Morgunblaðið - 26.11.1997, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 3
*ss
í
,
Björn Ólafsson,
Einar Stefánsson.
Hallgrímur'Magnússon
og Hörður Magnússon
segja sögu íslenska
Everest-leiðangursins 1997
/J»H
/
íslenska þjóðin stóð á öndinni og fylgdist með þvi
þrekvirki er þeir Björn Ólafsson, Einar Stefánsson og
Hallgrimur Magnússon klifu tind Everest i vor. Hér
segja þeir alla söguna - segja frá átökum, ótta,
spennu, háska og efasemdum sem hvergi hafa komið
fram í fyrri frásögnum.
Þeir félagar þurftu að kljást við hæðarveiki og
hrikalegustu falljökla í heimi, þeir stóðu af sér
frosthörkur og fárviðri i hliðum Everest þar sem eitt
lítið víxlspor getur kostað menn lifið. Og loks lýsa
þeir því dýrlega augnabliki þegar þeir snertu koll
„Gyðjunnar, móður heimsins" eins og fjallið er nefnt
þar eystra.
Söguna skráir Hörður Magnússon sem fylgdi þeim
félögum upp að fjallsrótum. Bókina prýða á þriðja
hundrað litmynda sem lýsa frábærlega vel þessu
mikla ævintýri og gefa innsýn í þann einstæða heim
sem umvefur Everest.
■
Mál og menning
Laugavegi 18 Siðumúla 7-9
Slmi 515 2500 Sfmi 510 2500
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA