Morgunblaðið - 28.08.1997, Síða 8

Morgunblaðið - 28.08.1997, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ársskýrsla Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar 1996 Um 8-9% borgarbúa fá félagslega aðstoð FÉLAGSMALASTOFNUN REYKJAVIKUR Rekstrarútgjöld voru 2.284,5 þús. kr. árið 1996 Annað 2% Afskriftir 1% Liðveisla 2% Þjónusta við unglinga 2% Aðkeypt vist 5%/\ Heimili fjölskyldu °A Félagsleg 5% Vheimaþjónusta 5% Húsaleigubætur f Framkvæmdir félagsmála Atvinnuleysis- bótaréttur óþekktur /4%7\ EH'Ngi V/j/N. Nemi 6% A ...... Sjuklingur 6% Fjárhagsaðstoð voru 3677 mál árið 1996 Hlutfallsleg skipting eftir atvinnustöðu FÉLAGSMÁLASTOFNUN veitti 3,2% færri einstaklingum fjárhags- aðstoð á árinu 1996 en árið áður en útgjöld til fjárhagsaðstoðar hækkuðu þó um 5,4% milli ára. Þetta þýðir, að sögn Láru Bjömsdóttur félags- máiastjóra, að þeir sem fá aðstoð eru verr settir en áður. Ársskýrsla Félagsmálastofnunar fyrir árið 1996 var kynnt á blaða- mannafundi s.l. þriðjudag og kom þar m.a. fram að rekstrarútgjöld stofnunarinnar voru 2.284 milljónir króna. Þar af voru langstærstu út- gjaldaliðirnir fjárhagsaðstoð, 719 milljónir, og þjónusta við aldraða, 704 milljónir, eða hvort tveggja um 31%. Barnaverndarmálum fjölgar um 60% Séu beinir styrkir, þ.e. fjárhagsað- stoð og húsaleigubætur, undanskildir er launakostnaður um 90% af rekstr- arútgjöldum stofnunarinnar en annar rekstrarkostnaður 10%. Málum til meðferðar hjá bama- vemdamefnd Reykjavíkur fjölgaði um tæp 60% frá árinu áður. Hjá Félagsmálastofnun hafa menn ekki skýringar á þeirri fjölgun á reiðum höndum, aðrar en þær að vakning hafi átt sér stað meðal almennings um réttindi bama, fólk sé opnara og óhræddara við að fylgjast með og láta vita ef gmnur leikur á að á þeim sé brotið. Félagsleg heimaþjónusta við aldr- aða var veitt til 2.600 heimila á árinu eða til tæplega 3.100 einstaklinga, sem eru um 25% ellilífeyrisþega í borginni. Rúmlega 700 ellilífeyris- þegar fengu heimsendan mat. Þá fengu 3.336 umsækjendur húsaleigu- bætur á árinu og voru meðalhú- saleigubætur á mánuði á hvem um- sækjanda 10.200 kr. Að sögn félags- málastjóra eru húsaleigubæturnar sá liður sem hefur stækkað hvað mest, en þær fóru úr 2% á árinu 1995 í 5% af útgjöldum stofnunarinnar 1996. Þjóðfélagslega mikilvæg þjónusta Alls komu rúmlega 5.000 mál til meðferðar hjá Félagsmálastofnun á árinu en að sögn Sigríðar Jónsdótt- ur, forstöðumanns rannsókna- og þróunarsviðs stofnunarinnar, eru þar mun fleiri einstaklingar að baki eða um 9.000. „Ef við tökum bara þessi fimm þúsund, þá eru það átta til níu prósent af öllum Reykvíkingum. Margir myndu segja að það væm mjög dapurleg tíðindi að svona marg- ir þyrftu þessa aðstoð, það er að vísu rétt, það er ekki æskilegt að svo margir séu svo illa settir fjárhagslega að þeir þurfi fjárhagsaðstoð, en þó ber þess að geta að hér er líka inni þjónusta sem er mjög mikilvæg þjóð- félagslega séð, eins og t.d. heima- þjónusta og liðveisla við fatlaða. Hvað varðar fjárhagsaðstoðina er rétt að taka fram að þar er ekki allt óæskileg útgjöld, því t.d. hafa ung- menni í auknum mæli verið aðstoðuð til náms,“ segir Lára Bjömsdóttir. Hún bætir við að vissulega hafi menn innan stofnunarinnar haft af því áhyggjur að ungu fólki sem þarf aðstoð hafi fjölgað, en það sé þó já- kvætt að nú hafí þeim fjölgað innan þess hóps, sem fá aðstoð til náms. Fótaaðgerðafræðin og tískan Háir hælar og támjóir skór skadda fæturna Ingibjörg Reynisdóttir INGIBJÖRG vinnur nú sem fótaaðgerðafræð- ingur í hlutastarfi á vistheimili fyrir aldraða í Kaupmannahöfn og tvo daga í viku á stofu. Á veg- um stofunnar veitir hún öldruðum aðstoð á heimil- um þeirra einu sinni í viku. Hún segir samtök þeirra sem reka stofurnar í borg- inni mjög öflug, þau gæti hagsmuna sinna af harð- fylgi. Um hríð vann hún á annarri stofu á Austurbrú sem meðal annarra Ingir- íður ekkjudrottning hefur fengið þjónustu hjá síðustu áratugina. Varð Ingibjörg að undirrita samning þar sem hún hét því að hefja ekki störf í hverfinu, á eig- in stofu eða hjá öðrum, í eitt ár eftir að hún hætti hjá fyrir- tækinu. Hún segir dönsku almanna- tryggingarnar greiða stóran hluta af útgjöldum aldraðra til fótaað- gerða. Sem dæmi nefnir hún syk- ursýkisjúklinga, sem oft þurfi á aðstoð vegna fótameina að halda, einnig þegar beita þurfi svo- nefndri spangarmeðferð vegna niðurgróinna nagla. Ekki fái þó allir jafnt, beitt sé tekjutengingu. - Er mikill munur á dönskum og íslenskum fótum? „Nei, það finnst mér nú ekki, flest er svipað í þessum efnum. Fólk notar t.d. skó af svipuðu tagi í þessum löndum. Best er að nota fótlaga skó og það eru margir orðnir sér meðvitandi um mikil- vægi þess að huga að skófatnaðin- um, fótlaga skór eru hins vegar ekki í tísku núna hjá fullorðnum." - Hvað gera fótaaðgerðafræð- ingar einkum hér á landi? „Við vinnum á stofum en einnig mikið á dvalarheimilum fyrir aldr- aða og förum Iíka til þeirra sem búa á eigin heimilum. Áður rak Reykjavíkurborg fótaaðgerðastof- ur á vistheimilum fyrir aldraða en fyrir nokkrum árum var þeim sem sáu um reksturinn boðið að taka við honum. Þetta var einkavætt. Kosturinn er sá að nú er hægt að bjóða öllum þjónustu á stofun- um, ekki eingöngu gamla fólkinu en auðvitað misstum við þá trygg- ingu sem fólgin var í opinbera rekstrinum. Við fáumst einnig við meiðsl og annað sem hijáir íþróttamenn, aðallega hlaupara. Fólk þari' að gæta þess að nota rétta skó. Ef þeir þrengja að nöglum geta þær hægt og sígandi farið að vaxa niður. Sumir fá líka sigg ef þeir stunda hlaupin af miklum krafti. Þetta á annars ekkert sérstaklega við íþrótta- menn, slæmir skór hafa farið illa með fæturna á mörgum." - Hvað viltu segja um háa hæla og támjða skó? „Konur sem hafa verið mikið í skóm með háa og mjóa hæla hafa oft orðið fyrir því að fæturnir hafa breyst, tærnar hafa orðið svolítið kræklóttar. Beinin breyt- ast vegna álagsins. Margar þeirra þurfa nú að fá aðstoð hjá okkur. Tábergssig er nokkuð algengt, það getur verið meðfætt en hægt er að fá sérhannað innlegg hjá þeim sem sérhæfa sig í slíkum hlutum. Þeir geta lagað þetta. Támjóu skórnir sem voru í tísku fyrir nokkurm áratugum hjá karl- mönnum, fóru heldur ekki vel með fæturna. Verst er ástandið hjá ► INGIBJÖRG Reynisdóttir er 26 ára gömul og fótaaðgerða- fræðingur að mennt. Hún iauk bóklegu námi hér heima í fjöl- brautaskólanum við Ármúla og löggildingarprófi eftir nám- skeið í atvinnugreininni sem Félag fótaaðgerðafræðinga skipulagði í samstarfi við stjórnvöld. Jafnframt vann hún á stofu. Meðal námsgreina voru líffærafræði og námskeið voru um innlegg og fleira tengt fóta- meinum. Ingibjörg fluttist síðan til Danmerkur fyrir rúmum tveim árum til að reyna eitthvað nýtt og víkka sjóndeildarhringinn. Miklar kröfur eru gerðar til fólks í starfsstéttinni þarlendis en Ingibjörg fékk prófið frá íslandi viðurkennt sem ekki mun hafa tekist þar fyrr. Ingibjörg er í sambúð með Þórði Sveinssyni og eiga þau fjögurra ára gamla dóttur. þeim sem gengu í svona skóm, háhæluðurn eða támjóum, dag eftir dag. Ákveðin kynslóð á við vanda að stríða vegna þessa en það er minna um þetta núna.“ - Hvaða tæki notið þið við störfin? „Við notum hnífa á líkþorn en einnig til að laga niðurgrónar neglur og fjarlægja alla harða húð og dauða húð undan nöglunum. Einnig erum við með stórar klipp- ur og notum fræsara til að þynna neglur sem eru orðnar of þykkar, oft vegna sveppasýkingar. Við notum stóran fræsara til að ná burt siggi undan hælum, á eftir er notaður áburður. Sumir fá svona með- ferð á sex mánaða fresti, aðrir mun sjaldn- ar. Þetta tekur allt að klukkustund, öll með- ferðin. Við gefum líka ráð í sam- bandi við skófatnað og bendum á ráð við fótsvita, ráðleggjum krem og þess háttar. Reynt er að úða bakteríudrepandi efni í skó til að losna við sveppi og ólykt en slíkt er mjög lífseigt. Sýktu neglurnar eru mýktar upp með heitu baði. Þær eru oft orðnar gulleitar og í versta falli þarf læknir að fjarlægja nöglina. Þá er komin slæm sýking sem erfitt getur verið að ráða við. Nýja nöglin verður oft jafnslæm en lyfin eru nú að batna. Til að forðast sveppasýkingu þarf fólk fyrst og fremst að skipta oft um sokka, þvo sér reglulega og þurrka sér vel á milli tánna.“ Bakteríusýk- ing í skóm mjög lífseig

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.