Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 61

Morgunblaðið - 10.07.1997, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1997 61 MENN I SVORTU FANGAFLUG SMHDIGTAL M Sýndkl.5, 7, 9og11. B.i. ^[CDIGnAL sAMmmm sAMmém SAMmiom sAMmMmm sambiÓ Þegar FBI getur ekki séð um málið, þegar CIA getur ekki áttað sig á málinu, þá eru MIB menn á kafi í málinu. Þeir eru best geymda ieyndarmálið á jörðinni Morgunblaðið/Þorkell SKÁRREN ekkert flokkurinn. Einskonar hlj óms veitarsvíta TÓNIIST Geisladiskur EIN Geisladiskur með tónlist Skárren ekkert við dansverkið Ein eftir Joe- len Ulrich. Á disknum skipa Skárren ekkert Eiríkur Þórleifsson, kontra- bassaleikari, Guðmundur Stein- grimsson harmonikku- og píanóleik- ari, Frank Þórir Hall gítar- og píanó- leikari, Kjartan Guðnason, ma- rimba-, víbrafón- og slagverksleikari og Eggert Þorleifsson klarinettleik- ari. Islenski dansflokkurinn gefur út, Japís dreifir. 36,22 mín. HUÓMSVEITIN Skárren ekk- ert er um margt sérkennileg, helst þó að hún hefur nánast eingöngu fengist við að semja sviðstónlist ýmiss konar. Eftirminnileg eru fyrstu skref flokksins á því sviði, tónlistin við Kirsubeijagarðinn, en til umfjöllunar hér er diskur við dansverkið Ein sem íslenski dans- flokkurinn sýndi í Borgarleikhús- inu í febrúar og mars. Sviðstónlist á það til að verða sviplaus; tónlistin er samin með það fyrir augum að undistrika at- burðarás á sviði og getur því eðli málsins samkvæmt ekki verið í aðalhlutverki; má ekki draga at- hyglina frá því sem fram fer. Fyr- ir vikið orkar stundum tvímælis að gefa sviðstónlist út á plötu og iðulega eru slíkar plötur ekki nema minjagripir fyrir þá sem sáu verkið. Ein er fjölbreytt verk og á köfl- um bráðskemmtilegt, ekki síst fyr- ir það hve kaflaskipt það er og kaflarnir ólíkir. Ekki kemur að sök að hafa ekki dansara fyrir augun- um þegar hlustað er a diskinn enda má segja að Ein sé hljóm- sveitarsvíta ólíkra örstuttra þátta. Reyndar hefði það styrkt verkið að mínu mati ef það hefði verið útsett upp á nýtt fyrir útgáfu, til að gefa því meiri heildarsvip. Víða eru skemmtilega samsett lög á disknum, nefni fíflsþættina tvo sem bijóta upp tregastemmn- inguna og fer vel á að á milli þeirra sé lágvær víbrafónsstemma. Aukin hljóðfæraskipan flokksins frá fyrri verkum hefur sitt að segja í því hve diskurinn er vel heppaður og hljóðfæraleikarar standa sig allir með prýði, helst líklega víbrafón- leikarinn sem á víða smekkleg inn- skot, aukinheldur sem groddalegt píanó í fílfsþætti hinum síðari er vel heppnað, ekki síður en harmon- ikka í titillagi verksins. Eftir ang- urværð og trega er síðan gaman að heyra þá félaga sleppa fram af sér beislinu í lokaþætti verks- ins, sem er besti kafli þess, þótt þeir róist er á líður. Rúmar tvær mínútur af klappi og bjögun eru þó fullmikið af því góða undir lok plötunnar. Umslag plötunnar er ekki aðlaðandi. Ein var tekið upp á sýningu dansverksins í Borgarleikhúsinu og fyrir vikið eru sums staðar falskir tónar eða ónákvæm inn- koma, en kemur ekki að sök; and- rúmsloftið er einstakt og stemmn- ingin heillandi. Ein er bráð- skemmtilegt verk og vel heppnað; enn og aftur hefur Skáren ekkert sýnt hvað í flokknum býr og von- andi að framhald verði á. Árni Matthíasson Fyrrverandi gítar leikari Kiss í mál VINNIE VINCENT, fyrrum gítar- leikari hljómsveitarinnar Kiss, hef- ur höfðað mál gegn fyrrverandi félögum sínum í hljómsveitinni og útgáfufyrirtæki þeirra Polygram NV. Ástæðan er sú að Vincent tel- ur að brotið hafi verið á höfundar- rétti sínum og hann hafi tapað miklu fé á því. Vincent gekk í hljómsveitina Kiss snemma á níunda áratugnum en hætti árið 1984. Á þessu tímabili kom hljómsveitin fram án andlits- málningarinnar sem hún var fræg fyrir að bera. Meðal laga sem slógu í gegn á þessu tímabili voru „Lick It Up“ og kveðst Vincent hafa ver- ið svikinn um fúlgur fjár í greiðslur fyrir þetta lag. „Þetta er hneyksli,“ segir Vinc- ent „útgáfufyrirtæki gera ótrúleg- ustu hluti í viðleitni sinni til að hylma yfir svik sín við grandalausa listamenn sem fyrst og fremst vilja sjá tónlist sína gefna út.“ KISS á áttunda áratugnum. G HEYW Sm IjTfaT Wií^iiiiniíiiiiir-i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.