Morgunblaðið - 26.11.1997, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ
. 38 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997
A________________________________
AÐSENDAR GREINAR
Reynsla Nýsjá-
lendinga
NYSJALENDING-
AR eru auk íslendinga
eina þjóðin, sem tekið
hefur upp víðtækt
kvótakerfi í fiskveið-
um. Lesa má um
reynslu þeirra í þeim
þremur nýlegu ritum
um fiskveiðar, sem ég
kynnti hér á dögunum.
Nýsjálendingum
' fvarð Ijósþ um svipað
leyti og Islendingum,
að ótakmarkaður að-
gangur að takmark-
aðri auðlind hefði í för
með sér sóun hennar.
Upp úr 1980 var að-
gangur að nokkrum
fiskistofnum þess vegna bundinn
kvótum, en árið 1986 var sett upp
kerfi framseljanlegra aflakvóta til
flestra nytjastofna á miðum Nýsjá-
lendinga. Kvótarnir áttu að vera
varanlegir og fá að ganga kaupum
og sölum. Þeim var í upphafi úthlut-
að í samræmi við aflareynslu nokk-
urra fyrri ára, eins og á íslandi.
r *
Auðlindaskattur skilaði
aldrei verulegum tekj-
um í ríkissjóð Nýja-Sjá-
lands, segir Hannes H.
Gissurarson, og inn-
heimta hans var flókin
og kostaði mikil átök.
/9;-------------------------------
Munurinn á nýsjálenska kerfmu
og hinu íslenska var þríþættur. í
fyrsta lagi var íslenska kerfið bland-
að til 1990. Þótt sóknarkvótar væru
tvímælalaust óhagkvæmir, gátu
útgerðarmenn hér valið á milli
þeirra og aflakvóta fram til 1990.
Nýsjálenska kerfíð var hins vegar
frá upphafi hreint aflakvótakerfi.
Þar gátu útgerðarmenn einbeitt sér
að því að lækka tilkostnað við veið-
ar á gefnum afla í stað þess að
þurfa að hamast við að veiða sem
mest á sem skemmstum tíma óháð
tilkostnaði. í þessu efni gátum við
lært af Nýsjáíendingum.
Í öðru lagi voru nýsjálensku kvót-
at-arnir ekki aflahlutdeildarkvótar,
Hannes Hólm-
steinn Gissurarson
eins og hinir íslensku,
heldur aflakvótar. Þeir
voru ekki réttur til að
veiða ákveðið hlutfall
af leyfílegum árlegum
heildarafla, heldur
réttur til að veiða
ákveðið magn af físki.
Ríkið átti síðan að
jafna metin með því að
kaupa kvóta af út-
gerðarmönnum, þegar
leyfílegur heildarafli
minnkaði, og selja
þeim kvóta, þegar
hann jókst. Þetta
reyndist erfítt í fram-
kvæmd, og hafa Nýsjá-
lendingar nú tekið upp
kerfi aflahlutdeildarkvóta. í þessu
efni gátu þeir lært af okkur íslend-
ingum.
Einn mikilvægasti kostur afla-
hlutdeildarkvóta borið saman við
aflakvóta er sá, að útgerðarmenn
öðlast hagsmuni af því, að leyfileg-
ur heildarafli verði ákvarðaður sem
hagkvæmastur, þegar til langs tíma
er litið. Þeir vilja auðvitað gera
það, sem þeir eiga hlutdeild í, sem
allra verðmætast í bráð og lengd.
Einkahagur og almannahagur fer
þá saman.
í þriðja lagi var það yfirlýst ætl-
un nýsjálenskra stjórnvalda að inn-
heimta alla auðlindarentu, sem
kynni að myndast í fiskveiðum
vegna hins nýja kerfis. Auðlinda-
skatturinn skilaði hins vegar aldrei
verulegum tekjum í ríkissjóð, og
innheimta hans var flókin og kost-
aði mikil átök við útgerðarmenn.
Arið 1994 var loks horfið frá því
að innheimta slíkan skatt. Þess í
stað var sett sú regla, að handhafar
kvóta greiddu allan kostnað við að
halda uppi skipulagi fiskveiða, þar
á meðal af eftirliti, rannsóknum og
kennslu. í þessu efni gátu Nýsjá-
lendingar lært af okkur íslending-
um, þar sem auðlindaskattur hefur
aðeins verið til í kollinum á nokkr-
um háværum hagfræðingum.
Aðalatriðið er þó það, að vegna
kvótakerfisins hefur tap snúist í
gróða í fískveiðum á Nýja-Sjálandi
eins og á íslandi.
Höfundur er prófessor í stjórn
málafræði íHáskóla íslands.
Barnakuldaskór
Loðfóðraðir. St. 25-34, mjög vatnsheldir.
Rauðir og bláir.
Verð frá kr. 3.990.
Smaskor
sérverslun með barnaskó í bláu húsi við Fákafen,
LEIKURINN
THE GAME
4 æ Oa
© -t'jMÆjr: Qí
V i ^
o ^
LEIKURINN UM LEIKINN
á síðu 3 í íþróttablaðinu á morgun.
IftorgtmftUltrifc HÁSKÓLABÍÓ REGNSOGINN ,
Leysitækni við þvagfæra-
skurðlækningar
NÝJUNGAR í
læknisfræði eiga sér
stöðugt stað. Miklar
framfarir hafa orðið í
skurðaðgerðum og um
leið hefur árangur
lækninga orðið meiri
og þjáningar minni.
Útgjöld til tækjakaupa
hafa farið vaxandi eins
og annað í heilbrigðis-
þjónustunni. Þessi út-
gjaldaaukning hefur
aftur á móti leitt til
styttri legutíma.
Þannig hafa afköst
orðið meiri og heil-
brigðishagnaður einn-
ig-
Takmörkuðu fé er varið til
tækjakaupa á hveiju ári og eru
margir um hituna. Þetta fé hefur
verið langt frá því að vera nægjan-
legt til þess að viðhalda eðlilegu
ástandi í heilbrigðismálum. Þess
vegna hafa heilbrigðisstarfsmenn
leitað til fyrirtækja og líknarfélaga
með von um aðstoð. Stór hluti
tækjakaupa hefur því verið fjár-
magnaður með þessum hætti og
ber að þakka það. Þvagfæraskurð-
deild Landspítalans hefur lengi
haft áhuga á kaupum laser-tækis
sem notað er við skurðaðgerðir á
þvagfærum.
Styrktar- og sjúkrasjóður versl-
unarmanna í Reykjavík hefur í til-
efni af 130 ára afmæli sínu ákveð-
ið að veita fé til þessara tækja-
kaupa og jafnframt leita eftir
fjárstuðningi hjá hinum ýmsu fyr-
irtækjum landsins.
Um leið og við þökkum fyrir
þetta átak, viljum við skýra frá
eftirfarandi atriðum varðandi las-
er-tæknina og þá sjúkdóma sem
henni er beitt gegn.
Laser-tæknin
Orðið laser er stytting fyrir
ensku samsetninguna Light
Amplication by the Stimulated
Emission of Radiation. Laser-ljós-
orkan er hluti af electro-magne-
tiska bylgju spectruminu. Flestir
laser-ar sem notaðir eru við lækn-
ingar eru á spectruminu sem er
annaðhvort sjáanlegt eða í infra-
rauðu. Aðaltegundir laser-a til
lækninga byggjast á koldíoxíði,
Argon, Nd:YAG (Neodymium
YAG), Holmium og fl. Mjög mis-
munandi er eftir grunnefninu
hvaða laser er hægt að nota hverju
sinni.
í þvagfæraskurðlækningum,
þar sem notuð eru speglunartæki
til aðgerða, hafa laser-ar með
Nd:YAG, Argon og Holmium verið
mest notaðir. Vandamál við laser-
tækni er að við höfum þurft marg-
ar tegundir sem fer eftir eðli að-
gerðarinnar. Holmium-laser hefur
leyst þetta vandamál þannig að
hægt er að nota hann t.d. bæði til
þess að bijóta steina og skera vefi.
Þetta þýðir að okkur dugar einn
laser í þvagfæraskurðlækningum.
Oft er litið á laser-tæknina sem
endanlega lausn á flestum vanda-
málum. Svo er ekki og menn verða
að þekkja takmörk
slíkrar tækni, og er
ekki farið út í kaup á
slíkum tækjum nema
að mjög vel athuguðu
máli.
Blöðruhálskirtillinn
Sjúkdómar í
blöðruhálskirtli eru
mjög algengir. Menn
telja að hjá 90% karl-
manna sé stækkun á
blöðruhálskirtli þegar
náð er áttræðisaldri.
Allstór hluti þessara
sjúklinga fær ein-
kenni sem geta leitt
til aðgerða á blöðru-
hálskirtli. í marga áratugi höfum
við notast við árangursríka aðgerð
á blöðruhálskirtlinum. Talað er
um að skafa kirtilinn að innan
með rafmagnsorku (TURP -
transurethral resectio á prostata).
Sennilega eru gerðar um 500
TURP aðgerðir á ári á íslandi.
Þessar aðgerðir hafa gefið góðan
árangur í gegnum tíðina. Aftur á
móti eru annmarkar á þessari
meðferð sem laser-tæknin hefur
bætt úr að stórum hluta. Þannig
hefur sjúkrahúsvist styst þó nokk-
uð, hægt er að gera aðgerð á mun
veikari sjúklingum sem ekki hafa
þolað að gangast undir fyrr-
greinda aðgerð og einnig er hægt
að gera aðgerðina á sjúklingum
Styrktar- og sjúkrasjóð-
ur verslunarmanna hef-
ur veittfé til kaupa á
Holminuiyi laser, segir
Guðmundur Vikar
Einarsson, og mun
sjóðurinn verða í farar-
broddi um að fá frekari
fjárframlög annars
staðar.
sem eru á blóðþynningu. Margir
sjúklingar með hjarta- og æða-
sjúkdóma eru á blóðþynningu.
Styttri sjúkrahúsvist gefur aug-
ljóslega til kynna sparnað og einn-
ig er það mikilvægt að geta linað
þjáningar þeirra sem ekki hafa
getað fengið almennilega úrbót
meina sinna hingað til.
Með Holmium-laser er blöðru-
hálskirtillinn ýmist brenndur eða
skorinn í gegnum þvagrásina.
Krabbamein hjá körlum er al-
gengast í blöðruhálskirtli og grein-
ast á annað hundrað manns á ári.
Allstór hluti þessara sjúklinga
greinist við fyrrgreindar aðgerðir
og í kjölfar þeirra fá þeir viðun-
andi meðferð.
Þvagfærasteinar
Á árinu 1993 eignaðist þjóðin
nýrnasteinbijótstæki sem staðsett
er á Landspítalanum. Skotið er
svokölluðum „höggbylgjum"
(hljóðbylgjum) í gegnum húðina
og á nýrnasteininn. Engin speglun
reða skurður er gerður við þessa
aðgerð. Sjúklingurinn fer heim
samdægurs.
Þrátt fyrir góðan árangur með
þessu tæki, eru stundum steinar
sem ekki er hægt að bijóta af
ýmsum orsökum. Þess vegna þurf-
um við að bijóta þá á annan hátt
og er það oft erfiðleikum háð.
Með tilkomu laser-s hefur verið
hægt að bijóta steinana í gegnum
speglunartæki, alveg upp í nýra.
Þannig hefur árangur í meðferð á
þvagfærasteinum lagast verulega.
Laser-inn gerir einmitt þetta og
hafa oft komið sjúkratilfelli þar
sem við óskum okkur að geta not-
ast við hann.
Æxli í þvagblöðru, nýrum
og nýrnaskjóðu
Krabbamein í blöðru eru nokkuð
algeng og fylgst er með sjúklingum
í mörg ár með endurteknum spegl-
unum og aðgerðum. Holmium-las-
er nýtist vel í þessum aðgerðum.
Einnig er hægt að brenna krabba-
mein sem eru í þvagleiðara og
nýmaskjóðu á sama hátt. Þetta
stuðlar að styttri legutíma og betri
líðan. Einnig er hægt að beita las-
er-meðferðinni á þrengsli í þvag-
leiðurum.
Kostir laser-meðferðar
Holmium-laser er hægt að nota
við aðrar sérgreinar. Almennir
skurðlæknar, meltingarfærasér-
fræðingar, bæklunarskurðlæknar
og fleiri sérgreinalæknar geta nýtt
sér tækni Holmium laser-s og er
því ekkert til fyrirstöðu að frekari
nýting ætti að verða á slíku tæki.
Kostir Holmium laser-s felast
fyrst og fremst í þessu víðtæka
notkunarsviði. Einnig hversu ár-
angursrík meðferðin er og styttri
legutíma.
Lokaorð
Landspítalinn hefur í mörg ár
verið í fararbroddi hér á landi
varðandi nýjungar í læknismeð-
ferð. Til þess hefur þurft að kaupa
reglulega ný tæki og endurnýja.
Holmium-laser er eitt þessara
nýju tækja sem eru nauðsynleg
til frekari þróunar lækninga hér
á landi. Við þvagfæraskurðlæknar
höfum lagt ríka áherslu á að geta
eignast slíkt tæki. Þess vegna
höfum við leitað til Styrktar- og
sjúkrasjóðs verslunarmanna í
Reykjavík til þess að aðstoða okk-
ur við að afla fjár. í tilefni af af-
mæli félagsins hefur sjóðurinn
veitt fé til tækjakaupanna og mun
um leið verða í fararbroddi um
að fá frekari fjárframlög annars
staðar.
Við á Landspítalanum viljum
þakka verslunarmönnum fyrir
framlag þeirra til þessa máls.
Höfundur er yfirlæknir þvagfæra-
rannsókna á Landspítalanum.
Guðmundur Vikar
Einarsson
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrcen
eðaltré, í haesta gœðaflokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
10 ára ábyrgð Eldtraust
10 stærðir, 90-370 cm » Þarfekki að vökva
Stálfótur fylgir ** íslenskar leiöbeiningar
n Ekkert barr að ryksuga Traustur söluaðili
»*■ Truflar ekki stofublómin **- Skynsamieg fjárfesting
K SXÁTA
í ./j'SNOBRABRAUT 60