Morgunblaðið - 12.09.1997, Side 31
30 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ •
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
EINKAREKNIR
BANKAR
STOFNFUNDIR hlutafélaganna Landsbanka íslands
hf. og Búnaðarbanka íslands hf. voru haldnir í fyrra-
dag. Félögin taka við rekstri samnefndra banka um
áramótin. Nýtt rekstrarform þeirra er mikilvægur áfangi
á leið til einkavæðingar viðskiptabanka hér á landi. Það
skref þarf að stíga sem fyrst til fulls. Viðskiptabankar
eru víðast hvar einkareknir í þjóðfélögum markaðsbú-
skapar.
Með breyttu rekstrarformi bankanna verður ábyrgð
ríkisins á rekstri þeirra afnumin. Þann veg verður sam-
keppnisstaða fjármálastofnana jöfnuð. Þær eiga fram-
vegis að starfa á jafnréttisgrundvelli á samkeppnismark-
aði. í annan stað standa orð viðskiptaráðherra til skrán-
ingar hlutafélagabankanna á Verðbréfaþingi íslands.
Sem og að lagaheimild til útboðs og sölu á nýju hlutafé
verði nýtt að hluta í þessu skyni.
íslenzkir bankar og fjárfestingarsjóðir hafa tapað
feiknháum fjárhæðum í afskriftum síðustu áratugi. Að
hluta til skrifast þessi töp á reikning efnahagsþrenginga
í þjóðarbúskapnum og að hluta til á „rangar“ fjárfesting-
ar. Einkareknar lánastofnanir, sem lúta fyrst og fremst
arðsemis- og markaðslögmálum, stýra síður fjármagni
í rekstrarlegar glatkistur en ríkisreknar, þar sem póli-
tísk áhrif ráða ferð að hluta til eða að mestu leyti. Sá
veruleiki er lóð á vogarskál einkarekinna viðskiptabanka
fremur en ríkisrekinna.
Þær breytingar á eignar- og rekstrarformi islenzkra
viðskiptabanka, sem í sjónmáli virðast, ættu og að
styrkja þá í samkeppni við erlendar lánastofnanir, sem
trauðla verður umflúin. Sú skoðun hefur verið viðruð í
forystugrein hér í blaðinu [18. febrúar 1996] að örugg-
asta aðferðin, sem íslenzk stjórnvöld gætu beitt til þess
að tryggja, að vaxtastig verði svipað hér og í samkeppn-
is- og viðskiptaríkjum okkar - og til að sporna við fá-
keppni á fjármagnsmarkaði - sé sú að ýta undir það
með einum eða örðum hætti, að erlendir bankar hefji
starfsemi hér. Allavega er það skref inn í samtímann
að færa íslenzka viðskiptabanka í svipað rekstrarform
og víðast hvar. Það skref þarf að stíga til fulls sem fyrst.
EÐLILEGT AÐHALD
SAMKEPPNISRÁÐS
EÐLILEGT og jákvætt aðhald felst í þeirri ákvörðun
Samkeppnisráðs að gera Pósti og síma að veita
keppinautum sínum aðgang að gagnagrunni símaskrár-
innar.
Það er í hæsta máta óeðlilegt að fyrirtæki, sem hefur
árum saman safnað upplýsingum um símanúmer ein-
staklinga og fyrirtækja í krafti einkaleyfis á símaþjón-
ustu, neiti keppinautum, sem vilja ráðast í útgáfu tölvu-
tækra símaskráa, um aðgang að þessum upplýsingum.
Þetta hefur Póstur og sími engu að síður gert þegar
leitað hefur verið eftir því að fá aðgang að gagna-
grunni símaskrárinnar.
Með ákvörðun Samkeppnisráðs eru því sköpuð jöfn
samkeppnisskilyrði á nýjum markaði fyrir tölvutækar
símaskrár.
Forsvarsmenn fyrirtækja, sem enn njóta einkaleyfis
á einhverjum sviðum atvinnustarfsemi, en eru jafnframt
í samkeppni við önnur fyrirtæki á frjálsum markaði,
verða að sætta sig við strangt aðhald samkeppnisyfir-
valda. Raunar má halda því fram að eðlilegt sé að einka-
rekin fyrirtæki á frjálsum markaði njóti vafans, ef það
er álitamál hvort einokunarfyrirtæki í ríkiseigu misnota
aðstöðu sína til að ná yfirhöndinni í samkeppni við þau.
Yfirvöld hljóta að gera miklar kröfur til fyrirtækja, sem
í skjóli einkaleyfis eða opinbers stuðnings og fyrir-
greiðslu hafa náð mjög sterkri stöðu á markaðnum.
Samkeppnisstaðan verður þó ekki að fullu jöfnuð nema
með því að afnema ríkiseinkaleyfi á sem flestum sviðum
og koma ríkiseinokunarfyrirtækjunum í einkaeigu eða
leggja þau niður.
TF-LÍF kyrrsett og beðið er fregna frá framleiðanda og Loftferðaeftirliti
M
IÐAÐ við þær lýsingar
sem borist hafa frá Nor-
egi eru greinilega taldar
líkur á að þetta hörmu-
lega slys hafi orðið með þeim hætti
að eitt blað hafi losnað af spaða
þyrlunnar. Ég treysti Loftferðaeft-
irlitinu til að meta hvort rétt sé að
stöðva flug á Super Puma-þyrlum
að sinni. Auðvitað kemur það illa
við okkur að missa TF-LÍF úr
rekstri en það er þó bót í máli að
TF-SIF er í góðu lagi,“ sagði Ben-
óný Ásgrímsson, flugstjóri hjá
Landshelgisgæslunni, í samtali við
Morgunblaðið um miðjan dag í
gær. Loftferðaeftirlitið ákvað að
kyrrsetja TF-LÍF þar til fullnægj-
andi upplýsingar bærust um orsakir
þyrluslyssins fyrir utan strönd Há-
logalands í Noregi sl. sunnudag.
Jean-Louis Espes, talsmaður
Eurocopter-verksmiðjanna í Frakk-
landi, sagði síðdegis í gær að verk-
smiðjurnar teldu ekki ástæðu til að
mæla með kyrrsetningu allra véla
af þessari tegund. „Við leggjum
hins vegar alla áherslu á að komast
að orsökum slyssins sem allra fyrst
og munum láta þá sem reka Super
Puma-þyrlur fylgjast með fram-
vindu mála,“ sagði talsmaðurinn.
Benóný sagði að Landhelgisgæsl-
an hefði þegar látið skoða spaða
Super Puma-þyrlunnar og allur
búnaður hefði reynst í besta lagi.
Nú biði Landhelgisgæslan frekari
upplýsinga frá franska framleiðand-
anum og Loftferðaeftirlitinu.
„Ég veit ekki hvað þetta stopp
verður langt og enginn getur
giskað á það. Á meðan ekkert
gerist kemur þetta auðvitað ekki
að sök en það er bagalegt að
hafa ekki stóru þyrluna til taks.“
Þessar þyrlur hafa
reynst mjög vel
Benóný sagði að ef þyrlublað-
ið hefði losnað af þyrlunni á flugi
væri það í fyrsta skipti sér vitan-
lega sem slíkt gerðist á Super
Puma-þyrlu. „Þessar þyrlur hafa
reynst mjög vel, þær þykja ör-
uggar og þess vegna hafa þær
verið eftirsóttar til fólksflutn-
inga,“ sagði Benóný.
Aðspurður hvort Super Puma
væri betri þyrla en Sikorsky,
sem einnig hefur verið mikið
notuð á Norðursjó, kvaðst Ben-
óný ekki vilja gera upp á milli
þessara tegunda. „Sikorsky er
gömul hönnun, hún er ekki
framleidd lengur og því er erfitt
að fá í hana varahluti. Ég get
því ímyndað mér að hún sé mun
óhagkvæmari í rekstri en Super
Puma sem er af nýrri kynslóð
þyrlna. Báðar vélarnar hafa örugg-
lega sína kosti og galla. Auðvitað
eru til fleiri þyrlutegundir en vin-
sældir Super Puma-vélanna á Norð-
ursjó segja sitt um hversu öruggar
þær þykja,“ sagði Benóný Ásgríms-
son flugstjóri.
Eurocopter
telur kyrr-
setiiingu ekki
tímabæra
Super Puma-þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
LÍF, hefur verið kyrrsett að beiðni Loftferða-
effcirlitsins, í kjölfar slyssins í Noregi um síð-
ustu helgí þar sem þyrla sömu tegundar fórst
og með henni tólf manns. Ragnhildur Sverr-
isdóttir ræddi við flugstjóra hjá Landhelgis-
gæslunni og talsmann Eurocopter, fransks
framleiðanda þyrlunnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SUPER Puma-þyrla Landhelgisgæslunnar, sem notuð var við björgun 39
manna úr sjávarháska á sex daga tímabili í mars sl., hefur verið kyrrsett
og stendur óhreyfð í flugskýli gæslunnar.
Espes sagði að verksmiðjurnar
hefðu látið alla þá, sem reka Super
Puma-þyrlur, vita af slysinu í Nor-
egi og rannsókn á orsökum þess.
„Við munum láta þessa aðila vita
um leið og við verðum einhvers vís-
ari,“ sagði hann. Aðspurður hvort
Éúrocopter myndi mælast til að all-
ar Super Puma-þyrlur yrðu kyrr-
settar á jörðu niðri sagði hann að
verksmiðjurnar teldu of snemmt að
grípa til slíkra ráða.
„Ef eigendur þyrlnanna eða loft-
ferðayfirvöld einhverra ríkja telja
ástæðu til að kyrrsetja þyrlurnar
er auðvitað ekkert við því mati að
segja. Verksmiðjurnar telja hins
vegar ekki ástæðu til að grípa til
slíkra ráða að svo stöddu."
450 Super Puma-
þyrlur í notkun
Espes benti á að um 450 Super
Puma-þyrlur væru í notkun um all-
an heim og þeim hefði samtals ver-
ið flogið í um 1,5 milljónir stunda.
„Þetta eru mjög öruggar vélar. Við
ieggjum mjög mikla áherslu á að
komast að því sem allra fyrst hvað
orsakaði slysið í Noregi en við meg-
um ekki missa sjónar á því að beita
mikilli nákvæmni í rannsóknum
okkar.“
Kyrrsetning einka-
aðila óvenjuleg
Fyrirtækið Helicopter Services,
sem átti þyrluna sem fórst, ákvað
á miðvikudag að kyrrsetja þyrlu-
flota sinn sem er í Noregi,
Ástralíu og Bretlandi. Þrír
breskir flugrekstraraðilar
ákváðu í kjölfarið að gera slíkt
hið sama og gáfu út yfirlýsingu
um að óvíst væri hve lengi kyrr-
setningin myndi vara, að því er
fram kemur í fréttaskeyti Reut-
er.
Þar er einnig haft eftir sér-
fræðingum á sviði flugöryggis
að þetta væri óvenjulegt og mjög
eðlilegt væri að Eurocopter-
verksmiðjurnar biðu með að
leggja slíkt til. „Kyrrsetning er
óvenjuleg því flug þyrlnanna var
ekki stöðvað af yfirvöldum," er
haft eftir David Learmount, rit-
stjóra tímaritsins Flight Intern-
ational. „Þetta ber vissulega
vott um mikla varfærni því eng-
in sönnunargögn styðja þessa
ákvörðun.“
Of snemmt að grípa til
kyrrsetningar
„Hópur sérfræðinga
Eurocopter-verksmiðjunum fór á
miðvikudag til Óslóar til að rann-
saka þá hluta úr þyrlunni sem fund-
ust. Þyrlan sjálf sökk, sem gerir
okkur miklu erfiðara fyrir við rann-
sóknina en ella. Við munum þó
leggja sérstaka áherslu á að rann-
saka þyrlublaðið sem fannst og ég
frá vona að málið skýrist fyrir helg-
á ina,“ sagði Jean-Louis Espes, tals-
maður Eurocopter í Frakklandi,
framleiðanda Super Puma-þyrlna, í
samtali við Morgunblaðið síðdegis
í gær.
Eini hlutinn sem hægt
er að rannsaka
Þá hefur Reutere ftir sérfræð-
ingum að rannsóknin beinist að
þyrlublaðinu af þeirri einu ástæðu
að það sé eini hlutinn úr vél þyrlunn-
ar sem hafi fundist en ekki vegna
þess að ástæða sé til að halda að
það hafi átt þátt í slysinu. David
Learmount staðfestir hins vegar að
Super Puma-þyrlan sé örugg vél.
„Þetta er mjög góð þyrla enda mik-
ið notuð.“
Olíklegt að þyrilblað
hafí losnað af á flugi
ÓLÍKLEGT þykir að þyrilblað
hafi losnað á flugi af norsku Super
Puma-þyrlunni sem fórst í Norð-
ursjó á mánudagsmorgun. Ági-
skanir norskra rannsóknaraðila í
þá veru reyndust á röngum rökum
reistar, að því er Finn Heimdal,
framkvæmdastjóri norsku flug-
slysarannsóknarnefndarinnar,
tjáði Aftenposten í gærkvöldi.
Höfðu franskir sérfræðingar
frönsku verksmiðjunnar
Eurocopter þá leitt í ljós, að
skemmdir í gengjum þyrilblaðs,
sem fundist hefur, bendi til þess
að blaðið hafi losnað frá þyrilkoll-
inum eftir brotlendingu þyrlunnar
í sjó.
Norskir rannsóknaraðilar
sögðu í viðtölum við fjölmiðla í
gær, að að ró, sem heldur hverju
hreyfilblaðanna fjögurra á þyril-
kollinum, virtist hafa losnað af á
flugi. Heimdal sagði hins vegar í
gærkvöldi, að gleymst hefði að
reikna með ákveðnum sveigjan-
leika, sem væru í róarstæðinu.
Festingar hennar gætu víkkað
örlítið undir gífurlegu álagi og
kynni það út af fyrir sig að leiða
til þess að róin missi örlitla festu
og spýtist af við árekstur, að sögn
Heimdals. Rannsóknir, sem sér-
fræðingar Eurocopter aðstoðuðu
við í gær, leiddu í ljós, að skemmd-
ir í gengjum þyrilblaðsins eru sam-
bærilegar við skemmdir í gengjum
á þyrilblöðum Super Puma-þyrlu
sem fórst á Spáni. Sú þyrla flaug
í jörðina og brotnuðu spaðar af
eftir brotlendingu. Höfðu sérfræð-
ingarnir myndir af þeim til saman-
burðar við þyrilblað norsku þyrl-
unnar.
Ileimdal sagði við Aftenposten
að nú væri einungis hægt að segja,
að slysið hefði borið mjög skyndi-
lega að fyrst áhöfnin hefði ekki
getað sent út kall. Hann sagði að
ná þyrfti flaki hennar af hafsbotni
áður en hægt yrði að slá nokkru
föstu um hvað olli því að hún fórst.
I gærkvöldi námu breskir sérfræð-
ingar hljóðmerki af hafsbotni sem
þeir töldu vera frá neyðarsendi
þyrlunnar. Vonast var til þess að
staðsetja mætti flakið sl. nótt og
kanna það með fjarstýrðri neðan-
sjávarmyndavél í dag.
Hart keyrðir
Þyrlufyrirtækið Helikopter
Service hefur verið í örum vexti,
álag á flugmönnum hefur verið
mikið og erfiðlega hefur gengið
að stækka flugflotann og end-
urnýja. Umsvif félagsins vegna
olíuvinnslu í Norðursjó hafa stór-
aukist á árinu. Haft er eftir starfs-
fólki á oliuborpöllum að þyrluflug-
menn hafi oft borið sig illa, kvart-
að undan álagi bæði á þá sjálfa
og þyrlurnar og sagt það farið að
há öryggi. Formaður félags flug-
manna hjá Helikopter Service,
Tore Villard, staðfesti við Aften-
posten að þeir væru undir miklu
starfsálagi og hver dagur erilsam-
ur. Þeir héldu sig hins vegar innan
ramma þeirra reglna sem giltu og
væru sáttir við sinn hlut. Skortur
væri hins vegar bæði á flugmönn-
um og þyrlum en í ráði væri að
bæta úr hvoru tveggja.
Þar sem norsk þyrlufyrirtæki
hafa kyrrsett um óákveðin tíma
Super Puma-þyrlur sömu gerðar
og sú sem fórst hefur orðið mikil
röskun á flutningum til oliubor-
palla í Norðursjó. Þeim er aðalieg;
sinnt á Síkorskí S61-N og nýjustu
gerð Super Puma, af undirtegund-
inni AS 332 L2, sem eru með nýrri
tegund þyrilbúnaðar.
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997 31
Stjórn Landsvirkjunar samþykkir stefnu í umhverfismálum
Landsvirkjun ræður sér-
stakan umhverfisstj óra
—
imsmm
UMHVERFISSTÉFNA
1. Við ætlum að vera vakandi fyrir nýjum úrlausnum í verkefnum á öllum
sviðum starfseminnar sem leiða til þess að öflun og flutningur raforku verði
hagkvæmari og valdi sem minnstri röskun á umhverfinu.
2. Við ætlum með glöggri yfirsýn, stöðugum umbótum og með því að setja
mælanleg markmið að draga markvisst úr röskun á náttúrunni af völdum
starfsemi Landsvirkjunar.
3. Við leggjum áherslu á að uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til fyrirtækis-
ins í umhverfismálum og fram koma m.a. í lögum, reglugerðum og alþjóð-
legum skuldbindingum Islendinga. Jafnframt munum við setja okkur strangari
kröfur eftir því sem við á í Ijósi markmiða þeirra eða umhverfisstefna okkar
felur í sér.
4. Við ætlum að greina umhverfisáhrif nýrra orkumannvirkja fyrirfram og
stunda rannsóknir á umhverfi þeirra bæði áður en þau verða byggð og eftir
að þau komast í rekstur til þess að fylgjast með áhrifum þeirra og fyrirbyggja
eftir því sem kostur er skaða á umhverfinu sem þær geta valdið en bæta úr ef
ekki verður hjá honum komist.
5. Við ætlum að leitast við að hanna, byggja og viðhalda mannvirkjum okkar
og nánasta umhverfi þeirra þannig að þau sómi sér vel.
6. Við ætlum í allri okkar starfsemi að vera til fyrirmyndar í meðferð náttúru-
auðlinda.
7. Við ætlum að fræða starfsmenn okkar um náttúruvernd og umhverfismál
og stuðla að því að þeir verði áhugasamir um þau og geri sér grein fyrir
ábyrgð sinni í þeim efnum.
8. Við ætlum að gera sömu kröfur í umhverfismálum til þeirra aðila er vinna
fyrir okkur sem verktakar og ráðgjafar og við gerum til okkar sjálfra.
9. Við ætlum að sýna samstarfsvilja í verki gagnvart stjórnvöldum umhverfis-
mála, hugsamunasamtökum og almenningi.
10. Við ætlum að gera reglulega grein fyrir árangri okkar í umhverfismálum
opinberlega og stuðla að málefnalegri umræðu við alla þá er láta sig
umhverfismál og raforkumál varða.
Stjórn Landsvirkjunar
ætlar að leggja meiri
áherslu á umhverfismál
í öllu starfí fyrirtækisins
í framtíðinni og hefur í
því skyni samþykkt sér-
staka umhverfisstefnu.
STJÓRN Landsvirkjunar hefur
samþykkt sérstaka stefnu í
umhverfísmálum sem felur
m.a. í sér að ráðinn verður
sérstakur umhverfisstjóri sem heyrir
beint undir forstjóra fyrirtækisins.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórn-
arformaður Landsvirkjunar, sagði að
þessi stefna bæri vott um að fyrirtæk-
ið ætlaði sér að taka umhverfismál
fastari tökum og gera ákveðnar breyt-
ingar á innra starfi þess til að fylgja
umhverfisstefnunni eftir.
Jóhannes Geir tók fram að Lands-
virkjun væri ekki að marka nýja
stefnu í umhverfismálum. Umhverf-
ismál hefðu lengi verið mikilvægur
þáttur í starfi fyrirtækisins. Hann
sagði ljóst að starfsemi Landsvirkj-
unar hefði margvíslega röskun í för
með sér. Það væri að búa til ný stöðu-
vötn, flytja til mikið af jarðefnum og
færa til ár. Virkjanir hefðu ennfremur
í sumum tilfellum áhrif á nytjar af
landi. Á hitt bæri einnig að líta að
virkjanir Landsvirkjunar væru ekki
mengandi líkt og notkun á kolum og
olíu, sem væru algengustu orkugjaf-
arnir í dag. Hann lagði áherslu á að
atvinnugreinum yrði ekki stillt upp
gegn hver annarri. Orkunýting gæti
t.d. vel stutt við bakið á ferðamanna-
þjónustu.
Stærstu ákvarðanirnar
teknar af stjórnvöldum
Halldór Jónatansson, fram-
kvæmdastjóri Landsvirkjunar, sagði
að Landsvirkjun starfaði í samræmi
við lög og reglur sem stjórnvöld settu
og Landsvirkjun gæti ekki tekið
ákvörðun um byggingu virkjana fyrr
en Alþingi og iðnaðarráðherra hefði
veitt fyrirtækinu heimild til þess.
Umdeildar ákvarðanir um virkjanir á
hálendinu yrðu því ekki teknar af
Landsvirkjun.
Jóhann Már Maríusson, aðstoðar-
forstjóri Landsvirkjunar, sagði það
skyldu Landsvirkjunar að láta rann-
saka þá virkjunarkosti sem fyrir hendi
væru. Þegar ákvarðanir væru teknar
þyrftu upplýsingar að liggja fyrir um
alla þætti. Grunnrannsóknir á sviði
umhverfismála væru því mikilvægar,
en þær væru að stórum hluta unnar
af Landsvirkjun.
Nú er verið að vinna að aðalskipu-
lagi miðhálendisins, en í því verður
Landsvirkjun settur ákveðinn rammi
sem varðar ekki síst umhverfísstefnu
fyrirtækisins. Jóhannes Geir sagði að
Landsvirkjun hefði ýmsar athuga-
semdir fram að færa við fyrirliggjandi
tillögur. Það væri hins vegar mikil-
vægt fyrir Landsvirkjun að fyrir lægi
samþykkt aðalskipulag fyrir hálendið.
Umhverfisstefna Landsvirkjunar
gerir ráð fyrir að fyrirtækið verði
vakandi fyrir nýjum úrlausnum sem
gætu dregið úr röskun á umhverfi.
Jóhann Már sagðist ekki sjá fram á
að í náinni framtíð kæmi fram tækni
sem gerði það kleift að grafa allar
rafmagnslínur í jörðu. Sú tækni sem
væri til í dag þýddi að það kostaði
6-7 sinnum meira að leggja línurnar
í jörð en að leggja þær á landi eins
og nú er gert.
Umhverfisstefnan gerir sömuleiðis
ráð fyrir að Landsvirkjun setji sér
mælanleg markmið um að draga úr
röskun á náttúrunni. Jóhannes sagði
að fyrirtækið léti mæla notkun á spilli-
efnum og fylgdist með að þeim væri
eytt. Fyrirtækið hefði sett sér öryggis-
reglur sem ættu að draga úr líkum á
að spilliefni kæmust út í náttúruna. í
þessu efni hefði Landsvirkjun tekið
frumkvæði. Fram kom einnig á fundi
stjórnenda Landsvirkjunar með blaða-
mönnum að Landsvirkjun stæði fyrir
grunnrannsóknum í umhverfismálum
sem væru mun umfangsmeiri en lög
og reglugerðir kvæðu á um. Ástæðan
væri m.a. sú að það tæki 12-15 ár
að undirbúa og hanna virkjanir og
ítarlegar umhverfisrannsóknir væru
því ákaflega mikilvægur þáttur í und-
irbúningi.
Umhverfismálastarf _ Landsvirkj-
unar skiptist í þrennt. I fyrsta lagi í
Morgunblaðið/RAX
STJÓRNENDUR Landsvirkjunar,
Halldór Jónatnsson forsljóri, Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson stjórn-
arformaður og Jóhann Már Mar-
íusson aðstoðarforstjóri voru
hugsi yfir nýsamþykktri um-
hverfisstefnu fyrirtækisins.
umhverfisdeild sem sinnir grunnrann-
sóknum á ýmsum sviðum umhverfis-
mála, varðveitir gögn og hefur umsjón
með samskiptum við skipulagsyfír-
völd. í öðru lagi ætlar Landsvirkjun
að ráða til starfa sérstakan umhverfís-
stjóra og þriðji þátturinn er kynning-
arstarf Landsvirkjunar í umhverfis-
málum.
Umfangsmiklar rannsóknir
Landsvirkjun hefur í gegnum árin
staðið fyrir umfangsmiklum umhverf-'
isrannsóknum á ýmsum sviðum, en
rannsóknir á umhverfi eru nauðsyn-
legur þáttur í undirbúningi og hönnun
virkjana. Sem dæmi má nefna að á
vegum fyrirtækisins hafa verið gerðar
rannsóknir á áhrifum virkjana á vöxt
og viðgang fískistofna í vötnum og
ám sem hafa verið virkjaðar. Áhrifín
eru t.d. jákvæði í Þórisvatni og
Blöndu, en neikvæð í Þingvallavatni.
Hugmyndir hafa verið settar fram um
hvemig megi bæta skilyrði fyrir urriða
í Þingvallavatni t.d. með því að bæta
möl í botn vatnsins.
Á síðustu 25 árum hafa farið fram
umfangsmiklar rannsóknir á vistfræði
svæðisins sunnan Hofsjökuls, í Þjórs-
árverum og nágrenni. Að mati Lands-
virkjunar eru þetta ítarlegustu nátt-
úrufarsrannsóknir sem gerðar hafa
verið á hálendi Islands. Landsvirkjun
hefur einnig staðið fyrir rannsóknum
á aurburði í Blöndu og Þjórsá. Rann-
sóknir fyrirtækisins á breytingum á
grunnvatsstöðu umhverfis lónin benda
til að lónin valdi verulegri gróður-
myndun á áður ógrónum svæðum.
Þetta má sjá neðan við lónin við
Hrauneyjafoss og Sultartanga.
Samtals er það landsvæði sem farið
hefur undir miðlunarlón Landsvirkjun-
ar frá upphafi um 160-170 ferkíló-
metrar. Þar af er tæpur helminguf
gróið land. Gróðurtapið hefur verið
bætt með uppgræslu, bæði í samræmi
við ákvæði iandgræðslulaga og vegna
samninga við hagsmunaaðila. Að
mati Landsvirkjunar lætur nærri að
tekist hafí að rækta jafn stórt land
og glatast hefur undir miðlunarlón á
sl. 30 árum.