Morgunblaðið - 11.09.1997, Síða 37

Morgunblaðið - 11.09.1997, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997 37. MINNINGAR JÓNMUNDUR GUNN- AR GUÐMUNDSSON + Jónmundur Gunnar Guð- mundsson fæddist í Lang- húsum, Fljótum, Skagafjarðar- sýslu, 7. maí 1908. Hann lést á heimili sínu, Sandabraut 11, Akranesi, 25. ágúst síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Akraneskirkju 3. september. Jónmundur ólst að mestu upp á Laugalandi á Bökkum í Vestur- Fljótum. Foreldrar hans voru Guð- mundur Ásmundsson lengi bóndi þar og kona hans Lovísa Gríms- dóttir frá Minni-Reykjum. Hún var bæði systir Dúa föður föður míns og Margrétar móður móður minnar. Lovísa var einhver falleg- asta kona sem ég hef þekkt og ljúf í lund. Dúi afí og Guðmundur voru aldavinir, faðir minn mat Guðmund ekki síður en föður sinn. Guðmund- ur og Lovísa áttu nokkur börn, af þeim komust til fullorðinsára Eug- enía, Dúi, Eiríkur og Jónmundur. Eugenía átti mann og dætur sem lifðu og eiga afkomendur. Dúi fórst með Jarlinum í stríðslok, hann átti eina dóttur, sem á afkomendur. Eiríkur fórst með fiskiskipinu Mari-Önnu sem aldrei fannst, þetta var mikil lífsreynsla. Jónmundur giftist Valeyju Benediktsdóttur, hún var mikil myndarkona og ljúf í lund, þau áttu eina dóttur óg tvo syni, sem öll eiga afkomendur. Þegar Jónmundur var á ungl- ingsárum, var hann hrókur alls fagnaðar, oft komu hópar af ungu fólki fram að Krakavöllum, þar sem ég átti heima, þar var hann foringi. Jónmundur var mikill hestamaður og átti góða hesta lengi, minnist ég þess að hann kom á gráum gæðingi sem hann átti, vippaði hann sér yfir grind í hliði á veginum. Svo fluttist Jónmundur og fjölskylda til Akraness. Þegar hann var hættur að vinna úti, fórum við oft að tala saman í síma, og rifja upp ýmislegt frá göml- um dögum og höfðum ánægju af því. Minningin lifir. Magna Sæmundsdóttir. Afmælis- o g minn- ingar- greinar MIKILL fjöldi minningargreina birtist daglega í Morgunblað- inu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skal eftirfarandi tekið fram um lengd greina, frágang og skilatíma: Lengd greina Um hvern einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfílegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínu- bil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksenti- metrar í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálf- um. Undirskrift Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur og móttaka Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textamenferð og kemur í veg fyrir tvíverkn- að. Þá er ennfremur unnt að senda greinar í símbréfi - 569 1115 - og í tölvupósti (minning@mbl.is). Vinsamleg- ast sendið greinina inni í bréf- inu, ekki sem viðhengi. Skilafrestur Eigi minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. HRINGUR KJARTANSSON + Hringur Kjart- ansson fæddist í Reykjavík 5. septem- ber 1997. Hann lést á Landspítalanum 6. september síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Kjartan Guð- brandsson og Anna Sólmundsdóttir. Bróðir Hrings er Atli Freyr Gíslason. Útför Hrings fer fram frá Fossvog- skapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15.30. Fórst of fljótt á drottins fund, þó falleg sé þar birta. Nú ertu sæll í englabyggð, alheimsmerkið sanna. Trúfestu og ævitryggð þú táknar meðal manna. Eftir sitjum hljóð og sár, svíða hjartarætur. Engin urðu æviár, hugurinn því grætur. Huggun er þó harmi gegn að höfðum þig um stund. Á himni lítill, ljúfur þegn leikur sér um grund. Ljós í heimi stutta stund, strax þó fór að syrta. Kveðja frá afa Guðbrandi og Öldu. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Rit- vinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins ! bréfasíma 5691115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýs- ingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi SALÓMON GUNNAR ERLENDSSON húsasmíðameistari, Árholti 4, Húsavík, verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugar- daginn 13. september kl. 14.00. Finnbjörg Jónsdóttir og fjölskylda + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HJÖRTUR H. HJARTARSON lögfræðingur, Granaskjóli 64, Reykjavik, sem andaðist á Landspítalanum 4. sept. sl. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstu- daginn 12. september kl. 15.00. Rósa Björg Karlsdóttir, Karl Á. Hjartarson, Elísabet S. Valdimarsdóttir, Ragnar Hjartarson, Daníel Andri Karlsson. Lokað Vegna jarðarfarar ÓLAFS STEINARS VALDIMARSSONAR, fyrr- verandi ráðuneytisstjóra, verður aðalskrifstofa samgönguráðu- neytisins lokuð eftir hádegi föstudaginn 12. september 1997. Samgönguráðuneytið. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, EINAR ÓLAFSSON landpóstur, Ægissíðu, Rangárvallasýslu, sem lést miðvikudaginn 3. september síðast- liðinn, verður jarðsunginn frá Oddakirkju laug- ardaginn 13. september næstkomandi kl. 14.00. Guðrún Guðmundsdóttir, Eyja Þóra Einarsdóttir, Jóhann Frfmannsson, Guðmundur Einarsson, Aðalheiður Högnadóttir, Guðný Einarsdóttir, Anna Sigurlín Einarsdóttir, Smári Baldursson, Ólafur Einarsson, Steinunn B. Svavarsdóttir barnabörn og systkini hins látna. **• Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, RAFN JÚLÍUSSON, Laugarásvegi 17, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 7. september. Útför hans fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 16. september kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á líknarfélög. Kristín Guðmundsdóttir, Sigríður Rafnsdóttir, Guðmundur Þór Björnsson, Margrét Júlia Rafnsdótir, Steingrímur E. Hólmsteinsson og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, SVEINBJÖRNS JÓHANNESSONAR bónda, Hofsstöðum, Garðabæ. Sigríður Gísladóttir, Sigrún Sveinbjörnsdóttir, Jón Ögmundsson, Kristín Sveinbjörnsdóttir, Gylfi Matthíasson, Jóhannes Steingrímsson, Jóhannes Sveinbjörnsson, Soffía Böðvarsdóttir, Áslaug Sveinbjörnsdóttir, Sveinn Sæland, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, GUÐNÝJAR FRIÐFINNSDÓTTUR, Fagranesi. Friðfinnur Sigurðsson, Guðmundur Sigurðsson, Sigurveig Jónsdóttir, Sigurður Óli Guðmundsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Heiða Guðmundsdóttir, Stefanía Guðmundsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Þór Gestsson, Pála Margrét Gunnarsdóttir, Sigurveig Anna Gunnarsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÓLAFAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Tjörn, Akranesi. Böðvar Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Halla Guðmundsdóttir, Una Guðmundsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Kristinn Guðmundsson, Guðjón Guðmundsson, Dóra Guðmundsdóttir, Hrefna Aðalsteinsdóttir, Gunnþórunn Aðalsteinsdóttir, Baldur Ólafsson, Svanur Geirdal, Magnús Þ. Pétursson, Kirstín Benediktsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Ólafur G. Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.