Morgunblaðið - 06.01.1998, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Stöðug aukning í ræktun grænmetis með raflýsingu í gróðurhúsum yfír veturinn
_ Morgunblaðið/Ásdís
UPPLYSTIR garðyrkjubændur í tómatræktun að vetri, f.v. Helgi Jóhannesson, Georg Ottósson, Guðjón Birgisson og Kjartan Ólafsson.
BLÓM hafa í allmörg ár
verið framleidd hér í
gróðurhúsum yfir vetur-
inn. Lýsing hefur einnig
lengi verið notuð við
uppeldi plantna við hefðbundna
grænmetisræktun í gróðurhúsum en
tæknin við vetrarræktun grænmetis
er tiltölulega ný af nálinni. Þó hefur
um árabil verið framleidd steinselja í
gróðurhúsum allt árið. Fyrir um það
bil fimm árum hófu garðyrkjubænd-
ur, í Hveragerði og á Laugalandi í
Borgarfirði, tilraunaframleiðslu á
gúrkum samkvæmt fyrirmynd frá
Noregi. „Við vorum heppnir með
byrjunina, þessum frumkvöðlum
tókst að framleiða mjög góða vöru
strax í upphafi og hefur það haft
mikið gildi fyrir alla þróunina síðan,“
segir Georg Ottósson, garðyrkju-
bóndi á Jörfa á Flúðum.
Síðan hefur vetrarræktun græn-
metis aukist ár frá ári. Kjartan
Ólafsson, formaður Sambands garð-
yrkjubænda, telur að 2-3 þúsund
fermetrar hafi bæst við í vetur og
áætlar að nú séu 12.500 fermetrar í
gróðurhúsum með raflýsingu.
Vetrartómatar og salat allt árið
Fyrir þremur árum hófst tilrauna-
lýsing á tómötum á Melum á Flúð-
um. Guðjón Birgisson garðyrkju-
bóndi segist fá góða uppskeru, svip-
aða og í sumarræktuninni en jafnari.
Guðjón segist greiða yfir 800 þúsund
á mánuði fyrir rafmagnið. „Dýrt er
að framleiða tómatana og framleiðsl-
an tiltölulega lítil þannig að þeir hafa
komið inn á markaðinn sem valkost-
ur þeirra sem vilja meiri gæði,“ segir
hann.
Guðjón á Melum sáði fyrir nýjum
tómatplöntum 20. október og eru
fyrstu tómatarnir væntanlegir á
markaðinn nú í janúar. Er það nærri
þremur mánuðum fyrr en í venju-
legri ræktun því fyrstu tómatarnir af
sumaruppskerunni koma ekki fyrr
en í apríl.
Helgi Jóhannesson í Garði á Flúð-
um hefur ræktað blaðsalat af ýmsum
gerðum samfellt í heilt ár. „Ég var
með salat á sumrin og sá þama
markað yfir veturinn einnig. Salatið
fer mest til veitingahúsa," segir
Helgi. Uppskeran er jöfn allt árið,
sáð er í eitt bil gróðurhússins í
hverri viku og skorið upp úr öðru.
Þannig fást 10 uppskerur úr hverju
bili á ári og veitingahúsin geta geng-
ið að þessari afurð vísri allt árið.
Jarðarberin auka fjölbreyt nina
Georg á Jörfa og Magnús Skúla-
son í Hveratúni í Laugarási lýsa
paprikuplöntur og eru íslenskar
paprikur nú á markaðnum allt árið.
Georg segist hafa verið með
paprikuuppskeru frá því í febrúar og
fram undir jól og nú sé framleiðsla
hjá Magnúsi. Hann segir að þetta sé
áhugaverð tilraun. „Ekki hefur tek-
„Græna
stóriðjan“
Mikil aukning hefur orðið í vetrarræktun
grænmetis með notkun raflýsingar.
Fjölbreytnin eykst og í svartasta skamm-
deginu eru til dæmis á boðstólum íslensk
jarðarber, salat, paprika, tómatar og
gúrkur. í samtölum við Helga Bjarnason
vekja garðyrkjubændur athygli á mögu-
leikum grænu stóriðjunnar.
JARÐARBERJARÆKTUN er nýjasta greinin
í vetrarræktun grænmetis.
ist að fá nógu mikla paprikuupp-
skeru á sumrin, verðið hefur því ver-
ið hátt og skaðað markaðinn. Þau
löngu gráu tímabil sem við eigum
alltaf von á hafa farið illa með plönt-
urnar og dregið úr uppskerunni.
Með því að nota raflýsingu til að
halda orku í plöntunni á þessum
tímabilum og gjörlýsa yfir veturinn
hefur okkur tekist á fá mjög góða
uppskeru eftir árið,“ segir Georg.
Ög nú er hafin á Jörfa tilrauna-
framleiðsla á jarðarberjum. Ná-
granni Georgs, Órn Einarsson í Silf-
urtúni, hefur framleitt jarðarber í
plasthúsum á sumrin en vetrarrækt-
unin hjá Georg er nýjung. „Þessi
ræktun gefur góðar vonir en hún er
enn á tilraunastigi. Vel hefur gengið
að selja enda eru innfluttu berin dýr
á þessum tíma og léleg að gæðum,“
segir Georg.
„Ég fór út í þetta til að auka fjöl-
breytnina. Ég hef fylgst með tilraun-
um með vetrarræktun í Noregi.
Gúrkuræktunin er komin lengst á
þróunarbrautinni og góður árangur
hefur náðst í þeirri grein. Við erum
hins vegar á litlum markaði og ekki
þýðir að allir fari í það sama, það
verður bara til þess að markaðurinn
hrynur. Ég hef sérstaklega fylgst
með tilraunum með jarðarberja-
ræktun í Noregi og jafnframt kort-
lagt markaðinn hér heima. Yfir vet-
urinn eru innfluttu berin lakari að
gæðum og hækka í verði og mér sýn-
ist að við það skapist grundvöllur til
að framleiða þau með þeim kostnaði
sem fylgir lýsingu," segir Georg.
Vinna allt árið
Vetrarræktun grænmetis skapar
orðið umtalsverða vinnu, ekki síst á
Flúðum þar sem margir garðyrkju-
bændur hafa tekið hana upp. Guðjón
Birgisson á Melum segir að það
skipti þó meira máli að hægt sé að
ráða starfsfólk allt árið og þjálfa það
upp í þessum störfum. Áður var
vinnan í gróðurhúsunum árstíða-
bundin, fólk var ráðið á sumrin en
svo var lítið að gera yfir veturinn.
Sjö vinna nú í garðyrkjustöðinni á
Melum, að meðtöldum eigendunum,
en ef ekki hefði verið farið út í vetr-
arræktun væru þar helmingi færri
starfsmenn í vetur. „Maður finnur að
starfsfólkið metur það að hafa vinnu
allt árið,“ segir Georg Ottósson.
Hefur vetrarræktunin því mikil
áhrif á atvinnulífið í garðyrkjuhverf-
unum. Bændurnir fá betri nýtingu á
fjárfestingar sínar og starfsfólk.
Helgi Jóhannesson í Garði segir að
vegna mikils kostnaðar við lýsingu
þurfi veltan að tvöfaldast í garð-
yrkjustöð sem fjárfesti í tækjum til
lýsingar. Telur hann að það takist ef
ræktunin heppnast. Þetta sé eins og
að tvöfalda stærð garðyrkjustöðvar-
innar.
Garðyrkjubændurnir á Flúðum
segja að ýmis vandamál komi upp í
vetrarræktun eins og allri annarri
ræktun og menn séu alltaf að læra
meira. „Þetta er til dæmis ákveðinn
línudans á vorin, hvorki má lýsa og
mikið né of lítið. Þá þarf græna fing-
ur, ekki þýðir að treysta eingöngu á
tæknina," segir Helgi.
„Við erum að auka hlutdeild okkar
í markaðnum. Það styrkir markaðs-
stöðu okkar gagnvart innfluttu
grænmeti að geta verið lengur með
okkar afurðir á markaðnum. Þannig
þjónum við neytendum betur, annars
er hætt við að þeir gleymi gæðum ís-
lenska grænmetisins," segir Helgi.
Áhersla á gæðin
Georg Ottósson, sem jafnframt er
stjórnai-formaður Sölufélags garð-
yrkjumanna, segir framleiðslu ís-
lenska vetrarræktaða grænmetisins
afar háð gæðunum. „Við getum ekki
vænst þess að fá hærra verð fyrir af-
urðirnar nema þær séu betri en inn-
fluttar." Vörunum er stillt upp hlið
við hlið í verslunum og vegna mikils
framleiðslukostnaðar hér yfir vetur-
inn telja garðyi-kjubændur sig yfir-
leitt þurfa að fá mun hærra verð fyr-
ir framleiðslu sína en nemur verði á
innfluttu grænmeti. Það er þó mis-
jafnt eftir tímabilum, eftir því hvern-
ig stendur á uppskeru í helstu fram-
leiðslulöndum.
Kjartan segir að það hafi sýnt sig
að neytendur vilji frekar íslenska
grænmetið og það sé skylda fram-
leiðenda að auðkenna framleiðslu
sína. Georg Ottósson viðurkennir að
ekki sé nógu vel greint á milli inn-
flutts grænmetis og innlends, það
komi til dæmis fyrir að innflutta
grænmetið sé í kössum undan ís-
lensku grænmeti í búðunum. Það sé
ekki nógu gott en unnið sé að úrbót-
um. Þannig segir hann að lagt sé í þá
vinnu að merkja sérstaklega hverja
einustu papriku sem fer á markaðinn
í vetur.
Mismunandi
samkeppnisstaða
Yfir veturinn falla niður verndar-
tollar og grænmeti flutt til landsins
án allra tolla og gjalda. Hvernig
gengur garðyrkjubændum að keppa
á þeim grundvelli? Kjartan Ólafsson
segir að íslenskir garðyrkjubændur
þurfi ekkert að óttast ef þeir fái að
búa við sömu framleiðsluskilyrði og
félagar þeirra í nágrannalöndunum.
Hins vegar vanti mikið upp á að skil-
yrðin séu jöfn. Stutt sé við bakið á
þessari framleiðslugrein með marg-
víslegum hætti erlendis. Kjartan
nefnir orkuverðið sem dæmi en raf-
magnið er hæsti kostnaðarliðurinn
við vetrarræktunina.
íslenskir garðyrkjubændur bera
sig mikið saman við norska starfs-
bræður sína enda er tæknin þaðan
komin. Kjartan segir að norskir
garðyrkjubændur greiði rúma krónu
fyrir kílówattstundina vegna rækt-
unarlýsingar í gi-óðurhúsum. Og í
nýlegri kynnisferð garðyrkjubænda
til Kanada kom fram að þar greiða
bændur 1,25 kr. fyrir kWst sem þeir
nota við lýsingu. Kjartan segir að ís-
lenskir garðyrkjubændur þurfi að
greiða tvö- eða jafnvel þrefalt þetta
verð fyrir orkuna, það er að segja
3,07 krónur á kílówattstundina auk
fastagjalds.
„Við erum ekki að biðja um styrki,
aðeins jafna samkeppnisstöðu. Við
verðum hins vegar að vera pólitískt
meðvitaðir um samhengi hlutanna.
Mismunurinn kemur fram í verði af-
urðanna til neytenda. Eigum við að
sætta okkur við hærra verð á mark-
aðnum eða styrkja framleiðsluna
eins og við sjáum í nágrannalöndum
okkar? Ekki er um aðrar leiðir að
ræða,“ segir Kjartan.
„Kanadamenn selja orku til
Bandaríkjanna. Þeh' gætu hæglega
selt til New York þá orku sem nú fer
til vetrarræktunar á grænmeti og
fengið mun hærra verð fyrir hana.
Það er hins vegar stefna stjórnvalda
að nýta orkuna sem mest til atvinnu-
sköpunar í landinu. Sömu sögu er að
segja frá Noregi, þeir hafa rutt
brautina í þessari atvinnugrein og
líta stjórnvöld á vetrarræktun græn-
metis sem nýja stóriðju. Ég tel að
hér á landi þurfi að líta til fleiri þátta
en stóriðju í málmiðnaði eða útflutn-
ing á orku með sæstreng þegar hug-
að er að sölu raforku til atvinnuupp-
byggingar. Það er til dæmis búið að
sanna sig að vetrarræktun á græn-
meti er góður kostur sem auðvelt er
að auka með skynsamlegri verðlagn-
ingu orkunnar," segir Kjartan.
Bindur koltvísýring
Kjai'tan og Georg telja að mögu-
leikar séu á útflutningi grænmetis
sem ræktað er í gróðurhúsum yfir
vetrartímann og þeir fari vaxandi
með árunum. Georg talar um græna
stóriðju í þessu sambandi, bendh' á
að heimsmarkaðurinn opnist smám
saman með endurskoðun alþjóðlegra
viðskiptasamninga. Þá komi breyttar
aðstæður í umhverfismálum íslend-
ingum til góða.
,Auknar kröfur í mengunarvörn-
um sem kalla á dýrar lausnir garð-
yrkjustöðva í Hollandi og víðar og
lækkandi framleiðslustyrkir Evrópu-
sambandsins mun leiða til hækkandi
heimsmarkaðsverðs. Ég tel að
Kyoto-ráðstefnan um takmörkun á
losun koltvísýrings geti gjörbreytt
stöðunni okkur í hag. Ræktunin
bindur koltvisýring og við hitum upp
gróðurhúsin og lýsum með mengun-
arlausum orkugjöfum. Ræktun í öðr-
um Evrópulöndum bindur einnig
koltvísýring en í flestum landanna
eru gróðurhúsin hins vegar hituð
upp með orku sem framleidd er með
kolum, gasi og olíu sem mengar and-
rúmsloftið og rafmagn frá kjarn-
orkuverum er gjarnan notað við lýs-
inguna. Við eigum að nýta okkur
þessa möguleika,“ segir Georg Ott-
ósson.