Morgunblaðið - 16.11.1997, Qupperneq 38
38 SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
F.V.: Frosti Þórðarson, markaðsstjóri, og Örn Þórisson, fram-
kvæmdastjóri, taka hér upp fyrstu eintökin á AtilÖ.
AtilÖ
komin út
ný og end-
urbætt
UM ÞESSAR mundir er verið að
dreifa þjónustuskránni AtilÖ inn á
hvert heimili og fyrirtæki á höfuð-
borgarsvæðinu. Handbókin inni-
heldur upplýsingar um öll fyrir-
tæki, stofnanir og þjónustuaðila á
höfuðborgarsvæðinu, alls rúmlega
9.000 aðila, auk þess sem í henni
er að fínna götukort o.m.fl. Bókin,
sem er nærri 400 blaðsíður að
stærð, gefin út í 72 þúsund eintök-
um og prentuð á yfir 3.000 tonn
af pappír, mun vera eitt stærsta
prentverk á íslandi ef símaskráin
er undanskilin. Útgefandi er Miðlun
ehf.
AtilÖ þjónustuskránni er skipt í
tvo meginhluta, gular síður og hvít-
ar. Á gulu síðunum er fyrirtækjum
skipað eftir starfssviðum en í staf-
rófsröð á þeim hvítu. í bókinni eru
að auki sérstaklega unnir kaflar
sem veita samhæfðar upplýsingar
hver á sínu sviði. Þannig er sérstak-
ur kafli helgaður ungu fólki, annar
helgaður heimilinu og sá þriðji bíln-
um. Nýjung í 1998 útgáfunni er
ítarlegur kafli um veitingahúsin á
höfuðborgarsvæðinu.
Hvítu síðurnar í AtilÖ eru í raun
fullkomin símaskrá yfir rekstrarað-
ila á höfuðborgarsvæðinu. Loks er
kafli þar sem veittar eru upplýs-
ingar um þjónustu sveitarfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu. í bók-
inni er jafnframt að finna götukort
fyrir þessi sveitarfélög.
sfmsx Dagbók
Háskóla
íslands
ALLT áhugafólk er velkomið á
fyrirlestra í boði Háskóla íslands.
Dagbókin er uppfærð reglulega á
heimasíðu Háskólans:
http://www.hi.is
Sunnudagurinn 16. nóvem-
ber: Dagur íslenskrar tungu. Opn-
uð verður og kynnt vefsíða í
Landsbókasafni Islands - Há-
skólabókasafni með efni eftir Jón-
as Hallgrímsson og um hann.
Mánudagurinn 17. nóvember:
Robert Magnus, fræðimaður á
Raunvísindastofnun, flytur fyrir-
lestur í málstofu í stærðfræði í
stofu 248 í húsi verkfræði- og
raunvísindadeildar Hjarðarhaga
2-6 kl. 14.45 og fjallar fyrirlestur-
inn um „Pjölkryppulausnir á ólínu-
legu Schrödinger-jöfnunni.“
Miðvikudagurinn 19. nóvem-
ber: Háskólatónleikar. Svava Ing-
ólfsdóttir mezzosópran syngur á
háskólatónleikum í Norræna hús-
inu kl. 12.30. Lögin sem flutt
verða eru eftir Dovrák, Sibelius
og Brahms. Aðgangur 400 kr.
Ókeypis fyrir handhafa stúdenta-
skírteinis.
Fimmtudagurinn 20. nóvem-
ber: Stefán Þ. Sigurðsson, líffræð-
ingur flytur fýrirlestur í málstofu
læknadeildar í sal Krabbameinsfé-
lags íslands í Skógarhlíð 8 kl. 16.
Fyrirlestur sinn nefnir hann: „Þeg-
ar verndari erfðaefnisins bilar:
Gallað p53 og litningabrengl í
sömu frumu.“
Gylfi Zoéga lektor við Birkbeck
College flytur fyrirlestur í mál-
stofu í hagfræði á 3. hæð í Odda
kl. 16 og ij'allar um: „Menntun og
náttúrulegt atvinnuleysi."
Júlíus Sólnes prófessor flytur
fyrirlestur á vegum málstofu um-
hverfis- og byggingarverkfræði-
skorar kl. 16.15 í stofu 157 í
VR-II, húsi raunvísinda- og verk-
fræðideilda við Hjarðarhaga 2-6
og fjallar um „Hönnun og hegðun
byggingarmannvirkja í tilviljunar-
kenndum heimi.“ Fyrirlesturinn
byggir hann á bók sinni Stoe-
hastic Processes and Random Vi-
brations sem kom út fyrr á árinu
hjá alþjóðlegu forlagi.
Guðmundur Hreinn Sveinsson,
lífefnafræðingur á Iðntæknistofn-
un, flytur fyrirlestur í málstofu í
efnafræði kl. 12.20 í stofu 158, í
húsi VR-II við Hjarðarhaga um
efnið: „Efnasmíð og greining
nýrra málmlífrænna tin(IV)-efna-
sambanda.“
Föstudagurinn 21. nóvember:
Kristbjörn Orri Guðmundsson,
MS-nemi, flytur fyrirlestur í mál-
stofu líffræðistofnunar kl. 12.20 í
stofu G-6 á Grensásvegi 12 um
„Blóðmyndandi stofnfrumur.“
Bjarni Ásgeirsson dósent flytur
fyrirlestur í málstofu í efnafræði
kl. 12.20 í stofu 158, í húsi VR-II
við Hjarðarhaga um efnið:
„Massagreining á arfbreyttu cy-
statin c.“
Laugardagurinn 22. nóvem-
ber: Islenska málfræðifélagið
gengst fyrir umræðufundi um ís-
lenska málstefnu kl. 13.30 til
15.30 í stofu 201 í Odda. Leitað
verður svara m.a. við þessum
spurningum: Hvernig er íslenskri
málstefnu framfylgt? Hver á að
framfylgja íslenskri málstefnu?
Þyrfti að breyta einhverju í fram-
kvæmd hennar? Hvað er best að
gera og hvað er hægt að gera
núna til að efla málið til framtíðar?
Haraldur Briem, dr. med., flytur
erindi á vegum hollvinafélags
læknadeildar um horfna sjúkdóma
og nýja kl. 14 í Háskólabíói. Fyrir-
lestur sinn nefnir Haraldur: „Far-
sóttir, vágestur að fornu og nýju.“
Sýningar:
Stofnun Árna Magnússonar í
Árnagarði.
Handritasýning opin almenn-
ingi í Árnagarði þriðjudaga, mið-
vikudaga og fimmtudaga kl.
14-16. Tekið verður á móti hópum
á öðrum tímum sömu daga, ef
pantað er með dags fyrirvara.
Landsbókasafn Islands - Há-
skólabókasafn.
Dagur íslenskrar tungu 16. nóv.
Opnuð verður og kynnt vefsíða í
Landsbókasafni Íslands - Hár
skólabókasafni með efni eftir Jón-
as Hallgrímsson og um hann.
Prestaskólinn í Reykjavík 150 ára,
1847-1997, sýningin er til 29.
nóvember.
Námskeið á vegum Endur-
menntunarstofnunar HÍ vikuna
17.-22. nóvember.:
17., 18. og 19. nóv. kl. 8.30-
12.30. Forritunarmálið PERL.
Kennari: Konráð Konráðsson tölv-
unarfræðingur hjá Teymi hf.
17. nóv. kl. 12.30-16. Starfs-
mannaval og móttaka nýrra
starfsmanna. Kennari: Svafa
Grönfeldt MSc., framkvæmda-
stjóri Starfsmannaráðgjafar Gall-
up.
17. og 18. nóv. kl. 8.30-16.
Verkefnastjórnun (Project
Management) sem stjórnunarað-
ferð í venjulegum verkefnum fyrir-
tækja. Kennari: Tryggvi Sigur-
bjamarson ráðgjafarverkfræðing-
ur.
17., 18. og 19. nóv. kl.
16-19.30. Erlendar fjárfestingar
á íslandi og samningar á því sviði.
Kennarar: Árni Vilhjálmsson hrl.,
Halldór J. Kristjánsson, ráðuneyt-
isstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neyti, Hjörtur Torfason hæstarétt-
ardómari, Jakob R. Möller hrl., Jón
Finnbjörnsson dómarafulltrúi;
Héraðsdómi Rvk. og Othar Örn
Petersen hrl.
18. og 19. nóv. kl. 12.30-16.
Unix 3. Kennari: Helgi Þorbergs-
son, Ph.D., tölvunarfræðingur hjá
Þróun ehf.
18., 19. og 20. nóv. kl. 16.15-
19.30. Upprifjun fyrir fjármála-
stjóra, reikningshaldara o.fl.
Helstu lög, reikningsskilareglur
o.fl. Kennari: Árni Tómasson, end-
urskoðandi hjá Löggiltum Endur-
skoðendum hf., stundakennari við
HÍ.
19. og 20. nóv. kl. 8.30-12.30
og 24. og 25. nóv. kl. 8.30-12.30.
Verkefnastjórnun í hugbúnaðar-
gerð. Kennari: Helga Siguijóns-
dóttir tölvunarfræðingur, sérfræð-
ingur hjá Þróun ehf.
19. nóv. kl. 16-19. Samkeppn-
is— og höfundarréttarákvæði í
ráðningarsamningum. Kennarar:
Hrafnhildur Stefánsdóttir, lög-
fræðingur VSÍ, Gunnar Sturluson
hdl., Árni Vilhjálmsson hrl. o.fl.
20. nóv. kl. 9-12. Verkuppgjör,
skjalavarsla og skýrslugerð. Kenn-
ari: Kolbeinn Kolbeinsson, bygg-
ingarverkfræðingur, ístaki hf.
20. nóv. kl. 13-16. Framfærsla
barna og milli hjóna. Kennari:
Áslaug Þórarinsdóttir deildarstjóri
í dómsmálaráðuneytinu.
20. nóv. kl. 16-19. Fjárskipti
hjóna. Kennarar: Steinunn Guð-
bjartsdóttir hdl., Lögmannsstof-
unni sf. og Ásdís Rafnar hdl.
20. nóv. kl. 13-17 og 21. nóv.
kl. 8.30-12.30. Umferðarmæling-
ar. - hávaðalíkön, mælingar og
varnir. Kennarar: Steindór Guð-
mundsson verkfræðingur á Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðar-
ins og Gísli Karel Halldórsson,
verkfræðingur á Almennu verk-
fræðistofunm.
Haldið á ísafirði 20. nóv. kl.
9.30-17. Stefnumótun og stjórn-
un markaðsmála. Kennarar: Þórð-
ur Sverrisson og Jón Gunnar Að-
ils MBA, báðir rekstrarhagfræð-
ingar og ráðgjafar hjá Forskoti
ehf.
21. nóv kl. 9-14. Forsjármál,
umgengismál og réttur til upplýs-
inga um barn. Kennari: Drífa Páls-
dóttir skrifstofustjóri í dómsmála-
ráðuneytinu.
21. nóv. kl. 14-17 og 22. nóv.
kl. 9.30-12.30. Mannréttindaregl-
ur í stjórnarskrá og alþjóðasamn-
ingum. Umsjón: Björg Thorarens-
en, lögfræðingur og skrifstofu-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu.
HUGMYNDASAMKEPPNI UNGS FOLKS í VÍSINDUM OG TÆKNI
GVISIR
fer fram í Hinu Húsinu
25. apríl 1998
Keppendur skulu vera á
aldrinum 15 - 20 ara»
Frestur til aö sækja uin
rannsoknarstyrk til Isaga
er til 8. janúar
■ I 'II—E- t
4f *
•iií *S:
K Hfc
VinnjngshafarTOppninnar
fá vegleg peningaverölaun
asamt boöi um þatttoku i
Evropukeppnftingra visindamanna
i Lissabon/Portúgal i september
*¥*
mu
\w,j
ildssknÍúm
wm Sjáiö auglysingar i|patnhöldsskoium
Nanan upplýsingar liggja frammi á f^rifstw skólans
Þátttaka í Hugvísi opnar möguleika og gefur tækifæri!
(í
<
(
<
(
(
i
I