Morgunblaðið - 13.08.1997, Page 46

Morgunblaðið - 13.08.1997, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ 46 'mIÐVIKUDAGUR 13. ÁGUST 1997 TVIEYKIÐ JEAN-CLAUDE VAN DAMME DENNIS RODMAN MICKEY ROURKE ANNAI) HVORT STENDUR l»U MEÐ l»EIM...l >Ú STENDUR í VEGI FYRIR l»EIM. „Feikna skrautleg og framúrskarandi hasarmynd DOUBLE TEAM ntamhiUiv Bönnuö innan 16 ára £4MM01M S4MBIOHI! ^4MB10||I BÍC>ECE<5%I SNORRABRÁUT 37, SÍMI 552 5211 OG 55 11384 MORÐ l HVITA HU5INU Meistaralega geiö H.J. ALþ.BL Mukimviióoo Sýnd kl. 4.50, 6.55, 9 og 11-05- B.i. 16. Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.30. b.í. 16 Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.10. b.mb. ^HUDIGfTAL Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 12. íslensk heimasíða: WWW.xnet.is/stjornubio ' .X- .X. .X. TOÍVirVlY LEE.JOIUES WILL SIVIIT»r~% *** ★★★ Jft-, • i ■ v, * * * r ★ ★ ★ ŒH3 • \ MX i y, /' _ MEIU im 35 PÚSUND MANNS HAFA NU ÞEGAR SÉÐ MENN í SVÖRTU MIB MEIM irvi BLACK Morgunblaðið/Jón Sveinsson LEIKHOPURINN ásamt stjdrnendum, hljómsveit og prinsessunni en hver sér um það hlutverk verður ekki „Prinsess- an“ á Hótel Islandi LEIKHÓPURINN Regína mun frumsýna gleðisöngleikinn „Pr- insessan" á Hótel Islandi þann 4. september næstkomandi. Söngleik- urinn er eftir Stefán Sigurðsson en leiks-tjóri verksins er Gunnar Sig- urðsson. Verkið fjallar um einn dag í lífi prinsessu einnar, þann dag er hún verður gjafvaxta og vonbiðlar streyma til hallarinnar. Þetta er fyrsta verk Gunnars sem leikstjóra eftir að hann út- skrifaðist úr „Bristol Old Wick Theater" á Englandi siðastliðið vor. Það er hljómsveitin Snigla- bandið undir forystu Pálma Sigur- hjartarsonar sem sér um tónlistina en Katrín Ingvadóttir er danshöf- undur. Jonathan Howell var feng- Jon til að leikstýra bardagaatrið- um en hann er leikari og bardaga- listamaður að mennt og hefur upplýst fyrr en á frumsýningunni. JONATHAN Howell, stjórnandi bardagaatriða, Pálmi Sigurhjartar- son, tónlistarsljóri, Gunnar Sigurðsson, leikstjóri og Katrín Ingvadótt- ir, danshöfundur. meðal annars leikstýrt Peter O’Toole, Mel Gibson, Susannah York og Faye Dunaway. Söngleikurinn er um tvær klukkustundir að lengd og eftir sýninguna mun Sniglabandið leika fyrir dansi. Það verður því söngur, leikur, gleði, bardagi og dans sem gestir á Hótel íslandi eiga í vænd- um á komandi vetri. Lynch og týndu sálirnar KVIKMYJVDIR Laugarásbfó TRUFLUÐ VERÖLD „LOST HIGHWAY“ Leikstjórn. David Lynch. Hand- rit: David Lynch og Barry Gifford. Aðalhlutverk: Bill Pullman, Pat- ricia Arquette, Balthazar Getty, Robert Loggia, Robert Blake, Jack Nance, Richard Pryor, Gary Bus- ey. Ciby 2000. 1997. BANDARÍSKI leikstjórinn Da- vid Lynch hefur sent frá sér nýja mynd eftir nokkurt hlé og tekur upp þá gömlu iðju að lýsa skuggahliðum mannlífsins með sínum einkar persónulega frá- sagnarstíl. Það er kannski gall- inn við myndina að sú hans gamla iðja hefur tekið heldur litl- um breytingum. Spurningin sem myndin vekur er hvort Lynch sé farinn að endurtaka sig og staðna. Þeir sem búast við ein- hverju nýju og merkilegu frá hendi leikstjórans í Truflaðri veröld eða „Lost Highway“ (Hvaða truflun er þetta alltaf? Hét ekki „Trainspotting“ Trufl- uð tilvera?) gætu orðið fyrir von- brigðum en hinn harði kjarni að- dáenda hans mun sjálfsagt njóta myndarinnar í botn. Líkt og Blátt flauel er Trufluð veröld fílm noir hrollvekja í upp- hafi. Inngangshlutinn er talsvert spennandi, drungaleg og óhugnaleg frásögn um hjón sem búa saman í ákaflega illa upp- lýstu og draugalegu húsi. Bill Pullman leikur húsráðandann, tenórsaxófónleikara er fær send- ar myndbandsupptökur heim til sín, sem sýna að einhver kemur inn í húsið á næturnar og tekur myndir af þeim hjónum í svefni og svalar þannig gægjufíkn sinni. Síðasta spólan sem hann fær er af honum að myrða eigin- konu sína, sem leikin er af Pat- riciu Arquette, á hinn hroðaleg- asta hátt. Tenórsaxinn veit ekki meir. Honum er stungið í fangelsi þar sem hann bíður þess að deyja í rafmagnsstól. En fyrir einhvern Lynchsúrrealisma skiptir hann um líkama á dauða- deildinni og verður allur annar og yngri maður, sem auðvitað er sleppt úr fangelsinu. Um leið skiptir Lynch um frásagnarstíl og fer út í n.k. glæpakómedíu; Robert Loggia leikur ofbeldis- fulla mafíósann, sem allir hræð- ast, Arquette er Marilyn Mon- roelega mafíudúkkan hans og maðurinn ungi er fáráðurinn sem leggur út í þann lífshættu- lega leik að sofa hjá henni. Sá hluti minnir óneitanlega á nokk- urra ára gamla Tarantinomynd. Höfundareinkenni Lynch eru áberandi en hann kemur manni ekki svo mikið á óvart lengur. Tmfluð veröld er um allt það sama og áður; það sem fólk hefur að fela úr fortíðinni, morð, öf- uguggahátt, gægjufíkn, kynferð- islausung og týndar sálir sem leita einhverskonar sannleika en gengur illa að höndla hann. Ekk- ert er eins og það sýnist frekar en venjulega; yfirborðið er að- eins felulitur ósómans, brothætt skurn hins dularfulla gangvirkis undirmeðvitundarinnar. Lynch er ákaflega tæknilegur leikstjóri og hefur alltaf getað með góðum árangri teygt á frásagnartækni kvikmyndanna og fellt hana að skáldskap sínum. í Truflaðri veröld gerir hann það með gam- alkunnum en oft áhrifaríkum hætti með því að hægja á atriði og sýna það afturábak, nota of- urnærmyndir og endurtekning- ar. Á sama hátt er notkun hans á tónlist (Badalamenti, Ramm- stein) og áhrifshljóðum ákaflega hugvitssöm og magnar upp hrollinn. Leikararnir falla ágætlega inn í Lynchbíóið. Karlpeningurinn, Bill Pullman og Balthazar Getty, er fremur sviplaus nema mafíós- inn Robert Loggia, sem er svo yfirmáta hversdagslegt fól að maður hlær að vonsku hans þeg- ar hann tekur til bæna mann sem dirfist að aka framúr hon- um. Arquette er líka fín sem hin dularfulla femme fatale myndar- innar, ýmist með ljósa eða dökka hárkollu eftir því í hvaða veru- leika hún lifír. Kunnir aukaleik- arar fara með lítil hlutverk, þeirra forvitnilegastir gaman- leikarinn Richard Pryor og Jack Nance (sjálfur Eraserhead). Það hefur alltaf þótt sport að hafa gaman af Lynchmyndum af því fáar myndir eru jafn ögrandi (Blátt flauel, Tvídrangaþættirn- ir, „Wild at Heart“) innan um allt draumafabrikkudótið frá Hollywood. Trufluð veröld er það líka. Hver og einn getur túlkað hana að vild og þótt hún sýni ekki mikla þróun í list hans minnir hún á að Lynch er kom- inn aftur í gang eftir nokkurt hlé og á vonandi eftir að gera eitt- hvað ennþá betra í framtíðinni. Arnaldur Indriðason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.