Morgunblaðið - 12.09.1997, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Velta Lygaverslunar jókst um 12% á fyrri árshelmingi
Hagimður nam 24
milljónum króna
HAGNAÐUR af rekstri Lyfjaversl-
unar íslands nam 24,4 milljónum
króna á fyrri árshelmingi þessa
árs. Þetta er örlítið lakari afkoma
en varð af rekstri fyrirtækisins á
fyrstu sex mánuðum síðastliðins
árs er hagnaðurinn nam tæpum
27 milljónum króna.
Á sama tíma hefur velta fyrir-
tækisins hins vegar aukist um 12%
og nam hún 706 milljónum króna
hjá samstæðunni. Þar af var velta
dótturfélags þess hér á landi, Gróco
hf., tæpar 36 milljónir króna.
Þór Sigþórsson, forstjóri Lyfja-
verslunar íslands, segir að þessi
veltuaukning fyrirtækisins sé í takt
við þenslu markaðarins og sé ljóst
að fyrirtækið hafi haldið sínum
hlut.
Hins vegar verði að hafa í huga
að álagning hafi verið lækkuð ein-
hliða af lyfjaverðsnefnd um síðustu
áramót. Þá hafí rekstrargjöld jafn-
framt verið hærri en áætlanir hafi
gert ráð fyrir. Þetta skýri lítillega
minni hagnað þrátt fyrir aukna
veltu.
Hann segir að rekstraráætlun
fyrirtækisins geri hins vegar ráð
fyrir betri afkomu á síðari árshelm-
ingi en á þeim fyrri.
Handbært fé frá rekstri Lyfja-
verslunar jókst nokkuð á milli tíma-
bila og nam 41,6 milljónum á fyrri
árshelmingi samanborið við 35,8
milljónir á sama tíma í fyrra.
Rekstur Ilsanta í Litháen ekki
staðið undir væntingum
Lyfjaversiun á um 35% hlut í lit-
háeska fyrirtækinu Ilsanta UAB.
Þór segir að rekstur þess hafi ekki
gengið í takt við það sem áætlanir
hafi gert ráð fyrir og hafi orðið um
70 milljóna króna tap af starfsemi
þess á fyiri hluta ársins. Um 80
milljóna króna tap varð af rekstri
fyrirtækisins á öliu síðasta ári.
Þór segir nokkuð hafa gengið á
eigið fé fyrirtækisins og hafi Lyfja-
verslun því þurft að leggja fram
36 milljónir króna til viðbótar í
formi hlutafjár. Hlutur Lyfjaversl-
unar í Ilsanta UAB er nú um 35%.
Þór segir að hins vegar verði að
hafa hugfast að hér sé um lang-
tímafjárfestingu að ræða og því
verði að reikna með því að nokkurn
tíma muni taka að byggja fyrirtæk-
ið upp. Unnið sé að endurfjármögn-
un fyrirtækisins og reiknað sé með
því að afkoman muni batna nokkuð
á síðari hluta ársins.
„Söluþróunin hjá fyrirtækinu
hefur verið mjög jákvæð og við
gerum ráð fyrir um 53% söluaukn-
ingu á milli árshelminga. Heildar-
velta fyrirtækisins yrði þá um 250
milljónir króna.
Það hefur verið töluverður kostn-
aður við vöruþróun og sókn inn á
nýja markaði auk þess sem af-
skriftir hafa verið mjög háar vegna
mikillar fjárfestingar í upphafi, en
við gerum ráð fyrir því að afkoman
fari batnandi og að tap félagsins á
síðari árshelmingi verði um 12
milljónir króna,“ segir Þór.
Lyfjaverslun íslands hf. tí Samstæða 1997 * Milljónir króna ian.-júnf jan.-júnf
Rekstrarreikn. 1997 1996
Rekstra rtekjur 706,2 597,8
Rekstrargjöld 673,3 566,0
Fjármagnsgjöld (6,6) (3,7)
Hagn. t. skatta 26,3 28,1
Tekju- og eignarsk. (0,9) (1.2)
Hlutd. minnhl. í
hagn.dótturfélags (1.0) 0,0
Hagn. tímabilsins 24.4 26,9
Efnahagsreikn. 30/6
I Eianir skuldír oo eiaiö fó: J
Eignir 1.184,5 1.152,8
Eigiðfé 530,5 530,5
Skuldir 648,3 622,3
Kennitölur
Eiginfjárhlutfall 46% 51%
Veltufjárhlutfall 1,1% 1,7
Arðsemi eigin fjár 4,6% 9,8%
Búnaðarbanki stefnir að 10% arðsemi eiginfjár
Stefnir í besta
árið frá upphafi
AÆTLANIR Búnaðarbankans
benda til að afkoma bankans á þessu
ári verði sú besta í 67 ára sögu
bankans. Eins og fram hefur komið
nam hagnaður fyrstu sex mánuði
ársins 307 milljónum fyrir skatta,
en var 199 milljónir á sama tímabili
í fyrra. Var raunarðsemi eiginíjár
fyrir skatta 15,1% fyrstu sex mánuð-
ina borið saman við 10,7% í fyrra.
Þetta kemur fram í frétt frá
bankanum sem hann sendi frá sér
í tilefni af stpfnun hlutafélagsins
Búnaðarbanka Islands hf. á miðviku-
dag.
Samkvæmt nýjum drögum að
stefnumótun Búnaðarbankans
stefnir bankinn að því að skila að
jafnaði 10% raunarðsemi á eigin fé
eftir skatta miðað við núverandi
vaxtastig, en eigið fé nam um 4,4
milljörðum í lok júní. Sólon Sigurðs-
son, bankastjóri, segist vonast til að
þetta markmið náist á þessu ári.
Hlutabréf HB og Tækni-
vals lækka um rúm 10%
HLUTABRÉF í Haraldi Böðvarssyni
á Akranesi lækkuðu um rúmlega
10% í gær í kjölfar þess að fyrirtæk-
ið birti milliuppgjör sitt. Hlutabréf í
Tæknivali lækkuðu sömuleiðis veru-
lega, eða um 12,5%, í fyrstu viðskipt-
um frá því félagið birti árshlutaupp-
gjör sitt.
Eru þessar lækkanir í samræmi
við þær lækkanir sem orðið hafa á
gengi hlutabréfa að undanförnu þeg-
ar afkoma félaganna hefur verið
lakari en búist var við. Hagnaður
HB var 208 milljónir en búist hafði
verið við umtalsvert meiri hagnaði
eða á bilinu 350-420 milljónir.
Þá var hagnaður Tæknivals um-
talsvert minni á fyrri árshelmingi
þessa árs en á sama tíma í fyrra
eða 8 milljónir samanborið við 31
milljón árið á undan.
Hlutabréfavísitala Verðbréfa-
þings íslands lækkaði um 0,72% í
viðskiptum gærdagsins, en heildar-
viðskipti dagsins námu tæpum 80
milljónum króna.
RÍKISLÖGREGLU STJÓRA hafa
borist þijár kærur vegna ólöglegr-
ar dreifingar á Microsoft-hugbún-
aði hér á landi síðustu tvo mánuði
og von er á að fleiri aðilar verði
kærðir á næstunni að sögn Hró-
bjarts Jónatanssonar, hæstarétt-
arlögmanns og lögmanns BSA,
alþjóðlegra samtaka hugbúnaðar-
framleiðenda, á íslandi.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu er BSA óformlegur
félagsskapur sem starfar þannig
að í hveiju landi fyrir sig er ráðinn
lögfræðingur til að annast um
hagsmuni samtakanna og leggja
sitt af mörkum við að upplýsa al-
menning um höfundarréttará-
kvæði laga. Einnig á BSA gott
*
Olögleg dreifing
á Microsoft-
hugbúnaði kærð
samstarf við hugbúnaðarframleið-
endur í hveiju landi fyrir sig og
útibú stórra hugbúnaðarframleið-
enda.
Ólögleg fjölföldun hugbúnaðar
er víða vandamál en að sögn Hró-
ar vörur frá LEGO
Útsölustaðir fyrir LEGO barnaföt
Spékoppar, Grafarvogi
Rollingar, Kringlunni
Bangsi, Bankastræti
Ólavía & Oliver, Glæsibæ
Embla, Hafnarfirði
Ozone, Akranesi
Heimahornið, Stykkishólmi
Leggur og skel, ísafirði
Kátir krakkar, Akureyri
Bambi, Húsavík
Sentrum, Egilsstöðum
Lónið, Höfn
Grallarar, Selfossi
bjarts er algengt að vélbúnaður sé
seldur með hugbúnaði sem viðkom-
andi söluaðili hefur ekki leyfi til
að dreifa með vélbúnaðinum. „Yfir-
leitt er það þannig að ef viðskipta-
vinurinn kaupir vélbúnað af þess-
um aðilum þá fylgir hugbúnaður-
inn ókeypis með og öðlast söluaðil-
inn þannig forskot á samkeppnis-
aðilana sem eru að selja löglegan
hugbúnað á hærra verði. I öðru
lagi er um að ræða sölu á geisla-
diskum sem búið er að afrita hug-
búnað inn á frá mörgum aðilum
og seldir eru fyrir slikk. I þriðja
lagi eru menn að flytja inn eftirlík-
ingar á viðurkenndum hugbúnaði
og selja á mun lægra verði en
upprunalegi búnaðurinn er seldur
á.“
Hróbjartur segir að í könnun
sem BSA lét gera á þeim þjóðfé-
lagslegu áhrifum sem ólögleg
dreifing á pakkahugbúnaði í Evr-
ópu hefur, hafi komið fram að ef
ólögmætishlutfallið, sem talið er
vera um 58% að meðaltali í Evr-
ópu, myndi lækka í 34%, eins og
það er talið vera í Bandaríkjunum,
myndu skapast 187 þúsund ný
störf í Evrópu frá árinu 1997 til
ársloka 2000. Eins myndu skatt-
tekjur aukast um 166 milljarða auk
annarra áhrifa á hagkerfi Evrópu-
ríkjanna. „Á íslandi skiptir líka
máli stærð markaðarins þar sem
stóru hugbúnaðarframleiðendurnir
sjá sér ekki hag í því að íslenska
hugbúnaðinn fyrir svo lítinn mark-
að sem sá löglegi er hér á landi.
Þannig að menningaráhrifin eru
gríðarlega mikil í þá átt að ekki
verða til íslensk hugtök á þessu
sviði,“ segir Hróbjartur Jónatans-
son.
Mannabreytingar
hjá Eimskip
VEGNA mistaka birtust ekki
myndir með frétt af mannabreyt-
ingum hjá Eimskip í Viðskiptablaði
Morgunblaðsins í gær. Er beðist
velvirðingar á þessum mistökum
um leið og myndirnar eru birtar.
• HJÖRTUR
Hjartar, for-
stöðumaður
Eimskips í Ham-
borg, hefur tek-
ið við starfi for-
stöðumanns
Eimskips í
Gautaborg.
Hjörtur hefur
verið forstöðu-
maður skrifstofu Eimskips í Ham-
borg frá árinu 1994 en tók við
starfinu í Gautaborg 15. ágúst sl.
Hjörtur er með próf í kerfis-
fræði og B.Sc. próf í viðskipta-
fræði auk Cand.merc prófs í
rekstrarhagfræði frá Aalborg Uni-
versitetcenter.
• JÓHANN V. Ólafsson, sem
starfað hefur sem forstöðumaður
Eimskips í Fær-
eyjum, tók við
starfi forstöðu-
manns MGH
Ltd. í Moskvu,
dótturfyrirtækis
Eimskips, 1. ág-
úst sl.
Jóhann lauk
stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík
og hefur hann starfað hjá Eimskip
frá 1988.
manns markaðsdeildar Eimskips.
Guðjón er með Cand.merc gráðu
í rekstrarhagfræði frá Aalborg
Universitetcenter.
• GUÐJÓN Auðunsson hef- ur verið ráðinn
forstöðumaður Eimskips í Ham-
w borg. Guðjón
% M tók við starfinu
m i * l.júlísl. Guðjón gegndi áður
starfi forstöðu-