Morgunblaðið - 27.11.1997, Page 64
54 FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Nóvembersprengja
á útigöllum
og úlpum
Gallar )
St 110 Áöur kr. St90CÍ nú kr. 2.900
St. 120-140 Áður kr. iOOO' nú kr. 5.900
St. 150-170 Áður kr. &900" nú kr. 6.900
Úlpur eldri gerðir '
St. 140-150 kr. 2.900
St. 120-150 Áður kr. 15900" nú kr. 4.900
St. 160-170 Áður kr. 7,900' nú kr. 5.900
Brettaúlpur 7
St. 160-170 Áður kr.8900" nú kr. 6.900
L E I G A N
ÚTIVISTARBUÐIN
við Umferðamiðstöðina
SÍMI 551 9800
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
I DAG
SKAK
Umsjón Margcir
Pétursson
Staðan kom upp á ungl-
ingameistaramóti íslands
um síðustu helgi. Bragi
Þorfinnsson
(2.215) var með
hvítt og átti leik,
en Bergsteinn
Einarsson (2.195)
hafði svart.
22. Rxh5! - Dxh2+
(Reynir að bjarga
sér út í endatafli,
því 22. - gxh5 23.
Dxh5+ - Rh6 24.
Hf6 er vonlaust
með öllu) 23. Dxh2
- Rxh2 24. Rf6+
- Kg7 25. Kxh2 -
Re5 26. Rd5 -
Rxc4 27. Rxe7 -
d3 28. Hef2 - d2
29. Hxf7+ - Kh6
30. Bcl - Re3 31. Bxd2 -
Hxd2 32. Hlf3 og með
skiptamun yfir vann hvítur
auðveldlega.
Jón Viktor Gunnarsson
varð unglingameistari ís-
lands í flokki 20 ára og
yngri, en Bragi Þorfinnsson
varð annar.
Um helgina:
Skemmtikvöld skáká-
hugamanna föstudags-
kvöld kl. 20 i félagsheim-
ili Hellis, Þönglabakka 1
í Mjóddinni í Breiðholti. A
dagskrá: Heimsmeistara-
keppnin í skák sem hefst
8. desember. Hverjir
verða andstæðingar ís-
lensku keppendanna?
HVÍTUR leikur og vinnur
HOGNIHREKKVISI
•'/tó !„, þetta ef bara, 'BIml. órjáLcáa. ■"
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Ánægja með
viðtöl
ÉG VIL leyfa mér að láta
í ljósi ánægju mína og
þakklæti til Ingu Bjarna-
son fyrir viðtöl sem hafa
verið tekin við hana í
ríkisútvarpinu, nú síðast
í þættinum „Á milli
mjalta og messu“ sl.
sunnudag. Inga talar
mannamál, hún er ein-
læg og hreinskilin.
Mættu fleiri taka hana
sér til fyrirmyndar.
Marta
Ragnarsdóttir.
œnBi
Gleraugu týndust
í miðbænum
GYLLT kvengleraugu í
svörtu hulstri týndust
aðfaranótt laugardags-
ins 15. nóvember í mið-
bænum. Ef einhver hefur
séð gleraugun er sá hinn
sami beðinn að hafa sam-
band í síma 554 5439.
Gleraugu í
óskilum
FUNDIST hefur grátt
gleraugnahulstur með
gleraugum í. Uppl. í síma
560 4594.
Dýrahald
Hundur í óskilum
í Kópavogi
Springer Spaniel, brúnn
og hvítur, ómerktur
hundur er í óskilum hjá
Hundaeftirliti Kópavogs.
Þeir sem kannast við
hundinn hafi samband í
síma 554 1171.
Ljósmyndari/Ásdís.
Börn að leik.
n
Víkverji skrifar...
STARFSEMI leikhúsa felst í
fleiru en leiksýningum. Um
þessar mundir standa yfir heim-
sóknir grunnskólanema í Borgar-
leikhúsið, sem eru nú orðnar fastur
liður í starfseminni, því þetta er
þriðja árið í röð, sem grunnskólun-
um er boðið að senda nemendur
sína í leikhúsið.
Börnin mæta snemma dags og
þeim eru kynntir allir krókar og
kimar leikhússins; ekki aðeins leik-
arinn og sviðið, heldur og smíða-
verkstæði, málarasalur, ballett og
búningsherbergi svo dæmi séu tek-
in.
xxx
HÁSKÓLI íslands - Endur-
menntunarstofnun býður upp
á námskeið um William Shakespe-
are og Hamlet, sem starfsfólk Þjóð-
leikhússins hefur umsjón með, en
Hamlet verður frumsýndur í Þjóð-
leikhúsinu á annan í jólum.
Á þessu námskeiði flytja Þjóð-
leikhúsmenn fyrirlestra um skáldið
og verkið og þátttakendur fá að
fylgjast með æfíngum í leikhúsinu
og hittast svo á nýju ári til að ræða
verkið og sýninguna við fyrirlesara
og þá, sem að sýningunni standa.
Þannig vinna leikhúsin að því að
ala upp og fræða leikhúsgesti um
sem flest, sem að starfsemi þeirra
lýtur, og leikur enginn vafi á, að
það starf er þakklátt og skilar leik-
húsunum fleiri og ánægðari áhorf-
endum en ella væri.
xxx
SVANHILDUR Konráðsdóttir,
ritstjóri Dagsljóss, hefur sent
Víkveija eftirfarandi bréf vegna
skrifa hans í síðustu viku:
„Það er ánægjulegt að sjá að
nýhafin bókmenntagagnrýni Dags-
ljóss hefur vakið athygli þína og
er von mín að sá áhugi haldist
óskertur fram eftir vetri. Ég get
hins vegar ekki orða bundist yfir
þeim misskilningi sem pistill þinn
byggir á er þú gerir athugasemd
við önnur störf Kolbrúnar Berg-
þórsdóttur og birtingu Dags á bóka-
gagnrýni Dagsljóss. Eins og þú rek-
ur réttilega birti Dagur dóm Kol-
brúnar Bergþórsdóttur um Eldfórn-
ina og Góða nótt Silja á laugardegi
15.11. ogþriðjudegi 18.11. Umfjöll-
un Kolbrúnar í Dagsljósi var hins
vegar sjónvarpað á fímmtudegi
13.11. Kolbrún starfar sem blaða-
maður á Degi, hún er ekki bók-
menntagagnrýnandi blaðsins, held-
ur sinnir hún eingöngu bókagagn-
rýni í Dagsljósi.
Það er hins vegar annað mál að
ritstjórn Dags virðist ekki vaxa í
augum að endurnýta efni úr öðrum
miðlum og nægir þar að nefna pist-
il Illuga Jökulssonar, sem fluttur
er á Rás 2 á fimmtudögum og birt-
ur í Degi morguninn eftir. Þeim
Dagsliðum láðist hins vegar að geta
þess í vikunni að um endurbirtingu
á gagnrýni Kolbrúnar væri að ræða,
en slíkt var að sjálfsögðu skilyrði
er farið var fram á títtnefnda endur-
birtingu, og hefur það skiljanlega
valdið ruglingi Víkveija. Á þessu
verður gerð tafarlaus breyting og
munu því hvorki lesendur Dags né
áhorfendur Dagsljóss velkjast í vafa
um það hvað er hvað og hvur er
hvers.
Víkveiji nefnir einnig aðra gagn-
rýnendur í Dagsljósi og ég get ekki
betur skilið en látið sé að því liggja
að óeðlilegt sé að þetta fólk gegni
ritstörfum á öðrum fjölmiðlum. Silja
Aðalsteinsdóttir, menningarritstjóri
DV, er, auk Kolbrúnar, sú eina sem
fellur undir þennan hatt, en eins
og Víkveija ætti að vera kunnugt,
slíkur menningarrýnir sem hann er,
sinnir hún ekki leiklistargagnrýni á
því blaði. Gagnrýnandastarf í Dags-
ljósi er hlutastarf og þar að auki
árstíðabundið og því með öllu úti-
lokað að menn sinni því einvörð-
ungu. Hins vegar er þess gætt í
hvívetna að hagsmunaárekstrar
verði ekki á milli gagnrýni og ann-
arra starfa gagnrýnenda og sem
dæmi um slíkt er óháður kvik-
myndagagnrýnandi kallaður til
þegar fjallað er um íslenskar kvik-
myndir, en þar er Ásgrímur Sverris-
son helst til kunnugur skyldum
aðilum."