Morgunblaðið - 28.08.1997, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Sihan-
ouk snýr
heim
Phnom Penh. Reuter.
NORODOM Sihanouk, kon-
ungur Kambódíu, er væntan-
legur til heimalands síns nú í
vikunni, í fyrsta sinn frá því
Hun Sen, annar forsætisráð-
herra landsins, steypti syni
konungs, Norodom Rana-
riddh, af stóli í blóðugum
átökum er urðu í síðasta mán-
uði. Átök héldu áfram milli
stuðningsmanna prinsins og
stjórnarhermanna, sem hollir
eru Hun Sen, í norðvestur-
hluta landsins í gær, nærri
landamærunum við Tæland.
Ranariddh hvatti til þess, að
heimsókn konungsins yrði
nýtt sem tækifæri til að semja
vopnahlé og hefja friðarvið-
ræður milli hinna stríðandi
fylkinga.
Konungurinn segir tilgang
farar sinnar vera andlegan.
Hann mun taka þátt í bæna-
samkomum í bænum Siem
Reap, þar sem Angkor-must-
erið er. Það var vinsæll
áfangastaður ferðafólks er
kom til Kambódíu, þar til óöld-
in í landinu blossaði upp.
Pólitískt
yfirbragð
Kambódískir stjórnmála-
skýrendur segja að heimsókn
konungsins muni óhjákvæmi-
lega hafa pólitískan brag. Það
væri eftirtektarvert að hann
héldi frá Peking, þar sem hann
hefur verið undir læknishendi
frá því í febrúar, til Siem
Reap án þess að koma við í
höfuðborginni Phnom Penh.
„Með því að koma ekki hingað
vill hann senda okkur þau
skilaboð að ekki sé allt með
felldu,“ sagði stjórnarerind-
reki í höfuðborginni.
Konungurinn er þjóðhöfð-
ingi Kambódíu samkvæmt
ákvæðum stjórnarskrár ríkis-
ins, en hefur engin pólitísk
völd.
Sonur forsetans fyrrverandi talinn vænlegt forsetaefni
Repúblíkanar bínda
vonir við Bush
ENN eru þijú ár í næstu forseta-
kosningar í Bandaríkjunum, en repú-
blikanar eru þegar farnir að velta
fyrir sér hver eigi að verða næsta
forsetaefni þeirra og virðast augu
margra vera farin að beinast að
George W. Bush, ríkisstjóra í Texas.
Bush sótti um helgina ráðstefnu
í Indianapolis í Indiana-ríki, sem
haldin var til að vekja athygli á þeim,
sem hafa hug á að fara í forseta-
framboð. Þetta er fyrsta kjörtímabil
Bush, sem er sonur George Bush,
fyrrverandi forseta, í Texas og hann
hefur sagt að hann hyggist einbeita
sér að því að ná endurkjöri í ríkis-
stjórakosningum, sem
haldnar verða í Texas á
næsta ári.
Áberandi ríkisstjóri
Hann hefur hins vegar
vakið mikla athygli eftir
að hann varð ríkisstjóri
og hefur sérstaklega
verið til þess tekið að
honum hefur tekist að
höfða til bæði hægri- og
miðjumanna í flokki sín-
um í Texas.
Ýmsir stjórnmálaský-
rendur og aðrir, sem af-
skipti hafa af pólitík,
hafa þegar lýst yfir að
erfitt verði að slá Bush
við árið 2000 og orðróm-
urinn um að hann hyggi
á framboð fékk byr und-
ir báða vængi þegar
hann ákvað að sækja
ráðstefnuna um helgina.
Bush flutti þar helstu
ræðuna og náði athygli
viðstaddra þegar í upp-
hafi: „Það er dálítið, sem
ég þarf að segja ykkur.
Ég veit að það eru miklar vangavelt-
ur og alls kyns kvittir um stjórnmál
framtíðar. Fjölmiðlar gera sér mik-
inn mat úr því hvort ég ætli að feta
í fótspor föður míns. Ég ætla að
taka á því máli hér í dag: Ég ætla
ekki að stökkva út úr flugvélunum."
Þessi orð sonar fyrrverandi forseta
Leit repúblikana að for-
setaefni fyrir næstu
kosningar er hafin.
Beinast sjónir margra
að George W. Bush,
ríkisstjóra í Texas og
syni síðasta forseta
repúblikana.
Presslink
GEORGE W. Bush, ríkisstjóri Texas, flytur ræðu.
Bandaríkjanna vöktu mikinn hlátur
í salnum.
Ræðan þótti hins vegar ekki góð
í heild sinni og voru margir þeirrar
hyggju að Dan Quayle, fyrrverandi
varaforseta, hinum vellauðuga út-
gefanda Steve Forbes, Fred Thomp-
son, þingmanni og leikara, og Alan
Keyes, útvarpsþáttastjórnanda,
hefði tekist betur upp.
Margir viðstaddra sögðu hins veg-
ar að ekki mætti láta eina misheppn-
aða ræðu villa um fyrir sér því að
Bush hefði marga kosti.
Hampað í fjölmiðlum
Ræðuhæfileikar Bush hafa reynd-
ar ekki verið aðalatriði í þeirri um-
fjöllun, sem tröllriðið hefur banda-
rískum Ijölmiðlum undanfarið og
hefur verið líkt við þá athygli, sem
Colin Powell, fyrrverandi yfirmanni
bandaríska herráðsins, var veitt þegar
menn voru að velta vöngum yfir því
hvort hann hygðist bjóða
sig fram til forseta íyrir
tveimur árum. Sölumaður
einn á ráðstefnunni í Indi-
ana sagði að barmmerki
með nafni Bush hefðu selst
upp á augabragði, en nöfn
annarra á ráðstefnunni
hefðu vart hreyfst.
Fréttaþátturinn Today,
sem NBC framleiðir,
sýndi fyrir íjórum vikum
rúmlega 12 mínútna við-
tal við Bush og þótti
mörgum líkjast kosninga-
auglýsingu. Þar var meðal
annars talað við Bush
eldri, sem sagði að það
yrði gott fýrir Bandaríkin
ef sonur hans yrði kjörinn
forseti og ákaflega mikil
ánægja fyrir foreldrana.
Bush nýtur þegar
ákveðinnar velvildar inn-
an Repúblikanaflokksins
vegna foreldranna og
hann getur einnig nýtt sér
hin pólitísku tengsl föður
síns þurfi hann á því að
halda til Ijáröflunar.
Ríkisstjórinn hefur hins vegar
ekki viljað segja mikið um það hvað
hann hefur í hyggju. Karen Hughes,
blaðafulltrúi Bush, útskýrir það svo:
„Hann varð vitni að því þegar mjög
vinsæll sitjandi forseti, sem hann
þekkir mjög vel, hrapaði úr 90%
fylgi niður í 30%.“
LISTAKOKKAR J&i ^
^ JP OG DÁSAMLEGLIR MATIIR!
LancbfrðMur
&dskaður.
HLAÐBORÐ
SÆLKERANS
Frjálst val:
Súpa, salatbar
og heitur matur,
margar tegundir.
KR.790,
HungarKjsgrilluð GRISA- melkJSi Sraenplparsósu AÐEIHS KR. 1450,- Okkar landsfræga LAMBASTEIK BERNAISE með gljáðu grænmeti og bakaðri kartöflu AÐEINS KR. 1490,-
Gómsaet og safarík NALflAPIPAR STEIK með koníakslagaðri piparsósu AÐEIHS KR. 1590,- Hún er engri lik þessi LÚÐU- PIPARSTEIK með rjómasósu og bakaðri kartöflu AÐÐNSKH1490,-
Uiu^fúliS í afuiHjiH'buhi/n réltuiu
en.súþa o<j Halatliat'innrjlæsilecji
O'fj-soo aaffoituS ísluu'inn,
i Tilboö öll kvöld
og um helgar.
POTTURINN
OG
PflNI
Bamamatseðill
fyrir smáfólkið!
8RRUTRRHOLTI 22
SlMI 551-1690
Tóbaksandstæðingar gagnrýna
allsherjarsamkomulag
Sagt takmarka
möguleika á skaða-
bótakröfum
Peking. Reuter.
EF bandarískir andstæðingar reyk-
inga ganga að skilyrðum samkomu-
lags nokkurra ríkja annars vegar og
tóbaksfyrirtækja hins vegar eiga þeir
á hættu að glata tækifærum til enn
stórkostlegri sigurs á tóbaksiðnaðin-
um, að því er talsmaður bandarísks
heilsugæsluverkefnis segir. Sam-
komulagið takmarki möguleika á
skaðabótakröfum vegna afleiðinga
reykinga.
Richard Daynard, framkvæmda-
stjóri samstarfsverkefnis um skaða-
bætur vegna tóbaksneyslu, segir að
samkomulagið veiti tóbaksfyrirtækj-
um vemd fyrir málshöfðunum af
hálfu stjómvalda og einstaklinga ein-
mitt nú, þegar árangur af slíkum
málarekstri sé að koma í ljós.
Samkvæmt samkomulaginu, er
náðist í júní sl., munu tóbaksfyrirtæk-
in greiða sem svarar 26 þúsund millj-
örðum íslenskra króna í sjöð, til að
standa straum af kostnaði vegna
heilsutjóns af völdum reykinga, og
viðurkenna að tóbak sé ávanabind-
andi og að þeir muni hlíta reglum
um framleiðslu og markaðssetningu.
Gegn þessu heita ríkin því að höfða
ekki mál á hendur tóbaksfyrirtækjun-
um. Samkomulagið verður ekki að
lögum fyrr en þingið hefur lagt bless-
un sína yfir það.
„Það er miklu fómað fyrir hagnað
sem er með engu móti öruggur,"
sagði Daynard. Vísaði hann til dóm-
sáttar, er náðist á mánudag, milli
tóbaksfyrirtækja og Flórídaríkis um
að fyrirtækin greiði sem svarar 770
milljörðum íslenskra króna gegn því
að fallið verði frá málsókn. Sagði
Daynard þetta samkomulag sýna
hversu miklum árangri væri hægt
að ná án allsheijarsamkomulagsins
frá í júní.
Samkomulagið, sem náðist á
mánudag, var annað í röðinni milli
eins ríkis og framleiðanda. Miss-
issippi gerði í júlí 3,3 milljarða dala
samkomulag við tóbaksfyrirtæki.
Daynard segir að þessi mál geri tób-
aksfyrirtækin að skotmarki fyrir þá
sem kynnu að hafa hug á málshöfð-
unum. Auk þess væri alls ekki útséð
um að allsheijarsamkomulagið feng-
ist samþykkt af þinginu.
Watson
sleppur
við máls-
höfðun
RÉTTARHALDI, sem hefjast
átti gegn hvalfriðunarmannin-
um Paul Watson næstkomandi
mánudag,
verður af-
lýst.
Ástæðan er
sú að hon-
um var
aldrei birt
stefna í þá
80 daga
sem hann
sat í hol-
lensku fangelsi. Formleg birt-
ing stefnu vegna ásiglingar
skips Watsons á norskt strand-
gæsluskip 1994 er forsenda
fyrir því að réttarhald getur
hafist. Lögreglan í Lófóten og
Vesturál skýrði frá því á sínum
tíma að stefna hefði verið birt
Watson er hann sat í varðhaldi
í Hollandi en nú hafa hollensk
dómsmálayfirvöld skýrt frá því
að það hafi aldrei átt sér stað.
Ofuraspirín
lofar góðu
ÍRSKIR vísindamenn héldu því
fram á ráðstefnu um hjarta-
sjúkdóma í Stokkhólmi í gær
að „ofur-aspirín“ gætu komið
í veg fyrir alvarlega hjarta-
sjúkdóma með því að hindra
blóðstorknun. Ofuraspirín er
mun sterkara en venjulegt
magnýl. Rannsóknir benda til
þess að það geti komið að
gagni við hjartaaðgerð. Hins
vegar er varað við því að óljóst
sé hvort jákvæð virkni þess
vegi upp óæskilegar hliðaverk-
anir svo sem aukna hættu á
innvortis blæðingum.
Vantraust í
Póllandi?
GREIDD verða atkvæði um
vantrauststillögu gegn pólsku
stjóminni á þingi í dag, en í
gær voru taldar litlar líkur á
samþykkt hennar, ekki síst þar
sem stjórnin hefur náð sátt við
bændur um nýja landbúnaðar-
stefnu.
Búast við
stórskjálftum
HELSTU jarðvísindamenn
Kína spáðu því í gær að nokkr-
ir mjög öflugir jarðskjálftar
myndu ríða yfir landið fýrir
aldamót. „Ofurskjálfta af
stærðargráðunni 7,5 á richter
er ekki hægt að útiloka,"
sagði forstöðumaður jarð-
skjálftastofnunar Kína er
hann gaf fastanefnd þingsins
skýrslu í gær. Um 240.000
manns biðu bana 28. júlí 1976
er 7,8 stiga skjálfti reið yfir
borgina Tangshan í norður-
hluta Kína.
Vinna meira
fyrir minna
VINNUVIKAN hefur lengst í
Asíu án þess þó að það hafí
skilað sér í meiri launum, að
sögn svissneskrar bankastofn-
unar. Að meðaltali vinna As-
íubúar 45 stundir á viku með-
an starfsfélagar þeirra í Evr-
ópu vinna 39 stundir.