Morgunblaðið - 26.11.1997, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997 23
ERLENT
Oþarft að draga
sem mest úr kól-
esterólmagni?
Nýjar rannsóknir á hjartasjúkdómum stangast á
við ríkjandi viðhorf um nauðsyn þess að lækka
kólesteról í blóði. Þá benda rannsóknir til tengsla
þunglyndis og hættunnar á hjartaáfalli.
Orlando. Reuters.
NIÐURSTÖÐUR nýlegra rann-
sókna á áhrifum kólesteróls í blóði
virðast stangast á við þá þekkingu
sem fyrir er og m.a. leiða í ljós að
ekki sé nauðsynlegt að draga jafn-
mikið úr kólesterólmagni og yfir-
leitt er talið til að minnka hættu á
hjartasjúkdómum. Kom þetta fram
á þingi hjartasérfræðinga sem
haldið var í Orlando á Flórída ný-
verið.
Rannsóknarmenn fyrirtækisins
Bristol-Myers Squibb kynntu niður-
stöður tveggja rannsókna sem þeir
sögðu sýna fram á að lyfið Prava-
chol, sem fyrirtækið framleiðir og
hefur almenna heitið pravastatin,
dragi jafnmikið úr hættu á hjarta-
áfalli og þörf á skurðaðgerðum og
kröftugri lyf annarra framleiðenda.
Pravachol dregur úr magni svo-
kallaðs „slæms“ kólesteróls (LDL),
sem festist við æðaveggi og stíflar
æðar, um 25%, en lyfið Zocor, sem
hefur almenna heitið simvastatin
og er frá fyrirtækinu Merck,
minnkar það um 45-50% og lyfið
Lipitor, frá Warner-Lambert, um
60%. Starfsmenn Bristol sögðu að
jafn miklar líkur hafí verið á að
sjúklingar sem tóku Pravachol
fengju sitt fyrsta hjartaáfall og
þeir sjúklingar sem höfðu lækkað
kólesteról um 40-45%. Sömu líkur
voru á dauða af völdum hjartasjúk-
dóma og svipuð þörf aðgerða á
borð við æðavíkkun.
„Það hefur verið viðtekið að
lækka þurfi magn LDL eins mikið
og hægt er, því meira því betra.
En niðurstöður þessara rannsókna
stangast á við þá kenningu," sagði
Dennis Cryer, starfsmaður Bristol,
sem stjórnaði rannsóknunum, í
samtali við Reuters.
Norræn rannsókn styður
hefðbundið viðhorf
Guðmundur Þorgeirsson, hjarta-
skurðlæknir á Landspítalanum,
sótti ráðstefnuna í Orlando, og seg-
ir hann að önnur nýleg rannsókn
renni hins vegar stoðum undir hið
hefðbundna viðhorf „að því kröft-
ugri sem LDL lækkunin er því betri
árangur næst,“ sagði Guðmundur
í samtali við Morgunblaðið. Sú
rannsókn var gerð á Norðurlöndun-
um og tóku íslenskir vísindamenn
þátt í henni. Voru 4444 sjúklingar
rannsakaðir og voru 150 þeirra ís-
lenskir.
Guðmundur sagði að væntanlega
yrði gerð grein fyrir niðurstöðum
norrænu rannsóknarinnar eftir ára-
mót. Rannsóknin nefnist Scandina-
vian Simvastatin Survival Study,
og er m.a. fjármögnuð af framleið-
anda lyfsins simvastatin.
Tengsl þunglyndis og
hjartasjúkdóma
Fjöldi rannsókna, sem gerð var
grein fyrir á ráðstefnunni í Or-
lando, beindist að tengslum þung-
lyndis og alvarlegra hjartasjúk-
dóma. Komið hefur í ljós að þung-
lyndi eykur verulega líkur á hjarta-
áfalli hjá þeim sem eiga við of
háan blóðþrýsting að etja.
Rannsókn á 5.687 einstaklingum
með háan blóðþrýsting leiddi í ljós
að þeir sem voru þunglyndir voru
allt að því tvisvar sinnum líklegri
til að fá hjartaáfall innan fimm ára
en þeir sem ekki þjáðust af þung-
lyndi. Hillel Cohen, við Albert Ein-
stein læknaháskólann í New York,
sagði að líkur á hjartaáfalli meðal
þeirra, er væru þunglyndir, væru
meiri jafnvel þótt aðrir áhættu-
þættir, s.s. reykingar, hár blóð-
þrýstingur og kólesterólmagn,
væru teknir með í reikninginn.
„Er um að ræða að hjartaáföll
og hjarta- og æðasjúkdómar leiða
til þunglyndis, eða er frekar um
að ræða að þunglyndið komi á
undan hjartaáfallinu og leiði til
þess? Þunglyndi gæti verið mjög
stór áhættuþáttur, en það þarf
nauðsynlega að rannsaka það nán-
ar,“ sagði Cohen á fréttamanna-
fundi.
Önnur rannsókn á 222 hjarta-
sjúklingum á Bayview-læknamið-
stöðinni í Johns Hopkins háskóla í
Baltimore leiddi í ljós að þeir sem
þjáðust af þunglyndi fjórum mánuð-
um eftir hjartaáfall voru síður lík-
legir en aðrir til að breyta matar-
æði sínu og hefja líkamsrækt. „Það
eru meiri líkur á að fólk sem þjáist
af alvarlegu þunglyndi deyi á fyrstu
mánuðunum eftir hjartaáfall heldur
en fólk sem ekki er haldið þung-
lyndi,“ sagði Roy Ziegelstein, við
Johns Hopkins háskóla. „Vera kann
að þunglyndissjúklingar geti síður
fylgt ráðgjöf um breytingar á at-
ferli og lífsvenjum."
Fleiri hafa háan blóðþrýsting
Samkvæmt tölum bandarískra
heilbrigðismálayfirvalda vita nú
færri Bandaríkjamenn af því en
áður var að þeir hafí of háan blóð-
þrýsting, færri leita meðferðar og
fleiri deyja af þessum völdum, að
því er International Herald Tríbune
greinir frá.
Ekki er ljóst hvað veldur þessari
breytingu, en sérfræðingar í hjarta-
sjúkdómum segjast telja líklegt að
meðvirkandi þættir séu m.a. aukinn
offituvandi og að dregið hafi úr
árvekni meðal lækna og almenn-
ings.
SERSTAKT TILBOÐ
Á ÖL- OG VÍNEFNUM
Allt að 50% afsláttur
Lagið ykkar eigið öl og vín
Verð á ölflösku frá kr. 16.00
Verð á vínflösku frá kr. 61,00
þ.e.a.s innihaldið af heimalöguðu
Ármúla 40
Símar: 553 5320
568 8860
Iferslunin
Einnig áhöld og tæki
i
TILKYNNING UM SKRÁNINGU HLUTABRÉFA Á VERÐBRÉFAÞINGI ÍSLANDS
ÍSLENSKAR
SJÁVARAFURÐIR HF.
Stjórn Verðbréfaþings Islands hefur samþykkt að taka á skrá
hlutabréf í Islenskum sjávarafurðum hf.
Skráning hlutabréfanna hefst hinn 27. nóvember nk.
Landsbréf hf. eru umsjónaraðili skráningarinnar.
Skráningarlýsing vegna ofangreindra hlutabréfa
liggur frammi hjá Landsbréfiim hf. Suðurlandsbraut 24 og Strandgötu I, Akureyri.
if
, LANDSBREF HF.
-
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 535 2000, bréfsími 535 2001,
Strandgötu 24, 600 Akureyri, sími 460 6060, bréfsími 460 6050, landsbref.is.
LÖGGILT VER0BRÉFAFYR1RTÆKI, AÐILIAÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS. .