður á sjúkrahúsi og hafði fengið
fréttimar af sjúkdómnum nokkrum
dögum áður. Við ætluðum að hætta
við en Ásgerður tók það ekki í
mál. Við ákváðum því
að halda okkur við fyrri
ákvörðun og það var
vel við hæfi að það var
Ásgerður sem sá okkur
fyrst með hringana, því
án hennar værum við
ekki saman í dag. Ég
hef því svo ótalmargt
að þakka tengdamóður
minni, eins og ómæld-
an stuðning, trúnað,
þolinmæði, góðsemi og
svo ekki síst manninn
minn hann Jakob. Orð
fá ekki lýst væntum-
þykju minni og eftirsjá.
Það sem kemst kannski næst því
eru þessi orð:
„Einstök" er orð
sem notað er þegar lýsa á
því sem enp öðru er líkt
faðmlagi
eða sólarlagi
eða manni sem veitir ástúð
með brosi eða vinsemd.
„Einstök" lýsir fólki
sem stjómast af rödd sins hjarta
og hefur í huga hjörtu annnarra.
„Einstök" á við þá
sem em dáðir og dýrmætir
og hverra skarð verður aldrei fyllt.
„Einstök" er orðið sem best lýsir þér.
(Teri Femandez)
Minningin um Ásgerði mun lifa
meðal þeirra sem henni kynntust,
því hún var gædd mörgum þeim
eiginleikum sem við mannfólkið
metum mest í fari hvers annars.
Ásgerður var heiðarleg, hjartahlý,
réttlát, trygg og góð kona. Hún
snerti líf svo ótalmargra, þar á
meðal mitt. Takk fyrir að hafa feng-
ið að kynnast þér Ásgerður Bjarna-
Birting afmælis- og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endur-
gjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl-
unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfí
(5691115) og í tölvupósti (MBL@CENTRUM.IS).
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfi-
legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða
2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða
ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmæl-
isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út-
prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir
tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í
daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfín
Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
LANCOME
I FERÐALAGIÐ
mnl
fl
Stór og glæsilcg taska fylgir þegar keypt er fyrir 4.000 kr.*
eða meira. Fjöldi annarra glæsilegra tilboða. 'Filboðsdagar
fimmtudag til laugardags.
Álfheimum 74
Sími 5685170
SNVRTIVÖRUVERSLUNIN
GLÆSm