Morgunblaðið - 12.09.1997, Side 27

Morgunblaðið - 12.09.1997, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997 27 LISTIR M "ALÞING um sjónlistir var haldið í Norræna húsinu nýlega og mark- aði lok alþjóðlegrar námsstefnu um sjónlistir sem stóð yfir síðari helm- ing ágústmánaðar. Verkefni þátttakenda voru kynnt og ítalski listgagnrýnandinn Liborio Termine flutti erindi um stöðu ljósmyndarinnar meðal sjónlista. Þátttakendur í pallborðsumræð- um að fyrirlestri loknum voru myndlistamenn- 'irnir James Graham og Ámi Háraldsson, frá Kanada, Hannes Lárusson, Helgi Þorgils Frið- jónsson og listfræðingarnir Hannes Sigurðsson og Ólafur Gíslason sem jafnframt var túlkur fyrir Liborio Termine. Auk ofangreindra voru kanadíski myndhöggvarinn Robin Peck og svissneski málarinn Thomas Húber meðal kenn- ara á námsstefnunni en erindi ítalska listgagn- rýnandans fjallaði um verk Húbers af sýningu hans í Listasafni íslands. Megintilgangur námstefnunnar er sá að hleypa erlendum straumum með virkari hætti inn í íslenskt myndlistalíf. Það var með sam- vinnu skipuleggjendanna Ólafs Gíslasonar, Helga Þorgils Friðjónssonar og Iþannesar Lár- ussonar við Sumarskóla Háskóla íslands og Myndlista- og Handíðaskóla íslands sem al- þjóðlega námstefnan On the Borderline var haldin. Samhliða námstefnunni hefur staðið yfir röð sýninga og viðburða sem nefnast On Iceland 1997 og Hannes Lárusson hefur haft umsjón með en margir af kennurum við sum- arnámstefnuna hafa jafnframt sýnt á þessari hátíð. Að- standendur lýstu mikilli ánægju með framkvæmdina og sögðust vona að al- þjóðleg myndlistahá- tíð gæti orðið að ár- legum viðburði í menningarlífi lands- ins og að hún ætti eftir að vaxa og dafna um ókomin ár. Umræður mál- þingsins snérust í megindráttum um samband ljósmyndar- innar við aðra listm- iðla, þar sem mál- verkið var útgangs- punktur. Síðar var sjónarhornið víkkað til almennrar um- ræðu um sjónlistir og sérstöðu íslands í al- þjóðlegu samhengi. Liborio Termine lét í ljós þá skoðun í erindi sínu að málverkið og ljósmyndin samanstæðu af tveimur gerólíkum þáttum. Ljósmynd sem líktist málverki væri léleg ljósmynd en þar með væri ekki sagt að ljósmyndun væri óæðri öðrum listgreinum, heldur aðeins ólík. Ljós- myndarinn leikstýrði sjóninni og vald hans fælist í því að draga fram ákveðnar ímyndir úr raunveruleikanum og sýna áhorfendanum nýjar og óvæntar hliðar á heiminum. „Við þekkjum ekki fyrirbrigði heimsins í sjálfu sér heldur ráðum í þau af samhenginu. Vitneskja okkar byggir á því í hvaða samhengi hlutirnir birtast okkur og tengingar ljósmyndarinnar við veruleikann eru allt aðrar en þær sem birt- ast okkur í málverkinu," segir Termine. „List- málarinn getur skapað nýjan heim í verkum sínum en ljósmyndarinn hefur áhrif á áhorf- andann með því að sýna heiminn í nýju ljósi. í þessu er grundvallarmunur á ljósmyndun og málaralist fólginn," segir Termine. Við sjáum það sem við erum Til að varpa ljósi á samband ljósmyndarinn- ar við aðrar listgreinar, s.s. málaralist, fór Termine fram á það við myndlistamanninn Thomas Húber að hann myndaði öll smáatriði í verki sínu Draumur Jakobs I og raðaði þeim „Evrópa á eftir að rífa í sig menn- ingu ykkar “ Á málfundi um sjónlistir var rætt um samband ljósmyndar- innar við aðra listmiðla og um hlutverk íslands í alþjóð- legu menningarsamfélagi. Hulda Stefánsdóttir hlýddi á rök og mótbárur fundarmanna og talaði við ítalska list- gagnrýnandann Liborio Termine, sem heldur því fram að Islendingar verði að vernda menningu sína fyrir alþjóð- legum myndlistarmarkaði sem hann líkir við mannætur. LIBORIO Termine kynnir fundargestum verkefni sem hann lagði fyrir svissneska listamanninn Thomas Hiiber. Liborio heldur því fram að ljósmyndirnar afhjúpi táknheim sem er áhorfandanum hulinn i málverkum listamannsins. saman í ljósmyndasamklippur. „Aðstaða lista- mannsins var vissulega erfið og átti ég allt eins von á því að hann myndi hafna beðni minni. Verkefnið fól í sér endurskoðun og túlkun listamannsins á eigin verki. Með ljós- myndunum leysti Húber upp verk sitt og end- urskapaði ímyndir sínar í nýju samhengi ljós- myndarinnar,“ sagði Termine. „Ljósmyndunin krefst einföldunar og ég er þeirrar skoðunar að listamaðurinn sé af þeim sökum einlægari og nær kjarna hugmynda sinna í ljósmyndun- um en í málverkinu sjálfu.“ Termine segir að með verkefni Húbers hafi gefist einstakt tækifæri til að sýna fram á það hvernig ljósmyndatæknin getur nýst lista- manninum í myndsköpun sinni. Hann hafi síð- an lagt sama verkefni fyrir þátttakendur á námsstefnunni og vinna þeirra reyndist endur- spegla innri mann hvers og eins fremur en að túlka verk Húbers. „Einn þátttakendanna á námskeiðinu gaf, að mínu mati, mjög full- nægjandi skýringu á eiginleikum ljósmyndar- innar þegar hann sagði að í ljósmyndum sæj- um við það sem við værum.“ Verndun menningarsérkenna á tímum alþjóðahyggju Termine segist hafa dregið mikinn lærdóm af ferð sinni til íslands. „Hér fann ég heim Morgunblaðið/Þorkell FRÁ málþingi um sjónlistir í Norræna húsinu. F.v: Árni Har- aldsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hannes Sigurðsson, Olafur Gíslason, Liborio Termine, Hannes Lárusson og James Graham. sem svarar spurningum sem vestrænn heimur hefur ekki fundið svör við. Á vesturlöndum ríkir ástand sem ég kýs að kalla trúarbrögð tómleikans. Iðn- og vélvæðing heimsins hefur leitt okkur til neytendadýrkunar. Menning samtímans er orðin hluti af viðskiptaheiminum og menningai'vitund okkar hefur sljóvgast. Neyslusamfélagið drepur niður heim goðsagna og tákna og án þeirra ríkir tómið í menningu fólksins. Hjá ykkur hef ég fundið samfélag sem býr yfir ríkulegum heimi goðsagna og tákna," segir Termine. „Ég hef notið þeirra forréttinda að kynnast list Helga Þorgils Frið- jónssonar og ég held að verk hans geti haft mjög jákvæð áhrif á evrópska menningu." Hann segir listamanninn afhelga gamlar tákn- myndir í málverkum sínum og setja í sam- hengi við samtímann. Með því að draga upp mynd af fölsku sakleysi ögri listamaðurinn hugmyndafræði sjónlista sem sé í mikilli þörf fyrir nýja strauma. „Vandi ykkar er fólginn í því að Evrópa á eftir að éta ykkur upp til agna ef þið veijið ekki menningu ykkar,“ seg- ir Termine. „Og ef þið farið að versla með menningu eins og hvern annan varning þá fer eins fyrir ykkur og okkur hinum." Árni Harðarson ljósmyndari og myndlista- maður í Kanada hefur búið í Bandaríkjunum frá 10 ára aldri og heimsækir nú ísland í fyrsta sinn í 20 ár. Hann segir miklar umbreytingar hafa orðið á íslandi á örfáum árum og við séum nú óumdeilanlega hluti af alþjóðlegu samhengi. Það beri ekki síst að þakka ainet- inu. „Ég er þeirrar skoðunar að ljósmyndin hafi nálgast mjög málverkið með þróun tölvu- tækninnar. Möguleikar ljósmyndarinnar eru nánast óendanlegir og blekkingin þar með fullkomin. Listmiðlarnir tveir búa nú yfir svip- uðum möguleikum og málverkið þarf því að ganga í gegnum endurskoðun," segir Árni. íslendingar þurfa meira sjálfstraust Hannes Lárusson lýsti yfir efasemdum um það að íslendingar gegndu hlutverki nýupp- götvaðra sannleiksbera heimsins. Liborio Termine væri kannski full bjartsýnn í fullyrð- ingum sínum um mikilvægi íslands fyrir nýja menningarstefnu í Evrópu. Hann sagði loka- takmark námstefnunnar þó vera það að byggja upp menningarlegt sjálfstraust hjá þjóðinni, við þyrftum að læra að nýta okkur einangrun landsins á jákvæðan hátt því veiklyndi væri líka léleg afsökun fyrir því að hörfa í sífellu. James Graham tók dæmi af indíánaþjóðum Ameríku og menningu gyðinga og benti á að sú hætta væri alltaf fyrir hendi að þjóðerni yrði forsenda fyrir listsköpun einstaklinga og hugmyndir listamannsins yrðu algjört aukaatr- iði. Honum virtist listsköpun ísiendinga svipa tiljarðfræði landsins. Tveir flekar rækjust saman með tilheyr- andi umbrotum. Á eft- ir væri allt með kyrr- um kjörum, engan ræki sérstaklega minni til þess sem átt hefði sér stað og verk- summerki væru fá. Hannes Sigurðsson, listfræðingur, taldi mörk ljósmyndarinnar og málverksins afar óljós því unnið væri með miðil ljósmyndar- innar á margvíslegan hátt. Hann tiltók lista- konuna Cindy Sher- man sérstaklega en hún vinnur eingöngu með miðil ljósmyndar- innar og kvikmyndun- ar í list sinni sem segja mætti að fjallaði um aflijúpanir ímynda. „Imynd Islendinga í augum heimsins er ómótuð. Styrkur okkar felst í því að fólk hef- ur ekki gert sér ákveðna skoðun á okkur og tekur þar af leiðandi list okkar með opnari hug en ella,“ segir Hannes. „Það ber hins vegar að varast að tengja menningu okkar við heimsvaldastefnu með því að segja að vernda þurfi sakleysi okkar fyrir heiminum." í stuttu spjalli að loknu málþingi var Li- borio Termine beðinn um að skýra nánar frá hugmyndum sínum um sérstöðu Islands við samruna ólíkra menningarbrota í Evrópu. „Evrópa eftir Nietzsche hefur leitað að já- kvæðri hugmyndafræði. Til þess að menningin geti orðið jákvæð þarf sterk gildi, sem raunge- rast í goðsögnum og táknum. Þar sem Evrópa hefur glatað sínum eigin táknum í flóði vöru- merkja hefur þjóð sem enn býr yfir eigin tákn- heimi mikilvægu hlutverki að gegna. Island er á jaðarsvæði Evrópu. Á tímum fasismans á Ítalíu var Ameríka talin vera handan landa- mæranna. Amerískar goðsagnir urðu ein af orsökum þess að lýðræðið bar einræðið ofur- liði á Italíu," segir Termine. „Þið eruð landa- mærin að Evrópu sem vill byggja upp sína eigin einingu. Þessi eining virðist vera eining markaðarins en byggja þarf upp einingu menn- ingarinnar og þar getið þið haft áhrif með því að þróa menningarleg sérkenni ykkar og kynna umheiminum." Samsæri í Washinglon KVIKMYNPIR Laugarásbíó „THESHADOW CONSPIRACY" Vl Leikstjóri: George P. Cosmatos. Kvikmyndataka: Buzz Feithans. Handrit: Ric Gibbs og Adi Hasak. Aðalhlutverk: Charlie Sheen, Donald Sutherland, Linda Hamilton, og Stephen Lang. 103 min. Bandarísk. Cinergi/ HoUywood Pictures/ Para- mount Pictures. 1997. Samsæriskenningakvikmyndir í anda Olivers Stone virðast vera í tísku í Hollywood. íslenskum bíó- gestum er nú boðið upp á „The Shadow Conspiracy" og „Conspiraey Theory“ með Mel Gibson og Juliu Roberts er væntanleg. „The Shadow Conspiracy“ er nýj- asta framleiðsla meðaljónsins Ge- orge P. Cosmatos, ætti að vera kó- mótós, sem hefur m.a. afrekað nokkrar kvikmyndir með vöðvatröll- inu Sylvester Stallone. Síðasta kvik- mynd Cosmatos, „Tombstone", var reyndar slarkfær vestri en því miður verður ekki hægt að segja hið sama um „The Shadow Conspiracy". Hún á að vera spennumynd með vænum skammti af ofsóknaræði sem á að halda áhorfendum við efnið, en það ætlunarverk misheppnast gjörsamlega þó að rniklu púðri sé eytt í að sýna stóra bróður að verki með eftirliti í gegnum gervihnetti og aðrar nútímagræjur. Það er eitt- hvað mikið að þegar maður er farinn að vonast til þess að aðalmorðinginn (Stephen Lang) nái að drepa hetjuna (Charlie Sheen) og helst ailar aðrar persónur í myndinni, en þó sérstak- lega vælulegan forsetann (Sam Waterson). Sheen tókst ágætlega upp í áþekku hlutverki á síðasta ári þegar hann lék vísindamann sem gat eng- um treyst og átti fótum fjör að launa í „The Arrival“. í þetta skipti er hann aðstoðarmaður Bandaríkjafor- seta sem áttar sig skyndilega á því að eitthvað gruggugt er í gangi í Hvíta húsinu þegar lík fara að hrannast upp og reynt er að koma honum fyrir kattarnef. Persóna Bobby Bishop og línurnar sem hon- um eru gefnar bjóða ekki upp á mikið og Sheen, sem er meðaljón eins og Cosmatos, tekst á engan hátt að klóra sig fram úr lífvana handritinu. Þó Sheen sé í slöppu formi kemst hann ekki með tærnar þar sem Linda Hamilton er með hælana. Henni er heldur engin greiði gerður með einstaklega tilgerðar- legri og óþarfri persónu. Hamilton hefur í kjölfar „Terminator“-mynd- anna lafað á B-listanum í Hollywood en eftir „The Shadow Conspiracy“ hlýtur hún að fara að leika í myndum sem eru framleiddar beint fyrir myndbandsmarkaðinn. Myndin toppar sjálfa sig hvað eftir annað í aulaskap og er óvilj- andi fyndin. Dæmi 1: Þegar laun- morðinginn Lang hefur störf byrjar hann á því að skjóta mann sem þeyt- ist í gegnum glerrúðu með miklu brambolti. Aðrir í húsinu heyra samt ekki neitt og halda áfram við iðju sína í rólegheitum þar til þeir eru einnig drepnir. Dæmi 2: Sheen kemst í tölvu í Hvíta húsinu þar sem haldið er saman greinagóðum skýrslum um öll morðin og nafn ábyrgðarmanns ritað þar skýrt og greinilega. Sá hefur augljóslega litl- ar áhyggjur af því að fela tengsl sín við hið alræmda skuggasamsæri sem myndin á að snúast um. Ef fólk vill sjá almennilegar spennumyndir með ofsóknarandblæ legg ég til að það skreppi á næstu myndbandaleigu og taki „Touch of Evil“, sem „The Shadow Con- spiracy" vitnar í, eða frönsku mynd- ina „Divu“, en þaðan eru fengin að láni atriði þar sem hetjan er elt af morðingja á mótórhjóli. Einnig má benda á „Three Days of the Cond- or“ og „The Manchurian Candidate" sem róa á svipuð mið en með mun betri árangri. Anna Sveinbjarnardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.