Morgunblaðið - 26.11.1997, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 26.11.1997, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 11 FRÉTTIR Styrktar- og sjúkrasjóður verslunarmanna JÓHANNES Jónsson, kaupmaður í Bónus, afhendir Guðmundi Vikari Einarssyni, yfirlækni, gjöfina, en í miðið er Ólafur Jensson, formaður Styrktar- og sjúkrasjóðs verslunarmanna. Gefa hálfa milljón kr. til kaupa á þvagfæraskurðtæki STYRKTAR- og sjúkrasjóður verslunarmanna í Reykjavík gaf Landspítalanum á mánudag hálfa milljón króna, sem á að setja í sjóð til kaupa á Holmium- leysigeislatæki til þvagfæra- skurðlækninga. Gjöfin var af- hent við hátíðlega athöfn í Höfða í boði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra. Holmium-tækið er notað til aðgerða á karlmönnum, sem eru með alvarlega þvagfærasjúk- dóma á borð við krabbamein í blöðruhálskirtli. Nú eru notuð nokkur mismunandi tæki við þvagfæraaðgerðir á Landspítal- anum og myndi Holmium-tækið leysa þau af hólmi. Tækið kostar 14-15 milljónir króna og hyggst sjóðurinn halda áfram að safna fé til kaupanna. Styrktar- og sjúkrasjóður versl- unarmanna var stofnaður 24. nóvember árið 1867 og var gjöf- in því afhent á 130 ára afmæli hans. Kaupmenn í Reykjavík stofn- uðu sjóðinn upphaflega. Hann varð sjálfstæður þegar VR varð að stéttarfélagi, en í upphafi voru jafnt launþegar og vinnu- veitendur í félaginu. Nú eru um 200 manns í sjóðnum og hefur hann undanfarið að mestu sinnt góðgerðarmálum. Samstarf Framsóknarflokksins við Reykjavíkurlistann Hefur veikt flokksstarfið HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að sam- starf Framsóknarflokksins í R-list- anum í Reykjavík hafí komið niður á starfí flokksins í Reykjavík. Hann segir það stefnu Framsóknarflokks- ins að bjóða fram í eigin nafni, en flokkurinn muni hins vegar standa heilshugar að baki R-listanum í borg- arstjómarkosningunum næsta vor. „Það liggur alveg ljóst fyrir að Framsóknarflokkurinn mun bjóða fram með Alþýðubandalaginu, Al- þýðuflokknum og Kvennalistanum við borgarstjórnarkosningarnar næsta vor undir merkjum R-listans. Við munum standa að því af heilind- um eins og við höfum gert. Ég tel hins vegar að það eigi að vera lang- tímamarkmið í Framsóknarflokknum að bjóða fram í sveitarstjómarkosn- ingum í eigin nafni. Það er verið að stækka sveitarfélögin og ég tel að þróunin verði sú að flokkamir muni í vaxandi mæli bjóða fram undir eig- in merkjum. Það er að mínu mati ekkert til sem heitir óháð og ég tel að það muni draga úr þessum óháðu framboð víða um land. Það er okkar reynsla að það sé ekki gott fyrir flokkinn og flokks- starfíð að vera mjög lengi í kosninga- samstarfi með öðmm. Það hefur veikt okkar flokksstarf og gert fiokkinn minna sýnilegan á viðkomandi stöð- um. Við höfum einfaldlega ekki nægi- lega góða reynslu af þessu sam- starfí.“ Halldór sagði að ekki bæri að skilja þessi orð sín á þann veg að ákveðið hefði verið að Framsóknarflokkurinn yrði ekki með í samstarfí R-listans eftir fjögur ár. Um þetta hefði ekk- ert verið ákveðið. Ef A-fiokkarnir sameinuðust um framboð í næstu alþingiskosningum væri komin upp ný staða í íslenskum stjórnmálum og Framsóknarflokkurinn yrði að taka mið af því. Styðjum R-listann Aifreð Þorsteinsson borgarfulltrúi sagði að Framsóknarflokkurinn tæki heilshugar þátt í samstarfinu um R-listann og hann sagðist vita að formaður flokksins gerði það. Hall- dór væri hins vegar að lýsa stefnu flokksins til framtíðar, ekki síst með hliðsjón af hugsanlegum breytingum á flokkaskipan í landinu. Alfreð sagði rétt hjá Halldóri að flokks- starfíð í Reykjavík hefði nokkuð mótast af samstarfinu við R-listann. Kraftarnir hefðu farið í það, en hann sagðist telja að hægt væri að hafa flokksstarfíð öflugt þó að flokkurinn tæki þátt í kosningabandalagi með öðrum flokkum. 18 stöðvar sendar út á breiðbandi PÓSTUR og sími hf. hóf á föstu- dag útsendingar til reynslu á breið- bandinu. Friðrik Friðriksson, for- stöðumaður breiðbandsþjónustu P&S, sagði að hægt væri að ná 15 stöðvum og í þessari viku yrði þremur bætt við. Um miðjan des- ember væri reiknað með að útsend- ingar hæfust á barnarás þar sem boðið yrði upp á efni talsett á ís- lensku. „Þetta er lokaprófun til að láta reyna á kerfið fyrir formlega opn- un, um miðjan desember," sagði Friðrik og bætti við að úsendingar- merkið væri opið meðan á prófun stæði. Hann sagði að nú hefðu um 20 þúsund heimili aðgang að breið- bandinu. Hægt væri að komast að því hvort það væri tengt rneð því að hringja í þjónustunúmer eða slá inn heimilisfang á vefsíðu Pósts og síma. Ekki bara efni á ensku „Kerfið hefur það mikla flutn- ingsgetu að það opnar nýja mögu- leika til að taka á móti efni frá öðrum mál- og menningarsvæð- um,“ sagði hann. „Við erum með tvær þýskar stöðvar, ARD og Pro-7, ítalska ríkissjónvarpið og eina franska rás og reiknum með að verða með eina spænska." Friðrik sagði að nú væri hægt að ná Ríkissjónvarpinu, útsending- um frá Alþingi og stöðinni Omega auk útvarpsstöðva og þær rásir yrðu áfram opnar. Þá væri hægt að ná ýmsum erlendum stöðvum, sem yrðu í áskrift. Þeirra á meðal væru fréttastöðvarnar CNN, CNBC og Sky, tónlistarstöðvarnar MTV og CMT og sígildar kvik- myndir og teiknimyndir nánast all- an sólarhringinn. Hann sagði að ekki stæði til að gefa út sjónvarpsvísi, en hins veg- ar yrðu kynningar á efni. „Þetta er ekki sjónvarpsstöð heldur fyrst og fremst dreifikerfi, sem leitar eftir samningum við innlendar og erlendar sjónvarpsstöðvar," sagði Friðrik. „Við höfum samanlagt gert samninga við um 25 innlendar og erlendar sjónvarpsstöðvar og vonumst til þess að þeim fjölgi.“ Vangaveltur um sér- framboð í Hafnarfirði JÓHANN G. Bergþórsson bæjarfull- trúi í Hafnarfírði segir að niðurstaða í prófkjöri sjálfstæðismanna um síð- ustu helgi gefi vangaveltum um sérframboð byr undir báða vængi. „Engin niðurstaða liggur fyrir enn sem komið er enda liggur ekk- ert á,“ sagði hann. Um 1.850 félagsmenn voru skráðir í Sjálfstæðisfélaginu fyrir kjördag og benti Jóhann á að um 300 nýir félagar hefðu bæst við fyrir prófkjörið. Það þýddi að af þeim rúmlega 900 sem tóku þátt í prófkjörinu væru um 600 eldri félagar eða 34%. Sérframboð af vinstri væng? Jóhann sagði það skipta máli hvernig til tækist hjá vinstri flokk- unum og hvort þeim tækist að sam- einast um framboð. „Ég held að það sé alveg Ijóst að jafnvel þótt við Ellert Borgar gerum ekki neitt að það muni koma fram sérfram- boð,“ sagði hann. „Ekki síst ef óbreytt lið verður hjá Alþýðubanda- lagi og Alþýðuflokki.“ v<*>ri&?rga "ir. 4 5 ouUhiVerði Stjórnandi: Séra Hjálmar Jónsson alþingismaður. emur fram Stjórnandi: Guðmundur St. Sigurðsson Undirleikari: Þóra Friða Sæmundsdóttir, Einsöngur. Stjornandi: Sveinn Árnason Undirleikari: Pál Szabo. Einsöngur. Stjórnandi: Björgvin Þ. Valdimarsson Undirieikari: Sigurður Marteinsson. Einsöngur. - Tvísöngur. Stjórnandi: Sveinn Árnason. ■ Undirleikari: Thomas Higgerson Einsöngur. ýeimunda* leikur fyrir dansi til kl. 03:00
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.