Morgunblaðið - 13.08.1997, Page 30

Morgunblaðið - 13.08.1997, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Fremja sljórnmála- menn afbrot? Á SÍÐUSTU mán- uðum hefur hvað eftir annað annað komið fram að stjórnmála- menn okkar á Alþingi hafí framið afbrot. Samkvæmt Hjörleifi Guttormssyni þing- manni Alþýðubanda- lagsins á Guðmundur Bjamason umhverfís- ráðherra að hafa gert það í tvígang. Það sem meira er, ráðherrann játaði í fyrra skiptið og kom það fram í frétt á baksíðu DV í janúar síðastliðinum. í seinna skiptið var það varðandi rétt fólks til að koma með athugasemdir varðandi hugs- anlegt álver á Grundartanga en allmargir hafa gefíð í skyn að ráð- herrann hafi beitt þar gerræðisleg- um vinnubrögðum til að draga úr mætti hörðustu gagnrýnenda. Einnig kom allhörð atlaga frá stjórnarandstöðunni gegn Páli Péturssyni félagsmálaráðherra á síðasta degi þingsins og fylgdist ég grannt með af þingpöllunum. Var þar vitnað í lög um ráðherra- ábyrgð og gefíð sterklega í skyn að hann hefði brotið þau lög. Ráð- herrann vísaði þessu á bug og forsætisráðherrann sjálfur, Davíð Oddsson, steig í pontu og for- dæmdi þessar aðfarir og varði sína menn. Fyrir nokkrum árum var gerð allhörð atlaga að Guðmundi Arna Stefánssyni sem heilbrigðisráð- herra. Gekk þetta svo iangt að hann sagði að lokum af sér sem félagsmálaráðherra. Samkvæmt dr. Gunnari Helga Kristinssyni lektori í stjórnmálafræði við Há- skóla íslands er þetta í fyrsta sinn sem íslenskur ráðherra víkur úr stóli sínum vegna siðferðilegra spursmála, en slíkt er hins vegar algengt erlendis. En það er víst eins með þetta mál og svo mörg önnur á hæsta stigi stjórnkerfisins - að það er erfítt að sjá nákvæmlega hvað sé saknæmt og hvað ekki, þetta virðist felast í valdatog- streitu þar sem sá sem hæst lætur getur knúið fram sinn skilning á málunum, sem er ekki endilega sá réttasti. En til að komast betur í gegnum slíkt myrkviði af deilum á hæsta stjórnstiginu er gott að geta kom- ist í þekkingarheim afbrotafræð- inga sem hafa skoðað mörg slík mál um allan heim í marga ára- tugi ef ekki aldir. Ég lauk nám- skeiði í afbrotafræði við Háskóla íslands síðastliðinn vetur og skrif- aði þar ritgerð um stjórnmálaaf- V, brot og byggði það á grunntexta- bók í afbrotafræði eftir tvo pró- fessora við bandariskan háskóla, þá Piers Beime og James Mess- erschmidt, og eru þeir taldir með fremstu afbrotafræðingum mann- kynsins. Skilgreining þeirra á stjórnmálaafbroti er þríþætt: 1. afbrot gegn hinu opinbera 2. afbrot framkvæmd af hinu opinbera sem bitna á þolendum innanlands 3. afbrot framkvæmd af hinu opinbera sem bitna á þolendum er- lendis. Annar þátturinn er sá sem skiptir mestu til að fá fræðilega umfjöllun sem tengist daglegu starfi stjórn- málamanna með hvað beinustum hætti. Nánari skilgreining þeirra á öðrum þætt- inum hljóðar svo: 2. brot á lögum og siðlaust athæfi af embættismönnum eða stofnunum þar sem þolendurnir eru innan viðkomandi þjóðríkis. Beirne og Messerschmidt skipta þætti tvö í tvær gerðir: 2.a. spilling hjá hinu opinbera: ólögleg eða siðlaus notkun á opin- beru valdi til persónulegs eða stjórnmálalegs hags 2.b. stjórnmálaleg bæling: ólög- legt eða siðlaust athæfi fram- kvæmt af opinberum embættis- mönnum eða stofnunum í þeim tilgangi að bæla stjórnmálalegan ágreining innanlands. Það er fyrri gerðin sem skiptir meira máli hér: spilling hjá hinu opinbera. Henni er skipt niður í fjóra undirflokka: 2.a.i. stjórnmálalegar mútur 2.a.ii. stjórnmálalegar auka- greiðslur 2.a.iii. kosningasvik 2.a.iv. spillt kosningabarátta. Þeir telja að sennilega sé best þekkta nýlega dæmið um mútu- þægni stjórnmálamanna ABSC- AM málið. Þessi leynilega FBI aðgerð átti sér stað snemma á níunda áratugnum og leiddi til dóms á sjö þingmönnum fyrir að samþykkja mútur frá leynilög- reglumönnum FBI. Aðeins einn af átta stjórnmálamönnum hafn- aði mútrinu. Eitt af dæmum þeirra um stjórnmálalegar aukagreiðslur er varðandi Spíró Agnew þáverandi varaforseta Bandaríkjanna sem byijaði á að taka við aukagreiðsl- um frá verktökum, arkítektum og verkfræðingum þegar hann var embættismaður í Baltimore-héraði árið 1962. Þessar aukagreiðslur héldu áfram þegar hann varð ríkis- stjóri Marylands og allt til 1971 þegar Agnew var orðinn varafor- seti og tók við greiðslum í kjallara Hvíta hússins. Varðandi kosningasvik (ólögleg kosning, fölsuð skráning, að fylla kjörkassa) þá nefna þeir dæmi um mann sem nánast hefur verið frið- helgur í augum margra og því gætu þessar línur reynst ykkur fróðlegar en samkvæmt Beirne og Messerschmidt var John Kennedy tryggður sigur árið 1960 þegar Richard Daly borgarstjóri Chicago og hans kosningavél fyllti kjör- kassa með atkvæðaseðlum merkt- um Kennedy. Síðasti undirþátturinn er spillt Kjósendur eiga rétt á, segir Guðmundur Rafn Geirdal, að fylgj- ast með siðgæðum stjórnmálamanna. kosningabarátta. Að mati bókar- höfundanna eru þær frekar út- breiddar í Bandaríkjunum. Versta dæmið sem þeir taka er einmitt það sem umheimurinn fékk líklega að vita hvað mest af, en það var varðandi Richard Nixon, sem var forseti frá árinu 1968 til 1974. Vandamálið er það sama með hans mál og þau sem hafa komið upp hérlendis að það er erfítt að treysta því að fjölmiðlaumfjöllun sé annað en moldrykið eitt. Því er mikilvægt að lesa þetta beint af fræðibók einhverra fremstu prófessora mannkynsins og hér gef ég þeim orðið: „í júní 1972 var hópur af fyrrverandi starfsmönnum CIA sem höfðu tekið þátt í aðgerðunum við Svínaflóa tekinn fastur við inn- brot í höfuðstöðvar Demókrata, Watergate, í Washington borg. Rannsóknir sem fylgdu í kjölfarið leiddu í ljós að innbrotið var að- eins hluti af víðtækri kosningabar- áttu fullri af stjómmálalegri spill- ingu sem fól í sér stjórnmálalegar njósnir, skemmdir á kosninga- gögnum, hleranir, þjófnaði á einkaskjölum og ólöglega notkun á styrkjum í kosningasjóði - skipulagt og stjórnað af starfs- mönnum Nixons í kosningabarátt- unni og starfsmönnum Hvíta húss- ins“ (Parenti, 1983: 173). Nixon sagði af sér í ágúst 1974 til að forðast ákæru vegna embættisaf- glapa og var að lokum afsakaður frá öllum glæpum varðandi Water- gate af Gerald Ford sem tók við sem forseti. (bls. 294-5). Hér eru því sterkar vísbending- ar um að Nixon hafi framið afbrot af mjög alvarlegu tagi, en enn á ný, ákæra var ekki lögð fram sam- kvæmt þessu svo dómur var aldrei kveðinn upp af eða á. Það hefur komið fram í fjölmiðlum hérlendis á síðustu árum að Hillary Clinton eiginkona núverandi forseta Bandaríkjanna var í hópi þeirra lögfræðinga sem rannsökuðu mál Nixons á sínum tíma og lagðist mjög gegn þvi að hann yrði tekinn í sátt þó Bill Clinton hefði haft mildari afstöðu. Slík mál setja mikinn slink í það traust sem al- menningur ber tii stjómmála- manna og sagði dr. Helgi Gunn- laugsson lektor í félagsfræði í fyr- irlestrum sínum að einskonar sið- rofsástand hafi myndast í banda- rísku þjóðlífí eftir að upp komst um starfshætti Nixons. Því er nauðsynlegt að fylgjast vel með gangi mála hérlendis. Meginatrið- ið er að hafa það í huga að stjórn- málamenn okkar á Alþingi eru kosnir af þjóðinni og starfa í um- boði hennar og því ætti þjóðin að eiga rétt á að fá að fylgjast með siðgæðum þeirra í starfi og geta haft matsaðila sem hefur næga hæfni til að meta störf þeirra og upplýsa almenning um niðurstöður sínar. Ég legg því til að aukin sé umræða um hvernig mætti koma þessu í kring með sem eðlileg- ustum hætti. Með því trúi ég því og treysti að hagur landsmanna batni enn meir en nokkru sinni fyrr og við okkur blasi björt fram- tíð. Megi svo vera. Höfundur cr sjúkranuddari. Guðmundur Rafn Geirdal Þróun íslenzkrar ferðaþjónustu UM NOKKURRA ára skeið hafa ýmsir starfsmenn ferðaþjónustunnar látið í ljósi að í íslenskri ferðaþjón- ustu ríki skipulagsleysi sem gæti haft neikvæðar afleiðingar fyrir starfsgreinina í framtíðinni. Ráða- menn ferðamála hafa hins vegar bent á að þau lög sem gilda um ferðamál hverju sinni séu í reynd ákveðið skipulag, ákveðin stefna. Þau lög sem gilda um ferðamál á Islandi núna eru að stofni til frá 1976 (með nokkrum breytingum þó) og hafa samgöngu- ráðherrar sem síðan þá hafa verið við völd ít- rekað ætlað að setja ný lög með hliðsjón af breyttum aðstæðum. Öll frumvörpin hefur dagað uppi á síðustu dögum þings. Núver- andi samgönguráðherra hefur skip- að starfshópa til að vinna að nýrri stefnumótun en ný lög hafa enn ekki verið sett. í stuttu máli kveða ferðamálalög- in svo á að Ferðamálaráð skuli fara með landkynningu, umhverfismál ferðamannastaða og fleiri skyld mál. Til þeirra verkefna fær ráðið ákveðið fjármagn á fjárlögum. í Ferðamálaráði sitja 23 fulltrúar frá ýmsum greinum ferðaþjónustunnar. Innan ráðsins starfar hins vegar 7 manna framkvæmdastjórn sem tek- ur allar ákvarðarnir milli funda ráðs- ins. Samkvæmt lögunum eru það ákveðnir fulltrúar ráðsins, þ.e. frá fyrirfram ákveðnum fyrirtækjum í ferðaþjónustunni, sem lögin segja að skuli skipa framkvæmdastjórn- ina. I henni skulu eiga sæti formað- ur Ferðamálaráðs, fulltrúi sam- gönguráðuneytis, fulltrúi Flugleiða í ráðinu, fulltrúi Reykjavíkurborgar, fulltrúi Sambands veitinga- og gisti- húsa, fulltrúi Félags íslenskra ferða- skrifstofa og fulltrúi Ferðamálasam- taka íslands. Það er einmitt þetta ákvæði m.a. sem ýmsir aðilar innan ferðaþjónustunnar hafa gagnrýnt og efast um að standist stjórnsýslulög, þ.e. að ákveðin fyrirtæki eða samtök innan atvinnugreinarinnar skuli fjalla um eigin málefni, eigin hags- muni, og vera í þeirri aðstöðu að geta ákveðið hvert það fjármagn fer sem Ferðamálaráð hefur til ráðstöf- unar. I fjölmiðlum og á almennum fund- um um ferðamál hafa komið fram kvartanir um að ráðið styrki ekki ákveðnar framkvæmdir hér heima og erlendis svo sem ýmsar listsýn- ingar, tónleika, íþróttaleiki og ýmsar uppákomur. Til dæmis hafa nokkrir popplistamenn talað um skilnings- leysi Ferðamálaráðs þar sem ráðið hafi ekki viljað styrkja þá til hljóm- leikahalds og hafa rök þeirra verið þau að popptónleikarnir myndu vekja athygli á íslandi erlendis. Bæði Einar Örn Benediktsson og Björk Guðmundsdóttir sögðu í sjón- varpsþætti fyrir nokkrum árum að þau væru eins og lítið ferðamálaráð, sífellt að svara fyrirspurnum og gefa upplýsingar um ísland, en það yrðu þau að gera á eigin kostnað vegpa skilningsleysis Ferðamálaráðs ís- lands. Aðstandendur leiksýninganna Light Nights hafa einnig ítrekað kvartað undan því á fundum um ferðamál að þeir fái ekki styrki til að halda úti leiksýningum fyrir er- lenda ferðamenn í Reykjavík. Rétt er því að geta þess að Ferðamálaráð hefur ekki talið það vera í sínum verkahring að styrkja starfsemi af þessu tagi og er því ekki um mis- munun að ræða. í maí sl. var viðtal í einu dagblað- anna við starfsmann í ferðaþjón- ustunni sem sagði að útlit væri fyrir fækkun erlendra ferðamanna og þeir sem kæmu myndu ferðast hér á eigin vegum í framtíðinni og lítið kaupa af þeirri þjónustu sem verið væri að byggja upp víða um land nema þá frá þeim aðilum sem hefðu tök á fjármagni til landkynningar. Hann hafði áhyggjur af því að ákveðnir aðilar hér hefðu forgang að landkynningarfé Ferðamálaráðs og næðu þannig við- skiptum við erlenda ferðamenn meðan aðrir stæðu utangarðs. í greinum og við- tölum í dagblöðum und- anfarið hefur mátt sjá svipuð viðbrögð. Hinn 20. júlí sl. birti Morgun- blaðið viðtal við hótel- stjóra á Húsavík sem taldi að Ferðamálaráð væri misskilin stofnun, hálfgerður brandari. Hann sagði að margir innan ferðaþjónustunn- ar stæðu í þeirri trú að ráðið væri hagsmuna- aðili fyrir atvinnugrein- ina en svo væri alls ekki, heldur gætti það hagsmuna samgönguráðuneytisins. Eigendur hópferða- og sérleyfisbíla hafa áhyggjur af því að erlendir ferða- menn sækjast æ meira eftir jeppa- Lengi hefur áhugafólk um ferðaþjónustu, segir Birna G. Bjarnleifs- dóttir, beðið eftir nýjum ferðamálalögum. ferðum og vélsleðaferðum, en hvorki jepparnir né vélsleðarnir eru skráðir sem atvinnutæki og ekki tryggðir sem slíkir. Islenskir leiðsögumenn hafa lengi haft áhyggjur af því að erlendar ferðaskrifstofur senda hingað réttindalaust fólk til að vinna sem leiðsögumenn. Utlendingarnir taka ekki alltaf laun fyrir vinnu sína heldur láta sér nægja að komast til Islands frítt. Ef þeir taka laun undir- bjóða þeir íslenska leiðsögumenn. í rauninni stríðir það gegn íslenskum lögum en er látið afskiptalaust. Að sjálfsögðu er samkeppni af hinu góða en allir þessir aðilar hafa bent á að hún verði að vera á jafnréttis- grundvelli. Ferðamálastjóri hefur lýst því yfir að sennilega muni æ fleiri erlendir ferðamenn ferðast á eigin vegum um landið í framtíðinni en ekki í skipulögðum hópferðum íslenskra ferðaskrifstofa. I viðtali við starfs- mann í ferðaþjónustu sem birtist í Morgunblaðinu í maí sl. var gefið í skyn að þetta væri afleiðing af mark- aðssetningu erlendis. Landið væri einfaldlega auglýst þannig. í umræðum innan ferðaþjón- ustunnar hafa menn áhyggjur af því að sá aðili sem er afkastamestur í fólksflutningum til landsins og frá því skuli einnig reka ferðaskrifstofu, hótel, bílaleigu o.fl. Því er ekki að leyna að mörgum finnst hætta á að einokunaraðstaða þess aðila sé að verða of sterk þar sem starfsemin nái til æ fleiri þátta ferðaþjónustunn- ar og telja starfsemina orðna svo umfangsmikla að varla standist samkeppnislög. Lengi hefur áhuga- fólk um ferðaþjónustu beðið eftir nýjum ferðamálalögum. Sífellt hey- rast gagnrýnisraddir um að ferða- þjónustan hér á landi sé í of lausu lofti og litlu aðhaldi beitt. Ef óánægja þess fólks sem vinnur dag- lega við þessa atvinnugrein er jafn almenn og virðist væri þá ekki rétt að alþingismenn, hvar í flokki sem þeir standa, íhugi þróun íslenskrar ferðaþjónustu síðasta áratug og taki afstöðu til þess hvort þeim fínnst hún stefna í rétta átt eða hvort nauð- synlegt sé að setja ný ferðamálalög þar sem fagleg vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi? Höfundur er leiðsögumaður. Birna G. Bjarnleifsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.