Morgunblaðið - 10.07.1997, Page 54

Morgunblaðið - 10.07.1997, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Tommi og Jenni Ljóska som I MISSED THAT ONE, MANASER..YOU HAVE MY HEARTFELT APOL06H.. I U RATHER HAVE YOU CATCH ONE FLY BALL THAN HAVE FIFTY HEARTFELT APOLOGIEð! HOUJ ABOUT FIFTY AP0L06IE5, BUT LJE LEAVE OUT THE HEARTFELTS ? Mér þykir leitt að ég missti þenn- Ég vil heldur að þú grípir einn Hvað með fimmtíu afsakanir, en an, stjóri... ég bið þig innilega flugbolta en að meðtaka fimmtíu sieppum innilegum? afsökunar ... innilegar afsakanir! PlorjgmþlaÍJiþ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 « Símbréf 569 1329 Forfeðurnir II. Frá Helga Sigfússyni: „GJÖLDUM varhug við íslam“ segir kona í DV um daginn. Það er heldur ekki svo einkennilegt að þannig sé tekið til orða þegar sagan er skoðuð. Það var hins vegar fyrir nokkrum misserum - eftir að hafa séð þátt í sjónvarpinu, sem hét „Sverð Múha- meðs“, að ég fór að velta þessari trú fyrir mér. Bíblíuskýrendur heimfæra hinn til- vitnaða kafla Opinberunarbókarinnar 9, 1-12 „Veiið hið fyrsta" til Múha- meðs, kenningar hans og áhrifa henn- ar. „Engill undirdjúpsins", sem hafði mátt til að afvegaleiða einstaklinga og þjóðir, var Múhameð sjálfur - konungur engisprettumúgsins. Og vel sýnast þessi spádómsorð Opinberun- arbókarinnar eiga við hann. Ennfremur er vitnað í Op. 9, 4 „að eigi skyldu þær (engisprettumar) granda grasi jarðarinnar, né nokkrum grænum gróðri, né nokkm tré“. Og eftirtektarvert er það, sem sagan seg- ir, að þegar Abú Bekr (fyrsti kalífinn, tengdafaðir Múhameðs) lét gera árás á Sýrland, gaf hann hershöfðingja sín- um svohljóðandi fyrirskipun: „Grandið engum pálmaviði, brennið ekki heldur komakrana, höggvið ekki niður ávaxt- atrén, látið kvikfénaðinn í friði, slátrið aðeins því, sem þarf til rnatar". Hér sjáum við nákvæma uppfylling á orð- um Opinberunarbókarinnar og mun þó kalífinn ekki hafa þekkt til hennar - frekar en Ágústus keisari til spádó- manna um fæðingu Krists. Múhameð fæddist í Mekka um 570, dó í Medína 8. júní 632. Fyrsta kona hans hét Khadídja og bjó hann með henni einni lengi vel. En á efri árum gerðist hann svo „holdlega sinnaður", að honum nægði ekki minna en „heill hópur af konurn". Og lítum nú nánar á afrek hans. Árið 606 hóf hann kenningu sína. Sagði hann að Gabríel engill hefði birst sér og flutt sér opinberanir frá Guði. Sjálfur kvaðst hann og hafa komist í beint návistarsamband við Guð. Ber hér að minnast orða Páls postula: „að Satan sjálfur tekur á sig ljósengils mynd“ Kor. 11, 14. Múhameð hélt því fram, að Móse hefði spáð um hann og að Jesús Krist- ur hefði boðað komu hans. Jesús hefði sem sé átt við Múhameð, er hann talaði um „huggarann", sem faðirinn mundi senda. Það má jafnvel finna þannig tekið til orða í gömlum ritum: „Svo ótrú- lega vel varð Múhameð ágengt í út- breiðslu sinnar fölsku kenningar, að auðsætt var að djöfulleg öfl voru að verki með honum. Af eigin rammleik fær maðurinn aldrei sett saman slíka kenningu, og enn síður aflað henni fylgis, nema með fulltingi illra anda. Kenning Múhameðs er eitt af furðu- verkum djöfulsins, runnin upp úr „brunni undirdjúpsins". Það sem einkum hændi fólkið að Múhameð, var fullyrðing hans um það, að hann væri hinn æðsti, næstur Guði. Æðri en Móses og Jesús, æðst- ur allra spámanna. Hann boðaði einn- ig mjög holdlega - já, lostafulla sælu eftir dauðann, er verða skyldi hlut- skipti allra sannra múhameðskra manna. Þá kenndi hann líka, að for- lög manna væru fyrirfram óhaggan- lega ákveðin, svo að í raun og veru bæru þeir að því leyti enga ábyrgð á lífi sínu. Með þessu varð honum auð- veldara að afla sér liðsmanna. Dauða- stund þín er fyrirfram ákveðin, sagði hann: Þess vegna er þér með öllu óhætt að ganga í orrustu. Sé þér ætlað að lifa, þá lifir þú, þó að þú ryðjist þar fram, sem bardaginn er harðastur. Hann áleit sjálfan sig útvalinn til að ryðja kenningu sinni til rúms um allan heim, þessari nýju trú, sem væri betri en bæði gyðinga- trú og kristindómur. Hann hugði sig vera færan um að leggja undir sig gjörvallan heiminn. í fyrstu gáfu ættingjar hans sig lítið að honum, urðu honum jafnvel svo fráhverfír, að hann varð að flýja frá Mekka til Medína. Það var árið 622, og við það ár miða múhameðing- ar tímatal sitt. Þegar hann hafði dval- ið í Medína um hríð og safnað sér nokkrum áhangendum, snéri hann aftur til Mekka, fékk þar fleiri og fleiri liðsmenn, uns þeir urðu svo margir, að hann taldi sig geta tekið til starfa sem hinn mikli spámaður og sigurvegari. Og svo ört útbreidd- ist nú kenning hans, að því verður ekki valin betri samlíking en eyði- leggjandi sægur engisprettanna. Eftirmenn Múhameðs, hinir svo- nefndu kalífar, héldu áfram að út- breiða kenningu hans. Þeir lögðu undir sig Gyðingaland, Sýrland, Armeníu, Litlu-Asíu alla, Persíu, Ind- land, Egyptaland, og mörg önnur lönd í Norður-Afríku, Spán og Port- úgal nokkuð af Ítalíu og eyjar í Mið- jarðahafi. Upp úr miðri 7. öldinni voru þeir búnir að bijóta undir sig 36.000 borgir, leggja í eyði 4.000 kirkjur og reisa 1.400 tyrknesk must- eri. Ýmsir sagnfræðingar hafa upp- lýst það, að múhameðingar hafi lagt meira undir sig á 80 árum en Róm- veijar á 400 árum. HELGI SIGFÚSSON, Austurvegi 25, Hrísey. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. TIL SÖLU RANGE ROVER 3.9 VOUGE árg. 1992, elcinn 115.000 Upplýsingar í síma 551 4637 eða 896 3346

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.