Morgunblaðið - 12.09.1997, Side 51

Morgunblaðið - 12.09.1997, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997 51 FOLKI FRETTUM Mótettukór HaUgrímsldrkju býður góðum tenórum og bössum til samstarfs á spennandi starfsári. Upplýsingar hjá Herði Áskelssyni, vs. 510 1000 eða hs. 5511019. Jeff finnur eig inkonu sína hvergi þegar hann kemst loksins á jeppanum til arinsþar þau ætluðu að hittast. Kvikmyndir/Sambíóin sýna spennumyndina Breakdown með Kurt Russell, J.T. Walsh og Kathleen Quinlan í aðalhlutverk- um. Myndin fjallar um hjón sem lenda í hremmingum ÝMISLEGT gengur á þegar Jeff reynir sitt ítrasta til að finna eiginkonu sína sem virðist hafa horfið sporlaust. Stutt Best stofnar hljómsveit þ- TROMMULEIKARINN Pete Best var rekinn úr Bítlunum áður en þeir slógu í gegn og Ringo Starr kom í hans stað. Best hef- ur nú byijað feril sinn að nýju og sett saman hljómsveit. Flestir meðspilarar hans voru ekki fæddir þegar Bítl- arnir lögðu upp Iaupana árið 1970. Best, sem er 55 ára, segir að hljómsveitin muni flytja Bítlalög og vinsæl lög frá sjötta áratugnum. „Það hefði verið auðvelt fyrir mig að velja meðspil- ara frá Bítlaárunum, en eftir að hafa velt vöngum ákvað ég að stofna hljóm- sveit sem væri meira í anda tíunda áratugarins; kraftmikla hljómsveit." Verðlaun djass- gagnrýnenda ► SAMTÖK djass-gagnrýnenda í New York, sem samanstanda af þrettán rithöfundum, hafa veitt tónlistarmönnum viður- kenningu fyrir framlag sitt 1997. Verðlaunin vekja athygli vegna þess að samtökin endurspegla viðhorf þröng-s hóps gagnrýn- enda í New York, sem eru áber- andi í djassheiminum. Utan alfaravega Hefur von- lausa leit að eiginkonu sinni ÞAU Jeff (Kurt Russ- ell) og Amy (Kathleen Quinl- an) lenda í vandræðum þegar nýi jeppinn þeirra bilar í dreifbýlinu. Þeir sem hlutu viðurkenningu voru Ornette Coleman, saxafón- leikari og lagasmiður, sem tón- listarmaður ársins, Benny Cart- er, saxafónleikari og lagasmiður, fyrir æviframlag sitt til djasstón- listar, Matt Wilson, trommuleik- ari, sem besti nýi listamaðurinn, og Cassandra Wilson, sem besti söngvari. Frumsýning ÞAÐ eru ósköp venjuleg banda- rísk hjón sem eru á ferðalagi í bíl sínum um suðvesturríki Bandaríkjanna á leiðinni frá Boston til San Diego þar sem þau ætla að setjast að og byrja nýtt líf. Þau ákveða að fara fáfarnari leið þar sem útsýnið er stórbrotnara en ef farið er eftir hraðbrautunum skemmstu leiðina. Þau gera sér fullkomlega grein fyrir því að fyllsta ástæða er til að fara varlega jafnvel þótt þau séu á glænýjum jeppa sem ætti að komast hvert á iand sem er. Ferða- lagið reynir hins vegar á taugar þeirra Jeffs (Kurt Russell) og Amy (Kathleen Quinlan) þegar þau sleppa naumlega við að lenda í árekstri við ökuníðing sem svínar á þeim á trukknum sínum, og ekki batnar ástandið þegar jeppinn bilar skyndi- lega þar sem þau eru stödd óravegu frá næsta mannabústað og utan símasambands. Flutningabíll kemur hins vegar á vettvang og ___________ vingjarnlegur bílstjórinn, Red (J.T. Walsh) gefur sig á tal við þau. Hann kíkir á jeppann og kemst að þeirri niðurstöðu að vélin hafí ofhitnað og ekkert sé annað fyrir þau skötuhjúin að gera en bíða róleg. Hann býðst til að skutla Jeff að áningarstað flutningabílstjóra sem er nokkrar mílur í burtu, en þar geti hann hringt eftir dráttarbíl frá næsta þorpi. Eftir smáhik ákveða þau að Amy fari með Red en Jeff verði eftir og gæti aleigu þeirra sem er í jeppanum. Skömmu eftir að Amy fer með Red rekur Jeff augun í víra sem virðast hafa verið slitnir úr sambandi í vélarhúsi jeppans og eftir að hafa tengt þá reynist honum hægðar- leikur að koma farartæk- inu í gang. Hann ekur sam- stundis á eftir þeim Amy og Red að áningarstaðnum þar sem hann ætlaði að hitta konu sína, en þar sést hvorki tangur né tetur af henni og enginn á staðnum hefur séð hana. Enginn kannast heldur við Red eða flutningabílinn hans. Jeff hefur að því er virðist vonlausa leit að eiginkonu sinni og ekki líður á löngu þar til hann lendir í kasti við náunga sem hann átti alls ekki von á að þurfa að komast í kynni við. Kurt Russell heldur sig enn við svipað heygarðshorn og í fyrri myndum en hann er nú hægt og bít- andi að skapa sér nafn á nýjan leik eftir að ferill hans sem leikari virtist á hraðri niðurleið. Kurt er fæddur 17. mars 1951 í borginni Springfield í Massachussetts, sonur leikarans Bing Russell sem lék aðstoðarlög- reglumann í sjónvarpsþáttunum Bonanza um sex ára skeið. Kurt var aðeins 10 ára gamall þegar hann fékk hlutverk í kvikmyndinni It Hap- pened at the World’s Fair, sem eng- inn annar en Elvis Presley lék aðal- hlutverkið, en árið 1960 gerði Walt Disney samning til 10 ára við hinn unga leikara og undirritaði Disney sjálfur samninginn. Þegar Kurt var 12 ára fór hann með aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttaröð, en á þessum árum lék hann jafnframt í fjölda annarra sjónvarpsþátta og mörgum kvikmyndum fyrir Disney. Þegar tími hans sem bamastjörnu var á enda sneri hann sér að hafnaboltaleik og fetaði hann þar með í fótspor föður síns, sem hafði verið atvinnumaður í íþróttinni áður en hann byrjaði að _________ ieika í Bonanza. Meiðsli sem Kurt hlaut á öxl urðu hins vegar til þess að hann sneri sér aftur að leiklist- inni og árið 1979 lék hann í sjónvarpsmyndinni Elvis, sem John Carpenter leik- stýrði, og hlaut hann til- nefningu til Emmy-verðlauna fyrir frammistöðu sína. í kjölfarið fylgdi hlutverk í kvikmyndinni Used Cars (1980) og ári síðar réð John Carpent- er hann til að fara með hlutverk í myndinni Escape from New York, en þeir áttu síðar eftir að vinna sam- an að myndunum The Thing (1982), Big trouble in Little China (1986) og Escape from L.A. (1996). Árið 1983 lék Kurt Ruseell á móti Meiyl Streep í Silkwood og var hann til- nefndur til Golden Globe verðlauna fyrir hlutverkið. Ári síðar urðu svo tímamót í lífí hans þegar hann lék á móti Goldie Hawn í myndinní Swing Shift. Þau féllu hvort fyrir öðru og hafa búið saman síðan á búgarðinum Home Run Ranch skammt frá borg- inni Aspen í Colorado. Saman eiga þau soninn Wyatt, en fyrir átti Kurt soninn Boston með leikkonunni Sea- son Hubley sem hann var kvæntur um skeið. Næstu kvikmyndir sem Kurt Russell lék í ollu flestar hveijar vonbrigðum en meðal þeirra eru The Best of Times (1986), Overboard (1987), Tequila Sunrise (1988) og Winter People (1989). Ferill hans sem leikari virtist kominn í öng- stræti þegar honum áskotnaðist hlut- verk í Tango & Cash (1989) eftir að Patrick Swayze hafði hafnað því. Sömuleiðis fékk hann hlutverk í Backdraft (1991) eftir að Dennis Quaid hafði hafnað því hlutverki. Þessar tvær myndir áttu stóran þátt í að koma ferli Kurts á réttan kjöl að nýju, og hann var aftur kominn á listann yfir helstu stjömurnar í Hollywood eftir að hann fór með hlutverk Wyatt Earp í Tombstone (1993) og hlutverk í ævintýramynd- inni Stargate (1994) sem naut mik- illa vinsælda. Næsta mynd hans var Executive Decision (1996) sem einn- ig náði talsverðum vinsældum og í fyrra lék hann svo í Escape from L.A. eins og áður sagði. J.T. Walsh lék með Kurt Russell í Tequila Sunrise, Backdraft og Executive Decision, en meðal fjölda annarra kvikmynda sem hann hefur leikið í eru Good Moming, Vietnam, A Few Good Men, The Ciient, Outbreak og Nixon. Fyrsta kvik- myndahlutverk Kathleen Quinlan var í Ámerican Graffiti sem George Luc- as leikstýrði. Meðal mynda sem hún hefur leikið í eru The Doors, Trial by Jury og Apollo 13. Smiðjuvcgí 14, rauð gata, Kópavogí, símí 587 6080 Hljóinsveítin Sunnan tvcír leíkur föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. SNYRTILEGUR KLÆÐNAÐUR STÓRT DANSGÓLF SJÁUMST HRESS í GALASTUÐI!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.