Morgunblaðið - 12.09.1997, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Söguleg atkvæöagreiðsla um
stofnun skosks þjóðþings
Tony Blair
vill nútíma-
legri stjóm-
skipan
Edinborg, London. Reuter.
ALLT leit út fyrir í gær að meiri-
hluti Skota myndi styðja tillögu um
stofnun skosks þjóðþings í almennri
atkvæðagreiðslu. Stofnun þjóðþings
þýðir að 300 ára stjórn á málefnum
Skotlands á breska þinginu í London
iýkur að hluta til.
Skosk dagblöð hafa verið einróma
í hvatningum sínum til kjósenda um
að samþykkja tillöguna og segja
atkvæðagreiðsluna vera sögulegan
viðburð. „Skotland stendur á tíma-
mótum, og getur einungis reitt sig
á grundvallarvísdóm lýðræðisins ...
Ætlum við að staðfesta tilveru okk-
ar á þessum sæbarða skika jarð-
kringlunnar eða ætlum við að af-
neita sjálfum okkur í eitt skipti fyr-
ir öll?“ spurði The Scotsman í leið-
ara í gær.
Spurningin, sem Skotar svöruðu
í gær, var tvíþætt. Annars vegar var
spurt hvort stofna bæri skoskt þjóð-
þing með aðsetur í Edinborg, og
hins vegar hvort, ef af stofnun yrði,
þinginu bæri að hafa völd til skattaá-
lagningar.
Áhugamál Tonys Blairs
Aukið sjálfdæmi Skota og Wal-
esbúa, héraðsstjórnir í Englandi og
borgarstjóri í London, umbætur á
lávarðadeild þingsins og konung-
dæminu eru allt mikil áhugamál
Tonys Blairs, forsætisráðherra Bret-
lands. Yfirburðasigur Verkamanna-
flokksins í þingkosningunum 1. maí
veitti honum áhrifamikið umboð til
að ganga gegn þeim sterku hefðum
sem eru grunnurinn að breskum
stjórnskipunarlögum, en þau eru að
flestu leyti óskrifuð.
í 18 ára valdatíð íhaldsflokksins,
sem lauk með sigri Blairs, safnaðist
vald í síauknum mæli til London.
Það var ekki sist fyrrum forsætisráð-
ERLENT
Reuter
EINDREGINN stuðningsmaður skosks þjóðþings, klæddur hefðbundnu, skosku pilsi heilsar með
fánakveðju við kjörstað í gær.
herra, Margaret Thatcher, sem fól
fjölda embættismanna, sem ekki
voru kjörnir heldur skipaðir af
stjómmálamönnum, mikil völd til að
sniðganga lýðræðislega kjörnar
sveitastjórnir sem stundum létu ekki
að stjórn.
Blair lítur svo á, að afleiðingin
hafi orðið sú, að tengsl hafi rofnað
milli þeirra sem stjórna og þeirra
sem stjórnað er. Nauðsynlegt sé að
veita fólki á ný möguleika til þátt-
töku í stjórnmálum með því að krefj-
ast aukinnar ábyrgðar og dreifa
valdi. Þess vegna hefur hann lagt
mikla áherslu á að koma á sjálfdæmi
til handa Skotum strax í upphafi
kjörtímabils síns.
„Þetta er allt þáttur í því, að gera
stjórnlög Bretlar.ds nútímalegri,
færa vald til almennings og ganga
úr skugga um að Skotar geti tekið
þær ákvarðanir sem hafa áhrif á
Skota,“ sagði hann í Edinborg á
mánudag er hann hvatti til þess að
tillagan um stofnun þjóðþings yrði
samþykkt
Tengist friðarhorfum á
Norður-írlandi
Fréttaskýrendur hafa bent á, að
samþykki í Skotlandi myndi veita
baráttu fyrir samþykkt samskonar
tillögu í Wales byr undir báða vængi,
en þar verður gengið til atkvæða-
greiðslu um þing 18. september. Það
sé ekki tilviljun að umræðan um
valddreifingu sé að ná hámarki nú,
þegar útlit sé fyrir að betri möguleik-
ar séu á að varanlegur friður komist
á á Norður-írlandi en nokkru sinni
frá því írlandi var skipt 1921. Blair
hefur tekið frumkvæðið og sagt
deiluaðilum á Norður-írlandi, sem
hefja viðræður á mánudag, að hann
muni sniðganga þá ef nauðsyn krefji
og bera sáttatillögur undir almenna
atkvæðagreiðslu í maí nk.
Blaðið Observer skírskotaði á
sunnudag til atburða liðinnar viku,
er fylgdu í kjölfar fráfalls Díönu
prinsessu, og sagði að „óþol almenn-
ings vegna ríkjandi gildismats og
innviða Bretlands var augljóst. Það
þarf skilyrðislaust að færa stjórnlög-
in til nútímalegra horfs. Bretar eru
að þreifa sig áfram með nýja stjórn-
lagasátt, og ef Skotar skorast undan
merkjum nú svíkja þeir ekki einvörð-
ungu sjálfa sig heldur landið allt.“
Reuter
ENSKUR skáti hreinsar blóm undan ttjám meðfram götunni Mall
í miðborg London í gær. Hreinsunin mun taka margar vikur.
Fjarlægja blómin
Iranir gramir vegna hnetubanns ESB
Segja bannið sett
fyrir Bandaríkin
Teheran. Reuter.
Alsír
Uppreisn-
arleiðtogi
sagður
fallinn
París. Reuter.
ALSÍRSKAR öryggissveitir hafa
fellt leiðtoga Hersveita íslams (GIA),
Antar Zouabri, og 78 liðsmenn hans
í hernaðaraðgerð suður af Algeirs-
borg, að þvl er alsírska dagblaðið
A1 Khabar greiridi frá í gær.
Blaðið hafði eftir „áreiðanlegum
heimildum" að eftir að kennsl höfðu
verið borin á þá er féllu í aðgerðum
öryggissveitanna megi fullyrða að
Zouabri sé þeirra á meðal. Hafi hann
fallið síðdegis á þriðjudag.
Zouabri hefur verið leiðtogi GIA
í rúmt ár, og hafa blöð í Alsir áður
flutt fregnir af falli hans, síðast í
júlí eftir að öryggissveitir höfðu heij-
að á uppreisnarmenn herskárra
múslíma í hálfan mánuð, og fellt um
300 þeirra, að því er fréttir hermdu.
Alsírsk stjórnvöld hafa aldrei gefið
neinar yfirlýsingar um fréttir af falli
hans.
GIA eru taldar ósvífnastar þeirra
samtaka herskárra, bókstafstrúaðra
múslíma er barist hafa gegn stjórn-
völdum I tæp sex ár, eða frá því
kosningar, sem haldnar voru í land-
inu í janúar 1992, voru ógildar eftir
fyrri umferð, þar sem flokkur bók-
stafstrúaðra múslíma hafði náð af-
gerandi forystu. Um 60 þúsund
manns hafa fallið I óöldinni sem
geysað hefur síðan.
Fyrr í vikunni fluttu alsírsk blöð
fregnir af aðgerðum öryggissveit-
anna, og var m.a. greint frá því að
um 70 uppreisnarmenn hefðu verið
felldir, og búðir þeirra í skóglendi
suður af Algeirsborg brotnar. Hefðu
þar fundist fylgsni á 30 metra dýpi
og vel búnar birgðastöðvar og æf-
ingabúðir.
SKÁTAR og aðrir sjálfboðaliðar
hafa hafist handa við að fjarlægja
þau 10-15 tonn af blómum sem
syrgjendur Díönu, prinsessu af
Wales, hafa skilið eftir til minning-
ar um hana við hallir bresku kon-
ungsfjölskyldunnar í London.
Verkið hófst í gær við Kensing-
ton-höll, síðasta heimili Díönu, en
mun í dag verða haldið áfram við
Buckingham-höll og St. James’s-
höll. Talið er að hreinsunin taki
nokkrar vikur.
Leikföng verða gefin barna-
heimilum og nýleg blóm send á
sjúkrahús. Visnuð blóm verða hins
vegar notuð sem áburður á blóma-
beð í Kensington-garðinum.
Þrír ferðamenn að minnsta kosti
hafa verið handteknir í London
undanfarna daga fyrir að stela
leikföngum sem skilin hafa verið
eftir til minningar um prinsessuna.
Tvær slóvakískar konur voru
dæmdar í 28 daga fangelsisvist
eftir að hafa játað því að hafa stol-
ið 11 böngsum. Þá var tvítugur
maður frá Sardiníu sektaður um
tæpar 12.000 krónur fyrir að stela
bangsa. Vegfarandi, sem var ekki
ánægur með þau málalok, bætti
um betur og rak honum vænt
kjaftshögg er hann kom út úr
dómshúsinu.
ÁKVÖRÐUN Evrópusambandsins
um tímabundið bann við innflutn-
ingi á pistasíuhnetum frá íran, sem
sett var nýlega, hefur vakið reiði
íranskra yfirvalda. Yfirmaður sam-
bands ávaxta- og hnetuútflytjenda
í íran, Mohammad Hassan Shams,
hélt því fram í fyrradag að bannið
væri sett að undirlagi Bandaríkja-
manna. Landbúnaðarráðherra írans
greindi frá því í gær að hópur sér-
fræðinga frá ESB hefði þegið boð
um að koma til írans og skoða fram-
leiðslu pistasíuhneta þar.
ESB bannaði innflutning á hnet-
um frá íran fram til 15. desember
eftir að sýnatökur leiddu hvað eftir
annað í ljós, að hættulegt eiturefni,
aflatoxín Bl, var að finna í hnetun-
um. Er það krabbameinsvaldandi.
Hassan Shams hélt því fram að
YURI Gribov og Sergei Lebedinsky,
yfirmenn í rússnesku leyniþjónust-
deildinni FSB, voru numdir á brott
af vopnuðum mönnum í Íngushetíu
við tsjetsjensku landamærin í gær.
Mannrán eru algeng í Tjetsjníu
en litið er á atburðinn í gær sem
beina ögrun við Rússa.
Rússneskum leiðtogum hótað
Hvöttu Rússar til þess í gær að
stjórnvöld í Tsjetsjníu drægju til
baka ummæli sem varaforseti
þeirra lét falla í síðustu viku. í kjöl-
far harðrar gagnrýni Rússa á opin-
ESB hefði ekki vandað rannsóknir
sínar áður en gripið var til banns-
ins. Sagði hann að sýnin, sem sýndu
eiturefnainnihald, hefðu öll verið
tekin úr einum og sama farminum,
125 tonnum, sem legið hefði í vöru-
húsi I Dubai í tvö ár áður en hann
var seldur til Hollands.
Af hálfu ESB var því hins vegar
haldið fram, að hættulega mikið af
aflatoxíni hefði mælst í 70% allra
sýna sem rannsökuð hafa verið í
nokkrum aðildarríkja sambandsins.
Shams sagði bannið koma írön-
um afar illa og væri t.a.m. skip á
leið til Evrópu með milli 5 og 6.000
tonn af pistasíuhnetum. Hnetur eru,
á eftir olíu og teppum, þriðja verð-
mætasta útflutningsvara írana.
Helstu keppinautar þeirra í hnetu-
útflutningi eru Bandaríkjamenn.
bera aftöku sem fram fór í Grozny,
höfuðborg Tsjetsjníu, sagðist vara-
forsetinn meðal annars „gefa skít
í“ Rússa og hótaði að stilla leiðtog-
um þeirra upp við vegg og skjóta
þá fyrir þjóðarmorð.
Samskipti Tsjetsjena og Rússa,
sem standa í friðarviðræðum, eftir
blóðug átök sem stóðu í 21 mánuð
og kostuðu tugi þúsunda lífið, hafa
farið versnandi að undanförnu.
Tsjetsjenar vilja fullt sjálfstæði frá
Rússum en þeir telja landsvæðið
hins vegar hluta Rússlands og óijúf-
anlegt frá því.
Yfirmönnum leyniþjón-
ustu rænt í Íngushetíu
Moskva. Reuter