Morgunblaðið - 12.09.1997, Page 56
56 FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Hagatorgi, sími 552 2140
MUNIÐ BEAN HAPPAÞRENNUNA.
AÐALVINNINGUR TVÆR TOYOTA COROLLA.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
Sýnd kl. 5, 7.20, 9 og 11. B.i. 12.
Eccieston Kate Winslet
1/2 GE DV
TuÐE
Sýnd kl. 9.15. B.i. 14. Síðustu sýningar!
Sýnd kl. 4.45. B.i. 12
Sýnd kl. 7. Síð. sýn.
KUN EN PIGE
Meistaraverk byggt á ævi Lise
NÖRGAARD, HÖFUNDAR MATADOR,
VERÐUR FRUMSÝND Á MÁNUDAG
KL. 7.30. LISE NÖRGAARD VERÐUR
VIÐSTÖDD FRUMSÝNINGUNA.
www.mrbeain.co.uk
A4Mirrfflfc[ ^iiTiiiti Ámtrtáii muírim M^úriyfe:i
oaS.
S46A4
Alfabakka S. simi SS7 S900 og SS7 8903
ínAuuiJjyuÁm
MISSiR ÞU
ANOLITIÐ í OAC?
assíSsiWE
★ ★★^r DV.
„Fcice/off er ekki aðeins langsomlega besta
mynd þessarar drslíðar heldur framúrskaran-
di hröð og lífleg... frumleg, vel skrifuð og
leikin fantaskemmtun sem ætli að vera
auðkennd hdspenna/lífshætta. Tæknivinnslan
er óaðfinnonleg, sömuleiðis taka og klipping
og Travolta er í essinu sínu i tvöföldu
hlulverkinu og Cage lítið síðri." SV MBL
Kurt Russel er
kominn afturv
mynd sem færir
þig á fremstu
brún sætisins.
Ógnvekjandi
mynd um
nokkuð sem
gæti hent
hvern sem er. I
Settu þessa
mynd efst á
listann yfir þær
myndir sem þú
átt eftir að sjá.
I
breakdown
MATTHEW BRODERICK ME(I RYAN
TVEIR
NIPPINU
mmm
★★★
WgOSE
Sýnd kl. 5, 9 og 11.
Sýnd kl. 5, 6.40, 9 og
11. B.i 16. Bi
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. b.m4. amnr,nai
Neyðarhjálp úr norðri
Fjöldi listamanna
leggur málstaðnum lið
ANNA Kristine Magnúsdóttir,
sem sér um þáttinn Milli mjalta
og messu í Ríkisútvarpinu,
stendur fyrir góðgerðartónleik-
um í Háskólabíói 20. september
nk. Bera þeir yfirskriftina
„Neyðarhjálp úr norðri“ og þar
verður blandað saman óperu,
poppi, djassi og þjóðlögum svo
fátt eitt sé nefnt.
Agóði tónleikanna rennur til
heimilislausra Tékka. „Þetta fólk
er allslaust eftir flóðin í Tékk-
landi,“ segir Anna Kristine.
„Ennþá búa um 12 þúsund
manns í íþróttahúsum og skól-
um, enda eyðilögðust hátt á
fimmta þúsund íbúðarhús. Þá
fóru fjölmörg fyrirtæki í rúst,
sem veldur því að fólkið er einnig
atvinnulaust."
Anna Kristine er sjálf af tékk-
nesku bergi brotin. „Ég er fædd
Mikulcáková og bar raunar það
nafn til sjö ára aldurs,“ segir
hún. „Þá varð pabbi að skipta um
nafn af því hann gerðist íslensk-
ur ríkisborgari."
Heimildarmynd um
tónleikana
Tökulið frá tékknesku sjón-
varpsstöðinni TV Prima kemur
til landsins af þessu tilefni og
verður gerð heimildarmynd um
tónleikana. Þá kemur til greina
að tékkneska ríkisútvarpið verði
með dagskrá um tónleikana.
Fjöldi þjóðþekktra tónlistar-
manna kemur fram og gefa allir
vinnu sína. Einkum verður Páll
Oskar Hjálmtýsson í stóru hlut-
verki, að sögn Önnu Kristine.
Hann mun koma þrisvar fram og
syngja m.a. tvær ballöður við
undirleik píanós og fíðlu. Dans-
ararnir Brynjar Örn Þorleifsson
og Daníel Traustason munu stíga
dans við eitt af lögum Páls
PÁLL Óskar Hjálmtýsson er
einn helsti hvatamaður tón-
leikanna.
SIGRÚN Hjálmtýsdóttir k
fram á tónleikunum.
Óskars. Þá syngur Sigrún
Hjálmtýsdóttir, systir hans, við
undirleik Önnu Guðnýjar Guð-
mundsdóttur.
Peter Maté, sem kvæntur er
tékknesku konunni Lenku
Mátéova, leikur á píanó ásamt
tékkneska píanóleikaranum Pa-
vel Smíd. Einnig munu
flautuleikararnir Guðrún Birgis-
dóttir og Martial Nardeau leika
sígild verk.
Alina Dubik, mezzósórpan-
söngkona, syngur við undirleik
Pavel Manáseks, sem er tékk-
neskur píanó- og orgelleikari við
Háteigskirkju. Þá kemur Ríó
tríó fram ásamt Gunnari Þórð-
arsyni, Gretti Björnssyni, Birni
Thoroddsen, Magnúsi R. Ein-
arssyni, Gunnlaugi Briem og
Szymon Kuran.
Bjarni Arason og milljóna-
mæringai-nir stíga einnig á
svið, Tríó Björns Thoroddsens
kemur fram með Agli Ólafs-
syni, kvennakórinn Vox Fem-
inae syngur undir stjórn Mar-
grétar J. Pálmadóttur og Signý
Sæmundsdóttir og Björk Jóns-
dóttir flytja Tvísöngva Dvor-
áks ásamt Gerret Scruil.
HLUTI listamannanna sem kemur fram á tónleikum hittist heima
hjá Önnu Kristine á laugardaginn, f.v. Pavel Manásek, Elísabet
Manásek, Alina Dubik, Peter Máté, Anna Kristine Magnúsdóttir,
Margrét Pálmadóttir, Ólafur Þórðarson og Sigríður Anna Ellerup.
Vanmetin snilld
TOJVLIST
Geisladiskur
RAGGA AND THE JACK
MAGIC ORCHESTRA
Geislaplata samnefndrar hljómsveit-
ar sem er skipuð hjónunum Ragnhildi
Gísladóttur og Jakobi Frímanni
Magnússyni ásamt Englendingnum
Mark Stephen Davies. EMI gefur út.
1.999 kr. 61 mín.
RAGNHILDUR Gísladóttir og
eiginmaður hennar, Jakob Frím-
ann Magnússon, hafa á áralöngum
listaferli sínum sýnt að þeim er
margt til lista lagt. Þekktust eru
þau fyrir að hafa verið í hljómsveit-
inni Stuðmönn-
um, sem er
löngu samgróin
þjóðarsálinni og
hefur verið að
hætta og byrja
aftur í gegnum
tíðina.
Nýjasta ævin-
týri þeirra er
einnig á tónlist-
arsviðinu, en á
að öðru leyti fátt
skylt með Stuð-
mannafyrirbær-
inu. Reyndar er
Ragnhildur að-
alsöguhetja og
burðarás ævin-
týrisins, sem er
hljómsveitin
Ragga and the
Jack Magic
Orchestra. Hún
semur öll lögin
ásamt rafhljóða-
spámanninum
Pylon King, Kon-
ungi háspennumastursins í laus-
legri þýðingu. Tónlistin er fram-
sækin og á lítið skylt við gömlu úti-
legulögin.
Platan er meistaralega vel gerð, öll
vinnubrögð og hljóðfæraleikur eru
í hæsta gæðaflokki. Jakob leikur á
alls kyns gamaldags orgel sem
blandast skemmtilega við nýtísku-
legan rafhljóðaheim Pylon-kóngs-
ins. sem kann ereinileera vmisleert
fyrir sér. Hljómur er einstaklega
góður, en fer að einu leyti mjög í
taugarnar á undirrituðum. S-hljóð-
in eru deyfð með svokallaðri
„díessun" (á máli hljóðmanna) sem
gerir að verkum að Ragnhildur er
smámælt meira og minna alla plöt-
una. Það er þó ljóður lítill á ráði
Galdrasveitarinnar.
Lagasmíðar Ragnhildar og
Pylon-kóngsins eru afbragðsgóðar
og vinna á með hverri hlustun.
Reyndar er furðulegt að sveitin
skuli ekki hafa notið meiri hylli,
enda hefur hún hlotið góða dóma í
erlendum tónlistarblöðum.
Kannski ræður þar slakt val á
fyrstu smáskífu, sem var lagið
Where Ai-e They Now? sem að
mínu mati er einna slakast á plöt-
unni. Platan, sem vissulega má
kalla meistaraverk (a.m.k. á ís-
lenskan mælikvarða), hefur verið
lítið spiluð á íslenskum útvarps-
stöðvum en ég vil nú beina þeim til-
mælum til útvarpsmanna að kynna
hana fyrir þjóðinni.
ívar Páll Jónsson
RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR, Jakob Magnússon
og Marks Stephen Davies.