Morgunblaðið - 26.11.1997, Qupperneq 54
54 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
2:
4
t
Ljóska
í Góia nöH ..se. ykirurá
þtirrtöqiftu V (Sattseg
•beöio efú r wskr) 7/—^
þvic&jcoof
| OSt htífrt.
Brtþúab ) ( Nei, 'eg ued~.
fa/ti htírn. )-§w i htr cffis 4snqi
Ferdinand
''PEAR 5NOOPV, UIE
HAO A LITTLE
TROUBLE, BUT NOW
EVERYTHIN6 15 FINE"
" UtlLL WRITE
MORE LATER"
Gjörðu svo
póstkort frá
vel, þú
Káti...
fékkst
„Kæri Snati, við lent-
um í smá erfiðleikum,
en núna er allt í besta
lagi.“
„Skrifa meira síðar.“
„P.s. Lubbi biður mig að
segja þér að jörðin sé
hnöttótt."
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
FRÁ ungmennastúkunni Eddu nr. 1.
Komið með böraun-
um á bindindishelgi
fjölskyldunnar
Frá Jónu Karlsdóttur:
UNGMENNASTÚKAN Edda nr. 1
ber nafn fyrstu ungmennastúku
stofnaðrar innan Stórstúku ís-
lands, hún var endurvakin fyrir 4
árum. Fundir hafa verið haldnir
hálfsmánaðarlega á laugardögum
í Veltubæ.
Þar eru hressir krakkar, sem
eiga það sameiginlegt að skemmta
sér án vímuefna. A þessu tímabili
hefur verið farið í ferðalög erlend-
is og innanlands, til að hitta jafn-
aldra með sameiginleg áhugamál.
Þýskaland, Færeyjar erlendis og
Vestmannaeyjar, Keflavíkurflug-
völlur o.fl. staðir innanlands hafa
verið heimsóttir.
Alþjóðamót í Östersund í Svíþjóð
verður heimsótt á næsta ári en þar
verða yfir 3.000 ungmenni frá öll-
um heimsálfum.
Foreldrar hafa verið þátttakend-
ur í starfi okkar og hafa komið
sameiginlega með unglingunum í
kaffi, til þess að kynna sér starfið.
Ungmennastarf með þátttöku
foreldra, þar sem þeir halda utan
um ákveðinn hóp er framkvæman-
legt forvarnarstarf og mjög gef-
andi. Starfsemi Eddu nr. 1 hefur
sýnt þetta.
Við hvetjum foreldra tii að
kynna sér málið. Foreldrar, komið
með börnum ykkar í Laugardals-
höllina með svefnpoka undir hend-
inni, takið þátt í bindindishelgi fjöl-
skyldunnar.
JÓNA KARLSDÓTTIR,
gæslumaður.
Ríkisútvarpið er
menningarstofmm
Frá Ragnhildi Kristjánsdóttur:
OPIÐ bréf til Elsu B. Valsdóttur.
Ég hef hlustað á morgunpistla
þína í útvarpinu og spyr þig nú
hvort þú viljir láta selja Þjóðleikhús-
ið og Sinfóníuhljómsveitina þannig
að þetta tvennt verði rekið án ríkis-
styrkja. Ég álít Rás I í ríkisútvarp-
inu alveg sambærilega menningar-
stofnun, sem þjónar þó miklu stærri
hluta þjóðarinnar. Varla finnst þér
rétt að ríkisstyrkja menningarefni
fyrir fólk eftir búsetu.
Engum dettur í hug að einkarek-
in útvarpsrás yrði rekin á sama
hátt og Rás 1 er nú, en að henni er
þjóðarsómi.
RAGNHILDUR
KRISTJÁNSDÓTTIR,
Steinholtsvegi 7, Eskifirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
( N
BIODROGA
snyrtivörur