Morgunblaðið - 26.11.1997, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 11
FRÉTTIR
Styrktar- og sjúkrasjóður verslunarmanna
JÓHANNES Jónsson, kaupmaður í Bónus, afhendir Guðmundi Vikari Einarssyni, yfirlækni, gjöfina,
en í miðið er Ólafur Jensson, formaður Styrktar- og sjúkrasjóðs verslunarmanna.
Gefa hálfa milljón kr. til kaupa
á þvagfæraskurðtæki
STYRKTAR- og sjúkrasjóður
verslunarmanna í Reykjavík gaf
Landspítalanum á mánudag
hálfa milljón króna, sem á að
setja í sjóð til kaupa á Holmium-
leysigeislatæki til þvagfæra-
skurðlækninga. Gjöfin var af-
hent við hátíðlega athöfn í Höfða
í boði Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra.
Holmium-tækið er notað til
aðgerða á karlmönnum, sem eru
með alvarlega þvagfærasjúk-
dóma á borð við krabbamein í
blöðruhálskirtli. Nú eru notuð
nokkur mismunandi tæki við
þvagfæraaðgerðir á Landspítal-
anum og myndi Holmium-tækið
leysa þau af hólmi.
Tækið kostar 14-15 milljónir
króna og hyggst sjóðurinn halda
áfram að safna fé til kaupanna.
Styrktar- og sjúkrasjóður versl-
unarmanna var stofnaður 24.
nóvember árið 1867 og var gjöf-
in því afhent á 130 ára afmæli
hans.
Kaupmenn í Reykjavík stofn-
uðu sjóðinn upphaflega. Hann
varð sjálfstæður þegar VR varð
að stéttarfélagi, en í upphafi
voru jafnt launþegar og vinnu-
veitendur í félaginu. Nú eru um
200 manns í sjóðnum og hefur
hann undanfarið að mestu sinnt
góðgerðarmálum.
Samstarf Framsóknarflokksins
við Reykjavíkurlistann
Hefur veikt
flokksstarfið
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, segir að sam-
starf Framsóknarflokksins í R-list-
anum í Reykjavík hafí komið niður
á starfí flokksins í Reykjavík. Hann
segir það stefnu Framsóknarflokks-
ins að bjóða fram í eigin nafni, en
flokkurinn muni hins vegar standa
heilshugar að baki R-listanum í borg-
arstjómarkosningunum næsta vor.
„Það liggur alveg ljóst fyrir að
Framsóknarflokkurinn mun bjóða
fram með Alþýðubandalaginu, Al-
þýðuflokknum og Kvennalistanum
við borgarstjórnarkosningarnar
næsta vor undir merkjum R-listans.
Við munum standa að því af heilind-
um eins og við höfum gert. Ég tel
hins vegar að það eigi að vera lang-
tímamarkmið í Framsóknarflokknum
að bjóða fram í sveitarstjómarkosn-
ingum í eigin nafni. Það er verið að
stækka sveitarfélögin og ég tel að
þróunin verði sú að flokkamir muni
í vaxandi mæli bjóða fram undir eig-
in merkjum. Það er að mínu mati
ekkert til sem heitir óháð og ég tel
að það muni draga úr þessum óháðu
framboð víða um land.
Það er okkar reynsla að það sé
ekki gott fyrir flokkinn og flokks-
starfíð að vera mjög lengi í kosninga-
samstarfi með öðmm. Það hefur veikt
okkar flokksstarf og gert fiokkinn
minna sýnilegan á viðkomandi stöð-
um. Við höfum einfaldlega ekki nægi-
lega góða reynslu af þessu sam-
starfí.“
Halldór sagði að ekki bæri að skilja
þessi orð sín á þann veg að ákveðið
hefði verið að Framsóknarflokkurinn
yrði ekki með í samstarfí R-listans
eftir fjögur ár. Um þetta hefði ekk-
ert verið ákveðið. Ef A-fiokkarnir
sameinuðust um framboð í næstu
alþingiskosningum væri komin upp
ný staða í íslenskum stjórnmálum og
Framsóknarflokkurinn yrði að taka
mið af því.
Styðjum R-listann
Aifreð Þorsteinsson borgarfulltrúi
sagði að Framsóknarflokkurinn tæki
heilshugar þátt í samstarfinu um
R-listann og hann sagðist vita að
formaður flokksins gerði það. Hall-
dór væri hins vegar að lýsa stefnu
flokksins til framtíðar, ekki síst með
hliðsjón af hugsanlegum breytingum
á flokkaskipan í landinu. Alfreð
sagði rétt hjá Halldóri að flokks-
starfíð í Reykjavík hefði nokkuð
mótast af samstarfinu við R-listann.
Kraftarnir hefðu farið í það, en hann
sagðist telja að hægt væri að hafa
flokksstarfíð öflugt þó að flokkurinn
tæki þátt í kosningabandalagi með
öðrum flokkum.
18 stöðvar sendar
út á breiðbandi
PÓSTUR og sími hf. hóf á föstu-
dag útsendingar til reynslu á breið-
bandinu. Friðrik Friðriksson, for-
stöðumaður breiðbandsþjónustu
P&S, sagði að hægt væri að ná
15 stöðvum og í þessari viku yrði
þremur bætt við. Um miðjan des-
ember væri reiknað með að útsend-
ingar hæfust á barnarás þar sem
boðið yrði upp á efni talsett á ís-
lensku.
„Þetta er lokaprófun til að láta
reyna á kerfið fyrir formlega opn-
un, um miðjan desember," sagði
Friðrik og bætti við að úsendingar-
merkið væri opið meðan á prófun
stæði.
Hann sagði að nú hefðu um 20
þúsund heimili aðgang að breið-
bandinu. Hægt væri að komast að
því hvort það væri tengt rneð því
að hringja í þjónustunúmer eða slá
inn heimilisfang á vefsíðu Pósts
og síma.
Ekki bara efni á ensku
„Kerfið hefur það mikla flutn-
ingsgetu að það opnar nýja mögu-
leika til að taka á móti efni frá
öðrum mál- og menningarsvæð-
um,“ sagði hann. „Við erum með
tvær þýskar stöðvar, ARD og
Pro-7, ítalska ríkissjónvarpið og
eina franska rás og reiknum með
að verða með eina spænska."
Friðrik sagði að nú væri hægt
að ná Ríkissjónvarpinu, útsending-
um frá Alþingi og stöðinni Omega
auk útvarpsstöðva og þær rásir
yrðu áfram opnar. Þá væri hægt
að ná ýmsum erlendum stöðvum,
sem yrðu í áskrift. Þeirra á meðal
væru fréttastöðvarnar CNN,
CNBC og Sky, tónlistarstöðvarnar
MTV og CMT og sígildar kvik-
myndir og teiknimyndir nánast all-
an sólarhringinn.
Hann sagði að ekki stæði til að
gefa út sjónvarpsvísi, en hins veg-
ar yrðu kynningar á efni. „Þetta
er ekki sjónvarpsstöð heldur fyrst
og fremst dreifikerfi, sem leitar
eftir samningum við innlendar og
erlendar sjónvarpsstöðvar," sagði
Friðrik. „Við höfum samanlagt
gert samninga við um 25 innlendar
og erlendar sjónvarpsstöðvar og
vonumst til þess að þeim fjölgi.“
Vangaveltur um sér-
framboð í Hafnarfirði
JÓHANN G. Bergþórsson bæjarfull-
trúi í Hafnarfírði segir að niðurstaða
í prófkjöri sjálfstæðismanna um síð-
ustu helgi gefi vangaveltum um
sérframboð byr undir báða vængi.
„Engin niðurstaða liggur fyrir
enn sem komið er enda liggur ekk-
ert á,“ sagði hann.
Um 1.850 félagsmenn voru
skráðir í Sjálfstæðisfélaginu fyrir
kjördag og benti Jóhann á að um
300 nýir félagar hefðu bæst við
fyrir prófkjörið. Það þýddi að af
þeim rúmlega 900 sem tóku þátt
í prófkjörinu væru um 600 eldri
félagar eða 34%.
Sérframboð af vinstri væng?
Jóhann sagði það skipta máli
hvernig til tækist hjá vinstri flokk-
unum og hvort þeim tækist að sam-
einast um framboð. „Ég held að
það sé alveg Ijóst að jafnvel þótt
við Ellert Borgar gerum ekki neitt
að það muni koma fram sérfram-
boð,“ sagði hann. „Ekki síst ef
óbreytt lið verður hjá Alþýðubanda-
lagi og Alþýðuflokki.“
v<*>ri&?rga
"ir. 4 5 ouUhiVerði
Stjórnandi:
Séra Hjálmar Jónsson
alþingismaður.
emur fram
Stjórnandi:
Guðmundur St. Sigurðsson
Undirleikari:
Þóra Friða Sæmundsdóttir,
Einsöngur.
Stjornandi:
Sveinn Árnason
Undirleikari:
Pál Szabo.
Einsöngur.
Stjórnandi:
Björgvin Þ. Valdimarsson
Undirieikari:
Sigurður Marteinsson.
Einsöngur. - Tvísöngur.
Stjórnandi:
Sveinn Árnason.
■ Undirleikari:
Thomas Higgerson
Einsöngur.
ýeimunda*
leikur fyrir dansi
til kl. 03:00