Morgunblaðið - 28.08.1997, Síða 10

Morgunblaðið - 28.08.1997, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ Um sextíu þúsund nemendur í grunn- og framhaldsskólum landsins undirbúa veturinn Skiptibókamark- aðir njóta vinsælda Rúmlega sextíu þúsund nemendur í grunnskólum og framhaldsskólum landsins hefja nám eftir helgi að loknu sumarfríi. Af því tilefni fór Arna Schram á stúfana og ræddi við nokkra þá nemendur sem þegar eru byrjaðir að undirbúa skólaárið, með kaupum á bókum, pennum og öðrum slíkum nauðsynjum. Morgunblaðið/Arnaldur ARNA og Þórunn Ólafsdætur. í BÓKA- OG RITFANGAVERSL- UNUM borgarinnar mátti í gær sjá nemendur á öllum aldri í leit að ýmsum þeim hlutum sem gott er að eignast áður en skólahald hefst á mánudag. Ungir drengir skoðuðu til að mynda úrval strokleðra af mikl- um áhuga, mæðgur könnuðu verð skólataskna og hópur stúlkna keypti alveg eins stílabækur. I verslunarsmiðstöð Kringlunnar hópuðust ungmenni fyrir framan lítinn skiptibókamarkað sem þar má fmna og ræddi blaðamaður við fjög- ur þeirra. Þær stöllur Guðrún Val- dís og Helga Halldórsdætur, Gunn- hildur Ósk Gunnlaugsdóttir og Margrét Sveinbjömsdóttir eru að byrja í öðrum og þriðja bekk Fjöl- brautaskólans í Garðabæ. Þær höfðu verið á setningarathöfn skól- ans fyrr um morguninn og voru nú að skipta „gömlum, notuðum bókum í nýjar og notaðar bækur,“ eins og þær orðuðu það. Þær sögðu það mjög algengt að nemendur nýttu sér þessa skipti- bókamarkaði því þannig væri hægt að spara peninga. Stundum þyrfti að borga á milli en oftast ekki. „Og það skiptir engu máli þótt búið sé að skrifa athugasemdir í bækurnar eða undirstrika línur, það er bara betra ef eitthvað er,“ sagði Guðrún Valdís. Þegar þær voru spurðar að því hvemig þeim litist á það að vera byrjaðar í skólanum að nýju svör- uðu þær einum rómi að það væri æðislegt. „Það er að minnsta kosti gaman fyrstu vikurnar á meðan maður er að hitta aftur skólafélag- ana en síðan verður það leiðinlegt," sagði Gunnhildur Ósk. hún í skólanum. Hún kvaðst líka hlakka til að fara í skólann og sagði að sér fyndist skemmtilegast að teikna. Boðið upp á flugferð í Grandaskóla Elín Ama Ellei'tsdóttir, nemandi í 9. bekk í Garðaskóla, var að kaupa ritföng í verslun Eymundssonar í Austurstræti þegar blaðamann bar að garði. Hún kvaðst vilja ljúka þessum kaupum af áður en allir færu af stað og það yrði of mikill troðningur í verslununum. Elín Arna sagði að það legðist ágætlega í sig að vera að byrja í skólanum að nýju, hún væri hins vegar að byrja á- 1 svokallaðri flugferð, þar sem þeim nemendum sem fengju hærri ein- kunn en níu á vorprófum í ákveðn- um fögum væri boðið að fara hraðar í gegnum námsefnið, og því væri hún svolítið stressuð. „En ég vona að það gangi vel,“ sagði hún. Ingibjörg Vigdísardóttir, sem er að byrja í 1. bekk í Menntaskólan- um að Laugarvatni, og bróðir henn- ar, Egill Eysteinsson, sem er að hefja nám í Vélskóla íslands, not- uðu eins og svo margir aðrir morg- uninn í gær til að kaupa bækur fyrir skólann. Þau sögðust þó helst reyna að kaupa notaðar bækur þar sem þær væru mun ódýrari. Ingibjörg kvaðst hlakka til að byrja í skólanum og sagði ennfrem- ur aðspurð að hún hefði valið Menntaskólann að Laugarvatni vegna þess að hún byggi þar í ná- grenninu. Egill sagðist aftur á móti hafa mikinn áhuga á vélum og það skýrði ákvörðun hans um val á framhaldsskóla. Skemmtilegast að lesa og reikna í Pennanum í Kringlunni voru systumar Þórunn og Arna Ólafs- dætur að skoða tré- og vaxliti ásamt móður sinni. Þórunn byrjar í 9 ára bekk og Arna í 8 ára bekk í Kárs- nesskóla í Kópavogi á mánudag. Að- spurðar sögðust þær hlakka nokkuð til að byrja í skólanum en væru þó ekki vissar á því hvað þær kæmu til með að þurfa að læra í vetur. Ama taldi samt sennilegt að hún myndi byrja að læra margföldunartöfluna. Þegar þær vom spurðar að því hvað þeim fyndist skemmtilegast í skólanum lágu þær ekki á svarinu. „Að reikna og lesa,“ sagði Þórunn ákveðið og yngri systir hennar, Ama, tók undir það. En það vora fleiri ungir grann- skólanemar með foreldrum sínum í verslunarleiðangri í Kringlunni þennan dag. I bókabúðinni Ey- mundsson skoðaði Sólveig Ólafs- dóttir, 8 ára, litrík pennaveski ásamt litla bróður sínum, Braga Þór, 4 ára, sem þrátt fyrir að vera ekki sestur á skólabekk hafði mik- inn áhuga á því að hjálpa systur sinni við valið. Móðir þeirra fylgdist einnig með. Sólveig kvaðst byrja í 3. bekk Grandaskóla á mánudag og að sig vantaði aðallega pennaveski og stílabækur. Allar aðrar bækur fengi GUÐRÚN Valdís og Helga Halldórsdætur, Margrét Sveinbjörnsdóttir og Gunnhildur Ósk Gunnlaugsdóttir. INGIBJÖRG Vigdísardóttir og Egill Eysteinsson. SÓLVEIG Ólafsdóttir ásamt Braga Þór, bróður sínuni. Þá voru þær stöllur ánægðar með nýju skólabyggingu FG við Hof- staðabraut, en verra þótti þeim að þurfa að kaupa sér nýja inniskó því ekki mætti vera á útiskóm inni í skólanum. Brettingrir dreginn vél- arvana til hafnar í Noregi Norsk yfirvöld veittu undanþágu frá hafnbanni á íslenska Smugutogara NORSK stjórnvöld heimiluðu frystitogaranum Brettingi frá Vopnafirði að koma inn til hafnar í Honningsvogi í Noregi í gær vegna vélarbilunar, sem upp kom er skip- ið var að veiðum í Smugunni. Norsk yfirvöld ákváðu að veita undanþágu frá hafnbanni, sem sett hefur verið á íslenska Smugutogara. Túrbína við aðalvél gafsig Von var á varahlutum frá Sviss í gær og viðgerðarmanni frá Trom- sö. Óvíst var í gær hvenær viðgerð lyki og hvort Brettingur færi að nýju í Smuguna eða kæmi heim. Vélarbilunin kom upp síðastlið- inn mánudag er túrbína við aðalvél gaf sig. Skipstjórinn, Steindór Sverrisson, óskaði þá eftir því að skipið fengi að leita viðgerða í Nor- egi og kom vélstjóri frá norsku strandgæsluskipi, sem statt var í Smugunni, yfir í Bretting til að kanna aðstæður. Ekki breyting á afstöðu Norðmanna Eiður Guðnason, sendiherra Is- lands í Noregi, sagði að þetta þýddi ekki breytingu á afstöðu Norð- manna. Þegar skip væra vélarvana hefði þeim verið leyft að koma til hafnar vegna viðgerða. Ef skip gætu hins vegar komist af eigin rammleik til íslands hefði því verið neitað. „Það hefur ekki verið haft sam- band við okkur, sem ég tel góðs viti, og sýnir að Norðmenn vita hvaða reglur gilda og geta veitt skipinu eðlilega fyrirgreiðslu þegar slíkur vandi kemur upp,“ sagði sendiherr- ann. Höfrungur dró Bretting til hafnar Um það leyti sem bilunin kom upp, var Höfrungur III í þann veg- inn að leggja af stað heim á leið úr Smugunni, og var ákveðið að hann tæki Bretting í tog til Noregs. Dráttarbátur tók við Brettingi í hafnarmynninu í Honningsvogi og aðstoðaði skipið að bryggju. Að því búnu komu norskir tollgæslumenn um borð, tollafgreiddu skipið og skoðuðu m.a. veiðidagbækur. Samskiptin á eðlilegum nótum „Samskiptin við Norðmenn hafa verið mjög góð og á eðlilegum nót- um, eins og samskipti eiga að vera. Skipið var vélarvana og gat ekki keyrt fyrir eigin vélarafli. Norð- menn tóku tillit til þessa sem segir okkur að þeir eru mannlegir. Ef leyfi norskra stjórnvalda hefði ekki fengist til að koma til hafnar, hefði ekkert verið annað að gera í stöð- unni en að draga togarann til Is- lands, um fimm sólarhringa leið,“ sagði Reynir Árnason, útgerðar- stjóri hjá Tanga hf. Brettingur hafði verið að veiðum í tvær vikur þegar bilunin varð og var kominn með um 90 tonn af þorski upp úr sjó sem fryst era uro borð. Samkvæmt síðustu fréttum, vora tuttugu og tvö íslensk skip í Smugunni, nokkur á heimleið og afli enn lélegur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.