Morgunblaðið - 12.09.1997, Page 47

Morgunblaðið - 12.09.1997, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997 47 BRÉF TIL BLAÐSINS i r i ► > y y > > > > I I P I I :í I Opið bréf til stjórnar Lífeyris sjóðs leigubifreiðastjóra Frá Júlíönu Guðmundsdóttur Bender: „LÍTIÐ munar vesælan." Mér datt nú þessi gamli málsháttur í hug þegar ég fékk bréf frá Lífeyrissjóði leigubifreiðastjóra í síðustu viku. Þar var mér tilkynnt að vegna slæmrar stöðu sjóðsins neyddist stjórn hans til að lækka lífeyris- greiðslur sjóðsins um fimm prósent á mánuði til styrkþega til áramóta, en þá yrði ákveðið hvað yrði gert varðandi framhald. Segja má að það sé varla papírs- ins virði að skrifa okkur ekkjum Egilsstaðir eða Austur- Hérað? Frá Jóni Þórarinssyni: ÞAÐ er mér, gömlum Héraðsmanni, fagnaðarefni hve eindregin sam- staða hefur náðst um sameiningu sveitarfélaganna á Héraði austan Lagarfljóts: Hjaltastaðaþinghár, Eiðaþinghár, Egilsstaðabæjar, Vallahrepps og Skriðdals. Þykist ég viss um að þetta skref muni efla byggðina alla í framtíðinni, auk þess sem sameiningin hlýtur að verða til mikils hag- ræðis og nokkurs sparnaðar þegar í stað. En um nafn á þessu nýja, samein- aða sveitarfélagi má ekki rasa um ráð fram. Samkvæmt frétt í Morg- unblaðinu í dag (10. sept.), fór fram skoðanakönnun um það efni í tengsl- um við atkvæðagreiðslu um samein- inguna. Niðurstaða könnunarinnar varð sú, að Egilsstaðir var það nafn sem flest atkvæði fékk, og er það skiljanlegt þar sem Egilsstaðabær er langfjölmennasta sveitarfélagið sem hér á hlut að máli. Næstflest atkvæði fékk nafnið Hérað og þar næst Austurhérað. Egilsstaðir (eða Egilsstaðabær) er ágætt nafn á þeim þéttbýliskjarna sem myndast hefur á síðustu áratug- um, aðallega í landi Egilsstaða á Völlum. En væri það nafn sett á nýja sveitarfélagið allt kæmu óhjá- kvæmilega fram einkennilegar og óviðfelldnar staðarákvarðanir. Eða hvað finnst heimamönnum t.d. um Unaós á Egilsstöðum, Eiða á Egils- stöðum eða Þingmúla á Egilsstöð- um? Þetta sýnist mér útiloka Egils- staðanafnið. Það er of þröngt. Hérað er fyrir löngu orðið sérnafn á Austurlandi sem stytting á fullu nafni Fljótsdalshéraðs. Hið nýja sameinaða sveitarfélag er allt á Héraði, en þar eru auk þess íjögur (eða fimm) sveitarfélög sem samein- ingin tekur ekki til að svo stöddu: Fljótsdalur, Fellahreppur, Hróars- tunga, Jökulárshlíð og jafnvel Jökul- dalur. Samkvæmt gamalli málvenju væri Norður-Hérað réttnefni á sveit- arfélagi sem stofnað yrði ef þessir hreppar norðan Fljóts kysu að sam- einast einir sér. En velji þeir síðar að sameinast nýja sveitarfélaginu austan Fljóts væri Fljótsdalshérað, eða styttra Hérað, réttnefni þess víðlenda sveitarfélags sem þá yrði til. En Héraðs-nafnið er of vítt á meðan sameiningin nær ekki lengra en nú blasir við. Austur-Hérað (ekki Austurhérað) er réttnefni á nýja sameinaða sveit- arfélaginu. Egilsstaðabær og allir hrepparnir sem nú eru að sameinast eru á Austur-Héraði, og þar er ekki önnur byggð. Engan mundi það meiða þótt talað væri um Unaós, Eiða eða Þingmúla á Austur-Héraði. Sá sem þetta skrifar er fæddur á Gilsárteigi í Eiðaþinghá. Sá bær er á Austur-Héraði, og sætti ég mig við að hann væri þannig auðkennd- ur, enda þótt eftirsjá sé í þinghár- nafninu. Ætli Hjaltastaðaþinghá og Eiðaþinghá séu ekki einu þinghárnar á landinu? JÓN ÞÓRARINSSON, tónskáld. þessa sjóðs um þessi mál, þar sem mánaðargreiðslan hefur verið svo lág, eða aðeins 3.082 kr. á mánuði og af því er tekinn skattur svo í mínu tilfelli hef ég fengið greiddar 2.778 kr. mánaðarlega. Ekki stórt, en munar um er lítt er til. Nú á sem sé að lækka þetta enn frekar um 15% (fimmtán prósent) til viðbótar svo upphæðin sem greidd verður út verður ekki umtalsverð þegar upp er staðið. Maðurinn minn var leigubílstjóri í 50 (fimmtíu) ár og einn af stofnend- um Hreyfils, þar af leiðandi einn af þeim sem greiddi frá upphafi í bygg- ingarsjóð, sjúkrasjóð, ekknasjóð, af- mælissjóð og hvað þeir nú heita all- ir sjóðirnir er greitt var í á tímum er lítið var til skiptanna. Kvittanir eða yfirlit fyrir öllu þessu hef ég séð, lífeyrissjóðurinn var látinn sitja á hakanum þar fyrir fáum árum, með fyrrnefndum ár- angri og afleiðingum. Verð ég að segja að þetta er léleg útkoma á langri starfsævi með löngum og erf- iðum vinnudegi dag hvern öll 50 árin. Ég hafði viðtal við skrifstofu fé- lagsins þegar Ingólfur minn féll frá og spurðist fyrir um aðstoð frá ekknasjóðnum, er hann hafði alla tíð greitt í. Svarið var einfalt. Engin aðstoð af neinu tagi, ekki einu sinni blómvöndur, en náðarsamlegast var fáni félagsins látinn standa í kirkj- unni við athöfnina svona til að aug- lýsa að félaginn stæði ekki einn, hann nyti stuðnings og verndar fé- laga sinna síðasta spölinn. Mig langar að spyija hvort það sé við hæfi að skerða lífeyrissjóðs- greiðslur til styrkþega án þess að fá til þess samþykki sjóðsfélaga og gefa tilhlýðandi skýringar, við erum jú eigendur sjóðsins og sjóðanna er við höfum greitt í, ekki satt. Ef ellilífeyrissjóðurinn er svona bágborinn langar mig að vita hvern- ig staða annarra sjóða eins og bygg- ingar- og húseignasjóða sé. Ég geri það að tillögu minni, ef staða þeirra leyfír, að þeir leggi fram framlag til styrktar lífeyrissjóðnum svo hann geti að minnsta kosti staðið við lág- marks lífeyrisgreiðslur samkvæmt almennum reglum. Ég undirrituð er venjulegur ellilíf- eyrisþegi í lífeyrissjóði verkakvenna, þar sem ekki er af miklu að taka. Ég get því ekki orða bundist þegar ég verð fyrir svona framkomu og vil gjarnan fá skýringar hvernig við ekkjur bifreiðastjóra stöndum í þessu tilfelli. Ég er sannfærð um að það eru fleiri sammála mér og í sömu stöðu. JÚLÍANA GUÐMUNDSDÓTTIR BENDER, Kleppsvegi 6, Reykjavík. VINNINGASKRA HEiiTI) ALOREI HAPPA- ÞRENNU Þeir sem ekki fá vinning á Happaþrennuna geta merkt miðann og skilið hann eftir á sölustaðnum og áttvon á glæsilegum aukavinningum. Morgunblaðið birtir nöfn vinningshafa á hverjum föstudegi. 4 4 HEPPNiR ÍSLEN0IM6AR HAFA Á SíflUSTU OöGUM FENGifl ViNNiNGA A HAPPAÞRENNUR SEM SELST HAFA A EFTÍRTÖLGUM SIöflUM Hagkaupi, Hólagarði 50.000 Hagkaupi, Skeifunni 50.000 Söluturninum Múla, Suðurtandsbraut 26 50.000 Brautarnesti, Keflavík 100.000 Hagkaupi, Njarðvík 500.000 Söluturninum Læk, Lækjargötu 2a. Rvk 100.000 Bónus, Holtagörðum 50.000 Ársól í Garði 50.000 Borgarfirði Eystra 50.000 Bolungarvík 100.000 URVAL-UTSYN VINN1N6SHAFAR 10. SEPTEMBER 1997 B0RGARFERÐ FYRIRTVO - MEÐ URVALIUTSYN Hafdís Anna Ægisdóttir. Hraunbraut 19.200 Kóp. PIONEER - HUÓMTÆKJASAMSTÆÐA Helgi Fr. Kemp. Réttarstíg 5.735 Eskrfirði M0NG00SE - ALVÖRU FJALLAHJÓL Ingihjörg Atma Fjetösted, Meistaravötlum 25.107 Rvk B0LIR - FRÁ X-TRA BÚÐINNI Ingibjörg Hinriksdóttir, Safamýri 19.108 Rvk S. Kolbrún Indriðadóttir. Ártandi 8.108 Rvk Eyjólfur Hjaitarson, Dyngjuvegi 1.104 Rvk Axet Guðmundsson. Jörfabyggð 16.400 Akureyri Ama R. Einarsdóttir. Skótavegi 50a. 750 Fásk. Kristján Úskarsson. Steinhótum. 401 Akureyri Jána Björg Margeirsdóttir. Sólbakka 1.760 Breiðd. Guörún Lísa Harðardóttir. Meistaravöllum 25.107 Rvk Ragnar H. Svanbergsson. Laufengi 24.112 Rvk Guðni Jónsson. Vifilsgötu 14.105 Rvk BÍÓMIÐAR - FYRIRTVO Tryggvi / Kristófer Mássynir. Sundlaugavegi 7.105 Rvk Jón Ragnar Gunnarsson. Borgarbraut 25.510 Hólmavik Aðatsteinn Svan Hjelm. Miðvangi 2.220 Htj. Hetga G. Asgeirsdóttir. Htíðarfiaga. 601 Akureyri Ásrún Ingvarsdátör, Réttarbakka 19.109 Rvk Gudrún E Björgálfsdóttir. Yrsufelli 1.111 Rvk Lúlla Kr. Nikutásdóttir. Grænási 1a. 240 Njarðvtk Konný Hákonar. SmárahUð 18e. £00 Akureyri Torfi Sigurðarson. Kottröð 4.700 Egilstaðir Birgir K. Ragnarsson. Flúðarseti 12.109 Rvk Albert Sigurísson. Hétsvegi 7.680 Þórshöfn Elin Einarsdóttir. FffuseU 21.109 Rvk Ágústa N. Þorsteinsdóttir. Mávahb'ö 4.105 Rvk Karen Rut Konráösdótbr. Sunnuvegi 10.480 Þórshöfn Sigríður Þ. Sæmundsdátfir. Lækjarbraut 14.851 Heltu flö PIONEER' The Art of Entertalnment dlvÖPU fi í NIESTU VIKU VERfiUR ÖRESIN ÖT FERfl " TiLMEXíKó FVRíR TVfl \HA*m ^iSiiinÉw olla / HASKOLABIÓ Jón Þórarinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.