Morgunblaðið - 07.12.1997, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.12.1997, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ TÓNLISTARFÉLAGSKÓRINN, Kátir piltar og Hljómsveit Reykjavíkur. Fremst á myndinni eru einsöngvararnir og stjórnandinn, f.v. Arnór Halldórsson, Guðrún Ágústsdóttir (móðir Kristins Hallssonar), stjórnandinn Páll ísólfsson, Gunnar Pálsson, Elísabet Einarsdóttir og Sigurður Markan. í hljómsveitinni má m.a. þekkja Björn Ólafsson, Karl 0. Runólfsson, Hauk Gröndal, Indriða Bogason, Skafta Sigþórsson, Heinz Edelstein, Fritz Weiszshappel og Bjarni Böðvarsson. Söngnrinn hljómaði í Forum Steindórum Nú er tími jólatónleikanna. Pétur Péturs- son rifjar upp „merkasta tónlistarvlðburð- inn“, Sköpun Haydns, á jólaföstu 1939. Sal- urinn var fullskipaður, tónleikagestir nær tvö þúsund enda stærsta verkefni sem ís- lenskir tonlistarmenn höfðu leyst af hendi. MARGT er nú rætt og ritað um ómi, „bumba sé knúð og bogi dreg- nauðsyn þess að reisa hús við hæfi inn, blásinn lúður og málmgjöll hljómlistar. Höll, þar sem söngvar slegin" eins og Einar Benediktsson kvað í ljóði sínu - Dís- arhöll. Þessa dagana, um miðjan desembermán- uð árið 1939 voru reyk- vískir hljómlistarmenn og söngvarar, frægir einsöngvarar og kórfé- lagar ásamt hljóðfæra- leikurum á hlaupum um gjörvalla Reykja- víkurborg, í því skyni að flytja stóla og bekki, auk palla og hverskyns búnaðar. Áfangastaður þeirra var hús eitt mikið „vestast í Vesturbæn- um“, bifreiðaskáli Steindórs Einarsson- ar. I þessum rúmgóðu salarkynn- um Steindórs átti að halda hljóm- leika, einstæða í sögu tónlistar. Svo mikill hugur var í forgöngu- mönnum að þeim kom helst til hugar að jafna hljómleikasalnum við samkomuhöll í Kaupmanna- höfn, sem víðkunn var. FORUM STEINDORUM nefndu Tónhstar- félagsmenn bifreiðaskála Stein- dórs. Þrátt fyrir vætu og hvass- viðri töldu tónlistarmenn ekki eftir sér sporin. Haukur Gröndal og fé- lagar hans stormuðu með stóla og bekki, með storminn í fangið í bók- staflegri merkingu. Ollum hljóp Steindór Einarsson bflakóngur. Ásrún Sigurðardóttir, eiginkona Steindórs. kapp í kinn, að óskadraumur söng- vísra íslendinga rættist. Að flytja hið mikla tónverk „Sköpunina" eft- ir Joseph Haydn. Morgunblaðið segir frá því í fréttagrein að þeir sem skoðað hafi hið myndarlega hús Steindórs full- yrði, „að það sé engu síðra, sem konsertsalur, en Forum í Kaup- mannahöfn, en þar syngja og spila frægustu listamenn veraldar". Svo segir blaðið frá æfingum, sem verði um hundrað talsins. Kór Tónlistar- félagsins og Kátir félagar, alls um 70 manns, syngja, en auk þeirra nafnkunnir einsöngvarar. Hljóm- sveit Reykjavíkur spilar en Anna Pjeturs leikur á flygil. Flestir þeirra, sem tóku þátt í hljómleikunum í desembermánuði 1939 eru fallir frá. Árið 1989, þegar hálf öld var liðin frá þessum ein- stæðu og minnisverðu hljómleik- um, gengust Guðrún Aradóttir, Ágúst Bjamason og ýmsir góðir hljómlistarmenn, söngvarar og hljóðfæraleikarar, fyrir því að minningartafla var sett á bílaskála Steindórs, sem gegnt hafði hlut- verki hljómleikahallar. Anna Haar- de og Fjóla, dætur Steindórs Ein- arssonar og Ásrúnar Sigurðardótt- ur konu hans, áttu einnig drjúgan þátt í því lofsverða framtaki. Anna segir að sér sé enn í minni atorka og dugnaður eldhuganna í fram- varðasveit tónlistarmanna. „Það er alveg ótrúlegt hvað hægt er að fá fólk til að leggja á sig, ef það finnur að eitthvað á að gera sem það hefur áhuga fyrir. Stundvísi og dugnaður þessa stóra hóps hefur reynst með ágætum, hvort sem það er kallað að.nóttu eða degi, því að síðustu æfingarnar sem eru í útvarpssalnum geta ekki byijað fyrr en kl. 11 að kvöldi til að hægt sé að ná hópnum saman,“ sagði Páll Isólfsson stjórnandi. Myndin sem fylgir greininni var enda tekin í útvarpssal á 4. hæð í Landssímahúsinu. Gott Nouveau-ár BEAUJOLAIS Nouveau-vínin eru komin í verslanir og eftir því sem ég kemst næst er boðið upp á fjögur mismunandi vín hjá ATVR að þessu sinni, frá fram- leiðendunum Georges Duboeuf, Georges Blanc, Bouchard Ainé og Piat. Verð þeirra er yfírleitt í kringum eitt þúsund krónur. Fleiri Nouveau-vín eru í umferð á veitingastöðum en eru ekki fá- anleg í ríkinu þar sem skilyrði fyrir tímabundinni sölu víns er að önnur tegund frá sama fram- leiðanda sé í föstu úrvali ÁTVR. Það hefúr verið mikið rætt og ritað um árganginn 1997 og á flestum víngerðarsvæðum Evr- ópu iofar hann mjög góðu. Það á við um bestu héruð Frakklands en einnig t.d. Italíu. Þaðan ber- ast fréttir um að vín ársins 1997 verði góð til framúrskarandi en að framleiðslumagnið sé áð meðaltali um 15% minna en á síðasta ári og allt að 20% minna í einstökum héruðum á borð við Toskana. Sumir ftalskir sér- fræðingar hafa raunar spáð þvi að þetta verði besta vínár und- anfarinnar hálfrar aldar þótt reynslan eigi auðvitað eftir að leiða t Ijós hvort að árgangurinn standi undir slfkum væntingum. Fyrstu vín ársins frá Evrópu eru Nouveau-vínin sem í héruð- um utan Beaujolais eru gjarnan nefnd Primeur og á Italíu Novello. Þegar íjallað er um Nouveau- vín verður ávallt að slá ákveðna varnagla. Þetta er létt og þægi- leg vín, sem veitt geta mikia ánægju. Hins vegar eru þetta ekki þungaviktarvín. Þau eru til að mynda ekki til þess fallin að bera fram með villibráð, lambi eða þungum, bragðmiklum rétt- um. Þetta eru vín sem ber að drekka kæld og taka mátulega alvarlega. Þau henta t.d. vel með jólahlaðborðum eða í boð- um í staðinn fyrir hið hræðilega jólaglögg. Þau Qögpir Nouveau-vín sem eru í almennri sölu standa ágæt- lega undir væntingum. Bouchard-vínið einkennist af þroskuðum rauðum berjum, það hefur þokkalega þyngd og minnti mig í fyrstu á nýbakað beijapæ. Piat Nouveau hefur hreinan og þægilegan ávöxt í nefi, fersk vínber og rauð skógarber. í munni er það hreint og tært en hefur ekki mikla endingu. Nouveau-vín franska þriggja stjörnu kokksins George Blanc, sem í hjáverkum framleiðir hin ágætustu vín í suðurhluta Bour- gogne, er nokkuð þyngra með sætum og Ijúfum ilm og kröft- ugu nokkuð sýrumiklu bragði í upphafi sem mildast fljótt og verður að kremkenndu og mjúku beijasælgæti. Framleiðandinn George Du- boeuf er gjaman nefndur kon- ungur Beaujolais og hann klikk- ar ekki nú frekar en fyrr. Raun- ar er vínið ekki alveg saman- burðarhæft við hin þijú, þar sem að það er hið eina sem flokkast sem Beaujolais-Villa- ges, það er þrúgurnar koma af betri svæðum Beaujolais-héraðs- ins. Nouveau-vín Duboeufs er hið þyngsta og mesta af þessum fjórum. Stflhreint og glæsilegt Nouveau-vín, er einkennist af þéttum og ungum ávexti og góðu jafnvægi allra þátta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.