Morgunblaðið - 12.09.1997, Síða 8

Morgunblaðið - 12.09.1997, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Krafa í kvóta í skilnaðarmáli Eiglnkona útgerðar- manns gerir 130 I mill]óna króna krðfu í flskveiðikvóta hans vegna skilnaðar. HANN má fá hundkvikindið, ég tek fiskinn. . . Leiga íbúðarhúsnæðis fer hækkandi 20-25% hærri leiga í mið- og vesturbæ VEGNA mikillar eftirspurnar hefur leiga fyrir íbúðarhúsnæði í borginni farið hækkandi með haustinu. Al- gengt er að leiga fyrir litla 2ja her- bergja íbúð sé 25-30 þúsund krón- ur á mánuði og jafnvel hærri. Mest er spurt um íbúðir í mið- og vest- urbæ og er leiga þar 20-25% hærri miðað við úthverfm. Hjá Húsnæðis- miðlun stúdenta fengust þær upp- lýsingar að nægt framboð væri á herbergjum til leigu en mikil eftir- spurn væri eftir íbúðum. Björgvin Björgvinsson hjá Leigu- miðluninni Ársölum ehf. segir að mikil eftirspurn sé eftir íbúðum til leigu en framboð allt of lítið. „Þetta er búið að vera svona lungann af þessu ári en frá miðju sumri hefur verið óvenju mikil eftirspurn og lít- ið framboð," sagði hann. Björgvin sagðist telja að ástæðan væri sú að fólk utan af landi leitaði í ríkara mæli til höfuðborgarinnar auk þess sem fólk virtist einhverra hluta vegna vera að leita út á leigumark- aðinn. „Við höfum ekki fundið fyrir neinum stökkbreytingum á leigu en hún sígur þó upp á við og þær íbúð- ir sem koma inn á markaðinn fara þegar í leigu,“ sagði hann. Björgvin nefndi sem dæmi að litl- ar tveggja herbergja íbúðir hefðu verið leigðar á 25-28 þúsund krón- ur. Mest væri spurt um íbúðir í mið- og vesturbæ og getur leigan þar verið 20-25% hærri miðað við út- hverfin. Sagði hann að reyndar væri spurt um íbúðir í öllum hverfum borgarinnar og að í boði væru íbúð- ir allt frá Kjaiarnesi suður í Voga. Mikil eftirspurn Dalla Ólafsdóttir, framkvæmda- stjóri Stúdentaráðs, sagði að mikil eftirspurn væri eftir íbúðum hjá Húsnæðismiðlun stúdenta og mun meiri en eftir herbergjum. „Við fáum eina til tvær íbúðir inn dag- lega en um 20-30 manns leita hing- að á hveijum degi í leit að íbúð,“ sagði hún. „Við erum með mun meira framboð af herbergjum en þau eru ekki eins vinsæl meðal stúd- enta.“ Sagði hún að allir fengju þó hús- næði að lokum sem þeir sættu sig við og hefðu efni á en það gæti tekið nokkra mánuði. Vegna auk- innar eftirspurnar hefur leiga hækkað töluvert milli ára og nefndi Dalla sem dæmi að algengt leigu- verð fyrir 2ja herbergja íbúð væri allt frá 30 þús. og þaðan af hærra. Gallinn væri sá að grunnframfærsl- an hjá Lánasjóði íslenskra náms- manna hefði ekki hækkað og fengi námsmaður í leiguhúsnæði 56 þús. á mánuði frá lánasjóðnum, sem dygði skammt þegar leigan hækk- aði. Sagði hún að íbúðir í vestur- og miðbæ væru vinsælastar meðal stúdenta en að leigan væri svipuð fyrir íbúðir i öllum hverfum borgar- innar. -----♦ ♦ ♦----- Eldur í gröfuá Háfsfjöru BELTAGRAFA stórskemmdist þeg- ar eldur kom upp í henni á Háfsfjöru á miðvikudag. Grafan, sem notuð hefur verið til að flytja til brotajárn úr Víkartindi, sem verið er að hluta í sundur í íjörunni, var mannlaus þegar eldurinn kom upp en í gangi. Ekki er fyllilega ljóst hvers vegna eldurinn kviknaði en verið var að gera við gröfuna fyrr um daginn. Að sögn lögreglu á Hvolsvelli gekk illa að koma vatnsbíl slökkviliðsins á staðinn vegna slæms færis á sandinum og var grafan því illa far- in þegar bíllinn loks komst að henni. Athugun á gönguleið- um við grunnskóla SKIPULAGS- og umferðamefnd samþykkti á fundi sínum 8. september sl. að gera gagngera athugun á gönguleiðum í ná- grenni grunnskóla borgarinnar í samvinnu við foreldra- og kenn- arafélög skólanna og lögregluna í Reykjavík í þeim tilgangi að gera skólaleiðir barna öruggari og einfaldari. í samþykkt nefndarinnar seg- ir: „Á haustin þegar skólar taka til starfa þarf sérstakrar að- gæslu við í umferðinni ekki síst vegna nýrra vegfarenda, skóla- barna sem í fyrsta sinn fara til og frá grunnskólanum sínum. Gönguleiðir skólabarna þurfa að vera sífellt til endurskoðunar m.a. vegna breytinga sem verða á gatnakerfi borgarinnar og vegna framkvæmda umhverfis eða við skólana. Þetta er brýnna nú en oft áður vegna undirbún- ings og framkvæmda við ný 30 km svæði sem fyrirhuguð eru í borginni.“ í lok samþykktarinnar hvetur Skipulags- og umferðarnefnd ökumenn til að sýna aðgát í umferðinni vegna barna á leið til og frá skóla. íþrótta- og tómstundaskóli Mosfellsbæjar Úrval íþrótta- greina auðveldar valið síðar Þessa dagana er að taka til starfa íþrótta- og tóm- stundaskóli Mosfellsbæj- ar. Skólinn er ætlaður fyrir nemendur fyrsta til fjórða bekkjar grunnskól- ans þar í bæ. Að sögn Sigurðar Guðmundssonar íþróttafulltrúa Mosfells- bæjar er markmiðið að bjóða upp á fjölbreytt íþrótta- og tómstunda- starf sem eflir hreyfi- færni, aga, skipulag og félagsþroska og gerir barninu auðvelt að velja sér tómstundaíþrótt til að stunda síðan áfram við tíu ára aldur. - Um hvaða íþrótta- greinar og tómstunda- starf er ræða? „Við leggjum áherslu á að börn- in fái tækifæri til að kynnast öllum íþrótta- og tómstundagreinum sem boðið er upp á á vegum fé- laga og klúbba í bæjarfélaginu,“ segir Sigurður. „Börnin kynnast knattspyrnu, handbolta, karate, sundi, fijálsum íþróttum, körfu- bolta, leiklist, dansi, golfí, hesta- mennsku og þannig mætti áfram telja. Þá taka þau þátt í umhverf- isbætandi verkefnum, gróðursetja og læra endumýtingu auk þess em þau læra að umgangast nátt- úruna með virðingu.“ Sigurður bendir á að með því að virkja bömin í öflugu starfi á þessum aldri og leyfa þeim að kynnast sem flestu aukist mögu- leikarnir á því að þau verði virk síðar í íþrótta- og æskulýðsstarfi bæjarins. „Þetta er samstarfs- verkefni bæjarfélagsins og ýmissa félaga, ungmennafélagsins Aftur- eldingar, hestamannafélagsins Harðar, golfklúbbsins Kjöls, skátahreyfíngarinnar Mosveija og umhverfissamtakanna Mosa.“ - Hveijir munu leiðbeina börnunum? „Áhersla verður lögð á að fá sérmenntað fólk á hveiju sviði til kennslu í hinum ýmsu greinum. Til íþróttaskólans hafa verið ráðnir fjórir íþróttakennarar sem munu hafa nokkurskonar yfirum- sjón með starfinu.“ - Hvaðan fenguð þið hug- myndina að skólanum? „Starfið er í anda samþykktar íþróttasambands íslands í barna- og unglingaíþróttum. Skólinn verður rekinn í anda þessarar stefnuyfirlýsingar sambandsins. Þar er megináherslan lögð á félagslega þátt- inn og að allir taki virkan þátt í íþrótt- um.“ - Hvernig fer kennslan fram? „Öll þjálfun fer fram “““ í leikjaformi og æfingar eiga að vera skemmtilegar fyrii' bömin. Þau eiga öll að öðlast tækifæri til þátttöku og því er kostnaði stillt í hóf. Við erum með íjögurra mánaða tímabil þar sem sex og sjö ára böm koma tvisvar í viku og forráðamenn borga fyrir 2.500 krónur. Átta og níu ára börn koma þrisvar í viku og það kostar fram að jólum 3.500 krónur. Börnunum er skipt í hópa á tveggja vikna fresti og þau fara á þann hátt hringinn, prófa sem- sagt hverja grein í hálfan mán- uð.“ Sigurður Guðmundsson ► Sigurður Guðmundsson fæddist í Reykjavík árið 1960. Hann er alinn upp á Skaga- strönd. Sigurður lærði húsa- smíði og kenndi við grunnskól- ann á Skagaströnd. Hann kenndi síðan í nokkur á við Reykjaskóla í Hrútafirði. Sigurður útskrifaðist árið 1992 sem æskulýðsstjórnandi frá Eslöv í Svíþjóð. Hann tók við starfi forstöðumanns sund- laugar Akureyrar að námi loknu og sinnti því starfi uns hann tók við starfi íþróttafull- trúa í Mosfellsbæ haustið 1996. Sigurður hefur verið með sum- arbúðir í Reykjaskóla í nokkur sumur og verið virkur í félags- starfi íþróttahreyfingarinnar þar sem hann hefur meðal ann- ars setið í ýmsum nefndum og stjórnum. Sigurður er kvæntur Hall- dóru Halldórsdóttur og eiga þau fjóra syni. Fjölbreytt starf minnkar líkur á að börn hætti í íþróttum - Það má kannski segja að þetta sé forvarnastarf? „Þetta er fyrsta skrefið í for- varnarstarfi fyrir börn og ungl- inga og þess vegna hefur bæjar- félagið látið renna til verkefnisins hálfa milljón króna. Mörg tíu til ellefu ára börn finna sig ekki í þeim íþróttum sem þau hafa byij- að að stunda sex eða sjö ára og hafa sig ekki í að byija í ein- hveiju nýju sem þau þekkja ekki. Með þessu móti erum við að leggja grunn að því að þau geti auðveldlega valið það sem við þau á þegar þau verða tíu eða ellefu ára. Það er mikilvægt fyrir ungl- inga að hafa tómstundir og --------- stunda íþróttir.“ - Hefur skólinn fengið góðar viðtökur? „Við erum mjög ánægð með viðtökum- ar því nú þegar er búið að skrá hjá okkur um 50% þeirra barna sem eru í hveijum aldurshóp í Mos- fellsbæ. Stefnan er síðan sett á að ná þessum fjölda upp í um 90% að fjórum ámm liðnum.“ Sigurður segir að samkeppni hafi verið nokkur um að fá börn til sín milli félaga í Mosfellsbæ. „Með þessu móti geta allir fengið tækifæri til að kynna börnunum það sem þeir hafa upp á að bjóða og krakkarnir svo valið það sem heillar.“ Reynt er að hafa námskeiðin að skóladegi loknum en síðan er einnig fjölbreytt starf í gangi um helgar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.