Morgunblaðið - 11.09.1997, Page 2

Morgunblaðið - 11.09.1997, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Mistök gerð hjá Pósti og síma varðandi símaþjónustu Rauða torgsins ,Erótísku símtöl á opnum línum HÆGT var að hringja í gær í nokk- ur símanúmer sem byrja á 5 og komast þannig í samband við svo- kallaða „erótíska" símaþjónustu Rauða torgsins. Það á ekki að vera hægt nema með því að hringja í númer sem byijar á 9, líkt og gildir um önnur símatorg. Ef númer byij- ar á 9 gefur það fólki færi á að læsa símum sínum, svo börn eða ung- lingar geti ekki hringt í þessi núm- er. Jens Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Rauða torgsins, sagði síðdegis í gær að hann hefði ekki vitað af þessu. Greinilega væri um mistök Pösts og síma að ræða. Hann myndi óska rannsóknar á málinu, því ef þetta hefði viðgeng- ist einhvem tíma þá hefði fyrirtæki hans orðið af milljónum. Hrefna Ingólfsdóttir, blaðafull- Lyfið Prozac finnst í blóði bílstjóra Dfönu Ólíklegt að það auki áfengisáhrif MAGNUS Jóhannsson, prófessor í lyfjafræði, segir það fara eftir tegundum þunglyndislyfja hvort þau auki slævandi verkanir áfengis, en þunglyndislyfið fluoxetine, betur þekkt undir nafninu Prozac, hefur sáralítil áhrif á áfengisvímu. Nýjar fregnir af mælingum á blóði úr Henri Paul, bflstjóranum sem lést ásamt Díönu prinsessu af Wales og Dodi Fayed í bflslysi í París 31. ágúst sl., herma að í blóði hans hafi fundist vottur af tveimur tegundum lyfja auk mikils magns áfengis eða 1,75 prómill. Annars vegar fannst þunglyndislyfið Prozac en hins vegar minna magn af lyfinu tiapride, sem virkar gegn æsingi og árásarhneigð. Tiapride er ekki selt hér og þekkir Magnús ekki til verkana þess, en segir að hafi það fundist í litlum mæli í blóði Henris sé mjög ólíklegt að það hafi haft áhrif á verkun áfengisins. Þá á Prozac ekki að hafa slævandi verkanir og vel má aka bfl þótt þess sé neytt. Ennfrémur telur Magnús óliklegt að samsetning þessara Iyfja hafi eitthvað að segja í svo litlu magni. Auk þess segir Magnús að mælingar á áfengismagni í blóði séu mjög öruggar og að enginn möguleiki sé á að önnur lyf í blóðinu hafi áhrif á þær niðurstöður. Hann segir að 1,75 prómill af áfengismagni sé mjög mikið og gæti samsvarað því að maður hefði drukkið nokkra þrefalda skammta af sterku áfengi. „Það er enginn með þetta mikið af áfengi í blóði nema vera undir mjög miklum áhrifum," segir hann. trúi Pósts og síma, sagði enga sök hjá Rauða torginu. Af einhverjum ástæðum hefði upptöku Rauða torgsins verið að finna á númer- um, sem ættu að vera læst og væru eingöngu notuð af Pósti og síma, til dæmis til prófana. Dæmi eru um að fólk hafi fengið háa símareikninga, af þvi að börn eða unglingar á heimilinu not- færðu sér símaþjónustu, þar sem mínútan er seld miklu hærra verði Ekki fyrir loft- hrædda SEGJA má að það hafl verið á brattann að sækja hjá þessum manni, sem var að dytta að þaki húss í Grindavík í gær og nokkuð ljóst virðist að hann er ekki lofthræddur, a.m.k. ber hann það þá afar vel. en ella. Þjónusta Rauða torgsins kostar 66,50 kr. hver mfnúta og f umræddum símanúmerum sem byija á 5 og voru í gær a.m.k. fjög- ur, svaraði „Eva María“ og benti hlustanda á, áður en lengra væri haldið, að það verð gilti. Jens Kristjánsson sagði, að fyrst hægt væri að ná til Rauða torgsins í gegnum númer sem byrjar á 5 þýddi það að símtalið væri sam- kvæmt venjulegri gjaldskrá. SUPER Puma þyrla Landhelgis- gæslunnar, TF-LÍF, hefur verið kyrrsett að beiðni Loftferðaeftirlits- ins, þar til fullnægjandi upplýsingar hafa borist frá Noregi um orsakir þyrluslyssins sem varð fyrir utan strönd Hálogalands sl. sunnudag. Þyrlan sem fórst þar með tólf manns innanborðs var af gerðinni „Rauða torgið missir því af mikl- um tekjum og það sama á auðvitað við um Póst og síma, sem selur okkur þjónustuna,“ sagði Jens. Hrefna Ingólfsdóttir staðfesti að venjuleg gjaldskrá hefði giit þegar fólk hringdi í umrædd númer. Harðbannað yngri en 18 ára „Eva María“ bendir hlustanda á, að símaþjónustan sé „harðbönnuð" þeim sem eru undir 18 ára aldri og hvetur þá sem yngri eru til að leggja á, en þeir eldri geta hlustað á sögur hennar eða sjö stallsystra hennar. Jens sagði að það væri í besta falli undarlegt að þetta efni væri aðgengilegt á þennan hátt, en hann myndi tryggja að svo yrði ekki. Hrefna sagði að Póstur og sími myndi loka þessum línum. Super Puma en þær þyrlur hafa fram til þessa reynst vel í Noregi. Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að Landhelgisgæslan muni hlíta beiðni Loftferðaeftirlitsins og bíða þar til nánari ákvörðun verður tekin. ■ Hreyfilspaði /31 Samheiji, SR-mjöl og Sfldarvinnslan Sjávar- útvegs- fyrirtæki stofnað erlendis ÞRJÚ fyrirtæki í sjávarút- vegi, Samherji hf., SR-mjöl hf. og Síldarvinnslan hf., hafa stofnað hlutafélag um fjárfest- ingar og rekstur erlendis á sviði útgerðar, landvinnslu og sölu sjávarafurða og verður megináherslan lögð á uppsjáv- ai-fiska. Félagið nefnist Út- , hafssjávarfang ehf. og er hlutafé þess fyrst um sinn 30 milljónir króna. Fyrirtækin hafa haft með sér mikið og farsælt samstarf til þessa, segir í frétt sem Morgunblaðinu hefur borist. Síldarvinnslan og SR-mjöl gerðu með sér samkomulag um samstarf í markaðs- og tæknimálum og Samherji hef- ur verið í samvinnu við bæði fyrirtækin í löndun á uppsjáv- arfiski. „Forráðamenn fyrirtækj- anna sem standa að Úthafs- sjávarfangi telja verulegan ávinning fólginn í þessu sam- starfi. Innan fyrirtækjanna er mikil þekking á sjávarútvegi og markaðssetningu sjávaraf- urða og þau hafa verið leið- andi í veiðum og vinnslu upp- sjávarfiska. Fjárhagslegur styrkur þeirra ætti að gera fé- laginu kleift að nýta til fulls áunna sérþekkingu og mögu- leikar skapast á stærri verk- efnum en ella,“ segir ennfrem- ur. Rekstur tveggja togara Meðal fyrstu verkefna fyrir- tækisins er umsjón með rekstri tveggja togara með vinnslubúnað fyrir síld og makríl sem gerðir eru út frá austurströnd Bandaríkjanna. Samherji réðst í þetta verk- efni fyrr á árinu, en markmið félagsins er meðal annars að vinna þein-i starfsemi frekari I framgang, en gefa jafnframt i gaum víðtækari möguleikum á þátttöku í sjávarútvegi erlend- is á sviði uppsjávarfiska. Morgunblaðið/RAX TF-LÍF kyrrsett vegna slyss í Noregi Borgarráð Reykjavíkur hefur synjað um leyfí til reksturs veitingahúss í Austurstræti 9 Húseigendur vilja leign frá borginni EIGENDUR hússins Austur- stræti 9 hafa óskað svars frá borg- arráði um hvort Reykjavíkurborg muni greiða þeim leigu fyrir hús- næðið meðan beðið er endurskoð- unar á deiliskipulagi miðbæjarins. Borgarráð hefur synjað umsókn eigendanna um að leyfi til að reka veitingastað en ekki verslun í hús- inu. Fjölskylda Hauks Jacobsens, sem lést í sumar, á húsið og þar var elsta verslun borgarinnar, verslun Egils Jacobsens, rekin þar til í sumar. Björgvin Ólafsson, einn eig- endanna, segir að fjölskyldunni finnist hún ekki fá að sitja við sama borð og aðrir húseigendur í mið- borginni. Elsta verslunarhúsnæðið „Þetta er elsta verslunarhúsnæð- ið í Reykjavík. Við þraukuðum lengst með verslun í miðbænum og vorum þá búin að tapa á henni í nokkur ár. Fyrir það að hafa þraukað lengst virðumst við ekki vera sett við sama borð og aðrir,“ segir Björgvin. „Það er vísað til skipulags frá 1986 en þegar við fór- um að kanna skipulagið og hvaða starfsemi væri í húsnæði í miðbæn- um komst ég að að þar sem Kaffi París er á að vera verslun og þar sem Kaffi Reykjavík er á að vera verslun. Þar sem Grillhús Guð- mundar er á að vera vöruhús. Þar sem Kaffi Amsterdam er á að vera verslun. Þar sem Píanóbarinn er á að vera verslun. Þar sem Kaffi Rómans er á að vera verslun og á efri hæðinni hjá okkur, þar sem La Primavera er, eiga að vera skrif- stofur. Einu veitingastaðimir sem eru samkvæmt skipulaginu sýnast mér vera Óðal og Fógetinn." Björgvin segir að fjölskyldan láti sér mjög annt um þetta hús og hefði gjarnan viljað leigja húsnæðið undir annan verslunarrekstur. Eft- ir að rekstri verslunar Egils Jacob- sens var hætt í sumar var húsnæðið auglýst til leigu en eingöngu aðilar í veitingarekstri hafa sýnt áhuga á að taka það á leigu, segir hann. Bygginganefnd og miiyavörður jákvæð Björgvin Ólafsson segir að bygg- inganefnd borgarinnar og minja- vörður hafí veitt jákvæðar umsagn- ir um umsókn um að hefja veitinga- rekstur í húsinu en á fundi 19. ágúst sl. hafi borgarráð hafnað um- sókninni með bókun um að sam- kvæmt gildandi skipulagi sé gert ráð fyrir annarri starfsemi en veit- ingahúsi í húsinu og að endurskoð- un á starfsemi húsa á svæðinu verði ekki samþykkt fyrr en nýtt deiliskipulag liggi fyrir. Skreytingar úti og inni friðaðar Áformin sem sótt var til borgar- innar um leyfi fyrir voru þau að reka kaffihús á jarðhæð og í kjall- ara hússins og að nota m.a. upp- runalegar innréttingar að miklu j leyti og aðrar gamlar innréttingar sem til eru úr húsinu. Húsið er frið- að svokallaðri b-friðun, sem tekur til skreytinga að utan og innan. Neglt fyrir gluggana? Björgvin segir að fjölskyldan hafi verið með mann á launum til þess að fjarlægja jafnóðum veggjakrot j af húsnæðinu og séð hefur verið um að gera við brotnar rúður samdæg- urs. Til þess að firra sig frekara | fjárhagstjóni er fjölskyldan nú að íhuga að segja upp tryggingum og negla fyrir glugga hússins. Frá 19. ágúst hafa húseigendurn- ir sent borgarráði og borgarstjóra þrjú bréf, ítrekað þar umsókn sína og áskilið sér rétt til að krefja borg- ina um húsaleigu og bætur hljótist af lækkun á verðmæti hússins á al- j mennum fasteignamarkaði. Björg- j vin segir að þau hafi engin viðbrögð 1 fengið til þessa en þau eiga viðtal I hjá borgarstjóra í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.