Morgunblaðið - 12.09.1997, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
u h
|fl V jjEg
t Wr)Á
JÓHANN D. Jónsson ferðamálafulltrúi útskýrir merkingar hinna
ýmsu gönguleiða en þess má geta að við merkingarnar er ein-
göngu notaður rekaviður.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
DRÍFA Sigfúsdóttir, forseti
bæjarstjórnar, afhendir Guð-
mundi Bjarnasyni umhverfis-
ráðherra fyrsta gönguleiða-
kortið af Reykjanesbæ. At-
höfnin fór fram við gamla
Keflavíkurbæinn.
Göngnleiðakort fyrir
Reykjanesbæ gefið út
Keflavík - Gefið hefur verið út
gönguleiðakort fyrir Reykjanesbæ
og af því tilefni var Guðmundi
Bjarnasyni umhverfisráðherra
boðið að vera viðstöddum kynning-
una á nýja kortinu sem er hið
fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar, sem kynnti kortið sagði
að með því væri hafinn nýr áfangi
í almenningsíþróttum Reykjanes-
bæjar. Hún sagði að gönguleiðim-
ar væru bæði um bæinn og næsta
nágrenni og hefðu þær verið gerð-
ar í samvinnu við landslagsarki-
tekta. Flestar færu framhjá
Sundmiðstöð Keflavíkur sem gæfi
fólki kost á að nota aðstöðuna þar
að lokinni göngu eða skokki.
Jóhann D. Jónsson ferðamála-
fulltrúi hafði umsjón með gerð
kortsins ásamt Drífu og sagði hann
að leiðunum hefðu verið gefin nöfn
og þær mældar og aðgreindar og
merktar með lituðum stikum. Þetta
auðveldaði göngufólki og skokkur-
um að fylgja slóðinni. Einnig væru
örnefni við sjávarsíðuna merkt
göngufólki til fróðleiks.
Alls eru leiðimar 9 sem hefðu
verið merktar, tvær lengstu em um
8 kílómetrar - Duusleið og Mána-
leið sem liggja umhverfis Keflavík
og Ytri-Njarðvík. Stystu leiðirnar
eru Berg, Kotvogsleið og Thorkeli-
leið sem em um 2,3 kílómetrar.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
HJÖRTUR Jónsson, sölustjóri hjá Ræsi hf., afhendir Gunnari
Konráðssyni, formanni RK-deildarinnar, bifreiðina. Aðrir við-
staddir eru stjórnarmenn í RK-deildinni, Guðmundur Jóhannes-
son og Magna Magnúsdóttir.
Sjúkrabíll
innréttaður
á Hvamms-
tanga
Hvammstanga - Rauðakross-
deildin á Hvammstanga tók við
nýrri sjúkrabifreið 6. september sl.
Þetta er Mercedes Bens Sprinter,
tveggja drifa, og leysir hún af
hólmi Ford Econoline sjúkrabifreið
sem keypt var fyrir nokkrum árum
til deildarinnar. Þessi bifreið er
ellefta af þessari gerð í fram-
leiðsluröð Bens verksmiðjanna.
Mun hún þjóna Hvammstanga-
læknishéraði, sem nær yfir Vestur-
Húnavatnssýslu og innsta hluta
Strandasýslu, ásamt tveimur eldri
sjúkrabifreiðum deildarinnar.
Innrétting eldri bifreiðarinnar,
svo og ljósabúnaður, var fluttur í
nýju bifreiðina og var það verk
hannað og unnið af Bifreiðasmiðju
Guðmundar Jóhannessonar á
Hvammstanga. Þetta er fyrsta
Bens bifreiðin af þessari gerð sem
útbúin er sem sjúkrabifreið á land-
inu og er hún mjög vel útbúin
tækjum. Bíla- og búvélasalan á
Hvammstanga annaðist milligöngu
með kaupin og hefur einnig selt
eldri sjúkrabifreiðina til skólaakst-
urs í Reykhólasveit. Verður hún
innréttuð á Hvammstanga til hins
nýja hlutverks.
Rifu bryggju í fjáröflunarskyni
Rifi - Björgunarsveitarmenn
Bjargar á Hellissandi tóku nýlega
að sér að rífa gamla trébryggju
sem byggð var á upphafsárum
landshafnarinnar í Rifi en var orð-
in fúin og talin viðsjárverð.
Verkið tóku þeir að sér til að
afla Snæfellsdeildinni tekna til
nýrra tækjakaupa. Um leið leystu
þeir úr heilmiídum vanda fyrir
Snæfellsbæ sem lá á að fá bryggj-
una rifna og fjarlægða.
Annað verkefni bíður þeirra sem
er að fjarlægja stóra steypuklumpa
úr lendingunni á Hellnum. Þeir
leita nú ráða til að framkvæma
það enda vandasamt verk. Þótt hér
sé um fjáröflun að ræða fyrir sveit-
ina læra þeir í leiðinni að stilla
saman strengi og standa saman í
aðgerðum.
MorgunDlaoiö/ulatur Jens bigurosson
FÉLAGAR í björgunarsveitinni Björgu á Hellissandi tóku að sér
verkefni fyrir Snæfellsbæ til að afla tekna og efla samheldnina.
Svartármetið
ekki í hættu
Vænn
hængiir úr
Sandá
ÓSKAR Jónsson, viðgerðarstjóri
hjá BGB á Dalvík, veiddi 21
punds lax í Sandá í Þistilfírði
fyrir skömmu. Laxinn var hæng-
ur, um 1 metri að lengd og fékkst
á maðk í svokölluðum Húsahyl.
Þetta er stærsti laxinn sem
fengist hefur í ánni í sumar en
annars var veiðin dræm hjá Ósk-
ari og veiðifélögum hans. Aðeins
4 laxar komu á land á þrjár
stangir á 5 dögum.
Óskar hefur séð þá stærri því
fyrir tveimur árum landaði hann
24 punda laxi úr Sandá og var
hann sá stærsti sem fengist hafði
í ánni 1 29 ár. Morgunblaðið/Sveinbjörn Jónsson
LJÓST er að engin met verða
sett í Svartá á þessu sumri eins
og var hald manna að gæti átt
sér stað er mokveiði var í ánni
fram eftir sumri. Raunar hefur
komið á daginn að metið var aldr-
ei í hættu því fyrir hartnær aldar-
fjórðungi var sumarveiðin í ánni
einu sinni yfir 700 laxar og tvisv-
ar yfir 600 laxar. 1995 var veið-
in 547 laxar og það er talan sem
útlit var fyrir að gæti verið í
hættu. En allt um það, botninn
hefur dottið úr veiðiskapnum í
Svartá að undanförnu.
„Botninn er dottinn úr veiðinni
og ég býst við því að þar eigi
kuldinn mesta sök. Miðað við
teljarann eru enn á annað þúsund
laxar þar fyrir ofan og því trú-
lega mikið af laxi sem enn á eft-
ir að ganga úr Blöndu í Svartá.
Við þessar aðstæður er hins veg-
ar ólíklegt að hann geri það. Til
þess þarf að hlýna aftur. Hollin
að undanförnu hafa veitt lítið,
kannski 5-6 laxa og eitt hollið
fékk aðeins einn lax. En þrátt
fyrir þetta er heildarveiðin góð,
390 laxar, og við erum að sjálf-
sögðu ánægðir með gott veiði-
sumar. Talan gæti hækkað, við
erum með ána til 20. september
og síðan eru bændadagar til
mánaðamóta," sagði Jón Steinar
Gunnlaugsson, einn leigutaka
Svartár, í samtali við blaðið.
Reykjadalsá lifnar
Veiði hefur verið þokkaleg í
Reykjadalsá í Borgarfirði að und-
anförnu. Hún er síðsumarsá, en
einhverra hluta vegna hefur hún
verið nánast ónýt í þónokkur árj
aðeins gefið fáa tugi laxa. I
gærmorgun voru komnir 66 lax-
ar á land sem er talsvert meira
en allt síðasta sumar og síðustu
dagar hafa verið nokkuð góðir.
Þannig hafði nýtt holl fengið
fjóra laxa á tvær stangir eftir
fyrstu vaktina og voru það bæði
legnir laxar og nýkomnir, allt að
11 pund. Hermt er að menn sjái
meira af laxi en síðustu sumur,
en á stundum hefur hann tekið
illa.
Milli 40 og 50 urriðar og bleikj-
ur eru og skrifaðir í veiðibókina,
talsvert af því sjóbirtingur sem
veiðst hefur síðustu daga.
Stærsti lax sumarsins var 18
pund og Klettsfljótið er drýgsti
Morgunblaðið/Stefán Hallur Jónsson
HANNES V. Jónsson býr sig
undir að sleppa 14 punda
hrygnu á Iðunni fyrir fáum
dögum.
staðurinn að venju ásamt Gríms-
staðaeyrum.
Glæðist mjög á
sj óbirtingsslóðum
Veiði hefur verið að glæðast
mjög á sjóbirtingsslóðum í
Skaftafellssýslum. Hávarður Ól-
afsson í Fljótakróki við Eldvatn
í Meðallandi sagði að um 100
fiskar hefðu komið á land á neðri
svæðum Eldvatns og hefði veiði
verið að glæðast.
„Þetta eru yfirleitt vænir fisk-
ar og þónokkrir hafa verið 12
punda. Á Botnasvæðinu, efst í
ánni, hefur veiðst einn 14 punda
og þar hafa menn eitthvað verið
að fá ’ann líka. Það hefur ekki
verið leyfð nein vorveiði hérna
og þetta hefur verið sígandi upp
á við síðan hún var bönnuð,“
sagði Hávarður.
Sigmar Helgason hjá Veiðifé-
laginu Birtingi á Klaustri sagði
að veiði hefði lokið á Hólmasvæð-
inu í Skaftá um mánaðamótin
og hefðu veiðst 364 birtingar.
„Þetta er heldur lakara en í
fyrra, en Skaftárhlaupið eyði-
lagði alveg tvær vikur á góðum
veiðitíma," sagði Sigmar. Sigmar
sagði að Birtingur væri enn frem-
ur með Brúar, Laxá og vatnamót
þeirra við Djúpaá á leigu og þar
hefði veiði einnig verið góð.
„Þetta hefur gengið vel og það
er mikill fiskur. Þeir stærstu allt
að 8 pund enn sem komið er,“
bætti Sigmar við.