Morgunblaðið - 10.07.1997, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
4
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
STEINFRÍÐUR MATTHILDUR
THOMASSEN,
verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugar-
daginn 12. júlí kl. 10.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsamlega
bent á Sjúkrahús Suðurlands á Selfossi.
Guðjón Sigfússon,
Guðbjörg Guðjónsdóttir, Styrmir Gunnarsson,
Unnur Fríða Halldórsdóttir, Marinó Már Marinósson
og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
fráfalls elskulegs eiginmanns, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
HALLS HERMANNSSONAR,
Dvergabakka 36,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurveig Halldórsdóttir,
Haukur Hallsson, Elín Ragnarsdóttir,
Stefán Skaftason, Sigríður R. Hermóðsdóttir,
Halidór Skaftason, fna Gissurardóttir,
Gyða Thorsteinsson, Sveinn Þorláksson,
Rósa Thorsteinsson, Árni Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem sýndu okk-
ur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður og tengdaföður,
EGILS ÓLAFS GUÐMUNDSSONAR,
Klapparstíg 7,
Hvammstanga.
Hansína Þorsteinsdóttir,
Hrólfur Egilsson, Guðrún Hauksdóttir.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar,
GUÐBJARGAR HERMANNSDÓTTUR,
Munkaþverárstræti 8,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á Kristnesspítala fyrir góða
umönnuri.
Börnin.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGURBJARGAR SÆMUNDSDÓTTUR.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sævar Kristinn Jónsson,
Sigurður Jónsson,
Halldóra Jónsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar og afa,
GUÐMUNDAR SVAVARS GUÐJÓNSSONAR,
Lækjargötu 10,
Hvammstanga.
Sórstakar þakkir til starfsfólks á Sjúkrahúsi Hvammstanga.
Gunnhildur Vigdfs Þorsteinsdóttir,
Ingimar S. Guðmundsson, Elfnbjörg Kristjánsdóttir,
Gunnar Þ. Guðmundsson, Kristfn Einarsdóttir,
Guðrún Þ. Guðmundsdóttir, Árni B. Ingvarsson,
Kristfn H. Guðmundsdóttir, Birgir Æ. Einarsson,
Garðar Þ. Guðmundsson, Róberta Gunnþórsdóttir,
Edda H. Guðmundsdóttir, Davíð Kristinsson,
Inga M. Guðmundsdóttir,
Anna M. Guðmundsdóttir, Þór Oddsson,
Davfð E. Guðmundsson, Auður S. Jónsdóttir
og barnabörn.
Val á íslenska landsliðinu í hestaíþróttum
Styrmir og Boði með
aðra hönd á sæti
Senn fer að draga til tíðinda í vali í þau tvö sæti
sem enn er óráðstafað í íslenska landsliðinu í
hestaíþróttum. Liðsstjórinn og einvaldur Sigurður
Sæmundsson fór um helgina á þýska meistaramót-
ið til að fylgjast með Islendingunum sem þar
kepptu og sjá hvort nærvera einhvers þeirra myndi
styrkja liðið á heimsmeistaramótinu.Valdimar
Kristinsson ræddi við Sigurð og veltir hér upp
þeim möguleikum sem virðast líklegastir í stöð-
unni en valið verður kynnt á morgun föstudag.
Sigurður kvaðst ánægður með
frammistöðu Styrmis Arnasonar
sem keppti á Boða frá Gerðum en
þeir urðu í öðru sæti í tölti á eftir
Wolfgang Berg sem keppti á Bletti
frá Aldenghoor. Þá urður þeir í þriðja
sæti í fjórgangi á eftir Jolly sem
sigraði og Irenu Reber sem keppti
á Kappa frá Álftagerði, hesti þeim
sem Gísli Geir Gylfason var með í
íslenska liðinu á síðasta heimsmeist-
aramóti. Sagði Sigurður að Kappi
væri orðinn ævintýralega góður hjá
Irenu en þau voru efst eftir for-
keppni en fyrir óheppnisakir glut-
ruðu þau forskotinu niður í úrslitum.
Reiknaði Sigurður með þeim geysi-
sterkum á heimsmeistaramótinu og
taldi vafasamt að Jolly og Ófeigur
næðu að sigra þau þá.
Vignir og Þyrill sækja á
Vignir Siggeirsson varð í þriðja
sæti í töltinu á Þyrli frá Vatnsleysu
og sagði Sigurður þá vera í geysi-
góðri uppsveiflu. Sagði Sigurður að
menn hefðu rætt það á mótinu að
næst þegar þeir Vignir og Þyrill
kæmu fram í keppni yrðu tölurnar
enn hærri ef Þyrill héldi þessari sigl-
ingu sem hann er kominn á. Martin
Guldner varð fjórði á Hugarburði frá
Guggenberg og Silke Fuchthafen
varð fimmta á Nör frá Aegidien-
berg. í fjórða sæti í fjórgangi varð
margfaldur heimsmeistari Bernd
Vith á Röði sínum frá Gut Ellenbach
og Helmut Lange varð fimmti á
Erni frá Eyrarbakka.
Karly skæður
í fimmgangi
Fimmgangskeppnin vekur að von-
um áhuga íslendinga en þar sigraði
Karly Zingsheim á Feyki frá Rinksc-
heid og var hann sem fyrr með fá-
gæta útfærslu á skeiðinu í úrslitun-
um. Reið hann á feti nánast alla
skammhliðina, skipti hestinum í einu
vettfangi á stökk og leyfði honum
að taka tvö til þijú stökk og síðan
kom skeiðið. Angantýr Þórðarson
varð annar í fimmgangi á Spólu frá
Vallanesi og blandar sér þar með í
slaginn um sæti í íslenska landslið-
inu. Angantýr sigraði á Stóra-Jarpi
í gæðingaskeiði. Jöfn í þriðja og
fjórða sæti urðu Tanja Gundlach á
Geysi frá Hvolsvelli og Walter Feld-
mann á Val frá Njálsstöðum. Kai
Klingelhöfer varð fímmta á Hrók frá
Wiesenhof.
Ule Reber sigraði í slaktaumatölti
á Þræði frá Hvítárholti, Borte Mit-
gau varð önnur á Glettu frá Gut
Ellenbach, Walter Feldmann þriðji á
Val frá Njálsstöðum, Susan Beuk
fjórða á Kolfínnu frá Vatnsleysu en
Rosl Rösner var dæmd úr leik, lík-
lega vegna of þungra hófhlífa sagði
Sigurður en talsverð bleyta var með-
an úrslit fóru fram og drekka leður-
hlífar í sig rigningarvatnið og þyngj-
ast. Sagði Sigurður að vigtun hóf-
hlífa færi fram að loknum úrslitum
en ekki fyrir eins og tíðkast hér á
landi og því geta keppendur átt von
á að vera með ólöglegar hlífar í lok
keppni þótt þeir mæti með löglegar
hlífar í keppnina. Góðir tímar náðust
í skeiðinu en þar var fljótastur
Gammur frá Hofsstöðum sem Lot-
har Schenzel sat. Fóru þeir 250
metrana á 21,8 sek. og því ljóst að
Þjóðveijar munu veita íslendingum
harða keppni þegar á heimsmeist-
aramótið kemur. Sigurður sagði það
hafa vakið athygli sína hversu ólmir
skeiðhestarnir voru í rásbásunum
og hefði í tvígang- legið við stór-
slysi. Átti þar í öðru tilfellinu hlut
að máli Marlise Grimm sem verður
liðsstjóri þýska liðsins á mótinu í
Noregi.
Tveir í fjórgang eða
sinn af hvoru tagi
Eftir að hafa fylgst með þýska
meistarmótinu sagði Sigurður að lín-
urnar um sætin tvö væru nokkuð
farin að skýrast. Ekki vildi hann þó
upplýsa hveijir yrðu fyrir valinu
enda ekki frágengið hveijir hlytu
hnossið. Valið stæði nú um það hvort
Hestaleiga og
rafvæðing
á Skógarhólum
HM í Noregi
Sex kynbóta-
hrossvalin
fyrir Island
SEX kynbótahross munu að þessu
sinni keppa fyrir hönd íslands á
heimsmeistarmótinu í Noregi í ágúst
n.k. Nú eru sýnd hross í þremur
flokkum í stað tveggja áður, en yngst
eru þau fimm vetra gömul sem fyrr.
Hrossin sem hafa verið valin til þátt-
töku eru stóðhesturinn Fengur frá
íbishóli fimm vetra sem Jóhann
Skúlason mun sýna en hann er í
Danmörku. Glaður frá Hólabaki
verður sýndur í flokki sex vetra hesta
en Sigurður V. Matthiassson mun
sýna hann. Glaður er undan Garði
frá Litla-Garði. í flokki stóðhesta sjö
vetra og eldri kemur Breki frá Eyr-
arbakka, knapi verður Angantýr
Þórðarson en þeir eru báðir í Þýska-
landi.
Hryssurnar sem fara eru Þota
frá Akurgerði, knapi Gísli Gíslason
en hún var sýnd á nýafstöðnu fjórð-
ungsmóti. Þota er fimm vetra en í
sex vetra flokki verður Viðja frá
Síðu sýnd, knapi er Kristjón Krist-
jánsson. í flokk hryssna sjö vetra
og eldri fer Kolfinna frá Egilsstöð-
um en hana mun sýna Styrmir
Árnason.
Dómnefnd mótsins skipa þeir
Kristinn Hugason hrossaræktar-
ráðunautur sem er jafnframt for-
maður dómnefndar, John Siiger
Hansen frá Danmörku og Jóhannes
Hoyos frá Austurríki. Vikingur
Gunnarsson ræktunarfulltrúi í
stjórn Evrópusambands eigenda ís-
lenskra hesta verður sýningarstjóri.
STARFSEMI Landsambands
hestamannafélaga á Skógarhól-
um á ÞingvöIIum er komin í
fullan gang og er mikil aðsókn
hestamanna að staðnum að sögn
Björns ólafssonar en hann og
kona hans Guðríður Gunnars-
dóttir hafa tekið við rekstrin-
um. Straumurinn í Skógarhóla
hefur vaxið með hveiju árinu
og sýndist Birni enn á ný stefna
í metaðsókn.
í júlí verður tekið inn raf-
magn og mun öll aðstaða batna
verulega við það. Verður þá
hægt að lýsa og hita upp leigu-
herbergi og sagði Björn að til
stæði að selja upp sturtur.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
AÐKOMAN að réttinni í Selkoti var dapurleg. Þar úði og grúði
af allskyns rusli. Yfirleitt er umgengni þarna góð en einhveijir
sóðar hafa verið þarna á ferð, líklega í félagi við Bakkus bróður
sem ekki er þekktur að þrifnaði.
<ei
.
V
C<
c
í
(1
I
í
í
i
i
I
i
i
I
i
i
i
(
I