Morgunblaðið - 28.08.1997, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Laxagöngur í Elliðaám í
sögulegu lágmarki
Skatthlutfallið
lækkar um 2%
1. janúar 1998
LAXAGÖNGUR í EUiðaámar í
sumar hafa verið með allra minnsta
móti og veiði í ánum í samræmi við
það. Er svo komið að margir sem
vel þekkja til Elliðaánna tala um
„hrun“. Um helgina höfðu gengið
1.028 laxar um teljarann við raf-
stöðina og heildarveiðin var þá 479
laxar. Á nákvæmlega sama tíma í
fyrra höfðu 1.909 laxar gengið
fram fyrir teljara og 981 lax veiðst
og þótti ekki mikið.
Þórólfur Antonsson, líffræðingur
hjá Veiðimálastofhun, segist hafa
átt von á „þó nokkm niðurkasti" i
ánum í fyrra, en það hafi ekki
gengið eftir fyrr en í sumar. „Það
eru margir samverkandi þættir
sem geta valdið þessu. Einn er að
seiðabúskapur hefur verið lélegur
tvö síðustu árin, rafveiðar á haustin
þar sem við höfum mælt árgangs-
styrkleika yngri seiða hafa gefið
það til kynna, einnig að mjög hátt
hlutfall þeirra gönguseiða sem
gengu til sjávar í fyrra voru aðeins
tveggja ára, en þekkt er að heimtur
þeirra em oft lakari heldur en hjá
eldri seiðum.
Annar þáttur er kýlaveikin sem
kom upp 1995. Þó hún hafi ekki
greinst í fullorðnum göngufiski í
fyrra eða í sumar, vitum við ekki
hvort hún hefur gert usla meðal
seiða og það sama má segja um þör-
unginn Didimosphenia geminata
sem liefur náð mikilli útbreiðslu í
ánum. Tilfinning okkar er sú að
þessi þörangur, sem fengið hefur ís-
lenska nafnið vatnafióki, geri frek-
ar usla í lífríkinu heldur en hitt, en
við vitum það hreinlega ekki enn
þá. Enn sem komið er, em rann-
sóknir á fyrirbærinu einskorðaðar
við kortlagningu á útbreiðslunni.
Tveir aðrir þættir geta einnig
vegið þungt. Annars vegar var sett
bann við seiðasleppingum í kjölfar
kýlaveikinnar og hins vegar hefur
hafbeit dregist verulega saman. Er
aflögð í Vogum og í KoIIafirði og
litlar heimtur hafa verið í Hrauns-
firði. Þetta hlýtur að koma niður á
Elliðaánum, því 25-30% af göng-
unni síðustu sumur hafa verið haf-
beitarlaxar á villigötum," segir
Þórólfur.
Hann var spurður hvort laxa-
stofninn í Elliðaánum væri í hættu.
„Það má segja, að göngur og
veiðin séu í sögulegu lágmarki og
það er í sjálfu sér ef til vill áhyggju-
efni. En eftir er að sjá á næstu vik-
um hve stórt hlutfall af laxinum er
enn í ánni til hrygningar og víst er
að seiðabúskapurinn getur batnað
upp á eigin spýtur. Seiðaslepping-
arbanninu hefur verið aflétt og því
hægt að styrkja stofninn með slepp-
ingum á nýjan leik. Þá á ég eftir að
vinna úr örmerkjum sem borist
hafa í sumar og því liggur ekki enn
fyrir heimtuhlutfall seiða auk þess
sem enn á eftir að rafveiða á seiða-
slóðum í haust. En Ijóst er, að það
er mikil streita á laxastofhinum í
ánum frá byggðinni og lítið má út
af bregða.“
í SKATTABREYTINGUNUM,
sem lögfestar voru á Alþingi í kjöl-
far heildarkjarasamninganna í vor,
felst að almenna skatthlutfallið
lækkar um alls 4% fram til ársins
1999, eða í 37,98%. Hátekjuskatt-
þrepið hækkar hins vegar í 7% og
tekjubilið einnig, í 260 þúsund
krónur hjá einstaklingum og 520
þúsund hjá hjónum. Þetta þýðir að
hátekjuskatturinn samsvarar
44,98% skatthlutfalli eftir breyt-
ingarnar sem er 2% lægra en nú
er.
I leiðara Morgunblaðsins í gær
er sagt að ekki hafi verið ákveðið,
hve mikil lækkun skatthlutfallsins
yrði um næstu áramót. Þessar upp-
lýsingar fékk Morgunblaðið á skrif-
stofu ríkisskattstjóra. Þetta er því
rangt því að samkvæmt lögunum
lækkar það um 2% og fer þá al-
menna skatthlutfallið niður í
38,88%.
Ráðstöfunartekjur barnlausra
einstaklinga og hjóna, sem greiða
hátekjuskatt, aukast að jafnaði í
kringum 5% þegar skattatillögur
ríkisstjórnarinnar verða komnar að
fullu til framkvæmda árið 1999.
Nú greiða einstaklingar 5% við-
bótarskatt af tekjum yfir 234 þús-
und krónum á mánuði, og hjón
greiða 5% viðbótarskatt af saman-
lögðum tekjum yfir 468 þúsund
krónum á mánuði. Almenn skatt-
prósenta í staðgreiðslu er 40,88%
og samsvarar hátekjuskatturinn
því 45,88% skatthlutfalli á umfram-
tekjurnar.
LAND við Sultartanga hefur tekið breytingum í sumar og búið er að grafa langt inn í bergið. Þar sem bergstálið er hæst er það 60 metra hátt.
Vinna við jarð-
göng hafín
FRAMKVÆMÐIR era hafnar við
gerð jarðganga við Sultartanga-
virkjun. Þar eru núna u.þ.b. 100
manns að störfum og ganga fram-
kvæmdir vel að sögn Grétars Hall-
dórssonar, staðarverkfræðings
Fossvirkis.
Bormenn em komnir um 40
metra inn í bergið en göngin verða
um 200 metra löng. Reiknað er
með að gerð ganganna ljúki í lok
september. Þessi göng em að-
komugöng inn í svokallaða jöfnun-
arþró. Þegar göngin verða fullbú-
in verður hafist handa við gerð
sjálfra aðrennslisganganna, en þau
verða 3,2 km löng og liggja undir
Sandafell.
Fossvirki hyggst flytja borvagn,
sem nú er notaður í Hvalfjarðar-
göngum, austur að Sultartanga
þegar búið er að bora í gegnum
Hvalfjarðargöng, en áætlað er að
það verði í október. Hafist verður
handa við að bora hinum megin
frá í vor, en nú er verið að undir-
búa bomn þar með jarðvegsflutn-
ingum í norðanverðu Sandafelli.
Áætlað er að vinnu við gröft að
stöðvarhúsi ljúki í september og
verður þá byijað á smíði hússins.
Grétar sagðist reikna með að um
100 manns yrðu við vinnu við Sult-
artangavirkjun í vetur. Við suma
verkhluta væri unnið allan sólar-
hringinn. Hann sagði að fram-
kvæmdir gengju vel og í samræmi
við áætlun.
Mál Sophiu Hansen
ekki eftirmálalaust
Mótmæli Is-
lands undir-
strikuð
ÓLAFUR Egilsson sendiherra gekk
í gær á fund fulltrúa í dómsmála-
ráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu
í Tyrklandi með þau skilaboð ís-
lenskra stjórnvalda að framgangur
yfirvalda í Tyrklandi í máli Sophiu
Hansen myndi ekki verða eftirmála-
laus af hálfu Islands.
íslensk stjómvöld ætla sér að
vinna áfram að því að koma á um-
gengnisrétti Sophiu Hansen við dæt-
ur sínar þó að tilraunir til þess hafi
mistekist í sumar. Framgangur
málsins er litinn mjög alvarlegum
augum í utanríkisráðuneytinu í Ijósi
þess að hæstiréttur Tyrklands hafði
dæmt Sophiu umgengnisrétt við
dætur sínar í júní til ágúst, en hann
hefur verið hunsaður.
Lögfræðingar, sem komið hafa að
málinu, eru ekki sammála um hvort
nauðsynlegt hafi verið að Sophia
Hansen færi með til Divrigi til að ná
í stúlkurnar. Þegar gerð var tilraun
til að ná í þær í síðustu viku féllust
fulltrúar íslenskra stjómvalda á rök
Riza Özden, lögfræðilegs ráðunautar
íslenska utanríkisráðuneytisins í
málinu, um að ekki væri nauðsynlegt
að Sophia færi með til bæjarins.
Þegar rætt var um að gera aðra til-
raun til að ná í stúlkurnar í þessari
viku töldu lögfræðingai- tyrkneska
dómsmálaráðuneytisins nauðsynlegt
að Sophia færi með til Divrigi til að
ná í þær. Sophia treysti því ekki að
öryggis hennar yrði gætti í bænum,
en hann er á svæði þar sem mikil ólga
hefur verið milli islamskra trúarhópa.
----------------------
Flugfélag fslands
Óbreytt fargjald
til áramóta
FLUGFÉLAG íslands hefur ákveð-
ið að bjóða sama fargjald fram til
áramóta og í boði hefur verið í sumar
undir heitinu Ferðaglaðningur Flug-
félags íslands.
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að svokölluðu Sumarglaðnings-
tilboði félagsins ljúki 1. september
en vegna þess hversu vel landsmenn
hafi tekið tilboðinu, jöfn og þétt
aukning farþega hafi orðið á leiðum
félagsins í júlí og ágúst eða 10% að
jafnaði, hafi verið ákveðið að bjóða
sama verð til áramóta.
Þá hefm- Flugfélag íslands ákveð-
ið að gera þær breytingar á vetrará-
ætlun félagsins að frá og með 1.
september mun félagið hefja beint
flug til allra áfangastaða.