Morgunblaðið - 28.08.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 15
Orkubú Vestfjarða
Færir grunn-
skólum gjöf í
tilefni 20 ára
afmælis
fyrirtækisins
ísafirði - Þriðjudaginn 26. ágúst sl.
voru liðin 20 ár frá því vestfirskir
sveitarstjórnarmenn og Gunnar
Thoroddsen, þáverandi iðnaðarráð-
herra, undirrituðu stofnsamning að
Orkubúi Vestfjarða. Stjórn fyrir-
tækisins ákvað á fundi sama dag
að minnast þessara tímamóta með
því að veita hveijum grunnskóla á
Vestfjörðum framlag sem nemur
1.000 krónum á hvern nemanda,
þó þannig að enginn skóli fái lægra
framlag en 25 þúsund krónur.
Framlaginu skal varið til kaupa
á kennslutækjum, samkvæmt bók-
un stjórnar Orkubúsins. Nemendur
í grunnskólum á Vestfjörðum eru á
þrettánda hundraðið og er því verð-
mæti gjafarinnar 1,2-1,5 milljónir
króna. Stjórn Orkubús Vestfjarða
hefur einnig ákveðið að hafa opið
hús á fimm stöðum á Vestfjörðum
frá kl. 14-18 á laugardag en þá
gefst íbúum fjórðungsins kostur á
að kynna sér starfsemi fyrirtækis-
ins og njóta léttra veitinga.
„Við veruðm með opið hús í Raf-
stöðinni að Fossum í Engidal í Skut-
ulsfirði, við Reiðhjallavirkjun í
Syðridal við Bolungarvík, í Mjólkár-
virkjun í Arnarfirði, í Þverárvirkjun
við Hólmavík og í rafstöðinni á
Patreksfirði. Þar verður boðið upp
á léttar veitingar og grillaðar pylsur
ef veður leyfir. Þá gefst gestum
kostur á að kynna sér starfsemi
fyrirtækisins, bæði með bæklingum
sem liggja munu frammi og frá
starfsmönnum fyrirtækisins,“ sagði
Kristján Haraldsson, orkubússtjóri,
í samtali við blaðið.
Borað eftir köldu vatni
á Kleppjárnsreykjum
Borgarfirði - Boranir eftir köldu
vatni á Kleppjárnsreykjum hafa
skilað árangri. Reykholtsdalshrepp-
ur stendur að boruninni, verktaki
er Alvarr hf., og bormenn eru Frið-
finnur K. Daníelsson og Friðrik
Ingi Ágústsson. Tvær holur hafa
verið boraðar og áætlaði Friðfinnur
að samanlagt gætu þessar holur
gefið um áttatíu tonn af vatni á
sólarhring, þörf er á um eitthundrað
tonnum fyrir Kleppjárnsreykja-
hverfið. Garðyrkjustöðvarnar þurfa
mikið vatn og einnig sundlaugin á
Kleppjárnsreykjum.
Garðyrkjubændur hafa notast við
kælt hveravatn hingað til. Hvera-
vatnið stíflar vökvunarkerfin og er
þar af leiðandi ekki gott til vökvun-
ar. Mikill skortur er á neysluvatni
í Reykholtsdal, og hafa menn ekki
mikið hugsað um að bora eftir köldu
vatni hingað til, vegna ótta við að
fá bara heitt vatn, en flestöll hús
í Reykholtsdal eru nú hituð með
heitu vatni.
Friðfinnur sagði að núna væri
hann að fara norður í Skagafjörð
og Ólafsfjörð að bora og á meðan
muni hann dæla úr holunum og
kanna efnasamsetnigu vatnsins og
ef vatnið er gott er fyrirhugað að
bora fleiri holur í Reykholtsdal.
Heyskap er lokið á flestum bæj-
um, en eftir er að slá hána, þeir
sem ekki heyja með rúllutækni hafa
ekki verið öfundsverðir í heyskapn-
um sökum óþurrka.
Framtíð Reykholts enn óráðin
Uppskera garðyrkjubænda er í
meðallagi og heimskilaverð lækkar
Morgunblaðið/Bernard Jóhannesson
BORMENNIRNIR Friðfinnur K. Daníelsson og Friðrik Ingi
Ágústsson.
GALLABUXNA
TILBOD: 10% AFSLÁTTUR
ÚT ÞESSA VIKU + FRÍR BÍÓMIÐI
ÞORVALDUR Jónsson í Brekkukoti við heyrúllustafla.
ár frá ári. Ekki skilar þessi lækkun
sér til neytenda sökum þess að
milliliðir taka sífellt stærri sneið af
kökunni.
Umferð ferðamanna hefur verið
lítil í sumar, nokkuð góð aðsókn
hefur verið á Hótel Eddu í Reyk-
holti svo og á sýningar og tónleika
hjá Heimskringlu í Reykholtskirkju.
Unnið er að hækkun vegarins í
Hálsasveit og verður sett á hann
bundið slitlag nú í haust. Að sögn
Hreins Haraldssonar hjá vegagerð-
inni verður byijað á nýrri brú yfir
Flóku nú að loknum laxveiðitíman-
um.
Framtíð Reykholts er enn óráðin
en nefnd vinnur að því að fá staðn-
um og byggingunum nýtt hlutverk,
er það von heimamanna að starf-
semi af einhverju tagi verði komið
á laggirnar sem fyrst tii að þeir sem
höfðu vinnu við skólann áður fái
vinnu á ný.
í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
FYLGIR ÖLLUM LEVI’S GALLABUXUM
(Á MEÐAN MIÐAR ENDAST)
LEVI’S GALLABUXUR
FRÁ KR. 3.990
ENNANDIT1LB0DUM
qA£A
Kringlunni, sl
Opið
lau. kl. 10 -16
sun. kl. 13 -17
sími 533 1718